Morgunblaðið - 03.06.1982, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 03.06.1982, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1982 27 Fjölbreytt landsmót harmonikkuunnenda: Fjöldi harmonikku- leikara á Lækjartorgi Fyrsti fundur nýkjör- innar hreppsnefndar FYRSTA landsmót nýstofnaös' Landssambands Harmonikkuunn- enda verður haldið í Reykjavík dag- ana 4.—6. júní og hefst nk. fostudag Vitni vantar SKEMMDARVARGAR unnu mikið tjón á jarðýtu ístaks, á Kjalarnesi skammt frá Saltvík, aðfaranótt laug- ardagsins, svo sem fram kom í frétt í Mbl. í gær. Allar rúður í jarðýtunni, ellefu að tölu, voru brotnar, allir mæl- ar og takkar í mælaborði og Ijósker jarðýtunnar voru mölbrotin. Þá réðust skemmdarvargarnir á gröfu sem stóð skammt frá og einn- ig var tjón unnið á bifreið, sem stóð við bragga við Ullarnesbrekku í Mosfellssveit. Þeir sem kunna að hafa orðið varir við skemmdar- vargana að verki, eða grunsamleg- ar ferðir aðfaranótt laugardagsins eru vinsamlega beðnir að gera Rannsóknarlögreglunni í Hafnar- firði viðvart. kl. 4 ef veður leyfir, á Lækjartorgi með uppákomu harmonikkuleikara víðs vegar að af landinu, þar sem mikill fjöldi harmonikkuleikara mun leika. Á föstudagskvöld verður síðan stórdansleikur í Sigtúni þar sem margir harmonikkuleikarar munu þenja nikkur sínar og á laugar- dagskvöld mun landsmótið halda áfram í Festi í Keflavík, með kvöldskemmtun. Áætlunarferðir verða frá Umferðarmiðstöðinni kl. 8 um kvöldið og gestum úr Reykja- vík skilað aftur á sama stað eftir skemmtunina. Á sunnudag kl. 2 verður siðan skemmtifundur í Glæsibæ, þar sem margir harm- onikkuleikarar koma fram, bæði stærri hópar, einleikarar og dúett- ar. Allir harmonikkuunnendur ásamt gestum eru velkomnir á þessar skemmtanir að sögn Bjarna Marteinssonar formanns Félags harmonikkuunnenda í Reykjavík. Kgilstoðum, 1. júní. FYRSTI fundur nýkjörinnar hreppsnefndar Egilsstaðahrepps var haldinn í dag. Þar fór fram m.a. oddvitakjör og ráðning sveitarstjóra. Framsóknarmaðurinn Sveinn Þórarinsson, verkfræð- ingur, var kjörinn oddviti með 5 atkvæðum en tveir sátu hjá. Varaoddviti var kjörinn sjálfstæðismaðurinn Ragnar Steinarsson, tannlæknir, með öllum greiddum atkvæðum. Guðmundur Magnússon var endurráðinn sveitarstjóri, en þetta er 3ja kjörtímabilið sem hann gegnir því starfi. Áður var Guðmundur oddviti Eg- ilsstaðahrepps um 8 ára skeið. Það er til tíðinda að kona tekur nú í fyrsta sinn sæti í hreppsnefnd Egilsstaða- hrepps. Er það Vigdís Svein- björnsdóttir, kennari, af B-lista Framsóknarflokks. Á fundinum var samþykkt að flokkarnir, sem sæti eiga í hreppsnefnd, Alþýðubandalag, Framsóknarflokkur og Sjálf- stæðisflokkur, geri með sér málefnasamning, en sérstakur meirihluti verði ekki myndað- ur. Nú eru rétt 35 ár síðan fyrsta hreppsnefnd Egils- staðahrepps kom saman til fyrsta fundar, en í henni áttu sæti: Sveinn Jónsson, Ari Jónsson, Pétur Jónsson, Björn Sveinsson og Stefán Péturs- son. Ólafur Flateyri: Gamla Kaupfélagið brann til kaldra kola Flateyri l.júní. GAMLA Kaupfélagið hér á Flateyri varð eldi að bráð á hvítasunnudag. Brann það til kaldra kola á mjög skömmum tíma en engan sakaði og ekki komst eldur í nærliggjandi hús. Það var um klukkan 19.00 að eldurinn kom upp. Höfðu þá nokkrir drengir borð eld að húsinu og brann það til kaldra kola á að- eins 10 mínútum. Drengina sakaði ekki og komst eldurinn ekki yfir í trésmíðaverkstæðið Hefil, sem stendur rétt hjá gamla húsinu. Húsið, sem var í eigu Kaupfélags Önfirðinga, var um 100 ára gamalt og friðað, en dregizt hafði að gera við það og var það því tómt og ólæst. Fréttaritari. Þýskir þingmenn í boði Alþingis Undanfarna daga hefur dvalið hér á landi í boði Alþingis þing- mannasendinefnd frá Landsþing- inu í Schlewig-Holstein, sem að- setur hefur í Kiel. Formaður nefndarinnar er forseti Lands- þingsins, dr. Helmut Lemke, og alls eru í nefndinni tíu þingmenn og embættismenn. Hafa þeir átt viðræður við íslenska þingmenn, embættismenn o.fl. og ferðast um landið. Skemmtun Sjómannadagsins VEGNA auglýsingar á bls. 59 í Morgunblaðinu sunnudaginn 30. maí sl., þar sem auglýst er skemmt- un Sjómannadagsins að Hótel Sögu laugardaginn 5. júní, og að skemmti- atriði verði söngflokkurinn Los Paraguayos, óskast eftirfarandi tek- ið fram: Laugardaginn 29. maí kl. 14.00, eftir að búið var að fullvinna sunnudagsblað Morgunblaðsins, hafði umboðsmaður söngflokksins í Kaupmannahöfn samband við Sjómannadagsráð og tjáði honum, að tveir af félögum söngflokksins hafi lent í bílslysi og því gæti ekk- ert orðið af komu þeirra til lands- ins. Ekki reyndist mögulegt að draga auglýsinguna til baka úr Morgunblaðinu, þar sem blaðið var fullunnið. Skemmtunin verður eftir sem áður, sem fyrr greinir, en með öðrum skemmtiatriðum og verður miðasala nk. fimmtudag og föstudag kl. 17—19 og laugardag kl. 14—17 að Hótel Sögu. Nýkjörin hreppsnefnd Egilsstaðahrepps á fyrsta fundi sínum ásamt sveitar- stjóra og fundarritara. Egilsstaðin SÆNSKA (:DUX) HEILSURÚMIÐ Vaknar þú stirður á morgnanna? Ert þú sífellt að bilta þér um nætur? Færðu í bakið þegar þú liggur í rúminu þínu? Ef eitthvað af þessu á viðþig.gæti þaðverið slæmu rúmi um að kenna. DUX-springdýn- an er hönnuð með það í huga að hvíla líkam- ann eins vel og unnt er. Hún lagar sig að lík- ama þínum. og styður við hann. DUX heilsurúmin veita líkama þínum að- hlynningu og auka daglega vellíðan. DUX heilsurúmin eru fyrir alla sem þurfa á góðri hvíld að halda hvort sem það eru sjúklingar eða hraustir íþróttamenn. Góð hvíld og góð- ur svefn er oft besta lækningin við mörgum kvillum. DUX heilsurúmin hafa hjálpað mörgum. Gefðu gaum að heilsu þinni. Einstaklingsrúm 105x200 cm 7.528 kr. m/DUX heilsudýnu. Hjónarúm 183x200 cm 12.200 kr. m/DUX heilsudýnu. DUX springdýnu er hægt að fá stinna og mjúka og eftir máli í hvaða rúm sem er. | )UX AÐALSTRÆTI9 SÍMI27560

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.