Morgunblaðið - 03.06.1982, Page 17

Morgunblaðið - 03.06.1982, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ1982 17 Islenskur heimilisiðnaður: Með sérstæða list- iðnaðarsýningu ÍSLENSKUR heimilisiðnaður mun opna listiðnaðarsýningu í verslun fé- lagsins að Hafnarstræti 3, í dag klukkan 17, og ber sýningin nafnið Nytjaskart. Sýning þessi er tillag listiðnaðar- félagsis til listahátíðar og leitaði Heimilisiðnaðarfélag íslands eftir að taka þátt í þessari sýningu, til að sameina þá þrjá aðila sem þar hafa unnið fyrir verslunina í tugi ára, en þeir eni listiðnaðarvinnustofa Kat- rínar Ágústsdóttur, Jens Guðjóns- sonar og Guðrúnar Vigfúsdóttur. Verkstæði Katrínar mun sýna batik og tauþrykk. Sýningarmun- irnir eru einkum höklar og kjólar úr bómull, ull og silki. Vefstofa Guðrúnar Vigfúsdótt- ur sýnir kjóla með fjölbreytilegum vefnaðargerðum, hökla og tilheyr- andi stólur, og auk þess 3 vegg- teppi sem bera nafnið „Fiskveiðar fyrr og nú“, teikningar að þessu veggteppi gerði Pétur Guð- mundsson, en Guðrún óf og valdi liti. Veggteppi þessi voru sýnd á listiðnaðarsýningu í Lillehamar í Noregi sl. sumar og vöktu mikla athygli. Vinnustofa Jens Guðjónssonar sýnir skartgripi úr silfri og gulli og auk þess skúlptúra úr bronsi. Jens hefur hlotið fjölda viður- kenninga fyrir muni sína og meðal annars voru honum veitt alþjóðleg listiðnaðarverðlaun í Feneyjum í desember sl. Sýningin er opin daglega til 17. júní og á laugardögum frá kl. 9—16. Auk uppstillinga á kjólum og skartgripum munu sýningar- stúlkur sýna fatnaðinn og verður það nánar auglýst síðar. Sýningin er öllum opin og eru þeir munir sem þar eru sýndir til sölu. Nánari upplýsingar eru veittar í verslun- inni Hafnarstræti 3. Þorvarður Elíasson, skólastjóri, afhendir verðlaun þeim Þóri Magnússyni semi-dúx skólans, Jónínu Sigurgeirsdóttur dúx í máladeild og Margréti Þóru Kritsmannsdóttur semi-dúx f þeirri deild. LjAamynd Mbi. Siíurgeir. Verslunarskóli íslands útskrifar 103 stúdenta Verzlunarskóli fslands lauk 77. starfsári sinu þann 28. maí sl„ með því að brautskráðir voru eitthundrað og þrír stúdentar frá skólanum. Alls stunduðu 685 nemendur nám við skólann, í verzlunar- og lærdóms- deild. Þorvarður Elíasson, skólastjóri, hélt tölu við útskriftina og gat þess, að við upphaf síðastliðins skólaárs voru 210 nemendur skráðir til náms í lærdómsdeild. Þar af 107 í 5. bekk og 103 í 6. 8 km af varan- legu slitlagi á Skeiðaveg VEGAGERÐ ríkisins vinnur nú að undirbúningi lagningar varanlegs slitlags á Skeiðaveg í Árnessýslu. Þegar er búið að leggja kafla af var- anlegu slitlagi á veginn, sem nú í sumar á að tengja Suðurlandsveg. Skeiðavegur liggur í framhaldi af Suðurlandsvegi upp hjá Braut- arholti og kvíslast síðan. Áætlað er, að nú í sumar verði lagður 8 km langur kafli. bekk. Þrír nemendur fengu I. ágætiseinkunn i 5. bekk að þessu sinni, en það voru Sigríður Norð- mann 5. X, Guðbjörg Jónsdóttir 5. L og Erna Eiríksdóttir 5. Y. Allir þeir nemendur sem innrit- uðust í 6. bekk í haust, útskrifuð- ust nú með stúdentspróf, 80 úr hagfræðideild og 23 úr máladeild. Fjöldi útskrifaðra stúdenta frá Verzlunarskóla íslands er þá orð- inn 1544, þar af 782 piltar og 762 stúlkur. Úrslit stúdentsprófa urðu þau, að tveir hlutu I. ágætisein- kunn, 40 hlutu I. einkunn, 52 hlutu II. einkunn og níu hlutu III. ein- kunn. Þeir tveir stúdentar sem hlutu I. ágætiseinkunn, voru Gunnlaugur P. Nielsen sem var dúx skólans og Þórir Magnússon semi-dúx. Þeir stunduðu báðir nám við hagfræði- deild skólans. Verðlaun voru veitt fyrir góðan árangur í hinum ýmsu greinum, en einnig bárust skólanum gjafir frá Hljómbæ og Jóni Gunnars- syni, sem nú er 65 ára stúdent frá skólanum. Við útskriftina tóku einnig til máls fulltrúar afmælisárganga og Eyjólfur Sveinsson, forseti NFVÍ. Ytri-Torfustaðahreppur: Hlutfallskosning til hrepps- nefndar í fyrsta sinn í 44 ár Suóarbakka, hvíUsunnudag. í Ytri-Torfustaðahreppi hefur ekki farið fram hlutfallskosning til sveitar- stjórnar í 44 ár, þar til nú að komið hafa fram tveir listar, sem eru þó ekki bornir fram af stjórnmálaflokkum. Þessir listar eru H-listi, borinn fram af framfarasinnuðum kjósend- um og þrír efstu menn hans eru Friðrik Böðvarsson, bóndi á Syðsta-Ósi, Herdís Kristjánsdóttir, kennari, Laugabakka og Björn Ein- arsson, bóndi, Bessastöðum. Hinn listinn er L-listi óháðra kjósenda og þrír efstu menn eru Jón ívar Jóns- son, bóndi á Skarfshóli, Böðvar Sig- valdason, bóndi á Barði, og Þráinn Traustason, trésmiður á Lauga- bakka. Enginn listi kom fram vegna kosningar í sýslunefnd. Benedikt ----<£-1982- UMBOÐSMENN OKKAR VITA ALIT UM STÆKKUNARTILBOÐIÐ SEM GILDIR ALLT ÁRIÐ’82 SPURÐU ÞÁ BARA! MIÐBÆR: Bankastrœti 4 H.P. h/1 Filmur og Vélar Fótóhúsið Týli Fókus Amatörverslunin Ljósmyndast. Þóris Bókabúð Braga, Hlemmi AUSTURBÆR:________________ Glœsibœr H.P. h/í Austurver H.P. h/f Ljósmyndaþjónustan Bókav. Salamýrar Bókav. Ingibjargar Einarsd. Hamrakjör Ljósm.st. Gunnars Ingimarssonar Bókabúðin Grímsbœ BREIÐHOLT:________________ Amarval Embla Rama ÁRBÆR:____________________ Bókav. Jónasar Eggertssonar MOSFELLSSVEIT:__________ Snerra s/1 VESTURBÆR:________________ Bókav. Úllarsfell KÓPAVOGUR:________________ Bókav. Veda Versl. Hlíð GARÐABÆR:_________________ Bókav. Gríma Garðaborg Biðskýlið við Ásgarð HAFNARFJÖRÐUR:____________ Versl. V. Long Biðsk. Hvaleyrarholti Myndahúsíð Bókav. Olivers Steins Versl. Örk KEFLAVÍK:_________________ Hljómval GRINDAVÍK:________________ Víkumesti Versl. Báran SANDGERÐI:________________ Versl. Aldan VOGAR: AKRANES: SIGLUFJÖRÐUR: Bókav. A. Níelssonar Aðalbúðin BORGARNES: ÓLAFSFJÖRÐUR: Kaupf. Borgfirðinga Versl. Valberg BORGARFJÖRÐUR: DALVÍK: Versl. Laugaland Apótek Dalvíkur STYKKISHÓLMUR: AKUREYRI: Apótek Stykkishólms Filmuhúsið GRUNDARFJÖRÐUR: Pedrómyndir Versl. Grund Versl. Jóns Bjamasonar ÓLAFSVÍK: Sigtryggur 8c Pétur Maris Gilsfjörð HUSAVIK: Lyfjaútibúið Bókav. Þórarins Steíánssonar HELLISSANDUR: Kaupf. Þingeyinga Söluskálinn RAUFARHÖFN: PATREKSFJÖRÐUR: Margrét Egilsdóttir Versl. Laufeyjar Böðvarsd. VOPNAFJÖRÐUR: FLATEYRI: Shellskálinn Versl. Greips Guðbjartssonar SEYÐISFJÖRÐUR: BÍLDUDALUR: Apótek Austurlands Versl. Jóns Bjamasonar ESKIFJÖRÐUR: SUÐUREYRI: Elís Guðnason Versl. Lilju Bemódusd. REYÐARFJÖRÐUR: ÍSAFJÖRÐUR: Versl. Gunnars Hjaltasonar Bókav. Jónasar Tómassonar HÖFN: BOLUNGARVÍK: Kaupf. A-Skaítlellinga Virkinn KIRKJUBÆJARKLAUSTUR: HÓLMAVÍK: Kaupf. Skaltfellinga Kaupf. Steingrímsíjarðar VÍK: STRAN D ASÝSLA: Kaupf. Skaftíellinga Bókav. Finnbogastöðum VESTMANNAEYJAR: HVAMMSTANGI: Blaðatuminn Kaupf. V-Húnvetninga Apótek Vestmannaeyja Versl. Sigurðar Pálmasonar HVOLSVÖLLUR: BLÖNDUÓS: Kaupf. Rangœinga Versl. Gimli HELLA: SKAGASTRÖND: Versl. Mosfell Versl. Höfðasport SELFOSS: Hallbjörn Hjartarson Kaupf. Ámesinga VARMAHLÍÐ: Höfn h/f Kaupf. Skaglirðinga Radió 8c Sjónvarpsstoían SAUÐÁRKRÓKUR: STOKKSEYRI: Bókav. Kr. Blöndal Kaupf. Árnesinga Stefán Pedersen HVERAGERÐI: Kaupl. Skaglirðinga Blómaborg ÞORLÁKSHÖFN: Vogabcer Skálinn Kaupl. Árnesinga HHNS PETERSEN HF TRYGGÐU GÆÐIN -TAKTÁ KODAK 91.2

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.