Morgunblaðið - 03.06.1982, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ1982
21
Fræðsluþáttur um hjólbarða:
Skemmdir af völdum höggs
EF HJÓLBARÐI fer á miklum
hraða yfir einhverja hindrun, t.d.
stóran stein, gangstéttarbrún eða
annað álíka, getur höggið orðið
svo mikið að hjólbarðinn rifni,
eða merjist á milli hindrunarinn-
ar og felgubrúnarinnar.
í fyrstu er skemmdin lítil og
óvíst að ökumaður taki eftir
henni, oftast nær sér hann ekki
ástæðu til að stansa og skoða
hjólbarðann, hvað þá skipta um
hann; yfirleitt sér ekkert á hjól-
barðanum utanverðum. En
skemmdin getur aukist, og það á
ýmsa vegu (rifa sem liggur á ská,
er T-laga, eða stjörnulaga).
Skemmd af völdum höggs
kemur sjaldnast strax í Ijós.
Hennar verður fyrst vart eftir all-
langan tíma og þá er orsökin
(þ.e. höggið) oftast nær löngu
gleymd. Enda þótt hjólbarða-
framleiðendur vandi vöru sina og
noti bestu fáanlegu efni og að-
ferðir, er þó fátt sem þeir geta
gert til að koma í veg fyrir
skemmdir af þessu tagi, sem
stafa af ógætilegri meðferð.
(Frá Bílgreinasambandinu)
SPARAÐU
þér ferð á 10—15
staði
Mikiö úrval af boröstofusettum. Stökum
borðum og stólum.
Karfa- og grálúðuflök frá Akur-
eyri til Boston sl. sunnudag
TUTTUGU tonn af karfa og grá-
lúðuflökum voru flutt frá Akureyri
til Boston í Bandaríkjunum sl.
sunnudag, en farmur þessi var
fluttur með Hercules-leiguflugvél.
Hér var um tilraunaflutning að
ræða, en Útgerðarfélag Akureyr-
inga hf. seldi Coldwater farminn
fyrir fast verð og sagði Gísli Kon-
ráðsson framkvæmdastjóri í sam-
tali við Morgunblaðið, að ekki lægi
Ijóst fyrir hvernig þetta kæmi út
fjárhagslega, en menn myndu
skoða þessa hluti að fenginni
reynslu.
Fiskurinn var unninn af Út-
gerðarfélaginu og var þetta í
fyrsta sinn sem farmur sem þessi
var fluttur beint frá Akureyri til
Bandaríkjanna. Flugvélin losaði
eldsneyti á Akureyri og flaug síð-
an til Keflavíkur, þar sem elds-
neytisgeymar voru fylltir, en
flugbrautin á Akureyri er of stutt
til að vél sem þessi geti tekið sig
upp af vellinum með fullfermi og
fulla eldsneytisgeyma.
Brúttóþyngd farmsins var 20
tonn en nettóþyngdin rúm 18 tonn.
Farmurinn var 752 kassar af
karfaflökum og 568 kassar af grá-
lúðuflökum, en hver kassi vó 30
ensk pund. Þá voru einnig í farm-
inum 8 heilar stórlúður sem vógu
um 500 kíló.
Leo Sayer eignaöist marga aödáendur á síöasta ári þegar safn-
platan, Bestu kveöjur, seldist í rúmlega 5000 eintökum. Ef þú ert í
hópi þeirra sem uppgötvuðu ágæti Leo Sayer í fyrra, þá veistu aö
þessi plata fellur þér vel í geö. Leo syngur meöal annars lögin
Have You Ever Been In Love og Heart Stop Beating In Time sem
njóta mikilla vinsælda um víöa veröld þessa stundina.
hljomoeilo
dLTi\KARNABÆR
I ~ Laugavegi 66 — Giæsibap — Aust»KStr.T»i /,
^ Simi frá skiptiboröi 85055
Úrvaliö af veggskápunum er hreint út sagt
ótrúlegt.
Rúm í öllum stæröum og geröum.
Geföu þér góöan tíma í stærstu og ódýr-
ustu húsgagnaverslun landsins.
■ ■
BBSGAENAHOLLIN
BlLDSHÖFÐA 20 ■ 110 REVKJAVÍK SfMAR: 91 81199 81410
EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU