Morgunblaðið - 03.06.1982, Page 30

Morgunblaðið - 03.06.1982, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ1982 VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS STOFNAÐUR 1905 Innritun næsta skólaár Verzlunarskóli íslands tekur inn nemendur af öllu landinu og úr öllum hverfum Reykjavíkur, án tillits til búsetu. Umsóknir skal senda til Verzlunarskóla íslands, Grundarstíg 24,101 Reykjavík. Skrifstofa skólans er opin alla virka daga kl. 9—12 og 1—3. Verslunardeild Nemendur eru teknir inn í 3. bekk. Inntökuskilyröi er grunnskólapróf. Reynist ekki unnt aö taka inn alla sem sækja um skólavist, veröur höfö hliðsjón af aldri nemenda og árangri þeirra á grunnskólaprófi. Umsóknarfrestur er til 4. júní og skulu umsóknir þá hafa borist skrifstofu skólans, en æskilegt er aö umsóknir berlst sem fyrst eftir aö grunnskólaprófum er lokiö, ásamt afriti af prófskírteini en ekki Ijósriti. Lærdómsdeild Nemendur eru teknir inn í 5. bekk, sem skiptist í hagfræöideild og máladeild. Inntökuskilyröi er einkunnin 6,50 á verslunarprófi. Umsóknareyðublöö fást á skrifstofu skólans. Umsóknarfrestur er til 4. júní. NÁMSSKRÁ FjökJ kennslustunda á viku Verolunardoild Laardómsdoild 3. be 4. bo 5. bokkur 6. bekkur Hd. Md. Hd. Md. íslenska 4 4 4 4 4 4 Enska 5 5 5 5 5 5 Þýska 4 4 4 4 3 3 Danska 4 4 Franska 4 6 Latína 6 6 Stæröfraeöi 4 4 8 4 7 3 Bókfærsla 5 5 3 Hagfræöi 3 3 5 5 Lögfræöi 3 Saga 3 2 2 2 2 Líffr.-Efnafr. 5 5 5 5 Vélritun 3 3 Tölvufræöi 3 3 Leikfimi 2 2 2 2 2 2 Valgrein 3 3 3 3 Samtals 40 40 38 39 39 39 Fullorðinsfræösla Haldin veröa námskeiö í hagnýtum verslunargreinum fyrir fólk eldra en 18 ára mánuöina sept.-nóvember 1982. Hvert nám- skeið stendur yfir í 60 tíma og verður kennt tvo tíma í einu annan hvern dag kl. 17—18.30 eöa kl. 18.30—20. Eftirtaldar námsgreiöar verða kenndar og getur hver þátttak- andi aöeins innritað sig í tvö námskeiö. Tímatafla veröur tilbúin eftir skólasetningu 10. sept. Ensk verslunarbréf Þýsk verslunarbréf Bókfærsla I Rekstrarhagfræöi Verslunarréttur Vélritun I Tölvufræöi Námskeiöunum lýkur meö prófi og fá þátttakendur afhent skírteini. Innritunarfrestur er til 1. sept. 1982. Fjöldi þátttakenda er takmarkaöur í hverju námskeiöi og munu þeir sem fyrstir senda inn umsókn ganga fyrir ef fleiri sækja um en komast að. Umsóknareyöublöö og nánari upplýsingar er aö fá á skrifstofu skólans. VERZLUNARSKÓL! ÍSLANDS EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU 75 ára afmæli: Leifur Eiríksson fyrrv. skólastjóri Það er oft vitnað til aldamóta- kynslóðarinnar. Stundum er það gjört af nokkru yfirlæti, svo að nálgast háð. Fátt tel ég ómaklegra ef ekki heimskulegra. Sú kynslóð, sem fæddist í upphafi aldar og ólst upp með henni á skilið djúpa þökk og virðingu. Þessi kynslóð var borin til mikillar baráttu og henni brunnu í brjósti fagrar hug- sjónir um frelsi þjóðar og ræktun lands og lýðs. Við eigum þeim kon- um og körlum mikið að þakka, sem aldrei brugðust æskuhugsjón- um sínum og stigu stór skref, svo að þær mættu rætast: „Göfug bugHjón geLslum stráir gróðurmagni á lífsins vegi“. Ég flyt þeim vini mínum ham- ingjuóskir, sem mælti þessi orð og hefur lifað og starfað í samræmi við þau æ síðan. Leifur Eiríksson, fyrrverandi skólastjóri og yfirkennari, er sjö- tíu og fimm ára í dag. Hann fæddist norður við heimskautsbaug að Harðbak í Norður-Þingeyjarsýslu, 3. júní 1907. Þá var bjart yfir norðurslóð- um og vorhugur fór um þjóðina alla, þótt enn væri langt að loka- marki. Leifur ólst upp með foreldrum sínum, Eiríki Stefánssyni, vita- verði og bónda á Rifi, og konu hans, Ingibjörgu Jóhannsdóttur. Faðir Leifs lést árið 1956, en móð- ir hans lifir enn á Raufarhöfn. Ungur gekk Leifur að öllum venjulegum störfum til sjós og lands. Samtímis nam hann allt það, er ættfólk og bækur gátu miðlað fróðleiksfúsum huga hans. Það er mjög gaman að heyra Leif segja frá æsku sinni og enn getur hann þulið kvæði, sem hann lærði í bernsku. Hann átti þess kost að menntast, þótt efnin væru knöpp á þeim tímum. Hann stundaði nám í Gagnfræðaskólanum á Akureyri og löngu síðar hélt hann suður frá störfum og fjölskyldu og lauk kennaraprófi vorið 1944, en áður hafði hann stundað kennslu og skólastjórn um árabil. Leifur var mikill félagshyggjumaður og kom víða við. Hann stofnaði ungl- ingaskóla á Raufarhöfn, gekkst fyrir byggingu sundlaugar með skátadrengjum á Raufarhöfn 1946 og kenndi sund lengi síðan. Hann var formaður Ungmennaf. Austra á Raufarhöfn um skeið og í stjórn Verkalýðsfélags Raufarhafnar. Á sumrin var hann við ýms störf, m.a. vélgæslumaður og verkstjóri og honum voru falin mörg trúnað- arstörf fyrir sveitarfélag sitt og var þar oddviti um skeið. Árið 1958 gerðist hann kennari við barnaskóla Garðahrepps og þar hefur hann unnið síðan, um skeið sem yfirkennari, en nú er hann bókavörður við bókasafn Flataskóla. Lengur verður starfs- saga Leifs Eiríkssonar ekki rakin, en það er sannmæli, að í öllum greinum hefur hann reynst traustur og árvakur starfsmaður, framúrskarandi reglusamur og vandvirkur, enda má hann í engu vamm sitt vita. í einkalífi hefur Leifur notið mikillar giftu. Eiginkona hans, Sveinbjörg Lúðvíka Lund, lést 15. ágúst 1977. Fráfall hennar varð Leifi þung raun. Hún var honum traustur lífsförunautur. Með glað- bílasala GUÐMUNDAR BERGÞÓRUQOTU 3 • SÍMARs 19032-36870 Honda Accord 81, mjög fallegur. Chrysler Le Baron 79, ekinn 14 þús. Mazda 929, árg. 80, ekinn 15 þús. BMW 320 80, ekinn 26 þús. Mazda 323, árg. 82, ekinn 2 þús. Volvo 72, 74, 76, 77, 78, 79, 80. Cortina 76, ekinn 14 þús. Mazda 323, árg. 77, góöur bíll. Datsun Cherry 81, eins og nýr. Mercedes Bens 250, árg. 78, toppstand. Saab 99 GL, árg. 1981. Opel Record 78, mjög fallegur. Honda Civic 77, engin útborgun. Peugeot 78, ekinn 24 þús., eins og nýr. lyndi sínu og góðvild vann hún sér vináttu allra, sem kynntust henni. Heimili þeirra hjóna var og öllum hugljúft fyrir gestrisni og hlýtt viðmót. En margur geislinn hefur fallið á veg þessa vinar og við þá er gott að geta glaðst. Þau hjón nutu mik- ils barnaláns og nú gleðja afkom- endurnir og ástvinirnir margvís- lega. Ég er í hópi þeirra fjölmörgu, sem munu hugsa með þökk og hamingjuóskum til Leifs Eiríks- sonar í dag. Vinátta hans og fjöl- skyldu hans hefur verið mér og mínum mikils virði. Leifur Ei- ríksson er athugull maður og að- gætinn að eðlisfari og ber lítt innstu tilfinningar sínar á torg út. En sá verður auðugri en ella, sem eignast hefur traust hans og tryggð. Eg veit marga nemendur hans, sem hugsa jafnan með virðingu og þakklæti til læriföður síns. Það segir sína sögu um lífsstarf hans. Og enn koma á fund hans í bóka- safninu börn, sem gleðja með brosi sínu og einlægni og þiggja góð orð og vinhlýju, sem vonandi verða þeim geislar á lífsins vegi. Leifur Eiríksson er hagorður vel og hefur hann margan glatt með fögrum kvæðum og vönduðum vís- um. í ágætu kvæði til Kvenfélags Garðabæjar segir hann trúlega það best sjálfur sem ég vildi mæla á þessum tímamótum um hug hans og lífsviðhorf: „Vitnar þakkarhros hjá barni bjástrandi að leik og starfi, þar sem bollust hönd að verki hlúir dýrsta þjóðararfi. Þar sem ótal virkar vonir vaxa undir þroskans merki.“ Gleðji þig í dag þakkarbros barna og vina. Þökk sé þér, vinur, fyrir holla hönd og hlýjan hug. Megi þér enn vaxa virkar vonir undir þroskans merki. Bragi Friðriksson SPECK Lensi-, slor-, skolp-, sjó-, vatns- og holræsa-dælur. Útvegum einnig dælu- sett meö raf-, Bensín- og Diesel vélum. SfituiiíflgMUigiiuiir <§t Vesturgötu 16, simi 13280 raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar húsnæöi óskast Skrifstofu og lagerhúsnæði óskast til leigu. Stærð ca. 70—80 fm. Æski- leg staðsetning sem næst höfninni. Tilboö sendist augld. Mbl. fyrir hádegi laug- ardaginn 5. júní nk. merkt: „Þ — 3114". húsnæöi i boöi ísafjörður Til sölu er 3ja herbergja íbúð í fjölbýlishúsi við Hlíöarveg 5, ísafirði. íbúöin er um 70 fm ásamt geymslum og bílskúr, sem getur fylgt íbúöinni eöa verið undanskilinn, óski kaupandi þess. Nánari upplýsingar veitir Ólafur B. Halldórs- son í síma 94-3975 á kvöldin. Aðalfundur Heimdallar Heimdallur SUS í Reykjavik, heldur aöalfund sinn 6. júní nk. i Valhöll kl. 14.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Önnur mál. Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.