Morgunblaðið - 03.06.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ1982 3 1
Úr Miðfirði:
Bændur fá bakreikninga
vegna of mikilla launa 1980
SUAarbakka, hvítasunnudag. Úr Miðfiréi.
SVIPADA sögu er aö segja héö-
an og stööugt heyrist í útvarpi
um kulda og gróöurieysi á Norö-
urlandi. Ekki hefur þö fest snjó
hér í lágsveitinni síðan í fyrstu
viku maí. Úrfelli ekki mikiö en
kuldi svo mikill aö gróöri fer lítið
fram. Sauðburöur er víöast langt
kominn og hefur yfirleitt gengiö
vel. Sums staöar hefur geldfé og
einlembum veriö sleppt, en ann-
ars allt á fullri gjöf og hefur veriö
síöan í nóvember.
I slíku árferði verður gíMrleg
fóðureyðsla, bæði á heygjöf og
fóðurbæti, en ekkert hefur borið
enn á fóðurskorti, en allt þetta
útheimtir geysimikla vinnu og
trúlegt að margur sé orðinn lang-
þreyttur og syfjaður, þar sem fá-
íiðað er á flestum bæjum, en fé
ekki yfirgefið allan sólarhring-
inn. Ekki er farið að bera tilbúinn
áburð á og sagt hefur verið að
verð á honum hækki um 60% frá
því í fyrra. Áburðurinn er ein-
hver stærsti liðurinn í útgjöldum
bóndans og mikið tjón ef hann
nýtist ekki til fulls vegna slæms
árferðis.
Mikið er talað um dýrtíð og þau
vandræði, sem hún skapar. En
vilja ekki allir meiri dýrtíð? Svo
er helzt að sjá. Það er talað um
kjararýrnun og kjarabætur, vísi-
tölu og vísitölubætur. Allir vilja
fá þærri laun og helzt borgað
fyrittram. Hver starfshópur
kemur eftir annan og vill hafa
eitthvað meira upp úr krafsinu
en sá sem samdi næst á undan og
ef ekki semst er bara að ganga út
og hætta. Leggjast fyrir og halla
sér. Það er talað um verðlags-
grundvöll landbúnaðarafurða, nú
er sagt að hann eigi að hækka um
rúmlega 14%. Þetta á víst að vera
til að bæta hag bænda, en hver
verður reyndin og hvenær kemur
það í ljós hver hagnaðurinn verð-
ur? Um síðustu áramót kom, að
því að maður hélt, endanlegt verð
fyrir sauðfjárafurðir fyrir árið
1980, en þó með fyrirvara. Margir
bændur lifðu í þeirri trú að þeir
hefðu sléttað sína viðskiptareikn-
inga um áramótin, en Adam var
ekki lengi í Paradís. Þegar kom
fram í marz kom bakreikningur.
Vísitöluspekingar í Reykjavík
höfðu komizt að þeirri niður-
stöðu, eftir að hafa reiknað í
hálft annað ár, að bændur höfðu
fengið of mikið kaup á árinu 1980
og þá varð að sjálfsögðu að leið-
rétta það, því rétt er rétt og verð-
ur að standa. Reikningarnir voru
að sjálfsögðu mjög misháir, allt
frá nokkrum þúsundum króna
upp í tugi þúsunda. Auðvitað
færðir samstundis til skuldar á
viðskiptareikninga og gjaldfalln-
ir vextir mánaðarlega þar til
skuldin verður greidd, sem varla
verður fyrr en í fyrsta lagi næsta
haust. Trúlega myndi einhvers
staðar heyrast hljóð úr horni ef
launþegar fengju slíka bakreikn-
inga. Þetta var fyrir árið 1980,
enginn gerir ráð fyrir öðru en að
útkoman verði verri fyrir árið
1981 og hvað þá heldur yfirstand-
andi ár. Tímabært væri að okkar
ágætu þingmenn sæju sóma sinn
í því í upphafi næsta þings, að
afnema lagaákvæðið um að
bændur skuli hafa sambærilegar
tekjur við aðrar vinnandi stéttir í t
landinu. Ef fram heldur sem
horfir um islenzkan landbúnað,
verður trúlega ekki langt í það að
draumsýn þeirra manna rætist,
sem telja að þá fyrst verði gott að
lifa á íslandi, ef landbúnaður
verður ekki lengur stundaður.
Benedikt
Borðstofu-
húsgögn
frá Bahus
í mjög háum gæðaflokki.
Gjörið svo vel og lítið inn.
Ef þú notar Pinotex á húsið,
fœrðu tvöfalda endingu
með lyktarlausri viðarvörn
Ert þú einn þeirra, sem kvíðir
fyrir því að þurfa að ,,bera á”
húsið annað hvert ár - eða jafn-
vel á hverju sumri?
Pinotex,viðarvörnin frá Sadolin,
tekur mesta kvíðann úr þér.
Pinotex er nefnilega með
eitt mesta þurrkefnisinnihald,
sem þekkist á markaðnum. En
það er einmitt þurrkefnið, sem
m.a. vemdar viðinn í brakandi
þurrki og í slagveðursrigningu.
Þess vegna er Pinotex með tvö-
falt lengri endingu en flestar
viðarvarnir sem fást í verslun-
um!
Pinotex er lyktarlaus viðarvöm.
Pað eitt er mikill kostur. Pino-
tex rennur ekki úr penslinum
eins og oft vill henda með
þynnri efnum. Samt er létt að
bera Pinotex á viðinn, - og þétt-
ur litur kemur vel fram við
fyrsta pensildrag.
Pinotex er selt um allan heim. í
dag er Pinotex viðarvörn notuð
í 82 löndum, allt frá íshafs-
héruðum til hitabeltislanda.
Betri meðmæli er varla að
finna.
Með Pinotex hefur Sadolin
komið til móts við hörðustu
kröfur veðurs og vinda. Pess
vegna er okkur óhætt að mæla
eindregið með Pinotex viðar-
vöm hérlendis, enda hefur
reynslan á íslandi sýnt og sann-
að ágæti Pinotex.
Fáðu upplýsingar um eiginleika
Pinotex í næstu málningar- og
byggingarvöruverslun. Þar
færðu Pinotex sem hentar þér
best. Litakortin em ókeypis.
Sadolin -dönskgæöavara!
DAGA TIL AÐ
SLÁ ÞÉR Á
TÓNJAFNARA
OG TÍMATÆKI
FRÁ AKAI MEÐ
20% VERÐLAUNA-
AFSLÆTTI. *
Laugavegi 10
sími 27788
* Miöaó vi<5
staögreiðslu
80 72
FARÐU EKKITÆKJAVILLT
- TRYGGÐU ÞÉR M 'fl IGÆÐI