Morgunblaðið - 03.06.1982, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ1982
35
ekki teldist hann til stofnenda fé-
lagsins. Þeir Clausen bræður,
Areboe og Herluf, voru mjög áber-
andi í starfi Fram á bernskuárum
félagsins og lengi fram eftir. Er
ekki ofmælt, að þegar nöfn þeirra
bræðra voru nefnd, hafi Fram
komið upp í hugann í sömu andrá.
Svo nátengdir voru þeir félaginu.
Areboe var virkari þátttakandi
að því leyti, að hann var einn af
stofnendum Fram og um langt
skeið einn snjallasti leikmaður fé-
lagsins. Herluf var aftur á móti
hinn virki þátttakandi utan vallar.
Hann fylgdist með leikjum félags-
ins og hvatti leikmenn til dáða. Á
bak við tjöldin þótti hann ráða-
góður þegar hagsmunir Fram voru
annars vegar.
Senn eru liðin 75 ár frá því, að
ungir drengir í Suðurgötunni og
næsta nágrenni stofnuðu Fram.
Flestir þeirra, sem tóku fyrstu
sporin í sögu félagsins, eru nú
horfnir yfir móðuna miklu. Hug-
sjónir og störf þeirra lifa þó áfram
í kröftuguri starfsemi þúsunda
reykvískra ungmenna, sem halda
merki frumherjanna á lofti.
Herluf Clausen var í hópi frum-
herjanna. Að leiðarlokum er hon-
um þökkuð samfylgdin og áhuginn
á velgengni Fram fyrr og síðar.
Knattspyrnufélagið FRAM
Með Herluf Clausen er fallinn í
valinn einn af stofnendum Skíða-
félags Reykjavíkur — og var hann
sá eini eftirlifandi er sat í fyrstu
stjórn þess — og þar með einn af
elstu frumherjum og frammá-
mönnum skíðaíþróttarinnar. Eins
og kunnugt mun vera, var Skíðafé-
lag Reykjavíkur stofnað 26. febrú-
ar 1914. Sem stjórnarmeðlimur
var Herluf Clausen mjög virkur í
starfi sínu og traustur félagsmað-
ur. Fyrir starf sitt í þágu Skíðafé-
lags Reykjavíkur var hann gerður
að heiðursfélaga þess.
Eins og gengur og gerist í
íþróttafélögum voru miklar sveifl-
ur í starfsemi Skíðafélagsins, en
duglegir og harðfylgnir menn eins
og Herluf Clausen o.fl. hófu, undir
forustu þáverandi formanns fé-
lagsins L.H. Múller kaupmanns,
undirbúning að byggingu hins
merka skíðaskála í Hveradölum.
Þó að formaður hafi verið frum-
kvöðullinn að byggingu skálans
var Herluf heitinn Clausen, sem
gjaldkeri félagsins, ötull og úr-
ræðagóður að því mikla grettis-
taki sem þá var iyft — í þágu fé-
lagsmanna sem annarra skíðaiðk-
enda.
Skíðafélag Reykjavíkur vill hér
með votta fjölskyldu Herluf
Clausen sína dýpstu samúð og
minningu hans virðingu.
Stjórn Skíðafélags Reykjavíkur
Margrét Gísladótt-
ir - Minningarorð
Fædd 16. apríl 1910
Dáin 23. maí 1982
„Þío náðin Drottinn nóg mér er
því nýja veröld ffnfst þú mér,
í þinni birtu hún brosir öll,
í bláma sé ég lífnins fjöll.“
(Einar H. Kvaran.)
Útför Margrétar Gísladóttur
hefur farið fram í kyrrþey að
hennar eigin ósk.
Ég, sem þessar línur skrifa, hef
þekkt Margréti í 12 ár, síðan
einkadóttir hennar giftist syni
mínum, Óskari. Ég þekki lítið til
fyrri ára, veit þó að Margrét átti
mörg systkin og ólst því upp á
mannmörgu heimili í Papey.
Margrét var dugmikil kona, trygg-
lynd en fáskiptin, nema af því sem
henni við kom. Hún var góð amma
drengjanna hennar Sigrúnar,
Sævars og Kristjáns, sem ólust
upp með ömmu sinni, og þeir
sakna hennar sárt og kveðja hana
með virðingu og þakka henni alla
umönnun frá því fyrst þeir muna
eftir sér. Sama er að segja um
litlu systkinin í Grundarfirði,
Ásgeir og Margréti, sem þótti svo
undur vænt um Margréti ömmu og
hlökkuðu svo til þegar hún kom í
heimsókn. Síðustu mánuði, hefur
hún ekki getað farið vestur til
þeirra vegna veikinda, en þau
komu að kveðja ömmu sína eftir
að hún var komin á sjúkrahús.
Sárastur verður viðskilnaður Sig-
rúnar við mömmu sína, þær hafa
alltaf verið nálægt hvor annarri,
þar til Sigrún flutti til Grundar-
fjarðar. Ég þakka Margréti góð
kynni og hún vissi að ég ætla að
taka mömmu- og ömmusætið
hennar meðan mér endist aldur
til. Ég bið góðan Guð að styrkja
ástvini hennar alla og leggja
blessun sína yfir litla langömmu-
drenginn sem hún lifði til að sjá
og gleðjast með foreldrunum ungu
því:
„Ef glcóibroN er gefió mér,
«í Kjöf er drottinn öll frá þér,
og verói af gorgum vot mín kinn,
ég veit aó þú ert faóir minn.“
(Einar H. Kvaran)
Blessuð sé minning Margrétar
Gísladóttur.
Elísabet Helgadóttir
t
Inmlegar þakkir til allra, sem hafa sýnt okkur samúö vegna fráfalls
SIGTRYGGS GUOMUNDSSONAR,
Hraunbraut 35, Kópavogi.
Sigríöur Halldórsdóttir, Helga Jóakimsdóttir,
Halldór Sigtryggsson, Lana Kolbrún Eyþórsdóttir,
Herborg Sigtrygsdóttir, Ómar Norödahl,
Hrafnkell Sigtryggsson, Þorgeir Ómarsson.
t
Þökkum af alhug auösýnda samúö og hlýhug vlö andlát eigin-
manns míns, fööur, tengdafööur og afa,
GILBERTS MOESTRUP,
Hjallabrekku 11.
Sérstakar þakklr viljum viö færa læknum og starfsfólki á deild A-5,
á Borgarspitalanum og læknum og hjúkrunarfræölngum á gelsla-
og göngudeild Landsspítalans fyrir frábæra hjúkrun og umönnun í
veikindum hans.
Inga Moestrup,
Jóhann Gilbertsson, Magnea Guömundsdóttir,
Jörgon Moestrup, Hjördfs Jónsdóttir,
Jytte Moestrup, Kenneth Schmidt
og barnabörn.
AMERlSK
Fcest í nœstu verslun!
Niðursuðuverksmiðjan ORA hf.
i veiðiferðina
slandi
■ -♦**-<*
I vy ■' 1
| +r j
18.4