Morgunblaðið - 13.06.1982, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ1982
17
Nerja, en þar eru oft haldnir há-
tíðarhljómleikar að sumri til þar
sem ævintýralegt umhverfi er
flóðlýst og hljómburður er ein-
stakur.
Næstu tónleikar verða í Gran-
ada, en þar stendur þá yfir ein af
tónlistarhátíðum Evrópu þar sem
heimsfrægir flytjendur innlendir
og erlendir koma fram. Gist verð-
ur í Granada, en haldið til Sevilla
næsta dag þar sem síðustu hljóm-
leikarnir fara fram að kvöldi hins
6. júlí í undurfagurri og listilegra
skreyttri barokkkirkju, Iglesia del
Salvador, og mun þeim hljómleik-
um einnig verða sjónvarpað.
Eins og kunnugt er stendur nú
yfir heimsmeistarakeppni í
knattspyrnu á Spáni og í tengslum
við hana er efnt til margs konar
menningarviðburða svo sem list-
sýninga og tónleika og er heim-
sókn Pólýfónkórsins þáttur í þeim.
Að hljómleikahaldinu loknu munu
söngvarar og hljóðfæraleikarar
slaka á og sleikja sólskinið á Costa
del Sol í eina til tvær vikur og
sumir jafnvel lengur.
Margs konar fjáröflun
Er þetta ferð sem borgar sig
fjárhagslega?
— Það liggur í augum uppi að
hljómleikahald sem þetta er mjög
mikið umfangs og kostnaðarsamt.
Af hálfu Spánverja liggur fyrir
fjárveiting sem svarar til um 200
þúsunda króna, en það nægir að-
eins fyrir um tíunda hluta kostn-
aðarins. Kórfélagar vinna að fjár-
öflun eftir ýmsum leiðum. Til
dæmis verður efnt til kaffisölu og
söngskemmtunar á Hótel Sögu
sunnudaginn 13. júní kl. 15. Leitað
hefur verið til fjölda fyrirtækja
um fjárstuðning og vonandi ber
það árangur. Enn er eftir að vita
hvert verður framlag hins opin-
bera, en menningarstarfsemi
Pólýfónkórsins í aldarfjórðung
hefur kostað íslenskt þjóðfélag
furðu lítil fjárútlát. Nú er tæki-
færið til að rétta Pólýfónkórnum
hjálparhönd og sýna viðurkenn-
ingu í verki.
Verður efnisskráin flutt hér-
lendis?
— Eina tækifærið sem íslenskir
áheyrendur fá til að hlýða á hina
fjölbreyttu tónlist, sem er á efn-
isskrá Pólýfónkórsins og hljóm-
sveitar, verður í Háskólabíói
þriðjudagskvöldið 29. júní nk.
— Ég vona að þessi
Spánarför Pólýfónkórsins,
íslenskrar hljómsveitar,
einsöngvara og einleikara
eigi eftir að verða jafn-
merkur áfangi í starfi
kórsins og Ítalíuförin var
fyrir 5 árum, sagði Ingólf-
ur Guðbrandsson stjórn-
andi Pólýfónkórsins er
Mbl. ræddi stuttlega við
hann um fyrirhugaða tón-
leikaför, sem hefjast á
hinn 1. júlí n.k. — Ferðin
er farin í tilefni 25 ára af-
mælis kórsins, en hann
var stofnaður árið 1957
og er þetta sjöunda utan-
landsferð hans.
Ég held að segja megi að flutn-
ingurinn hafi hvarvetna vakið at-
hygli og hlotið óvenjugóða dóma.
Ferð Pólýfónkórsins til Spánar er
búin að vera á döfinni sl. þrjú ár
og átti raunar að koma til fram-
kvæmda á síðasta ári, en þá var sú
ákvörðun tekin að fresta henni um
eitt ár.
Litrík efnisskrá
Hvaða efnisskrá verður flutt í
þessari för?
— Þetta er fjölbreyttasta og að
ég held skemmtilegasta efnisskrá
sem Pólýfónkórinn hefur nokkru
sinni staðið að. Það er því von mín
Pólýfónkórinn ásamt kammersveit undir stjórn Ingóifs Guðbrandssonar á sviði Háskólabíós, en mynd þessi var
tekin á æfingu si. vor.
Vona að ferðin veki
almenna ánægju hjá
áheyrendum og flytjendum
— segir Ingólfur Guðbrandsson um
Spánarför Pólýfónkórsins með hljóm-
sveit, einsöngvurum og einleikurum
að ferðalagið veki almenna
ánægju bæði flytjenda og áheyr-
enda. Þetta er litrík efnisskrá og
mér finnst hún vel sniðin við árs-
tíðina og iífs- og litagleði Spán-
verja.
Á fyrri hluta hennar eru ekki
aðeins kórverk heldur einnig mjög
vinsæl hljómsveitarverk, eins og
þættir úr vatnatónlist Hándels og
fiðlukonsert Bachs í E-dúr, en þar
leikur María Ingólfsdóttir einleik.
Einnig mun Þórhallur Birgisson
koma fram sem einleikari í fiðlu-
konsert eftir Tartini.
Kórinn syngur gullfallega kant-
ötu eftir Buxtehude við undirleik
strengjasveitar og vinsæla köra úr
Messíasi eftir Hándel. Þá syngur
Kristinn Sigmundsson bassa-
aríuna „The Trumpet Shall
Sound“ úr Messíasi þar sem Lárus
Sveinsson leikur einleik á tromp-
etinn. Fyrri hluta efnisskrárinnar,
sem öll er frá barokktímanum,
lýkur með Hallelújakórnum úr
Messíasi.
Eftir hlé verða flutt tvö verk
fyrir kór, einsöngvara og stóra
hljómsveit. Þrír þættir úr Eddu
oratorium Jóns Leifs, sem samin
var á árunum fyrir siðari heims-
styrjöldina, verða fluttir í fyrsta
sinn. Fjalla þeir allir um sköpun
heimsins, hinn fyrsti er „Ár var
alda“ og hinir kaflarnir „Sær“ og
„Jörð“. Einsöng og tvísöng með
kórnum syngja Jón Þorsteinsson
tenór og Kristinn Sigmundsson
bassi.
Áhrifamikil og
glæsileg tónlist
Ég er sannfærður um að þetta
sýnishorn úr verkinu muni vekja
mikla athygli, jafnsérstætt og
mikilfenglegt og það er. Ég held
ekki að nokkru öðru íslensku
tónskáldi hafi tekist að birta í tón-
um á jafn áhrifamikinn hátt þaö
dýpsta í þjóðareðlinu. Og mér
finnst tími til kominn að heimur-
inn fái að heyra þessa tónlist sem
er engu öðru lík.
Síðara verkið eftir hlé er Gloria
fyrir kór, sópransóló og stóra
hljómsveit eftir franska tónskáld-
ið Francic Poulenc, af mörgum
talið eitt glæsilegasta verk fyrir
kór sem samið hefur verið á þess-
ari öld. Einsöngvari verður Nancy
Argenta, ung, kanadísk söngkona,
á leið upp á stjörnuhimininn, því
hún hefur þegar unnið til margra
verðlauna og er nú búsett í Lond-
on.
Fimm tónleikar
Hvernig er ferðaáætlunin og
hvar verða tónleikar haldnir?
— Eins og fyrr segir leggur
kórinn upp í ferðina hinn 1. júlí og
verður flogið til Malaga, höfuð-
borgar Costa del Sol. Fyrstu tón-
leikarnir verða haldnir í dóm-
kirkjunni í Malaga daginn eftir.
Næst verður sungið í hinni fögru
barokkkirkju í Marbella. Sunnu-
daginn 4. júlí verða tónleikar í
hinum frægu dropasteinshellum í
Veggspjald þetta hefur Baltasar teiknað og verður það notað tii að kynna
ferð kórsins um Spán, en hún hefst hinn 1. júlí nk.
CORO
POLIFONICO ?
Y ORQUESTA,
DE CAMARA ^
DE REYKJAVIK
ISLANDIA
Director INGÓLFUR GUÐBRANOSSON
I- \ iolin Rl'T INGÓLFSDÓTTIR
ESPANA
1982
pr(m;rama
G.F. Handel: «THE WATF.R MUSIC.. orqurvla
D. Bualehude: « BF.FIF.L DF.M ENGEL DASS ER KOMM-. canlala pnra coro > orquesla de cuerdas
J.S. Bach: .CONCIERTO PARA VIOI.lN Y ORQIHSTA. F.N Ml MAYOR.
Solista: MARIA INGOLF O
G.F. Htndel: . ANDTHE GLORY OF THF. I.ORD*. del oralorio del .Mesias.. para coro > orquesla
. THE TRUMPF.T SHALl. SOUND.. para bqjo > Irompela solislas > orquesla
SaMotas: KRISTINN SIGMUNDSSON bqjo
I.ÁRUS SVEINSSON drompelal
INTERVALO
jón Lelfs: .ORATORIO DF. F.DDA op 20-. para bqjo > lenor solislas. grancoro > orquestatestrenol
Sollslas: KRISTINN SIGMUNDSSON bajo
JÖN ÞORSTEINSSON lenor
.GLORIA-. para soprano soMsla. coro > orquesla
SoMsla: NANCY ARGF.NTA soprano
MITDIA ' ..... ’ ■ '«'"’
INP.KJA Cl'EVAS DF. NERJA
PALACIO DECARLOS V
MÁI.AGA
M ARBF.I.l.A
Fasteignasalan Óðinsgötu 4
Oðinsgötu 4 — t. 15605.
Einstök íbúð
Opið í dag frá 1—4
Höfum í einkasölu glæsilega 130 fm íbúö á hæö
viö Dalsel. Ath. tréverk og annar frágangur í
topp-klassa, suö-austursvalir, gott bílskýli. Bein
sala.
Göngudagur Ferðafélags
íslands sunnud. 13. júní
Gangan hefst á veginum aö Jósepsdal, Ólafsskarö
og austur fyrir Sauðadalahnúka og þaöan að upp-
hafsstað.
Fariö veröur frá Umferöarmiðstööinni austanmegin
kl. 10.30 og kl. 13. Þátttakendur geta einnig komiö
á eigin bílum og tekið þátt í göngunni.
Verö kr. 50. Frítt fyrir börn í fylgd fulloröinna.
Takiö þátt í hressandi gönguferö í fögru umhverfi.
Ferðafélag íslands.