Morgunblaðið - 13.06.1982, Page 20

Morgunblaðið - 13.06.1982, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ1982 „Hva, er ekki íslenski húsgagnaiðnaðurinn dauður? “ „Uss, þetta er aðeins fyrir túr- ista.“ Það er þetta viðhorf, sem er ríkjandi hér á Islandi. - O - Eftirlíkingar valda okkur áhyggjum. Þær skaða okkur vegna þess að við getum ekki keppt við aðila, sem ekki þurfa að borga tolla. Og þeirra framleiðslutækni þróast hratt. Það, sem kannski hjálpar okkur mest í því er að margt fólk vill ekki kaupa annað en það upprunalega og því kaupir það okkar vöru. Eftirlíkingarnar eru aðallega í Kanada. Það, sem við getum huggað okkur við er að þessar eftirlíkingar eru mesta við- urkenning, sem íslensk iðnhönnun hefur fengið. Við gætum þó vel verið án þeirrar viðurkenningar. En eftirlíkingarnar sýna að okkur hefur tekist að þróa upp fataiðn- að, sem hlotið hefur viðurkenn- ingu í heiminum. Þar kemur tvennt til. I fyrsta lagi er það ís- lenska ullin, sem fólk er sannfært um að sé sérstakt hráefni og svo hefur okkur tekist að þróa upp ákveðna hönnun þannig að okkar flíkur þekkjast frá öðrum. Alþjóð- legt heiti yfir þetta er „Icelandic look“ og hefur það unnið sér ákveðinn sess víða í heiminum. Hlotið mjög almenna viðurkenn- ingu og virðingu. Jafnvel írum hefur ekki tekist að vinna sig í slíkt álit og flytja þeir þó út mikið af ullarfatnaði. En það er engum einum að þakka að þetta hefur tekist svo vel hjá okkur. Það er samstarf margra aðila, sem stærstan hlut á í þessari velgengni. Það er gott fólk, sem starfar við fyrirtækið, bæði innan þess og utan og sam- starf við það er mjög gott. I fyrra fórum við í flestar verslanir í Norður-Ameríku og Kanada, sem selja okkar vöru og töluðum þar við starfsfólkið og skrifuðum niður það sem það hafði að segja um fatnaðinn og hvernig mætti bæta hann. Fengum við góðar vísbendingar um hvað vantaði hjá okkur, þannig að við framleiðslu á næstu flíkum verður breytt um 100 smáatriðum, sem minnst var á í þeirri ferð.“ - O - „Það er lítið af hlutum í ís- lenskri húsgagnagerð, sem segja má að séu frumlegir. Það er varla hægt að finna hlut eða línu í hús- gögnum, sem fundin er upp hér,“ sagði Gunnar Magnússon innan- hússarkitekt í samtali við Morg- unblaðið, en Gunnar er með hús- gögn á sýningunni á Kjarvalsstöð- um, sem hann hefur hannað í samráði við húsgagnagerð Krist- jáns Siggeirssonar í Reykjavík. „Ég held það hafi verið byrjað á röngum punkti þegar reynt var að hefja útflutning á húsgögnum. Fyrst verðum við að sannfærast um að það, sem við framleiðum hér heima, sé í lagi og gangi í fólk- ið hér og svo getum við farið að spá í útflutning. Við erum varla færir um að keppa á heimavelli þegar við getum ekki einu sinni keppt við innflutninginn. Við verðum líka að hætta að framleiða vöruna og finna svo markaðinn fyrir hana Fyrst er að finna mark- aðinn. Undanfarin fimm ár hafa hús- gagnaverkstæði verið að koðna niður á meðan húsgagnainnflytj- endur blómstra. Það er bláköld staðreynd. ísland er gósenland erlendra húsgagnaframleiðenda. Til dæmis veit ég um eitt fyrir- tæki í Danmörku, sem framleiðir húsgögn, en hjá því fyrirtæki varð 180 prósent aukning á sölu hús- gagna hér á landi á milli ára. Og það er gífurleg velta í húsgögnum á íslandi. I dag eru húsgagnaframleiðend- ur ekki þess umkomnir að fram- leiða alla hluti í vöru sína sjálfir. Það væri ekkert úr vegi að þeir tækju upp samskipti við erlenda framleiðendur og keyptu frá þeim hluti í húsgögn, sem þá vantar, frekar en að leggja upp laupana ys* í Kaupntannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTAR- STÖÐINNI þegar þeir geta ekki framleitt ein- hverja hluti sjálfir. En það er heilmikið á döfinni, sem er í rétta átt en tekur langan tíma að skila sér. Mín skoðun er sú að þróa beri húsgögnin vel áður en þau eru kynnt, setja þau ekki á markaðinn fyrr en þau eru orðin samkeppnisfær," sagði Gunnar. — O - Við ljúkum þessari yfirferð á orðum Guðna Pálssonar arkitekts og hönnuðar sýningarinnar á Kjarvalsstöðum. „Hönnun tekur yfir geysivítt svið. Við gleymum oft að allflestir þeir hlutir, sem við umgöngumst dag hvern eru hannaðir. Jafnt ljótir, sem fallegir. Við lítum á þá, sem sjálfsagða og án gagnrýni. Vissu takmarki er náð með þessari sýningu á Kjarvalsstöðum. Reynt hefur verið að leggja áherslu á samstarf hönnuða og framleiðenda. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa, sumir sýn- ingagesta hafa jafnvel látið undr- un sína í ljós á að þetta væri ís- lensk framleiðsla. Þetta samstarf hönnuða og framleiðenda þarf að þróa áfram. Neytandinn á kröfu á því að sú vara, sem hann fær í hendurnar uppfylli hæstu gæðakröfur. Hönn- uðir og framleiðendur þurfa þó að vera sjálfsgagnrýnir og láta ekk- ert frá sér fara, sem ekki er full- unnið og fylgja því sem komið er á markaðinn eftir og lagfæra þá galla, sem koma í ljós. Annars verðum við aldrei samkeppnisfær- ir á erlendum markaði. Þessi sýning er sport í rétta átt en það er löng leið eftir. Það yrði illt ef ekkert framhald yrði. Því þarf að gera allt til að viðhalda þessari þróun," sagði Guðni í lok- in. 2^ Yfir 40 tegundir blómavasa 50% afsláttur Aóeins í eina viku KRISTJÁn SIGGGIRSSOn HF. LAUGAVEGI 13, REYKJAVIK, SÍMI 25870 Sértilboö innanlandsflugs Flugleiöa í samvinnu viö Bílaleigu Akureyrar: Öku-flugferó milli Reykjavíkur og Akureyrar Flugleiöir bjóöa nú sérstakar öku-flugferöir milli Reykjavíkur og Akureyrar. Flogið er með Fokker noröur, en ekiö suöur í Land Rover eöa Lada Sport frá Bílaleigu Akureyrar. Hægt er aö hefja feröina á hvorum staönum sem er. Verð fer eftir því hve margir ferðast saman. T.d. kostar fariö 848.00- krónur á mann, ef tveir eru saman í bíl. Tilboðið sendur til 25. júní Leitiö upplýsinga hjá innanlandsflugi Flugleiöa, Bílaleigu Akureyrar eöa ferðaskrifstofunum. FLUGLEIDIR Gott fólkhjá traustu félagi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.