Morgunblaðið - 13.06.1982, Síða 22

Morgunblaðið - 13.06.1982, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ1982 Þeir voru komnir að landi og nýbúnir að skila af sér skelfiskaflanum, bret- ónsku sjómennirnir, sem fréttamaður Mbl. rakst á í litla þorpinu á Port-de- Loguivy skammt norðan við Paimpol. Þeir stóðu þarna í þyrpingu á þorpsgöt- unni og spjölluðu hressilega saman. Litli barinn beið þeirra handan götunnar. — Þetta kallar á víntár, sagði Jean Rustuel bæjarfulltrúi, sem hafði tekið að sér að skreppa með blaðamanninn frá íslandi út á tangann, til að kynnast nú- tíma sjósókn afkomenda skútukarlanna er fyrrum sóttu þorsk á íslandsmið. Nú fara þeir á mótorbátum út á Ermarsund og sækja alls konar krabba og skelfisk, sem sendur er ferskur á markað í ná- grenninu eða gegnum umboðsmenn til Parísar, eða þá geymdur lifandi í kerjum þar til markaðurinn kallar. Sjómennirnir komnir að, og standa i smáhópum á götunni og spjalla um siglingar, sjó og afla. Skírðir upp úr saltvatni Fiskveiðihöfnin í Loguivy. Þeir fara á sjó seint eða snemma dags, eftir flóðinu. Hvergi er meiri munur flóðs og fjöru en þarna á norðurströnd Frakklands. Þar sem það er mest við Mont St. Michel nær munur flóðs og fjöru 15 metrum. Þarna að vísu nokkru minna eða 8—10 metrum. — Hér eru menn háðir hafinu og það ræður ferðinni, sögðu sjómennirnir til skýringar. Og nú mátti sjá báta í litlu höfn- inni í Loguivy standa á langri þurri fjöru, aðra við baujur langt úti. A hafnarbakkanum hús með mörgum djúpum steyptum kerj- um, sem sjó er dælt um. í þeim vænn skelfiskur og krabbar af ýmsum tegundum, sem ég kann engin skil á. Humar einn með langa arma og sterkar griptennur var þarna í einu kerinu. Aður en honum er sleppt verður að láta hvern humar bíta af alefli í þar til gerða spýtu, misþykka eftir kjaftstærð hans, og um leið er brugðið hníf á aflvöðvann í klónni. Annars mundu þessi grimmu sjáv- ardýr verða fljót að kála hvert öð- ru í blóðugum slagsmálum í kerj- unum. Þarna geymist sjávaraflinn ferskur í nokkra daga. Var ekki mikill í þetta sinn, enda kvöldið fyrir uppstigningardag, þegar kaþólskir borða gjarnan fisk. Á þessum slóðum hófst skelfiskveið- in fyrir alvöru fyrir um 20 árum, lítið um atvinnu. Sjómennirnir, sem sóttu á skút- unum þorsk á miðin við ísland 1852—1936 komu flestir úr þorp- unum kring um Paimpol, enda eru þar flestir kirkjugarðarnir með minningarskjöldunum um horfna sjómenn á íslandsmiðum. Paimpol sjálf var um 1800 orðin nokkurs konar höfuðborg með 6 bæi og 30 sóknir í kring og þar bjó bláfátækt fólk, sem ekki átti annarra kosta völ en sækja sjó á fjarlæg mið. Á tímum ísiandssiglinganna stækk- aði Paimpol úr 102 ha svæði upp í 2361 ha. Um 1960 sameinuðust svo bænum tvö nágrannasveitarfélög Pleunez og Kerity, en önnur telj- ast sér. Bærinn sjálfur telur um 8400 manns. Þegar þorskveiðarnar miklu „La grande peche" voru úr sögunni með iðnaði sínum og starfi kring- um útveginn, þá var heldur ekki að neinu að hverfa fyrir sjómenn- ina. Goletturnar þeirra höfðu ver- ið teknar til flutninga í fyrri heimsstyrjöldinni, þar sem 30 skipum frá Paimpol var sökkt, þar af 17 íslandsförum. Hinar héldu áfram að flytja kol, sperrur í kola- námur í Englandi og kartöflur frá þessu mikla kartöfluhéraði í kring, þær sem ekki reyndu að hefja veiðarnar aftur á fjarlægum miðum. Aðeins 14 skútur sigldu til íslands fyrstu árin eftir stríðið. 1922 voru sett á Islandi lög, sem bönnuðu fiskflutninga milli skipa inni í fjörðum. Þá tók fyrir það að þeir gætu sent á vorin aflann af fyrri hluta vertíðar með flutn- ingaskipum á vormarkaðinn í Evr- ópu. Að auki fór verð á saltfiski lækkandi. Seglskúturnar, sem byggðar voru heima, voru líka að syngja sitt síðasta, kepptu illa við nýju togarana. Þessi stóra höfn með yfir 2ja km löngum hafnar- bökkum, þar sem útbúnaður var til að meðaltogarar gætu siglt inn um rennurnar í stóra dokk, stóð nær auð. Strax eftir síðari heims- styrjöldina var gert átak til að reyna að snúa þessari þróun við. Utgerðarmenn fluttu togara sína til heimahafnar í Paimpol, stofn- uðu samtök og byggt var stórt ís- hús á hafnarbakkanum, sem enn stendur. En allt kom fyrir ekki. Einhver gaf þá skýringu, að nú- tímatogaraútgerð gæti ekki búið við að þurfa að sæta flóði og fjöru til að komast inn og út. Hvað um það. Skelfiskbátarnir sækja einir sjó til veiða nú orðið. Eftirsóttir sjómenn En Paimpolarar og Bretónarnir úr þorpunum í kring halda áfram að vera eftirsóttir sjómenn. Mikið af sjómönnum á franska verslun- arflotanum kemur af þessum slóð- um. Þá hafa menn langa útivist og koma heim á milli, eða konurnar hitta þá í öðrum höfnum. Og svo setjast þeir allir að heima, þegar þeir komast á eftirlaun 55 ára gamlir eða jafnvel fimmtugir og rækta garðinn sinn. Enda er í bænum sjómannaskóli fyrir versl- unarflotann „Ecolé Nationale de la Marine Marchande". Og annar utan við bæinn, sem er einhvers konar undirbúnings sjómanna- skóli. Það lýsir kannski ástandinu þarna, að sjómannskonur báru fram kvennalista í kosningum um 1970, höfðu það eitt á stefnuskrá sinni, að mér var sagt, að greitt yrði fyrir eiginkonur farið þegar þær færu að hitta menn sína í öðr- um höfnum. Þær komu engri að. Flutningar á hveiti og kartöfl- um frá þessu frjósama landbúnað- arhéraði á Bretagne fara á sumrin Öll hjólhýsi UPPSELD Vantar fleiri á malbikuöu bíla- stæöin okkar. Armúla 7.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.