Morgunblaðið - 13.06.1982, Side 25

Morgunblaðið - 13.06.1982, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ1982 25 eftir Elínu Pálmadóttur Pjárfesting! Arðbaer! Ætli önnur orð séu vinsælli í orðræð- um og skrifum á íslandi? Öll þjóðin, með stjórnarherra í broddi fylkingar, leitar ákaft að einhverju sem gefur arð. Ein- staklingarnir hamast við að meta í hverju sé best að fjár- festa, burt séð frá því hvort þeir nokkurn tíma eiga afgangsaur. Og blöð bera saman hvort fundnu fé yrði betur borgið á vaxtaaukareikningi í banka, í verðtryggðum ríkisskuldabréf- um, í steinsteyptri íbúð. I sl. viku rakst Gáruhöfundur óvænt á arðsemi, sem eflaust slær þessu öllu við. Er öruggari. Þarf að auki sáralítið rekstrarfé og engan stofnkostnað. Eins og margar snjallar hugmyndir blasir hún við allra augum — og reynist gömul í þokkabót. Stað- urinn þar sem vitruninni sló niður í heila Gáruhöfundar: sím- stöðin. Tildrögin: greiðsla á símareikningi. Kveikjan: leigu- gjald fyrir venjulegt talfæri kr. 10,12. Við eftirgrennslan kom í ljós að greiða skal þessar rúmar 1.000 kr. gamlar á tveggja mán- aða fresti í leigu af gamla sím- tólinu á borðinu heima hjá mér. Þessi greiðsla er utan við afnota- gjaldið af heimilissímanum, númer og línu, eins og þar stendur. Og að sjálfsögðu var á sínum tíma greiddur allur stofnkostnaður við þennan heimasíma, þ.e. „símatalfæri, húslagnir og hvers konar búnað, sem setja þarf upp samkvæmt kostnaðarverði á hverjum tíma, sem telst innkaupsverð eða framleiðsluverð að viðbættum umsýslukostnaði," eins og það er orðað í símaskránni um stofn- gjald slíks undratækis. Símnot- andi hefur meira að segja skv. prentuðu reglunum um gjald- skrá „ráðstöfunarrétt á þeim búnaði, sem greiddur hefur verið á kostnaðarverði" — með leyfi póst- og símamálastjóra þó. Og vitanlega hefur verið greitt fyrir að færa tólið milli húsa. Þetta er semsagt leigugjaldið fyrir tal- færið eitt. Þessi útgjöld höfðu ekki fyrr sést á reikningnum. Stúlkan út- skýrði með kristilegri þolin- mæði, að það væri ekkert að marka. Leiga hefði alltaf verið greidd af talfærum, þótt leynt færi. Hún hefði bara verið inni í afnotagjaldinu. Núna væri hún sér, af því að leigan á símatólun- um væri orðin misdýr. Þessi 121 krónu leiga á ári verður að telj- ast spottprís. Gamla gulnaða símatólið mitt hlýtur að vera í lægsta verðflokki. (Það átti að vera hvítt, eins og Hollywood- símarnir á þeim tíma, en plastið í því reyndist svo ómerkilegt að það varð strax heiðgult.) Spurn- ingu um hvort þessi leiga á tal- færinu væri þá ekki dregin frá afnotagjaldinu og lækkaði það, var svarað neitandi. Stúlkan sagði það stafa af verðbólgunni. Ekkert lækkaði. Enda stendur skírum stöfum á reikningnum: hækkun á afnotagjaldi frá 5. 1. kr. 12,20. Að vísu meðtóku mínar heilasellur ekki útskýringuna, en það hlýtur að stafa af þeirra vanhæfni. Að hugsa sér að þetta gamla tæki, sem stendur á skrifborðinu mínu, skuli vera þvílík gullhæna. Hefur gefið látlaust af sér gull- egg upp á rúmar 1.000 kr. gamlar (miðað við núgengi) á tveggja mánaða fresti í 15 ár. Fyrir leigu á gamla svarta tækinu mínu á vinnustað hefur Morgunblaðið þá væntanlega greitt að auki 1.214,40 nýkrónur í þessi 20 ár, sem það hefur verið í seilingu við mig. Og gamla tólið, sem var komið á heimilið hans föður míns á stríðsárunum, hefur gefið af sér 2.428,80 nýkrónur á 40 ár- um. Ef við segjum að tækin á Reykjavíkursvæðinu séu um 77 þúsund (67 nöfn í dálki, 4 dálkar á síðu og númerasíðurnar í síma- skránni 288) og hvert símatól gefur af sér á tveggja mánaða fresti minnst kr. 10,12 þá hlýtur það að vera álitleg peningafúlga eftir árið. Besta fjárfestingart- ækið í landinu, og búið að greiða stofnkostnað. Aldrei hefi ég vit- að að gamla gulnaða símatólið mitt væri þvílík gersemi. Er þakklát fyrir að hafa nú loks verið leidd í sannleika um hversu mikill dýrgripur er í stof- unni minni. Af slíkum gersem- um greiðir maður að sjálfsögðu væna leigu. Afskaplega væri gott ef allar stofnanir sundur- greindu svona það sem maður borgar fyrir, svo maður geti öðl- ast rétt verðmætamat. Ekki veitir af að finna hverja matarholu um þessar mundir. Þjóðarlíkaminn er farinn að finna fyrir næringarskorti og efnaskiptin öll óklár. Flestir efnaskiptasjúkdómar í venju- legum skrokkum ku vera fólgnir í því, að of mikið er til skiptanna af efninu, að því er spesíalistinn Tage le Coer upplýsir. Þótt upp- tök umrædds efnaskiptasjúk- dóms megi kannski rekja til skyndivelmegunar stríðsáranna, þegar ofgnótt tók við af skorti og ruglaði öllu flæði okkar þjóðar- líkama, þá verður ofgnótt af efn- um til skiptanna varla okkar vandi á næstu árum. Við erum þegar komin vel á veg með að eta þorskinn út á gaddinn með því að hirða loðnuna hans, ekki hætt að ganga á gróðurlendið og gott ef við látum ekki af kjarkleysi næstu hálfa öldina jökulvatnið renna ónýtt til sjávar, eins og gert var í 50 ár eftir að Einar Benediktsson teiknaði fyrstu rafstöðina við Búrfell. Trúum kannski að efnaskiptasjúkdóm- urinn, sem nú herjar á okkur, læknist með því einu að bíða eins og tveir aðrir frægir kvillar — ófrískan og timburmennirnir. Við þeim tveimur sjúkdómum er öruggast að bíða og hafast ekki að — þá hverfa þeir í fyllingu tímans. Sé efnaskiptasjúkdóm- urinn í flokki með þeim, er ef- laust hárrétt að gera ekki neitt. Og sé minna af efninu til bóta, þá erum við vafaiaust á réttri leið. Best gæti ég þó trúað að efna- skiptasjúkdómurinn sé orðinn krónískur. Ólæknandi kerfi höf- um við sjálf komið okkur upp í starfsmatinu. Hver maður met- ur að sjálfsögðu sitt starf í efstu mörkum eða obbolítið fyrir ofan þau — það er heilbrigður metnaður fyrir lífsstarfið. Og með því að bera það óaflátanlega í aurum og mínútum saman við starf næstu stéttar — kannski þá ekki með sama metnaðarfulla mælikvarðanum — þá geta allir haldið áfram að vera alltaf óánægðir út æfina. Semsagt orð- ið krónískt og ólæknandi. Þegar kaup er nefnt, hvað þá taxtakaup, koma upp í hugann vísur, ortar þegar Jóhannes úr Kötlum, varamaður Einars Olgeirssonar á þingi, tók á stríðsárunum þátt í umræðum um þegnskylduvinnu og nefndi „taxtakaup". Þá sagði Bjarni Asgeirsson alþingismaður: Teygað hefur þorstlát þjóö af þínu boðnar-staupi. Ortir þú samt öll þín Ijóð undir taxtakaupi. Og Jóhannes úr Kötlum svar- aði: Taxtakaupið tíðum brást tregu Ijóðsins barni, en ef að það skyldi eitt sinn fást yrði ég þægur Bjarni. atriði eru allir heilskyggnir menn sammála. Norðmenn fóru þá leið, í upp- hafi síns orkuiðnaðar, að efna til samvinnu við erlenda aðila, sem réðu hráefnum, tækniþekkingu og mörkuðum, til að dreifa áhættu stofnkostnaðar og byrjunarerfið- leika. Eftir því sem orkuiðnaður þar í landi festizt í sessi juku þeir eignarhlut sinn — og enduðu oft í meirihlutaeign eða hreinni eign. Þessi leið gafst þeim vel. Rekstrartap álvers, járnblendi- verksmiðju og kísiliðju, sem verið hefur allmikið undanfarið, hefur opnað augu almennings hér á landi fyrir því, að hyggilegra hefði verið að fyljga þeirri stefnu, að koma rekstraráhættu alfarið, eða að mestu, yfir á erlenda sam- starfsaðila, — og taka sitt á þurru um orkuverð, skatta, þjónustu og vinnulaun, meðan rekstraráhætt- an var jafn auðsæ og við blasti. Vegna meirihlutaeignar íslend- inga í Járnblendiverksmiðjunni í Hvalfirði neyddist Alþingi til þess, nú undir vorið, að setja lög um hlutafjáraukningu íslenzka ríkisins, sem nam 13.5 milljónum Bandaríkjadala, og veita sjálf- skuldarábyrgðar að fjárhæð 6 milljónir Bandaríkjadala (samtals rúmlega 200 m.kr.) til að styrkja fjárhagsstöðu fyrirtækisins eftir undangenginn taprekstur. Sama sagan gerðizt með Kísiliðjuna hf. í Mývatnssveit, en þar vóru yfir- teknar skuldakröfur, vegna tap- rekstrar, með hlutafjáraukningu, serp svarar til 1.3 milljón Banda- ríkjadala (rúmlega 14 m.kr.). Und- ir slíkum kringumstæðum, þegar fjármagnsþörf til margs konar annarra framkvæmda er aðkall- andi, hlýtur það að orka tvímælis, hverja rekstraráhættu íslenzka ríkið á að taka, ef hægt er að ná viðunandi samningum um sam- eign með erlendum áhættuaðilum. Þá vakna og spuringar um, hvort ekki sé rétt að opna öðrum ís- lenzkum aðilum en ríkinu (á kostnað skattgreiðenda) eignarað- ild að orkuiðnaði hér á landi. Hver er munurinn á því að selja erlendum aðilum orku eða fisk ?, spyr Eyjólfur Konráð í áður tij.- vitnuðu greinasafni. Skiptir það ekki mestu að fara sem hyggi- legastar leiðir til að efla atvinnu og verðmætasköpun í þjóðarbú- skapnum og skapa varanlegar kjarabætur fyrir þjóðfélagsþegn- ana? Vöxtur þjóöar og ný at- vinnutæki- færi íslendingar eru vaxandi þjóð. Framkvæmdastofnun ríkisins, áætlanadeild, hefur framreiknað mannfjölda og mannafla (fólk á vinnualdri) hér á landi fram til næstu aldamóta. Sett eru fram tvö líkindadæmi um vöxt þjóðarinnar. Samkvæmt dæminu, sem gerir ráð fyrir hægari þjóðarvexti, verður íbúatala landsins sem hér segir: Árið 1980 229.100 íb. Árið 1985 242.200 íb. Árið 1990 254.900 íb. Árið 1995 265.800 íb. Árið 2000 273.800 íb. Samkvæmt þessari spá verður íbátala landsins 44.700 hærri árið 2000 en hún var 20 árum áður, 1980. Framreiknað vinnuafl, þ.e. framreiknaður fjöldi fólks á vinnualdri, var sem hér segir: 1980 100.500 manns 1985 107.800 manns 1990 114.500 manns 1995 120.400 manns 2000 126.200 manns * Hvaða lærdóma má svo draga af þessum tölum? Árið 1990, í lok þess áratugar sem nú er að líða, þurfa að vera til u.þ.b. 14.000 fleiri störf en við upp- haf hans, 1980. Og í lok þar næsta áratugar, eða um aldamót nk., þurfa að hafa orðið til u.þ.b. 25.700 ný störf á 20 ára tímabili. Það er því ekki að ástæðulausu að fram- sýnir menn leggja áherzlu á upp- byggingu orkuiðnaðar, til hliðar við hina hefðbundnu atvinnuvegi, bæði til að tryggja áframahald- andi atvinnuöryggi og til að skapa forsendur fyrir sambærilegum lífskjörum og nágrannaþjóðir búa við. Þessar tölur sýna jafnframt að tæpur helmingur þjóðarinnar telst starfandi á vinnumarkaði á hverjum tíma. Það er því ekki fjöl- mennur hópur sem rís undir til- kostnaði í þjóðfélaginu á hverri tíð. Það er meir en nauðsynlegt að þjóðin sníði ríkisútgjöldum stakk eftir vexti, — og setji skattheimt- unni „þak“ sem hlutfalli af þjóðar- tekjum hverju sinni. Þjóðartekjur eru afgerandi meiri á mann hjá samkeppnis- þjóðum en í ríkjum sósíalismans. Lífskjör eru og samsvarandi lak- ari í ríkjum sósíalismans. Óþarfi er að gera samanburð á þegnrétti og einstaklingsfrelsi í þessum tveimur þjóðfélagsgerðum. Grundvallarspurning stjórnmála er og verður valið á milli þessara tveggja þjóðfélgsgerða. I Sviss, svo dæmi sé tekið, þar sem frjálsræði ríkir, verðlagshöft þekkjast engin, og samkeppnin ríkir óheft, er vöxtur verðbólgu frá 2 til 4% á ári, kaupmáttur mikill, verkföll nær óþekkt — og efnahagsbati næsta árviss. Ef við berum stöðugleikan þar saman við „niðurtalninguna" á verðlagi hér, sem og ástand atvinnu- og efna- hagsmála almennt, gefst lær- dómsríkur reynslusamanburður, sem ekki er hægt að horfa fram hjá lengur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.