Morgunblaðið - 13.06.1982, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ1982
Hljómsveitin Vonbrigöi á sér ekki langan aldur
að baki, en hefur engu ad síður náö að vekja um-
talsverða athygli, ekki hvað síst eftir sýningu
kvikmyndarinnar Rokk í Reykjavík. Það bar flestum
saman um að Vonbrigði hefði verið önnur þeirra
tveggja hljómsveita, sem vöktu hvað mesta athygli.
Umsjónarmaður Járnsíðunnar var einnig á þeirri
skoðun. Það varð því úr að flokkurinn var tekinn
tali fyrir nokkru.
— Hvaöan eruö þiö úr höfuö-
borginni?
„Ja, viö erum nú þrír úr Breiö-
holtinu." Uþþlýsingar um uþþruna
fjóröa mannsins fengust ekki
nægilega skýrar.
— Hvaö olli því aö hljómsveit-
inni var gefiö þetta nafn?
„Þetta nafn segir nokkuö mikið
um þfessa hljómsveit. Hvaö viö
höldum, eöa héldum, um hana
fyrst."
— Hvaö er hljómsveitin oröin
gömul?
„Hún er ekki nema ársgömul í
núverandi mynd."
— Sem er hver?
Strákarnir þylja upþ, hver á eftir
öörum, lágum hljóöum: Jóhann
Vilhjálmsson bassi, Gunnar Ell-
ertsson söngur, Þórarinn Krist-
jánsson trommur, Árni Kristjáns-
son gítar. Ekki sakar aö láta þaö
fljóta meö hérna aö þeir Þórarinn
og Árni eru bræöur.
— Hvernig tónlist lékuð þið
fyrst?
„Þetta var eiginlega pönkband,
fyrstu þrír tónleikarnir, en síöan
þróaöist þetta upp og breyttist.
Breytingin varö vegna þess aö Árni
fór skyndilega aö hugsa."
— Hafiö þiö spilaö mikiö und-
anfarið?
„Nei, viö höfum ekki komið fram
víöa. Þaö bætir heldur ekkert úr
skák, aö viö eigum engin hljóö-
færi."
— Hvernig fariö þiö þá aö æfa?
„Viö fáum aö æfa hjá Þeysurun-
um úti á Álftanesi. Þaö getur
Gunnar Ellertsson, söngvari.
Þórarinn Árnason, trommuleikari.
stundum veriö erfitt aö komast
þangaö."
— Um hvaö fjalla textarnir ykk-
ar?
V
o
G
Ð
„Viö reynum alltaf aö hafa ein-
hverja meiningu í textunum . Viö
viljum ekki hafa þá innihalds-
lausa."
— Gengur ekki illa aö halda úti
hljómsveit, sem á engin hljóöfæri?
„Þaö er nú stundum hálfgert
basl, en viö stefnum aö því aö
kaupa græjur í sumar. Viö getum
t.d. ekki haldiö tónleika nema meö
því aö halda þá meö einhverjum
Árai Kristjánsson, gftarMkari.
Jóhann Vilhjálmsson, bassaleikari.
öörum. T.d. héldum viö tónleika
með Bodies í Hafnarbíó! um dag-
inn. Þaö var nú illa auglýst og ekki
nema 700 kall í gróöa. Þeir fengu
hann auövitaö því þeir voru meö
þessa tónleika."
— Hafiö þiö ekki lent í neinu
basii á tónleikum út af hljóöfæra-
leysi?
„Þaö hefur ekki gerst nema einu
sinni þegar viö spiluöum í Kópa-
vogsbíói. Þá uröum viö aö hætta
eftir tvö lög. Græjurnar voru orön-
ar ónýtar. Nast og Sjálfsfróun spil-
uöu á undan okkar."
— Einhver sagöi, aö þið væruö
á ieiöinni í upptöku. Hvaö er til i
því?
„Já, viö höfum mikiö veriö aö
velta þessu fyrir okkar. Líkast til
veröur raunin sú, aö viö tökum upp
6 lög á 12 tommu plötu. Viö höfum
breyst mikiö frá því, sem sást í
Rokk í Reykjavík."
Vonbrigði hefur ekki aöeins
breyst mikiö frá þeim tíma heldur
einnig frá því hljómsveitin var
stofnsett. Þeir félagar hófu ferilinn
meö kassagítar, tambúrínu og
trommusett, sem var mest í formi
dósar. Frumstæö hljóöfæri þaö, en
lítiö hefur breyst til batnaöar í
þeim efnum, þótt vissulega standi
vonir til aó breyting veröi til batn-
aöar í sumar. Strákarnir eru allir
farnir aö vinna þannig aö hljóöfæri
ættu aö komast í gagniö meö
haustinu.
„Okkur finnst miklu skemmti-
legra aö leika fyrir unglingana en
eldri áheyrendur. Krakkarnir eru
miklu þakklátari fyrir þaö sem fyrir
þau er gert. Þegar viö erum t.d. aö
spila á Borginni veróur skemmti-
legasta fólkiö aö vera úti. Sjálfir
fáum viö varla aö vera lengur inni á
Borginni en nauösyn krefur. Viö
erum nefnilega svo ungir ennþá.
Svo áttum við varla aö fá að fara
inn í Óöal þegar frumsýningar-
partýiö eftir Rokk í Reykjavík var
haldið þar. Þaö var bara fyrir náö
og miskunn. Þaö er sko ekki sama
hver á í hlut," sögöu þeir félagar í
Vonbrigöi og þar meö slitum viö
spjallinu.
Pálmi segir
skilið vio
Friðryk
Þaö er ekki eitt heldur allt i
poppinu Jaz Coleman hefur
sagt skiliö viö Killing Joke eins
og alþjóð mun vafalítió nú vera
kunnugt og fyrir skemmstu
hvarf Joe Strummer af vett-
vangi í miðri tónleikaferö hjá
Clash.
Nú höfum viö fregnaö aö
Pálmi nokkur Gunnarsson hafi
sagt skiliö við Friöryk. Fylgir
ennfremur sögunni, aö Tryggvi
Húbner hyggist spreyta sig á
bassanum og gítarleikurinn
verði þar meö alfariö í höndum
Björgvins Gíslasonar.
Af „síðasta valsi“ Borgarinnar
Rúmlega 400 manns létu sig
hafa það að maeta á síðustu tón-
leika sumarsins á Borginni á
fimmtudag í síöustu viku. Komu
þar fram þrír fríðir flokkar, Von-
brigði, Jonee Jonee og Purrkur
Pillnikk.
Þaö veröur aö segjast hreint út
aö þessi samkoma var alveg meö
ágætum. Vonbrigöi hóf dagskrána
og komst vel frá sínu. Ekki fór þó
leynt aö flokkurinn er lítt sviös-
vanur og þótt þeir séu e.t.v. orönir
leiöir á lögum á borö viö „Ó,
Reykjavík", er ekkert viö því aö
segja. Þaö var hins vegar þaö lag,
sem lýöurinn beiö eftir að heyra en
fékk ekki. Sviósvanari popparar
heföu lætt þessu meö, ekki hvað
síst í Ijósi þess, aö flokkurinn var
klappaöur upp. Vonbrigöi á tals-
vert langt í land enn með aö veröa
góö hljómsveit, en hún hefur alla
burði í slíkt.
Aldrei hélt ég aó ég ætti eftir aö
heyra þriggja manna hljómsveit,
og gítarlausa í þokkabót, gera ein-
hverjar rósir. Því varö ég hins veg-
ar aö kyngja rækilega á þessum
sömu tónleikum. Meö trommum,
bassa, söng og saxófóni endrum
og sinnum, náöi Jonee Jonee föst-
um tökum á áheyrendum sínum.
Trommuleikari tríósins er einhver
sá allra athyglisveröasti á
markaönum og til samans mynda
hann og bassaleikarinn frábært
rythmapar, sem vinnur vel saman.
Þaö eina, sem finna mátti aö
prógrammi þeirra Jonee Jonee-
manna var, aö þaö var of langt.
Tónlist, sem þessi, veröur þreyt-
andi þegar til lengdar lætur. Stutt
hnitmiöaö prógramm heföi komið
betur út.
Purrkurinn veröur ekki tekinn
fyrir hér aö sinni. Hann hefur ný-
veriö fengiö itarlega umfjöllun og
látum viö hana nægja. — SSv.
Þeysarar fara
til Svíþjóðar
Járnsíðan birti um tl. helgi viðtai
við Þeysara og kom þar m.a. fram,
að flokkurinn hygöist halda í víking
til Englands nú um mánaðamótin.
Um helgina fengum við þsar
fregnir, að ferðatilhögun hefði öll
breyst hjá þeim Þeysurum. Þeir
halda ekki úr landi fyrr en um miðj-
an mánuðinn og taka þá stefnuna á
Svíþjóð. Þar verður leikiö á nokkr-
um stööum og síðan verðum haldið
til Englands í fyrstu viku júlímánað-
ar.
Plata Úlvanna
er á leiðinni
Plata Ulvanna er væntanleg
núna allra næstu daga er okkur
tjáð. Er hér um aö ræöa fjögur lög,
sem tekin voru upp í Grettisgati
fyrir skemmstu.
Þessi hljómsveit, sem áöur hét
Pjetur og Úlfarnir, gaf út eina plötu
undir þvi nafni og náöi hún miklum
vinsældum, mest vegna lagsins
Stjáni saxófónn.
Tónlistin á nýju plötunni er veru-
lega breytt frá því sem þá var og
um leiö öll áheyrilegri.
Enginn skýlir sér á
bak við skammdegið nú
— afsökunarbeiðni til Grýlanna —
Þaö er oft notaö sem afsökun,
að mönnum veröi ýmislegt á í
skammdeginu. Umsjónarmaður
Járnsíöunnar getur hins vegar
ekki stuöst viö myrkriö aö þessu
sinni.
Leiðinleg mistök áttu sér staö
á Járnsíöunni á laugardag. Þar
stóö, aö Grýlurnar væru u.þ.b.
aö fá nýjan gítarleikara, þ.e. Inga
Rún heföi hætt og leit stæöi yfir
aö arftaka hennar. Var þetta
byggt á heimildum sem til þessa
hefur ekki þótt ástæöa til aö
vefengja.
Svo er þó ástæóa til aö þessu
sinni. Gítarleikaraskipti eru alls
ekki fyrirhuguö í Grýlunum, held-
ur er veriö aö bæta við gítarleik-
ara. Umsjónarmaður Járnsíö-
unnar biöst afsökunar á þessum
leiöu mistökum og vonast til þess
aö þau komi ekki niöur á spila-
mennskunni hjá þessari einu
kvennarokkhljómsveit landsins.
— SSv.