Morgunblaðið - 13.06.1982, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ1982
35
Skákmótið í Tórínó;
Fyrsti ósigur Karpovs
gegn Júgóslava
Skák
Margeir Pétursson
í höll hinna fögru lista á syðri
bakka Po-árinnar hér í Torino á
Ítalíu fer nú fram eitt sterkasta
skákmót allra tíma með þátttöku
heimsmeistarans Anatoly Karpovs
og sex annarra af öflugustu skák-
mönnum heiras. Þetta er reyndar
fyrsta mótið þar sem þátttakendur
eru fleiri en fjórir sem n»r því að
vera í 16. styrkleikaflokki FIDE.
Hver þátttakandi kemur til
með að tefla tvær skákir við
hvern hinna og mótið ætti því að
gefa mjög raunsæja mynd af því
hver sé nú sterkasti mótaskák-
maður í heimi. Að minnsta kosti
var það hugmynd aðstandenda
mótsins er þeir ákváðu að halda
það. En það er samt lýðum ljóst
að a.m.k. þrjá af sterkustu
stórmeisturum heims vantar til
leiks. Það eru þeir Korchnoi,
Timman og Kasparov. Svo sem
flestum er líklega kunnugt verða
mótshaldarar jafnan að velja á
milli þess að bjóða Viktor
Korchnoi eða sovézkum stór-
meisturum til sín, því hinir síð-
arnefndu neita að tefla við
Korchnoi nema um mót sé að
ræða sem eru liður í heimsmeist-
arakeppninni. Að þessu sinni
vildu Italir fremur fá heims-
meistarann og þátttaka
Korchnois kom því ekki til
greina.
Það hefði vissulega einnig ver-
ið gaman að sjá nýjustu stjörn-
una, Garry Kasparov, í þessu
sterka móti, en hann er nýbúinn
að sigra á geysisterku móti í
Bugojno í Júgóslavíu og því
væntanlega þreyttur eftir það.
Skæðar tungur segja hins vegar
að Karpov sé ekki ýkja hrifinn
að því að mæta Kasparov á mót-
um og því hafi sovézka skáksam-
bandið tekið þá ákvörðun að
stórmeistarinn ungi yrði ekki
með. Hvað sem hæft er í þessu er
það staðreynd að þeir Karpov og
Kasparov, sem margir spá að
verði næsti áskorandi hans, hafa
mætzt óeðlilega sjaldan á mót-
um.
Öfugt við þessa tvo var Jan
Timman á þátttakendalistanum
allt fram á síðustu stundu, en
aðstandendum mótsins til mik-
illa vonbrigða sendi hann afboð
daginn áður en mótið byrjaði. Þá
var orðið of seint að fylla skarð
hans og mótið hófst því með að-
eins sjö keppendum.
Er fréttist af fjarveru Timm-
ans í viðbót við hina tvo töldu
flestir að Karpov myndi vinna
öruggan sigur á mótinu, en nú
þegar er komið í ljós að svo verð-
ur ekki. Á laugardaginn var átti
heimsmeistarinn slæman dag og
tapaði fytrir júgóslavneska
stórmeistaranum Ljubojevic.
Þetta er í fyrsta sinn sem Júgó-
slava tekst að vinna Karpov eftir
að hann varð heimsmeistari og
fögnuður Ljubojevics og sam-
landa hans hér í Torino var því
óskiptur.
Hvítt: Ljubojevic
Svart: Karpov
Spænski leikurinn.
1. e4 — e5, 2. Rf3 — Rc6, 3. Bb5
— a6, 4. Ba4 — Rf6, 5. 0-0 Be7, 6.
Hel — b5, 7. Bb3 — 0-0, 8. c3
Ljubojevic gefur kost á Mars-
hall-árásinni sem kemur upp
eftir 8. c3 — d5. í síðustu viður-
eign þeirra Karpovs í London í
vor, lék hann hins vegar 8. a4,
sem leiðir til hins svonefnda
Anti-Marshall-afbrigðis. Þeirri
skák lauk með jafntefli, en Júgó-
slavinn stóð lengst af betur.
8. — d6, 9. h3 — Bb7, 10. d4 —
Rd7
Karpov hefur hér oft leikið 10.
— He8, en nú velur hann aðra
leið til að þrýsta á miðborðið.
11. Rbd2 — Bf6, 12. Rfl — He8,
13. Rg3 — g6, 14. BH6 — Ra5, 15.
Bc2 — c5, 16. d5
Eftir þessa ákvörðun Ljuboje-
vics lokast staðan og baráttan
verður rólegri.
16. — Rc4, 17. Dcl — Bg7, 18. a4
— Rcb6, 19. a5 — Rc8, 20. c4
Hvítur þreifar fyrir sér á
drottningarvæng.
20. — Bxh6, 21. Dxh6 — Df6, 22.
Re2 — Re7, 23. Rc3 — b4
24. Ba4 — Bc8
Ef 24. - bxc3 þá 25. Bxd7 -
Hd8, 26. ba4 — cxb2, 27. Habl og
hvítur nær peðinu aftur með
betri stöðu.
25. Bc6 — Rxc6, 26. dxc6 — bxc3,
27. cxd7 — Bxd7, 28. bxc3 — De7
Svartur hefur fengið viðun-
andi stöðu, en hér fer hann fram
á of mikið. Eftir 28. — Hab8 var
jafnvægið tryggt.
29. Hedl — Hed8.
Hvítur hótaði 30. Dd2.
30. Habl — Ba4?
Nú nær hvítur mjög sterku
frumkvæði. Rétt var því enn 30.
- Hab8.
31. Hd2 — Hab8, 32. Hdb2 —
Hxb2, 33. Hxb2 — f6, 34. Hb6 —
Dc7, 35. Rh2
Vinningsleikurinn. Þessi ridd-
ari stefnir bæði til g4 og d5.
35. — Bc6, 36. Rg4 — Hf8, 37. f3
— f5, 38. exf5 — Hxf5, 39. Dd2 —
Kg7, 40. Hxa6
Nú loksins er kominn tími til
að taka þetta peð. Svartur fær
ekkert mótspil og í örvæntingu
fórnar Karpov öðru peði.
40. - e4?, 41. fxe4HI7, 42. e5
— Dc8.
Eða 42. — dxe5, 43. hxc6 —
dxc6, 44. Rxe5 og síðan vinnur
hvítur drottningarendataflið
auðveldlega.
43. Dh6+ — Kh8, 44. e6 — Hg7,
45. Hb6 og í þessari vonlausu
stöðu gafst Karpov upp fremur
en að setja skákina í bið, enda er
hann tveimur peðum undir auk
þess sem hann er í krappri vörn.
MALLORCA
Viö bjóöum lúxusvillur og íbúöir viö paradísarstaöinn Puerto de Andraitx á Mallorca. Þetta
litla þorp heitir Mini-Folies og býöur uppá allt þaö sem hugur ferðamannsins girnist, svo
sem tvær sundlaugar og eina barnalaug, diskótek og næturklúbb, frábæra útvistar- og
sólbaösaöstöðu, veitingastaöi og bari, fjóra tennisvelli, leikfimisali og sjónvarpssal, ein-
staklega góöa útvistar- og leikaöstööu fyrir börn á öilum aldri.
Fullyröa má, aö þetta sé einhver sú glæsilegasta gistiaöstaöa sem fslendingum stendur til
boöa í ár.
BROTT-
FARAR-
DAGAR:
15. júnf, laus sasti, greiöslukjör.
6. júlí, örtá sssti laus.
27. júlí, fullbókaö, biólisti.
17. ágúst, fullbókaö, biöliati.
7. saptambar, örfá sasti laus.
28. saptambar, laus sæti.
Nánari upplýsingar
ásamt myndbandi
(videó) á skrifstofu
okkar.
AMSTERDAM
Amsterdam er oft kölluö Feneyjar
noröursins, vegna hinna ótal síkja, en
hún er einnig þekkt sem blómapara-
dís og mikil verslunarborg. Hafiö
samband viö skrifstofu okkar og fáiö
nánari upplýsingar um verö.
PARÍS
Einstaklega ódýrar vikuferöir til Parísar 19. júní
uppselt og 26. júní örfá sæti laus. Dvalið veröur á
Hotel St. Jaques, sem er mjög gott fjögurra
stjörnu hótel, staösett rétt viö Latínuhverfiö.
Fararstjóri er Emil Eyjólfsson, en hann bjó lengi í
París og er borginni þaulkunnugur og reyndur
leiösögumaöur.
Verö kr. 6.800.-.
(gengi 4/6).
Innifaliö í veröi: Flug, akstur frá flugvelli til hótels
og til baka, gisting meö morgunveröi og íslenskur
fararstjóri.
Nánari áætlun meö kynnis- og skoöunar-
feröum á skrifstofu okkar.
Viö bjóöum sérstaklega ódýrar feröir
til þessarar fallegu og glaöværu borg-
ar.