Morgunblaðið - 13.06.1982, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ1982
Móöir okkar. t
GUÐRÚN KARLSDÓTTIR,
Stigahlíö 4,
lést á öldrunarlækningadeild Landspítalans, Hátúni 10 B, töstu-
daginn 11. júní. Svainbjörg Jónsdóttir, Ingibjörg Jónadóttir, Ragnar Jónsson, Rögnvaldur Jónsson.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
HALLDÓR ARINBJARNAR,
Inknir,
veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni þriöjudaginn 15. júní kl.
15.00.
Geröur Guónadóttir,
Jónína Margrót Arinbjarnar,
Kristján Arinbjarnar,
Guóni Arinbjarnar.
t
Elskulegur eiginmaöur minn,
JÓN HELGI JÓHANNESSON,
Hamri, Strandgötu 69,
veröur jarösunginn frá Hafnarfjaröarkirkju þriöjudaginn 15. júní kl.
13.30.
Jóna Hallgrimsdóttir,
Hafsteina Jónsdóttir Magliolo,
Ingibjörg Jónsdóttir,
Stafón Jónsson,
Helgi Jónsson,
Jóhanna Jónsdóttir.
t
Útför móöur minnar, tengdamóöur og ömmu,
GUÐRÚNAR JÓHÖNNU EINARSDÓTTUR
fró Garöhúsum, Grindavík,
veröur gerð þriöjudaginn 15. júní kl. 1.30 eftir hádegi frá Foss-
vogskirkju. Blóm vinsamlegast afþökkuö. Þeir sem vildu minnast
hennar góöfúslega látiö Slysavarnafélagiö njóta þess.
Erla Guöbjörg Einarsdóttir, Ólafur Sigurösson,
Sigurður Óli,
Einar Oddur
Guðrún Hanna og fjölskylda.
t
RAGNAR ÓLAFSSON
hæstaróttarlögmaöur,
veröur jarösunginn miövikudaginn 16. júní kl. 13.30 frá Dómkirkj-
unni.
Kristín Ólafsdóttir,
Ólafur Ragnarsson, María Jóhanna Lárusdóttir,
Oddný M. Ragnarsdóttir, Hrafnkell Ásgeirsson,
Kristín R. Ragnarsdóttir, Geir A. Gunnlaugsson,
Ragnar Ragnarsson, Dóra Steinunn Ástvaldsdóttir,
og barnabörn.
t
Elskuleg eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir, systir og
amma,
MAGDALENA GUÐMUNDSSON,
Sólvallagötu 11, Rvk.,
fyrrum húsfrú frá
Stóra-Hofi Rangárvallasýslu,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 15. júní kl.
10.30.
Guómundur M. Þorláksson,
Vilhjálmur Vilhjálmsson, Erna Baldvinsdóttir,
Sylvía Hildur Ágústsdóttir, Tómas Sigurpálsson,
Guðmundur Einar Ágústsson Þórunn Sigurðardóttir,
Ragnhildur Elín Ágústsdóttir.Garöar Erlendsson,
George Frese, Irma Frese,
Gehard Frese, Marga Frese
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andiát og
útför fööur okkar,
KARLS ÓLAFSSONAR,
Hala, Djúpárhreppi.
Guðrún Karlsdóttir, Jón Vigfússon,
Kristín Karlsdóttir, Ólafur Þórarinsson,
Trausti Karlsson, íris Karlsdóttir,
Jón Karlsson,
Jóna Karlsdóttir, Jón M. Gunnarsson
og barnabörn.
Jón Bjarni Hjart-
arson — Minning
Fæddur 18. desember 1924
Díinn 20. maí 1982
„Trúr skaltu vera og tryggur í
lund, þá mun tíðin þér hamingju
flytja varfærin tunga og verkafús
mund, mun verða til farsælla
nytja.“
Með þessum orðum skáldsins
kemst ég næst því að lýsa bestu
eiginleikum Jóns Bjarna Hjart-
arsonar. Þó eru þeir ekki nærri
allir taldir. Árið 1931 kynntist ég
foreldrum hans og systkinum. Þá
var hann á 7. ári, lítill og ljúfur
drengur. Þótt hann stækkaði og
æviárunum fjölgaði, var hann
alltaf sami ljúfi og glaði drengur-
inn. Trygglyndur, hjálpfús og trúr
í starfi sínu fyrir aðra. Umhyggju-
samur heimilisfaðir.
Hann var fæddur að Mýrum í
Eyrarsveit 18. desember 1924. Þar
ólst hann upp hjá foreldrum sín-
um ásamt 5 systkinum. Foreldrar
hans voru hjónin Hjörtur Rós-
mann Jónsson og Kristín Svein-
björnsdóttir, sem lengi voru ábú-
endur á Mýrum. Snemma byrjaði
Jón að vinna, því vinnusemi var
ein af dyggðum foreldra hans og
systkina. Jóni þótti túnið lítið og
heyfengur seintekinn á snöggum
mýrum. Hann réðist því í að ræsa
fram mýrarnar og breyta þeim í
tún, en það var á brattann að
sækja. Fyrsta tilraun með þurrk-
un á mýrum mistókst. Þá var að
vinna upp aftur, sem tókst betur.
Tæplega er þó hægt að segja að
hann hafi fengið fyrirhöfn sína
full borgaða. Hann var sá maður
sem aldrei gafst upp við að ná
hæsta tindinum. Árið 1957 kom að
Mýrum til Jóns Hjördís Einars-
dóttir með Lilju Sigurðardóttur,
dóttur sína smábarn. Henni
reyndist Jón sem besti faðir. Það
hefir Lilja reynt að launa honum.
Sambúð Hjördísar og Jóns var
nokkuð iöng. Þau eignuðust þrjá
efnilega syni. Elstur er Hjörtur
Rósmann, fæddur 1958, giftur og
búsettur í Vestmannaeyjum. Kona
hans er Þórunn Sveinsdóttir. Þau
eiga einn son, Jón Bjarna. Ólafur
Ingi er annar í röðinni, fæddur
1960, og Sigurjón Gunnar yngstur,
fæddur 1964. Þeir tveir hafa verið
heima.
Jón vildi bæta húsakost á Mýr-
um. Vegna umbóta á íbúðarhúsinu
þar fluttu þau að Hellnafelli því
þar er íbúðarhús sem var í eyði, en
áfram var haldið búskap á Mýr-
um. Til þess að afla tekna til að
kosta nýrækt og uppbyggingu
húsa fyrir fólk og fénað, þá vann
hann lengi fyrir hreppsfélagið.
Var þá oft langur vinnudagur.
Hann vann einnig við fiskverkun.
Alls staðar af sömu trúmennsk-
unni. Nú er starfi hans lokið hér á
meðal okkar. 20. mai hrapaði hann
til bana úr Mýrarhyrnu. Var þar
við eggjatöku. Með honum var þá
drengur sem fermdist á hvíta-
sunnudag, Kristinn Þorbergur
Afmælis- og
minningargreinar
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn-
ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið-
vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar
mega ekkí vera í sfendibréfsformi. Þess skal einnig
getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn
látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morg-
unblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með
góðu línubili.
t
Útför móður okkar,
KRISTRÚNAR ÞORLEIFSDÓTTUR,
Grjótagötu 4,
fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 15. júní kl. 13.30.
Börnin.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarkveöjur viö andlát og
útför eiginkonu minnar, móöur, tengdamóöur og ömmu,
AÐALHEIÐAR VILBERGSDÓTTUR,
Ásgeröi 3, Reyöarfiröi.
Hjalti Gunnarsson,
Erla Hjaltadóttír, Arnþór Magnússon,
Gunnar Hjaltason, Halla Einarsdóttir,
Álfheiöur Hjaltadóttir, Kristján Kristjónsson,
Vilbergur Hjaltason, Jenný Ingvarsdóttir,
Sigurbjörg Hjaltadóttir og barnabörn.
t
Þökkum hlýhug og vináttu viö andlát og útför,
EIÍNAR JÓNSDÓTTUR,
Borgarnesi.
Halldóra Jónsdóttir, Ragnar Ásmundsson,
Ragnar Jónsson, Guörún Georgsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Sigurjónsson, til heimilis í Grund-
arfirði. Hann var mjög hændur að
Jóni heitnum. Einn af góðum eig-
inleikum hans var hvað hann var
barngóður. Hændust því börn að
honum.
Ég bið algóðan guð að styðja og
styrkja þennan dreng að þessi at-
burður verði honum ekki þung
byrði á lífsleiðinni.
Til þess er tekið hvað hann tók
þessu slysi af djörfung og still-
ingu. Hvað sem oss hendir á lífs-
leiðinni er gott að leita huggunar í
nýárssálmi Matthíasar Jochums-
sonar: „í hendi Guðs er hver ein
tíð,/ í hendi guðs er allt vort
stríð,/ hið minnsta happ, hið
mesta fár,/ hið mikla djúp, hið
litla tár.“
Fyrir ofan bæinn á Mýrum,
æsku- og æviheimili Jóns er fjallið
Mýrarhyrna. Þar verpa mávar og
veiðibjöllur. Þar sem svo hagar til
vex kjarnmikill gróður sem sauðfé
sækir mikið í. Féð á Mýrum og
fleiri nærliggjandi bæjum sótti
mikið í þessa beit. Snemma byrj-
uðu Mýrarbræður, Jón og Svein-
björn, að sækja fé í Mýrarhyrnu.
Fóru þeir oft það sem öðrum var
ekki fært. Þeir voru fullhugar á
því sviði. Fyrir nokkrum árum var
girt fyrir mestu hraphættuna á
Mýrarhyrnu, því oft var margt fé
sem hrapaði úr hyrnunni. Við
þessa girðingu létti óttafargi af
mörgum, fyrst og fremst vegna
þess að nú þurftu menn ekki að
leggja sig í lífshættu við að bjarga
fé þaðan og minni hætta á að fé
færi þar í ógöngur. Þetta er einn
þáttur í lífsstarfi Jóns. Þar gekk
hann sitt seinasta spor. Milli mín
og dauðans er aðeins eitt fótmál.
Kynni mín af Jóni, sem eru orð-
in nokkuð löng, einkenndust af
órofa tryggð og hjálpsemi. Þetta
vil ég að leiðarlokum þakka hon-
um. 28. maí var hann jarðsunginn
frá Grundarfjarðarkirkju að
viðstöddu fjölmenni ættingja,
vina og samstarfsmanna. Sókn-
arpresturinn, Jón Þorsteinsson,
flutti þar huggunarrík og hjart-
næm kveðjuorð.
Nú hvílir Jón frá Mýrum í Set-
bergskirkjugarði. Þar hvíla for-
eldrar hans og Ágúst bróðir hans.
Hvíli góður samferðamaður í guðs
friði. Ég votta öilum ástvinum
Jóns dýpstu samúð mína. Guð
blessi ykkur minninguna um góð-
an dreng.
„Far þú í friði, friður guðs þig
blessi. Hafðu þökk fyrir allt og
allt.“
Ágúst Lárusson
frá Kötluholti.
Legsteinn er
varanlegt
minnismerki
Framleiðum ótal
tegundir legsteina.
Allskonar stærðir og
gerðir. Veitum fúslega
upplýsingar og ráðgjöf
um gerð og val
legsteina.
S.HELGASONHF
STEINSMKUA
SKEMMUVEGt 48 SlMI 76677