Morgunblaðið - 13.06.1982, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ1982
41
Anker Jörgensen:
„Danmerkur-
meistari
í málamiðlun“
Danska stjórnin heldur velli,
þrátt fyrir erfiðleika
Frá fréttaritara Morgunblaðsins
í Kaupmannahöfn, Ib Björnbak.
Minnihlutastjórn danskra sósí-
aldemókrata verður áfram við
völd, undir forystu Anker Jörg-
ensens, forsætisráðherra, þótt ný-
afstaðin þingslit væru með þeim
hætti að mjótt var á mununum.
Allt fram að síðasta þingdegi
mun forsætisráðherrann sjálfur
hafa efast um að stjórnin héldi
velli, en Anker Jörgensen hefur í
tímans rás áunnið sér titilinn
„Danmerkurmeistari í málamiðl-
un“.
Því verða sósíaldemókratar
nú í forsæti er Danir taka við
formennsku í Efnahagsbanda-
lagi Evrópu, 1. júlí nk. en það
voru Róttæki vinstri flokkurinn
og Sósíalski þjóðarflokkkurinn,
sem björguðu lífi ríkisstjórnar-
innar á síðustu stundu. Sæst
var á stuðningsbætur til land-
búnaðarins, sem forystumenn í
landbúnaði eru reyndar mjög
óánægðir með, og stjórnin fékk
staðfest lög sem miða að því að
skapa atvinnu handa ungu
fólki.
Nú velta menn því fyrir sér
hversu lengi ríkisstjórnin geti
haldið velli, eftir að kemur að
skuldadögum, því í raun er ekki
að finna í stefnu hennar neina
lausn á efnahagsvandanum,
sem eykst sífellt. Ekki þykir því
ólíklegt að stjórnin lendi í úlfa-
kreppu strax í október og að
boðað verði til nýrra kosninga í
desember, aðeins ári eftir síð-
ustu kosningar. Tala atvinnu-
leysingja í Danmörku, sem
þiggja bætur af ríkinu, nemur
nú 280.000. Verðbólgan er 12%
á ársgrundvelli og aukin út-
gjöld munu á næsta ári verða
innheimt með mikilli skatta-
hækkun. Halli á fjárlögum
ríkisins nemur í ár 50 milljörð-
um danskra króna og í fjárlög-
um fyrir árið 1983, sem þingið
þarf að fjalla um og samþykkja
í október, er gert ráð fyrir 70
milljarða króna halla.
Ríkisstjórnin hyggur í haust
á breytingar á skattafyrir-
komulagi og einnig eru uppi
áform um aðgerðir, sem eiga að
lögbinda rétt ungs fólks til
vinnu og menntunar. Gera á
borgar- og hverfaráðum kleift
að hrinda þessum aðgerðum í
framkvæmd. Vextir fara hækk-
andi í Danmörku, en þeir eru
fyrir einhverjir þeir hæstu í
Evrópu. Ríkið verður að standa
undir vaxandi halla á erlendri
lántöku með sölu ríkisskulda-
bréfa og nálgast vextir af þeim
nú að vera 23%.
I haust hefja aðilar vinnu-
markaðarins viðræður um nýtt
samkomulag til næstu tveggja
ára og segir forsætisráðherr-
ann að ríkisstjórnin muni ekki
hafa bein afskipti af þeim við-
ræðum, heldur styðja verka-
lýðsfélög og vinnuveitendur í
tilraunum til að koma í veg
fyrir óraunhæfar kauphækkan-
Bolur nr. 152 kr. 79.95
Buxur nr. 152 kr. 229,—
Bolur nr. 170 kr. 89.95
Buxur nr. 12 kr. 239,—
Bolur nr. 128 kr. 97.95
Buxur nr. 122 kr. 229.—
Blússa nr. 98 kr. 149.—
Buxur nr. 104 kr. 159.—
Peysa nr. OJ kr. 39.95
Buxur nr. 92 kr. 140.—
Sendum í póstkröfu um land allt.
þinginu í haust.
landsteinana, í von um alþjóð-
lega sveiflu upp á við í efna-
hagsmálum — og ekkert bendir
til að slíkt sé í nánd.
A meðan reynir almenningur
í landinu að spara á heimavelli,
t.d. með því að fækka utan-
landsferðum og eyða sumar-
fríinu heima í Danmörku. Veð-
urútlitið bendir til þess að
þrátt fyrir allt verði sumarið
ekki svo afleitt.
Sumartískan á börnin
og unglingana
Anker Jörgensen.
Allar líkur eni i að það verði heitt í kolunum i danska
demókrata, sem nemur þremur
þingsætum frá því í desem-
berkosningunum, en þá fengu
þeir 59 af 175 þingsætum í
Danmörku, en auk þess hafa
Grænlendingar og Færeyingar
tvö sæti hvorir í danska þjóð-
þinginu. Sósíalski þjóðarflokk-
urinn sækir á í þessari Gallup-
könnun, sem gerð var í maí sl.
en borgaralegu flokkarnir fjór-
ir ríða hins vegar ekki feitum
hesti frá henni. Rætt hefur ver-
ið um stjórn þeirra flokka sem
valkost við núverandi stjórn, en
styrkur þeirra er ekki nægur til
að slíkar vangaveltur séu
raunhæfar.
Það er vandséð hvernig Dan-
ir eiga að rata út úr efnahags-
vandanum. Forsætisráðherr-
ann, Anker Jörgensen, verður
að beina sjónum sínum út fyrir
Þó að landsmenn séu í sum-
arskapi þessa dagana má því
búast við að misviðrasamt
verði í stjórnmálunum er líða
tekur á haustið, sama hvernig
annars kann að viðra.
Síðasta Gallup-skoðanakönn-
un sýndi fram á tap Sósíal-
HAGKAUP
Skeifunni15