Morgunblaðið - 13.06.1982, Qupperneq 48
AUGLYSINÍ.ASIMrNN ER:
22480
Rjúkandi kaffi
og heit brauð fra kl. 7
SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 1982
Ekkert þokaðist á fund-
um ASÍ og VSÍ í gærdag
Samninganefndir ASÍ og VSÍ
komu saman til fundar í gærmorg-
un, en ekkert þokaöist í sam-
komulagsátt og lauk fundi fyrir
hádegi, án þess aö nýr væri boöað-
ur.
— Sáttanefndin ætlar að
hittast klukkan 14.00 í dag og
ræða málin, en engin ákvörðun
hefur verið tekin um framhald-
ið, annað en aðilum hefur verið
sagt að vera viðbúnir fundum,
sagði Guðlaugur Þorvaldsson,
15 ára leikmað-
ur í 1. deild
SIGURÐUR Jónsson, 15 ára
Skagamaöur, var valinn í hóp 16
leikmanna Akranesliðsins, sem
keppa átti við Fram í 1. deild á
Akranesi i gær.
Svo ungur piltur hefur ekki
áður verið valinn til að leika
með meistaraflokki 1. deildar-
liðs. Sigurður er fæddur í sept-
ember 1966 og er ennþá í 3.
at'birsflokki.
A. mati sérfræðingi er Sig-
•irður einn efnilegas’.i knatt-
spyrnumaour, sem komið hef-
ur fram á íslandi um langa
hríð. Erlend atvinnumannalið
hafa sýnt Sigurði áhuga og
hann hefur m.a. æft um tíma
með skozka liðinu Glasgow
Rangers.
ríkissáttasemjari, í samtali við
Mbl.
Guðlaugur Þorvaldsson sagði
ennfremur aðspurður, að engin
formleg sáttatillaga væri í burð-
arliðnum.
Sáttanefndin gekk á fund
Gunnars Thoroddsens, forsæt-
isráðherra, í gærmorgun klukk-
an 08.00, áður en samninga-
nefndirnar komu saman klukk-
an 09.00 og skýrðu forsætisráð-
herra frá stöðu mála.
Fjöldi rússn-
eskra rann-
sóknaskipa
við landið
FJÖLDI rússneskra rannsóknaskipa
hefur fengið leyfi íslenzkra stjórn-
valda til aö stunda ýmiskonar rann-
sóknir við ísland í sumar og munu
Rússar hafa fengið að minnsta kosti
8 rannsóknaleyfi fyrir skip sin.
Sem stendur eru tvö rússnesk
rannsóknaskip við kolmunna-
rannsóknir út af Austfjörðum og
halda þau sig á svæðinu frá 20
mílum frá landi, út fyrir miðlínu.
Venjulega hafa Rússar hafið
kolmunnarannsóknir úti fyrir
Norð-Austurlandi í byrjun júlí, en
nú þegar eru komin 2 rússnesk
veiðiskip og 2 búlgörsk til veið-
anna. Þá er enn nokkur fjöldi
rússneskra togara á karfaveiðum
djúpt undan Reykjanesi.
Olíuveröshækkunin:
HEYFLUTNINGAR I JÚNÍ — Sumarið kom seint í byggðunum við
Isafjarðardjúp. Á Snæfjallaströnd var orðið heylaust á nokkrum bæjum
og var gripið til þess ráðs að fá varðskipið Óðin til að fiytja þangað 15
tonn af heyi frá Hvammstanga. Myndin sýnir er verið var að hífa heyið
um borð i léttbát varðskipsins, Snæfjallaströnd í baksýn.
Morgunblaöiö/ Helgi lUllvarösson.
Gasolíuverð:
Lítrinn er
44,8% ódýrari
í Grimsby
en á Islandi
VERÐ á gasolíu í Grimsby í Englandi,
en það er sú borg erlendis sem islenzk
fiskiskip koma hvað oftast til, er nú
44,8% lægra en á íslandi. Verð á gas-
olíulítranum i Grimsby er nú 2,91
króna, en er 4,20 krónur á íslandi og
munar 1,29 krónum á hverjum lítra.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem Morgunblaðið fékk í Grimsby,
þá var verðið á gasolíutonninu í
Grimsby 163 sterlingspund, allt þar
til fyrir nokkrum dögum, en þá
hækkaði tonnið í 172 pund og er ekki
gert ráð fyrir að það hækki frekar á
næstunni.
Höfn:
Erfið veðrátta
til humarveiða
llöfn, 12. júní.
IIEÐAN stundar nú 21 bátur humar-
veiðar á þessari vertíð og hafa nú bor-
ist á land um 97 tonn til vinnslu í
fiskiðjuveri KASK. Erfið veörátta hef-
ur hamlaö veiðum verulega og til
marks um það má nefna, að á sama
tíma í fyrra voru gerðir út 15 bátar
héðan á humarveiðar og höfðu veiðst
rúm 108 tonn á sama tima í fyrra.
Þegar gefið hefur á sjó hefur afl-
ast vel. Aflahæsti báturinn eftir síð-
ustu löndun er Haukafell SF 111 með
tæp 8 tonn af slitnum humri. í hum-
arvinnslunni vinna um 100 manns.
Næstu daga mun Skaftafellið lesta
hér humar á Ameríkumarkað og er
það fyrsta afskipunin á þessari ver-
tíð. Einar.
Ástandíð uggvænlegt"
99
segir Vilhelm Þorsteinsson á Akureyri
„ÚTGERÐ togaranna er að stöðvast.
það er stórmerkilegt að menn skuli
halda áfram að gera togarana út,
eins og ástandið er í dag, en menn
reyna að þrauka eins og frekast er
kostur, þvi enginn vill vera fyrstur
til að stoppa, auk þess sem fólk i
bæjum landsins lifir á því sem togar-
arnir færa að landi,“ sagði Ólafur
Gunnarsson framkvæmdastjóri Síld-
arvinnslunnar í Neskaupstað þegar
hann var inntur álits á olíuverðs-
hækkuninni á föstudag. „Erfiðleikar
togaraútgerðarinnar voru nægir
fyrir, þótt ekki kæmu stórkostlegar
olíuverðshækkanir. Ástandið er
uggvænlegt og versnar sífellt,“ sagði
Vilhelm Þorsteinsson framkvæmda-
stjóri Útgerðarfélags Akureyringa.
„Það sjá allir, að það er ekki
hægt að fella gengið endalaust, en
þessi olíuverðshækkun er úr
tengslum við allan raubyeruleika.
Allt að 24 tonn á sólar-
hring í tvímenningstroll
„Mjög athyglisvert og spennandi veiðarfæri,“ sagði Matthías á Bylgjunni VE í talstöðvarsamtali við Morgunblaðið
„ÞESSAR tilraunir okkar með
tvímenningstroll hafa gengið upp
og niður, en það er Ijóst að þetta er
mjög athyglisvert og spennandi
veiðarfæri og kemur mjög vel út
hvað varðar olíukostnaðinn, en
það þarf að hanna þetta betur og
styrkja fyrir okkar aðstæður,"
sagði Matthías Óskarsson skip-
stjóri á Bylgjunni frá Vestmanna-
eyjum í talstöövarsamtali við
Morgunblaðið í gær frá Suður-
landsmiðum austanverðum.
Hann ásamt bróður sínum, Sig-
urjóni Óskarssyni á Þórunni
Sveinsdóttur, hefur undanfarnar
vikur gert tilraunir með eitt
troll fyrir tvo báta og um skeið
var færeyskur trollskipstjóri um
borð hjá þeim til að koma þeim á
bragðið varðandi þetta veiðifyr-
irkomulag, en Færeyingar hafa
talsvert notað tvímenningstroll
með góðum árangri þar sem sér-
staklega er um mikinn sparnað
að ræða í olíukostnaði. Á
tvímenningstrolli koma bátanir
tveir í staðinn fyrir hlera og
mikið sparast á keyrslu í togi.
„Við erum á landleið núna með
allt í henglum," sagði Matti, „við
höfum verið með ýmsar kúnstir
til þess að kanna hvernig bezt er
að draga þetta, en það háir
okkur að við höfum aðeins eitt
troll, því þegar rifnar verður
annar báturinn að bíða meðan
gert er við og í gær t.d. vorum
við í 10 tíma bætingu. Það hafa
þó komið góðir sprettir í þetta og
einn sólarhringinn fengum við
24 tonn af þorski og ýsu í 5 höl-
um. Ef vel ætti að vera þyrftum
við 2—3 troll, en samt sem áður
sjáum við árangur og þetta er að
þróast. Garnið í netinu er 4 mm
en við erum aðeins með 3 mm
garn eftir um borð, og þurfum að
bæta með því.“
Það verður líka að reyna að draga
úr öllum tilkostnaði við útgerðina
og það verður ekki gert með olíu-
verðshækkun," sagði Ólafur
Gunnarsson.
„Það er svo sem hægt að lækka
gengið, en fyrir fjöldann gerir það
ekkert gagn. Margir aðilar skulda
svo mikið í skipunum, að um
tekjuaukningu getur ekki verið að
ræða, þegar stofnfjárskuldir eru
jafn miklar og skipin afla fyrir á
Ég held að það sé stutt í stoppið.
Það hlaða allir upp olíuskuldum.
Jafnvel þótt menn færu að fiska
þorsk í auknum mæli, þá dugar
það ekki neitt. Það þýðir ekki
lengur að bíða eftir þorskinum,
boltinn er orðinn svo stór og held-
ur sífellt áfram að stækka," sagði
Ólafur að lokum.
„Ef togararnir halda áfram að
veiða hinar ódýrari fisktegundir,
þá er ljóst hvað gerist á næstunni.
Róðurinn hjá okkur er orðinn
mjög þungur. Aflaverðmætið er
minna en á sama tíma undanfarin
ár. Bæði er um aflaminnkun að
ræða og þorskafli er miklu minni.
Sem dæmi má nefna að við sáum
ekki þorsk frá því í aprílmánuði,
þar til nú fyrir helgi," sagði Vil-
helm Þorsteinsson.