Morgunblaðið - 13.06.1982, Blaðsíða 17
64
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ 1982
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ1982
65
Hvaða möguleika á belgíska liðið
— gegn heimsmeisturum Argentínu í Barcelona í dag?
MÓTHERJI Argentínumanna í
Barcelona á morgun er landslið
Belgíu. Allt fram til 1980 var belgísk
knattspyrna frekar lágt skrifuð á
knattspyrnusviðinu. Það vantaði
ekki að þjóðin hafði á að skipa fram-
bærilegu landsliöi, gallinn var bara
sá, að Holland var þá með sannkall-
að stjörnulið og einhvern veginn
æxlaðist það alltaf þannig að þjóð-
irnar drógust saman í riðil. Bar Hol-
land þá ævinlega efri hlut.
En þegar draga tók af Hollending-
um fór sól Belga hækkandi, liðið
komst í úrslitakeppni Evrópu-
keppni landsliða 1980 og stóð sig
þar hreint út sagt frábærlega.
Komst liðið í úrslit og tapaði þar
naumlega 1-2 fyrir Vestur-Þýska-
landi. Þegar dregið var í undan-
riðla fyrir HM-keppnina nú dróg-
ust erkifjendurnir aftur saman,
Holland og Belgía. En nú var tími
Belga runninn upp, þeir skákuðu
Hollendingum, liðinu sem leikið
hafði til úrslita í tveimur síðustu
HM-keppnum. Og Hollendingar
náðu ekki einu sinni 2. sætinu í
riðlinum, Frakkar tóku það og ír-
land var meira að segja mun nær
því að komast til Spánar heldur en
Holland.
En hvaða möguleika á lið Belga
gegn heimsmeisturunum? Cesar
Menotti, þjálfari Argentínu, hefur
látið í ljós dálitlar áhyggjur. Hann
hefur sagt að það myndi ekki
koma sér á óvart þó Belgar gerðu
stóra hluti á HM. Það sagði hann
áður en dregið var í riðlakeppnina.
Fleiri hafa tjáð sig og talið Belga
eiga möguleika, sérstaklega þar
sem enginn reiknar með miklu af
liðinu þrátt fyrir árangurinn á ít-
alíu 1980. Belgía er bara ekki nógu
stórt nafn í knattspyrnuheimin-
um.
En liðið er sterkt, á því er eng-
inn vafi. Það gæti hæglega staðið í
Argentínu, ekki síst ef Diego
Maradona getur ekki leikið með
vegna meiðsla sinna. Árangur
Belgíu síðustu árin byggist á
fremur leiðinlegri knattspyrnu frá
sjónarhóli áhorfandans. Sterkur
varnarleikur með skyndisóknir
undir faldinum er í stuttu máli
það sem belgíska landsliðið byggir
Lið
Belgíu
Landslið Belgíu sem leikur í
dag gegn Argentínu verður að
öllum líkindum skipaö þessum
leikmönnum.
Markvöröur:
Pfaff
Vörnin:
Gerets
Coeck i
Millecamps
Renquin
Tengiliðir:
Van Moer
Vandereycken
Vercauteren
Framherjar:
Van der Elst
Vandenbergh
Ceulemans
Liðið mun leika 4—3—3.
á. Vörnin er mikill múr með mið-
verðina Meews og Millecamps í
broddi fyikingar og Jean Marie
Pfaff. Framvarðarlína liðsins er
ekki skipuð ofurstirnum heldur
jöfnum og baráttuglöðum leik-
mönnum. Lykilmennirnir þar eru
Wilfried gamli Van Moer, sem er
orðinn 37 ára gamall og Francois
Van Der Elst. Van Moer lék með
belgíska liðinu á HM 1970 og hefur
æ síðan verið heilinn á bak við
belgíska liðið. Framlínuna munu
líklega skipa þeir Jan Ceulemans,
Erwin Van Der Bergh og ungur
nýliði að nafni Zerniatinski. Bergh
verður þó líklega einn frammi, en
hinir tveir aftar. Þetta er hættu-
legt þríeyki ef því er gefið svig-
rúm, sérstaklega er Ceulemans
skæður, það sýndi hann á Ítalíu
1980.
Búist verður við því að Argen-
tínumenn sigri í leiknum, en róð-
urinn verður þó mjög hugsanlega
þungur, það er jafnvel ekki útilok-
að að óvænt úrslit skjóti upp koll-
inum þegar í fyrsta leik keppninn-
ar.
• Þrír af lykilmönnum Belgíu. F.v. Francois Van Der Elst sem leikur meö West Ham í Englandi, Erwin Van Der Bergh sem var markahnsti
leikmaður Evrópu 1980, og vinstri útherjinn Jan Ceulemans, snjallasti framherji liösins.
• Argentínumenn fagna slgri í heimalandi sínu 1978. Leikmennirnir eru f.v. Gall-
ego, Passarella, Luque og Ardiles. 8á frakkakUaddi með yfirskeggið, annar frá
vinstri, er hins vegar þáverandi forseti landsins, Videla.
Bein útsending frá
Barcelona í dag
EINS OG fram hefur komið í
Mbl. verður bein útsending í
íslenska sjónvarpinu frá opnun-
arathöfn HM-keppninar í dag
og fyrsta leiknum, viðureign
Argentínu og Belgíu í Barce-
lona. Rétt er að minna á helstu
atriðin varðandi útsendinguna.
Útsendingin hefst klukkan
17.15 og stendur hún óslitið
allt fram að fréttaágripi á
táknmáli, þannig að aðrir
fyrirhugaðir dagskrárliðir
falla þar af leiðandi niður. Þá
má geta þess að unnið er að
því að fá beina útsendingu frá
úrslitaleiknum 11. júlí. Ef það
heppnast mun eitthvað af
starfsliði RUV verða kvatt úr
fríi til að sinna því.
Vivj,sT(si HÖTAte
g'WoÚ-
MAfcfcMAK>M'|lO|0
ctaAi-r soÐoe-
AMereisCT i-i-tfD
v/itoOvJtc. UAUMAM
Yf=n'rc;
± ptstta ss'uoo'
'i œssAti
'I ejou
A LT A. ACT.-tU K.... -
TÍNJAjBBMÍlujA
A - í=tsoauaajC)
oa,
A - ÞTStóiLAlOp
'VUTAS Hte&OÚ
LeifcA. FæASSlL.-
i’SKl VAeK)A,Er
HAÖ.IMHO
<Lu»cKm-
p,ycioo UifDu©
, maizk ee jsKDfcajs
t-NSArÍNjTK.—
f LA I k \
r nerofc
_DAK0 M'l |C i 1_L_
Freie-J
Si-TTcrr/
HCLLEMSKA í"1
LÍItSAT P'
RRAfe íACEMMTl - •
LÉÖ A ÍA r3LAUTMH A
cxt sl£ i fmm
CtEA-SVEI-ÚiMUM S
i|
MO ■1
KUOUA ETTHRt
•Sv/AiS ViFS T
HÁFWi JOHAtJ fi
CJ2.WVp-p:
ÞéuAAíA MAOS. 2
CK-OYFK T eceAt
FYRíTA Ofa pr-jot
HVAClKtfe. K(2oi_
O ÚATT '7
5AMA tE'feUl KlA-r
Áb 5áe -í
ute> fi H«HÍuoi-h
A£TOE HAL£>lí>J
AFTUC AF
.ÞeSSUM HOL-y
PÚLv/EejAK eíútAv.'í v/egfc A.e> vís£rttsa.sy. er>o
■STK'Gt I YVAttwé5D KJO TOHASÚ'LeSKI
HA 5EM T>-TcSer> UAHTOH >~\tUkJ
TIOEj.t-_.vrTA A UM(tL£.UÞiuhoM , 8JAÚAAE;
C^ÍLJ—O AJ— l L_ \_/£3£/- \
Tekst Argentínu að verja titilinn?
— hefur frábæru liði á að skipa í HM
Argentína
lenti í 2. sæti á HM 1930. Varð
heimsmeistari 1978. Kjarni lands-
liðsins er skipaður sömu leik-
mönnum og sigruðu 1978. Nýliðar
liðsins, Maradona og Ramón Díaz
eru meðal bestu knattspyrnumanna
í heimi.
Spánn og Argentína eru þær
tvær þjóðir er leika í lokakeppni
HM í sumar án þess að hafa þurft
að taka þátt í undanriðlum. Spánn
vegna þess að þar fer heimsmeist-
arakeppnin fram og Argentína
vegna þess að argentínska liðið er
núverandi heimsmeistari í
knattspyrnu; sigraði á HM í
heimalandi sínu 1978. Þótt
knattspyrnuferill landsliðsins sé
glæsilegur á alþjóðavettvangi var
það í fyrsta skipti, sem Argentína
sigrar á HM.
I fyrstu heimsmeistarakeppn-
inni í knattspyrnu í Uruguay 1930
léku Argentína og Uruguay til úr-
slita. Heimaliðið sigraði 4—2.
Argentína háði einmitt fyrsta
landsleik sinn í knattspyrnu við
Uruguay. Það var 20. júlí árið
1902. Sigraði Argentína í þeim
leik, 6—0. Núna í sumar verða því
80 ár liðin síðan Argentína lék
þennan sögulega landsleik. Arg-
entína hefur sigrað 12 sinnum í
keppni S-Ameríkuþjóða og lenti í
2. sæti á Ólympíuleikunum í
Amsterdam 1928. Argentínska
landsliðið hefur leikið yfir 560
landsleiki.
Argentína leikur gegn Belgíu í
1. leik heimsmeistarakeppninnar
á Spáni í sumar. Sá leikur fer
fram á Nou Camp-leikvanginum í
Barcelona 13. júní
Síðan spilar liðið aðra leiki sína á
Rico Pérez-leikvanginum í Alic-
ante.
Það var svo, að stuttu fyrir HM
1978 var ekki búist við miklum af-
rekum af hálfu argentínska lands-
liðsins. Oftar en einu sinni átti að
reka Menotti, þjálfara þess. Hann
var ekki álitinn hæfur til starfs-
ins.
Strax eftir að heimsmeistaratit-
illinn var unninn hóf argentínski
þjálfarinn undirbúning landsliðs-
ins fyrir HM 1982. Framtíðar-
áform hans voru ekkert hæversk;
að endurheimta titilinn á Spáni.
Lið César Luis Menotti er næst-
um því það sama og lék til úrslita
á HM 1978. Vitað er að liðið nýtur
mikilla vinsælda meðal spænskra
knattspyrnuunnenda og að flestir
þeirra vildu gjarnan sjá Argent-
ínu í hópi efstu liðanna. (Sem sé
eins konar „varauppáhaldslið", ef
Spánverjum gengi ekki sem best I
keppninni.)
Menotti hefur ekki vanrækt
undirbúning og æfingar liðs síns
eitt andartak. Þegar 1979, ári eftir
að þeir hlutu heimsmeistaratitil-
inn, lét hann sig miklu skipta að
argentínska unglingalandsliðið
stæði sig vel á heimsmeistaramóti
unglinga í Japan. Kjarni argent-
ínska landsliðsins er, eins og áður
hefur komið fram, skipað úrval-
inu, sem sigraði í úrslitaleiknum
við Hollendinga 1978 og meðal
nýliða liðsins er sá, sem best stóð
sig í Japan, hinn ungi Diego Arm-
ando Maradona.
Lið
Argentínu
Landslið Argentínu veröur aö
öllum líkindum skipað þessum
leikmönnum I dag.
Markvöröur:
Fillol
Varnarmenn:
Oiguin
Passarella
Galvan
Tarantinl
Tengiliöir:
Ardiles
Gallego
Maradona
Framherjar:
Bertoni
Diaz
Kempes
Liðið leikur 4—3—3
Sömu leikmenn og
á HM 1978
Argentínska liðið undir stjórn
César Luis Menotti er nær það
sama og frá 1978. Markvörður
þess, Fillol og fyrirliðinn, Passar-
ella, verða áfram stoðirnar í vörn
liðsins. Báðir leika með fræga arg-
entínska liðinu River Plate. Nýlið-
ar liðsins eru engu verri: Mara-
dona (21 árs) er af flestum talinn
einn snjallasti knattspyrnumaður
í heiminum í dag. Maradona var
fyrirliði unglingalandsliðs Arg-
entínu í Japan 1979. Hann hóf
knattspyrnuferil sinn með Arg-
entína Juniors 1973, varð atvinnu-
maður í kanttspyrnu 1977 og árið
1981 gekk hann í raðir félagsins
Boca Juniors. Maradona er fram-
herji í argentínska landsliðinu.
Hann ásamt Ramón Díaz, Mario
Kempes og Bertoni mynda ef til
vill hættulegustu og slungnustu
sóknarlínuna á HM í sumar. Aðrir
leikmenn er urðu heimsmeistarar
1978 og verða að öllum líkindum
með í sumar eru: Balay (vara-
markvörður), Gallego, Luis Galv-
án, Olquín, Tarantini og Valencia
að ógleymdum Ardiles.
Menotti hefur tekist að halda
uppi frábærum aga meðal leik-
manna og bæta líkamlegt ástand
þeirra. Liðið er í dag í góðu jafn-
vægi, þar sem fara saman rósemi
og reynsla, „gömlu“ kappanna;
Fillol, Passarella og Kempes, og
fjör, hraði og kraftur þeirra ungu;
Maradona, Ramón Díaz og Brail-
ovski.
Argentínsk knattspyrna stend-
ur vel að vígi hvað varðar S- og
Mið-Ameríkuþjóðir. Margar þjóð-
ir í Evrópu hræðast hana þó ekki,
segja að heppni og góðar kringum-
stæður hafi ráðið því að Argent-
ína sigraði á HM fyrir 4 árum,
Knattspyrnan í Argentínu er sam-
bland evrópskrar knattspyrnu,
sem innflytjendur frá ýmsum
löndum Evrópu fluttu með sér til
Argentínu á sínum tíma. Hún er
sterk vegna þessara áhrifa og
tæknileg og slungin vegna sögu-
legs og hefðbundins framlags
landsins sjálfs.
Tveir stórleikir á mánudag
Ítalía — Pólland og Brasilía — Rússland
Á mánudag fara fram tveir leikir í
Heimsmeistarakeppninni í knatt-
spyrnu. Ítalía og Pólland leika í
Vigo. Og Brasilía og Sovétríkin leika
i Sevilla. Báðir þessir leikir verða að
teljast til stórleikja í riölunum og
eru mjög mikilvægir fyrir liðin. Mjög
erfitt er að spá um úrslit í leikjum
þessum. Þó telja knattspyrnusér-
fræðingar að lið Ítalíu og Brasilíu
séu sigurstranglegri. Leikur Bras-
ilíumanna og Sovétmanna verður
mjög athyglisverður. Lið Sov-
étríkjanna hefur gengið hreint ótrú-
lega vel í síðustu landsleikjum sín-
um og hefur leikið yfir 20 landsleiki
Tékkneskur
dómari
Tékkneskur dómari mun fá
það erfiða hlutverk að dæma
opnunarleik HM-keppninnar
sem leikinn verður í Barce-
lona á morgun milli Argent-
ínu og Belgíu. Sá svartklæddi
heitir Vojtek Christov. Mið-
Ameríkumaðurinn David
Socha mun dæma leik Skot-
lands og Nýja-Sjálands.
án þess að tapa leik. Margir spá því
að liðið eigi eftir að koma einna
mest á óvart í HM-keppninni að
þessu sinni. Spurningin er hvort að
velþjálfuðum Sovétmönnum tekst
með krafti að brjóta niður leikni
Suður-Ameríkumannanna.
Við skulum til gamans líta á
hugsanlega liðsuppstillingu hjá
þessum þjóðum. Ítalía: Markvörð-
ur Zoff, varnarmenn Gentile,
Scirea, Collovati, Cabrini, tengi-
liðir, Oriali, Antognoni, Tardelli,
framherjar Conti, Rossi, Bettega.
Eins og sjá má eru þetta allt
heimsfrægir knattspyrnumenn
sem ættu að komast langt í keppn-
inni. Enda ítölsk knattspyrna
mjög góð. Lið Póllands verður lík-
lega þannig skipað: Markvörður
Mlynarczyk, varnarmenn Maj-
ewski, Zmuda, Janas, Jalocha,
tengiliðir Boniek, Skrobowski,
Lato, framherjar, Iwan, Szarm-
ach, Smolarek. Gott lið hjá Pól-
verjum, en þó er þeim ekki spáð
mikilli velgengni.
Lið Brasilíu: Markvörður Vladir
Perez, varnarmenn Leandro, Luiz-
inho, Oscar, Junior, tengiliðir
Socrates, Cerezo, Zico, Falcao,
framherjar Paulo, Isidoro, Eder.
Frábært knattspyrnulið, sem
flestir spá sigri í keppninni. Fræg-
Dómararnir stóðust
allir þrekprófió
Knattspyrnudómararnir sem sjá munu um dómgæsluna á HM luku í gær
fimm daga námskeiði og þrekprófum. Var þeim gert að geta hlaupið 2400
metra á minnst 12 mínútum, 50 metra á 8 sekúndum, 10 metra fram og til
baka á 11,5 sekúndum og 400 metra á 75 sekúndum. 41 dómari mætti til
leiks og allir stóðust prófíð með miklum sóma.
ustu leikmenn liðsins eru Zico,
Socrates, og Junior. Lið Sovétríkj-
anna: Markvörður Dassajew,
varnarmenn Sulakwelidse,
Tschiwadse, Baltatschja, Demjan-
enko, tengiliðir Bessonow, Gawril-
ow, Burjkak, framherjar Scheng-
elija, Kipiani, Blochin. Þessa tvo
leiki mun íslenska sjónvarpið sýna
í fullri lengd á þriðjudag. Á
þriðjudag heldur keppnin svo
áfram og þá fara fram þrír leikir.
Sovéska tölvan sammála
þeirri brasilísku
SOVÉSK tölva komst að sömu
niðurstöðu og bra.sili.sk er hún var
látin spá um úrslit á HM. Tölvu-
tæknarnir mötuðu gripinn með öll-
um mögulegum upplýsingum og út-
koman var sú, að tölvan spáði því að
Brasilía myndi sigra Vestur-Þýska-
land 1—0 í úrslitaleik.
Tölvan spáði því, að Brasilía
myndi sigra Skotland og Nýja-Sjá-
land 3—1 og fara í undanúrslitin
ásamt Vestur-Þýskalandi, Spáni og
Argentinu. í undanúrslitum myndi
Brasilía sigra Argentínu 2—1 og
Vestur-Þjóðverjar myndu sigra
Spánverja 1—0. í leiknum um þriðja
sætið spáði tölvan því að Argentína
myndi sigra Spán 2—1.
Sovétmennirnir höfðu áhuga á því
að vita hverju tölvan spáði þeirra
mönnum. Samkvæmt véfréttinni
mun Rússland tapa fyrsta leiknum,
0—3, við Brasilíu, en síðan sigra
Skota, 1—0, og Nýja-Sjáland, 3—1.
Umsjón:
Þórarinn Ragnarsson
Guðmundur Guðjónsson