Morgunblaðið - 13.06.1982, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 13.06.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ1982 63 Svo er að sjá sem pólska stjórnin ætli að fara að dæmi Rúmena og hræða hinn almenna borgara frá því að tala of frjálslega ... KINAl Raunasaga af hörkustríði um hænuegg l'ær sögur eru sagöar frá Kína, að þar hafi flokkur hermanna, sem hefst Tið á nokkrum smáeyjum í Suður-Kína- hafi, lent i hinum undarlegustu uppá- komum og það allt út af nokkrum hæn- um. Kínverjar kalla þessar eyjar Xisha á sínu máli en Víetnamar, sem einnig gera kröfu til þeirra, nefna þsr hins vegar því gamalkunna nafni Paracels- eyjar. Af þessu sökum og til að ekki fari á milli mála hvort nafnið megi sín meira hafa Kínverjar sent hermenn til helstu eyjanna í klasanum. í Kína hefur það lengi tíðkast, að hermenn leggi stund á hænsnarækt og annan smábúskap til að bæta sér upp fábreytt hermannafæðið og þess vegna þótti það ekki nema sjálfsagt, að hermennirnir á Xisha-eyjum fengju nokkrar pútur frá meginland- inu. Að því er segir í kínverskum fjöimiðlum kunnu hænurnar svo vel við sig í þessum nýju heimkynnum, að ekki reyndist nokkur leið að hemja þær í hænsnakofa, heldur (Sjá: LÖGREGLURÍKIÐ) Fyrst gerðist það að hænurnar lögðust út. tóku þær upp siði forfeðranna, vöfr- uðu um eyjarnar og verptu þar sem þeim hentaði best. Hermennirnir urðu að sætta sig við þessi máialok og reyndu sem best þeir gátu að finna eggin þar sem hænunum hafði þóknast að verpa þeim. Síðan gerðist það, að hænun- um og ungum þeirra, sem klakist höfðu út á eyjunum, fór allt í einu mjög fækkandi og á einni eftirlits- ferðinni uppgötvuðu hermennirnir ástæðuna fyrir hænuhvarfinu: Geysistórar rottur, sumar allt að tvö pund á þyngd, voru á góðri leið með að útrýma hænsnabyggðinni. Nú var sent eftir meindýraeyðum frá meginlandinu, sem hófu þegar í stað mikia gagnsókn gegn rottunum. Þær virtust hins vegar vera vel heima í kenningum Maós heitins um skæruliðahernað því að þær létu strax undan síga fyrir ofureflinu en mættu svo tvíefldar til leiks þegar meindýraeyðarnir voru á bak og burt. Hermennirnir báðu nú um ketti en þegar kettirnir komust að raun um, að þeir höfðu lítið í rotturnar að segja, þá sneru þeir sér að því að útrýma mjög sjaldgæfum fuglateg- undum, sem lifa á Xisha-eyjum. Nú báðu hermennirnir um hunda til að hefna sín á köttunum, sem eltust bara við fugiana en ekki rotturnar, sem drápur hænurnar, sem verptu eggjunum, sem hermennina langaði í. Kettirnir flúðu undan hundunum upp í trén og hávaxinn runnagróður- inn og höfðu þá hundarnir við ekkert annað að vera en gjamma án afláts og slást hver við annan. Þegar hér var komið ákváðu hermennirnir að leita á náðir vistfræðinga og biðja þá að reyna að greiða úr flækjunni og koma aftur á jafnvægi í ríki náttúr- unnar á Xisha-eyjum. Boðskapur sögunnar er þessi að dómi Kínverja: Það breytir engu um matseðilinn þótt menn hafi góðar gætur á víetnamska tígrinum ef þeir gleyma því hvað rotturnar hafast að á meðan. CHRISTOPHER S. WREN GLEÐIFREGN Hófleg fita er hreint ekkert háskaleg Hér koma ánægjuleg tíðindi fyrir alla þá, sem nenna ekki að stunda íþróttir og eru nokkuð vel í holdum. Þið þurfið ekki að hafa neinar áhyggj- ur af heilsufarinu, hvort sem þið eruð bráðung, eða farin að nálgast sextugs- aldur. Að visu ber að hafa það í huga, að þið getið átt eitthvað á hættu, ef þið haflð verið of þung allt frá barnæsku, en sú hætta er ekki teljandi. En ef þið eruð orðin fimmtug, þybbin en eld- hress, benda niðurstöður til þess að aukakílóin þurfi ekki að valda ykkur teljandi áhyggjum. Þetta er að minnsta kosti álit sem dr. John Garrow og starfshópur hans í næringarfræði hefur birt í síðasta töiublaði brezka ritsins Nutrition Bulletin. Það virðist mikilvægt, að þessar niðurstöður dr. Garrow eiga sér ekki aðeins stoð í hans eigin athugunum, heldur hafa ýmsir aðilar, eins og tryggingaféiög, tekið mið af þeim tölfræðilegu upplýsingum, sem til Þybbinn en eldhress. grundvallar liggja og eru þau þó ekki þekkt fyrir að taka óþarfa áhættu. Dr. Garrow tekur fram, að hingað til hafi menn gert allt of mikið úr þeirri hættu, sem starfar af nokkr- um aukakílóum. Hann segir mikii- vægt að menn geri skýran greinar- mun á nokkrum skaðlausum auka- kílóum og offitu, sem sé skaðvænleg. Dr. Garrow segir, að til sé einföld aðferð til að ganga úr skugga um, hvoru megin hryggjar menn liggja í þessu tilliti. Til þessa er notaður mælikvarði, sem belgískur stjörnu- fræðingur, Quetelet að nafni fann upp, en ýmsar þær aðferðir, sem hann viðhafði í stjörnufræðinni hafa komið að gagni við rannsóknir á mannslíkamanum. Þessi mælikvarði á við karla jafnt sem konur svo fremi að þau stundi ekki íþróttir og séu á aldrinum 18—60 ára. Maður vigtar sig, léttklæddur og skólaus, og deilir síð- an þyngd sinni í hæð sína í öðru veldi. Ef útkoman er á milli 20 og 25 er maður vel á sig kominn, en fáir þú útkomu, sem er á milli 25 og 30 ert þú í feitara lagi en utan hættu- marka. Við skulum taka dæmi, sem allir skilja. Maður er 1,68 metrar á'hæð og 63,3 kg að þyngd. Ef við notum mælikvarðann á hann, fáum við út- komuna 22,5. En ef maður fær útkomuna 30 eða meira, út úr þessum reikningi, er maður kominn að hættumörkum. Dr. Garrow verður þá, þrátt fyrir alla sína bjartsýni, að viðurkenna, að viðkomandi hafi ástæðu til að ugga að sér. — ANTHONY TUCKER Dalai Lama: Tíbetbúar sakna hans Búddatrúarinnar af landi og þjóð. Rúmlega 3.000 Búddahof höfðu verið jöfnuð við jörðu svo ræki- lega, að engu var líkara en að þéttu sprengjuregni hefði verið beint á þau. Andlitsmyndir á íkon- um voru ristar af og þúsundum steinlíkneskja steypt af stalli í menningarbyltingunni. Helgar steintöflur úr Búddahofum voru notaðar í gangstéttir og þar með neyddust Búddatrúarmenn til að vanvirða þær með því að ganga á þeim. Þeir sem gerðu kvikmyndina reyna ekki að draga fjöður yfir, að Tíbet hafi verið algert prestaveldi, á meðan Dalai Lama var við völd, og aðeins nokkur hundruð fjöl- skyldur og nokkur þúsund munkar hafi búið við forréttindi. En ekki tók betra við, þegar Kínverjar náðu völdum í landinu, og er raun- ar mesta furða, hvað Tíbetbúar hafa þraukað. Klukkan þar er stillt eftir klukkunni í Peking, þótt sólin í Tíbet komi ekki upp fyrr en tveimur og hálfum tíma síðar. Lengi vel var bændum bannað að rækta bygg, sem þeir höfðu gert frá fornu fari. Þess í stað var þeim skipað að rækta hveiti, þótt sú korntegund sé óheppileg til rækt- unar í svo miklu fjallalandi sem Tíbet er, en hernámslið Kínverja vildi fremur hveiti en bygg. Kornið er ætlað hernámsliðinu, en sjálfir Tíbetbúar svelta. Kvikmyndin sýndi það greinilega. Hernámsliðið hefur bannað að fólk beri hefðbundin tíbezk klæði, noti hið forna ritmál landsins og iðki trúarbrögð sín. Það skal því engan undra, að þjóðin sé hrjáð í andlegu og veraldlegu tilliti. Þrátt fyrir hinar innilegu móttökur, sem gestirnir hlutu, reyndist þeim erfitt að seiða fram bros hjá al- þýðu manna, jafnvel systur Dalai Lama tókst það sjaidan. Myndin sýnir erlenda ferðamenn, sem fara um landið í leit að helgum dómum úr Búddatrú. Þeim verður nokkuð vel ágengt, því að Tíbetbúar eru nú fúsari til þess en áður að selja þessa dýrgripi sína, eftir að hafa varðveitt þá og tilbeðið á laun í aldarfjórðung. Tekjurnar eru svo rýrar, að það veitir ekki af þeirri smáhýru sem hægt er að fá fyrir góðan grip. — JONATHAN MIRSKY • Veröbréf — Víxlar Önnumst kaup og sölu veöskuldabréfa og víxla. Út- búum skuldabréf. Verkfræðingar — Tæknifræðingar — Raf virkjar og aðrir áhugasamir Takið eftir! Getum nú boöiö forritanleg stýrikerfi frá Texas Instruments á mjög hagkvæmu verði. Forritun er einföld og bráösnjöll. Viö höldum námskeið reglulega til kynningar og kennslu á tækni. Læriö forritun á einum degi. Sleppiö ekki einstöku tækifæri til aö ná tökum á þessari nýju tækni. Hafiö samband viö Stýri- búnaö í síma 84500 og fáiö nánari upplýsingar. Viðskiptamenn Veitum fullkomna tæknilega aðstoö og ráðgjöf. Kúlulegusalan, Stýribúnaður, Suðurlandsbraut. 3 bílar eftir! Okkar verð kr. 353.662 tietn íeppa á betra verði? DODGE RAMCHARGER SE'82 Við höfum fengið örfáa DODGE RAMCHARGER S/E lúxus jeppa á aavintýralega lágu kynningar- verði, sem nær aðeins yfir þessa einu sendingu. í jeppunum er: • 318 cu.in. 8 strokka vél • sjálfskipting • vökvastýri • aflhemlar • Special Edition lúxus sæti að framan og aftan • teppi í hólf og gólf. • viðarlíking i mælaborði og innréttingu • tauáklæði á sætum heil hurð að aftan # loftlúga á þaki að aftan # hlif undir millikassa # hitamælir # olíuþrýstimælir. # sjálfvirkar driflokur # km. mælir með teljara # aftursæti má fella fram # styrktur undirvagn og fl. og fl. Raunvirði kr. 411.532 Kynningarafsláttur kr. 57.870 Berðu okkar verð saman við önnur jeppaverð og Þú kemst að raun um að sambærilegir bflar eru miklu dýrari. DODGE HAMCHARGER er byggður til að endast. w Vökull hf. Armúla 36 Simi: 84366

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.