Morgunblaðið - 13.06.1982, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 13.06.1982, Blaðsíða 14
62 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ1982 Kathleen sjóarí snýr sér að útgerð l‘að er rigning og kalsaveður og olíuklæddu manneskjurnar þrjár, sem hamast við að kassa fískinn, setja undir sig höfuðið við vinnu sína. Kin þeirra gerir stundum hlé á verkinu til að fá sér smók. Hún heit- ir Kathleen Kelly, fískikona í Hel- vík, litlu fískiþorpi á austurströnd írlands. Helvík, nafnið er frá norrænum víkingum komið, er á klettóttu nesi, sem gengur út í írlandshaf og næstum laust við meginlandið. Kathleen Kelly sker sig líka úr að sínu leyti. írska fiskimálaráðið hefur nefnilega ákveðið að lána henni 100.000 pund, andvirði 40 feta langs fiskibáts, sem nú er í smíðum. Kathleen Kelly er sem sagt fyrsta írska konan, sem ekki aðeins verður skipstjóri, heldur skipstjóri á sínum eigin bát. Þegar síldin var komin í kass- ana og netin klár kallaði ég til hennar og bað hana um að ræða við mig. Kathleen kastaði sígar- ettunni í sjóinn og fór á milli bát- anna, greinilega alvön að fóta sig á flughálu dekkinu, og kom síðan tiLmín upp bryggjustigann. Hún var rjóð og heit í vöngum og dökkt hárið glóði eins og gulli slegið. Þegar nær kom sá ég að það var fiskihreistur. Kathleen, sem er rúmlega tvítug að aldri, er af fiskimönnum kom- in. Það var aldrei nein ætlun hennar að leggja fyrir sig sjó- mennskuna en þegar hún hætti í skóla fyrir nokkrum árum fékk hún pláss hjá bróður sínum, sem vantaði háseta. Þetta fyrsta sumar hennar á sjó var veðrið mjög gott og það veiddist vel. Karlmönnunum fannst það bara gott hjá henni að halda það út fram á haust en þegar veturinn gekk í garð var hún enn með þeim og hefur verið það æ síðan. Störfin um borð eru ekki jafn KATHLEEN: Hvað erfíðast að hifa fískkassana upp á bryggjuna. erfið og þau voru áður, það gera öll tækin, en það, sem Kathleen finnst erfiðast, er að lyfta fullum kassa af fiski af dekkinu og upp á hryggju. Þá skipta ekki kraftarnir mestu máli heldur þrautseigjan, segir hún. Kathleen vantar ekki þraut- seigjuna og svo var það líka ann- að, sem fyrir henni vakti. Hana langaði að eignast sinn eigin bát. Þess vegna hefur hún nú nýlokið við sex mánaða námskeið í sigl- ingafræðum og getur státað af fullgildum skipstjórnarréttindum. írska fiskimálaráðið hefur ósvikinn áhuga á að fá fleiri stúlk- ur til að gerast skipstjórar. „Eina vandamálið," segir talsmaður þess, „er skilyrðið um fjögurra ára reynslutíma til sjós.“ Kathleen veit hvað hún vill og hún veit líka að vegna þess að hún er kona verður hún að leggja sjó- mennskuna á hilluna fyrr en hún hefði sjálf kosið. „Éggeri ráð fyrir því að sem gift kona yrði ég að vinna fyrstu árin en þegar krakk- arnir kæmu yrði ég að koma í land.“ Sem stendur er hún þó ekk- ert að hugsa um að binda sig. Sveitaböllin írsku byrja yfirleitt ekki fyrr en klukkan 11, standa til 2 eða 3, og klukkan 5 er Kathleen farin að gera klárt. Stundum geta líka verið hin mestu uppgrip á sjónum þó sjómennirnir séu tregir til að játa það, enda aldrei að vita nema skattheimtumaðurinn sé einhvers staðar á hlerum. Sjómennskan á sér líka aðrar hliðar. Kuldann, vosbúðina, leið- indin á toginu og hættuna. Þetta hefur verið slysaár fyrir írska sjómenn. Nýlega sö t.d. togari, helmingi stærri en skipið sem Kathleen er á, fyrir utan Donegal og fórust með honum fimm menn, þ.á m. feðgar. Kath- leen er þó bjartsýn. Hún er líka synd, ólíkt því sem er um flesta írska sjómenn. — MARY RUSSELL H0LLYW00D Dimmir dagar í drauma- smiðjunni Fyrir skömmu var frumsýnd í New York dýrasta söngvamynd, sem nokkru sinni hefur verið gerð. Kvikmyndin heitir Annie og er gerð eftir söngleik af Broadway. Kvik- myndafyrirtækið Colombia Studios sá um að gera myndina og koma henni á markað og kostaði það hvorki meira né minna en 500 millj- ónir króna. En þótt miklu sé til kostað er ekki gert ráð fyrir því að eftirtekj- an af fyrirtækinu verði mikil fremur en af öðrum Hollywood- -kvikmyndum, sem gerðar hafa verið að undanförnu. Nálega sérhver sá kvikmyndagagnrýn- andi t Bandaríkjunum sem mark er takandi á hefur kveðið yfir henni hrakspár. Þetta virðast vera afleiðingar einhvers konar faraldurs, sem hef- ur geisað í Hollywood og haft áhrif á alla framleiðslu kvik- myndafyrirtækjanna þar að und- anförnu. Nú ríkja dimmir dagar í draumasmiðjunni. Þar sem skrán- ing atvinnulausra fer fram eru langar biðraðir af fólki. Til skamms tíma gátu sviðsmenn kvikmyndaveranna reiknað með þúsund dölum á viku en núna eru þeir ánægðir með örlítið brot af þeirri upphæð. Frá fornu fari hafa samningar kvikmyndafélaganna verið gerðir á ákveðnum veit- ingastöðum í Hollywood, en flest borðin eru núna auð og mannlaus. Reyndir höfundar, leikstjórar og framleiðendur sitja um hvern bita sem til fellur. getur í Hollywood. Náungi, sem lengi hefur starfað við kvikmyndagerð, en nú er at- vinnulaus, segir ástandið vera ljótt: — I fyrsta skipti í sögu landsins er þjóðhöfðingi okkar leikari. Hvað hefur það haft í för með sér? Alvarlegustu kreppu í kvikmyndaiðnaði, sem átt hefur sér stað árum saman. Hvernig stendur eiginlega á þessu? Hvað veldur því að tæpur fimmtungur þeirra 130 kvik- nwnda, sem Bandaríkjamenn framleiddu á síðustu tólf mánuð- um, skiluðu hagnaði, en hinar ekki? Gamlir vinir Reagans forseta úr skemmtanaiðnaðinum skella skuldinni á æskufólkið, en það hefur í auknum mæli snúið sér að eiturlyfjaneyzlu og myndbanda- leikjum í stað kvikmyndanna. Hinir frægu leikstjórar síðasta áratugs, svo sem Coppola, Bogd- anovich o.fl., kvarta yfir því, að eitthvað sé bogið við yfirstjórn kvikmyndaveranna. Þar skorti bæði tilfinningar og skynsemi. Kvikmyndaframleiðendurnir viðurkenna, að undanfarna mán- uði hafi verið gerðar of margar leiðinlegar, slæmar og yfirborðs- kenndar kvikmyndir. Mörg dýr- keypt mistök hafa verið gerð, og þegar þar við bætast verkföll og annars konar ókyrrð á vinnu- markaðnum, svo og minnkandi hagnaður af sölu mynda til sjón- varpsstöðva, er útkoman ekkert sérlega glæsileg. Á fyrstu mánuð- um þessa árs var aðeins hafizt handa um gerð 23ja kvikmynda í Hollywood, en á sama tíma í fyrra var byrjað á 45 myndum. Það er dapurlegt hljóð í fram- kvæmdastjórum Columbia Stud- ios. Þeir hafa lagt út í 100 milljóna króna söluherferð til þess að ná inn einhverju af því fé, sem þeir lögðu til kvikmyndarinnar Annie. Nú streyma á markaðinn Annie- dúkkur, -lampar, -pils, -rúmfatn- aður, -hárkollur, -skartgripir, -bækur og jafnvel hefur verið framleiddur sérstakur Annie-ís. En sennilega kemur allt fyrir ekki. Framleiðsla Hollywood hef- ur verið stimpluð leiðinleg. Það er meira að segja svo komið, að er- Iendir viðskiptavinir eru farnir að halda að sér höndum, en hingað til hafa þeir verið trölltryggir, hvað sem á hefur gengið. Tekjur af sölu kvikmynda til erlendra aðila hafa dregizt saman um 20%. — WILLIAM SCOBIE Útsýnið út um glugga í einum af fangabúðum stjórnvalda. Myndin var tekin í vetur og búðafangar sjást á rölti í snjónum. LOGREGLURIKII í Póllandi er vissara að segja fátt Ekki alls fyrir löngu var tveimur bandarískum sendifulltrúum í Varsjá vikið úr landi, af þvi að í fórum þeirra fundust fregnmiðar frá Samstöðu. Þetta atvik hefur valdið ugg meðal annarra sendifulltrúa í Póllandi, sem hafa náin tengsl við andstöðuhópa. Er pólska stjórnin vísaði mönn- unum tveimur úr landi notaði hún tækifærið til að vara almenning við, að sakleysislegur samgangur við útlendinga gæti dregið dilk á eftir sér fyrir alla aðila. Svo er að sjá sem pólska stjórnin ætli að fara að dæmi Rúmena og hræða hinn almenna borgara frá því að tala of frjálslega. Samskipti við útlendinga hafa verið ýmsum Pólverjum mjög svo örlagarík. Það var maður nokkur, Szmidt að nafni, sem hafði veg og vanda af því, að blöð í Frakklandi og í London skýrðu frá leyndar- ráðstefnu um fjölmiðlun. Ráð- stefnan var haldin í bækistöðvum pólska útvarpsins og sjónvarpsins og sátu hana blaðamenn ásamt fulltrúa frá Flokknum. Þær upp- lýsingar sem Szmidt kom á fram- færi voru mjög skaðlegar fyrir pólsku stjórnina, þar sem þar kom fram, að Flokkurinn beitti sér að ýmsu leyti gegn Jaruzelski for- sætisráðherra sem taldi hann meðal annars vera of auðsveipan andófsöflunum í landinu. Snemma í maí fannst Szmidt látinn í baðkari sínu. í líkama hans var mikið magn af áfengi og lungun voru full af baðvatni. Stjórnin í Póllandi hefur verið bendluð við þetta dauðsfall og ekki að ófyrirsynju. Stjórninni er meinilla við þann stöðuga straum af upplýsingum, sem berst til eyrna heimildar- manna Samstöðu sem og vest- rænna fréttamanna. Hér er ekki um gróusögur að ræða, heldur áreiðanlegan fréttaflutning. En það getur verið hættulegt að taka við upplýsingum og dreifa þeim í Varsjá, og þó ekki siður í bæjum úti á landsbyggðinni. Leyniþjónustan hefur þéttriðið upplýsingakerfi í flestum stærri borgum, og henni er fullkunnugt um þá menn, sem starfa fyrir Samstöðu, leynt eða ljóst. Þessi vitneskja er stjórnvöldum afar mikilvæg og hún gerir það að verkum, að starf andófshópa lam: ast að meira eða minna leyti. í mörgum borgum hefur algerlega tekizt að „koma á friði“ með þessu móti. I smábæjum og þorpum er hættan ennþá meiri. í því sam- bandi er ekki úr vegi að segja frá blaðamanni, sem hafði verið rek- inn úr starfi. Snemma morguns í marzmánuði var gerð hjá honum húsrannsókn, og í kjallara húss hans fundust tveir fregnmiðar frá Samstöðu. Maðurinn var handtek- inn og hefur síðan verið í fangelsi. Engin önnur gögn fundust gegn manninum við húsrannsókn þessa. Blaðamaðurinn hafði bara lesið, hvað stóð á fregnmiðunum, áður en hann kom þeim lengra áleiðis. Atburðir sem þessi eiga sér stað án þess að margir taki eftir þeim í því umróti og ólgu, er einkennir þjóðlíf í Póllandi. Á yfirborðinu virðist Kommúnistaflokkurinn vera að ná í sínar hendur fullri stjórn á landinu, en þar að auki hafa leyniþjónustan og gagn- njósnastofnun hersins látið til sín taka og náð talsverðum völdum í sínar hendur. I Austur-Evrópuríkjum er það engin nýlunda, að yfirvöld reyni að hræða og skelfa andófsmenn með ýmsum ráðum, en í Póllandi hefur siíkum aðferðum yfirleitt ekki verið beitt. Að vísu voru and- stæðingar stjórnarinnar, jafnt menntamenn sem verkamenn, lagðir í einelti, en þeir þurftu ekki að óttast kerfisbundnar kúgunar- aðgerðir eins og þær, sem nú eru við lýði. — FELIKS POLINSKI TÍBET Allslaus og svínbeygð þjóð Á árabilinu 1979—’81 hafa þrjár sendinefndir frá Dalai Lama, fyrrum þjóðarleiðtoga í Tíbet, verið á ferð á fornum heimaslóðum hans, en nú eru 20 ár liðin frá því hann fíúði föðurland sitt og settist að á norðan- verðu Indlandi. Það voru Kínverjar, sem nú fara með völd í Tíbet, sem buðu sendinefndum þessum í ferð um landið. Var þeim i mun að sýna, að nú væri mikið framfara- og gróskuskeið runnið upp í Tibet, eftir aldarfjórðungs valdníðslu, sem þeir viðurkenna, að landar þeirra hafí bcitt þessa fornu fjallaþjóð. Sendinefndirnar voru hver um sig þrjá mánuði í Tíbet og fóru hvert sem þær vildu, vítt og breitt um landið. Kínverjar fylgdu þeim á þessum ferðum og ennfremur höfðu menn meðferðis 8 mm kvikmyndatökuvél. Á hana tóku þeir 70 mínútna kvikmynd um Tíbet. Kvikmynd þessi var sýnd í London nú fyrir skömmu. Kom þar fram, að sögusagnir um að Kínverjar hafi nær útrýmt menn- ingu Tíbetbúa eru engar ýkjur. Það, sem kom kínversku gest- gjöfunum mest á óvart úr þessum ferðum, var, hversu innilega sendimönnum Dalai Lama var fagnað og hvílík fagnaðaróp heyrðust hvar sem þeir komu. A einum stað ruddust þúsundir Tíb- etbúa fram og ýttu kínversku varðmönnunum til hliðar. Þeir hrópuðu og grétu og hópuðust í kringum Búddaprestana í hópnum og báðu um að láta skíra sig að Búddatrúarsið, en það hafa Kín- verjar bannað. Þeir snertu andlit og hendur gestanna, þrábáðu þá um að þiggja smágjafir og báru þá á höndum sér. Gestirnir voru hins vegar frá- vita vegna þeirra ráðstafana, sem hafa verið gerðar til að afmá svip

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.