Morgunblaðið - 13.06.1982, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.06.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ1982 71 HVAÐ ER NÚ ÞETTA? Þessir laumulegu strákar litu inn á ritstjórn blaðsins nú fyrir skömmu með einhvern einkenni- legan rauðan hlut í höndunum. Og átti nú ritstjórn blaðsins að fara í keppni um að finna út hvað það væri sem strákarnir væru með. Sumir stungu upp á að þetta væri ný gerð af töfrateningi, aðrir að þetta væri ný gerð af eplum sem farið væri að rækta í Dan- mörku og þeir höfðu haft spurnir af nú fyrir skömmu. En besta uppástungan var að þetta væri kaktus án róta. Strákarnir glottu við þessari fákænsku fullorðna fólksins og sögðu okkur að þetta væri vanskapaður tómatur. Því miður höfum við ekki nöfnin á þessum skemmtilegu strákum. „Mér líður ágæt- Iega“ Ólafur Hjálmarsson er einn af þeim fjölmörgu námsmönnum sem eru að leita sér að vinnu um þessar mundir. Óli er 4. árs nemi í viðskiptafræði í Háskóla íslands. óli sagði að hann væri ekki búinn að leita sér að vinnu nema í 7 daga og sagðist hann alls ekki úrkula vonar um að hann fengi vinnu á sínu sviði bráðlega. „Dagarnir líða fljótt, maður skreppur og spjallar við fólk, svo les ég hagfræði sem er mitt stærsta áhugamál og ég hef í raun ekki yfir neinu að kvarta, því ég tel mig alls ekkert atvinnulausan þó ég fái ekki vinnu á mínu sviði. Ég get þó alltaf fengið vinnu við hitt og þetta," sagði óli. Þetta er í raun ágætis afslöppun eftir prófin sagði Óli enn- fremur. Óli á sér raunar annað áhugamál en hagfræði en það eru teikningar. Annars sagði hann „að hann hefði lítið gert af því að teikna upp á síðkastið". Og þegar Óli var að því spurður hvort hann vildi segja eitthvað að lokum sagði hann: „Mér líður ágætlega." „Stelpur ekkert verri 1 skák en strákar“ Tómas Björnsson, 13 ára gamall Reykvíkingur, varð íslandsmeistari á skákmóti telpna og drengja sem var haldið að tilhlutan Taflfélags Reykjavíkur nú fyrir stuttu. Á mótinu kepptu 20 strákar og 3 stelpur. Tómas leit við hjá blaðinu og spjölluðum við þá stuttlega við hann. Hann sagði okkur að hluti af verðlaunum, sem hann fékk væri að fara í æfingabúðir í Svíþjóð og færi hann kannski núna í sumar. Tómas sagði að skák væri hans aðaláhugamál og mestum frítíma sínum eyddi hann í að lesa skákbækur og skákir í blöðum. Ekki taldi hann að stelpur væru neitt verri skákmenn en strákar ef þær stunduðu þetta af krafti. Núna í sumar vinnur Tómas við að bera út Þjóðviljann og selja Dagblaðið & Vísi í lausasölu. Tómas sagði að ekkert væri ákveðið hvað hann gerði í sumar, hann færi kannski hringinn í kringum landið með fjölskyldunni og einhverjum helgum myndu þau eyða í sumarbústað sem fjölskyld- an á við Meðalfellsvatn. Annars eyddi hann tíma sínum eins og flestir á hans aldri gerðu, hann færi stundum í fótbolta og stundum í sund og gaman þætti sér að fara á hasarmyndir í bíó. Hvers vegna erum við öll svona leið...? Kona er nefnd Inga Jónasar- dóttir á Suðureyri við Súganda- fjörð. Hún kom fram á skemmt- un í Broadway í febrúar síðast- liðnum og vakti þar mikla hrifn- ingu áheyrenda. í stuttu spjalli við blaðið sagði Inga okkur for- sögu þessa máls. Hún sagði að þetta hefði alltsaman byrjað úti á Spáni fyrir tveimur árum er hún var stödd þar í fríi ásamt manni sínum. Þar hefði hún unnið þrenn verðlaun í söng- keppni sem hefði verið haldin á hótelinu sem hún bjó á. Síðan hefði verið skrifað um þetta í Dagblaðið og eftir það hefði Ing- ólfur í Útsýn haft upp á henni og fengið hana til að koma fram á Útsýnarhátíð. Síðan sagðist Inga hafa sungið á ýmsum stöðum á Vestfjörðum og nú í haust hefði hún sungið á Vestfjarðahátíð, sem haldin hefði verið á Hótel Loftleiðum. Inga sagði að hún hefði verið stödd hér í bænum dag einn í febrúar og þá hefði Hermann Ragnar Stefánsson rekist á hana af tilviljun og spurt hvort hún væri ekki til í að Inga er hún söng í Broadway. koma fram í Broadway. Inga sagðist hafa samþykkt þetta upp á von og óvon um að henni myndi takast það. En svo hefði þetta allt saman gengið mjög vel, og hún væri ánægð með það. Inga sagðist vera algerlega sjálfmenntuð og hún stæði fyrst og fremst í þessu af því henni þætti gaman að því. Inga semur texta sína sjálf og nú sagðist hún vera nýbúin að semja texta við vinningslagið úr Eurovision söngvakeppninni og gaf hún blaðinu leyfi til að birta brot úr textanum. Hvorsvt gna erum vid öll svona leid er ekki leidin ad hjartanu greið. Hugsum við aðeins um allsnægt og auð er sál okkar alveg snauð. Ilöfum við gleymt þvi að guð. hann er til. Cíefur í kuldanum birtu og yl. Við skulum biðja um skilning og ást. „Börnin þín lát ei þjást.“ Að lokuni sagðist Inga hafa það gott. Hún ynni núna sem sundlaugarvörður við sundlaug- ina á Suðureyri og líkaði sér sú vinna vel.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.