Morgunblaðið - 13.06.1982, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.06.1982, Blaðsíða 20
68 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ1982 Hin ósýnilega skrift Bókmenntir í Tékkóslóvakíu Danski rithöfundurinn Peter Schepelern, sem lagt hefur stund á tékknesku- nám og starfað sem lektor í kvikmyndafræöi, skrifaði fyrir skömmu grein í Poli- tiken um stöðuna í tékkn- eskum bókmenntum, þar sem hann lýsir m.a. áhrifum „vorsins“ í Prag árið 1968 og innrásar Varsjárbanda- lagsins í kjölfar þess og greinir frá þrískiptingu hins tékkneska bókmennta- heims og hlutskipti þeirra rithöfunda þar í landi, Sem ekki skrifa fyrir flokkinn og ríkið. Hér fara á eftir nokkrar glefsur úr greininni. Vorið Þau stjórnmálalegu stórátök sem áttu sér stað 1968 skiptu vitaskuld sköpum fyrir menn- ingarlíf tékknesku þjóðarinnar ekki síður en aðra þætti þjóðlífs- ins. Atburðirnir 1968 mörkuðu tímamót í tékkneskum bók- menntum, Prag, sem fyrr á árum átti tvo bókmenntaheima, tékkn- eskan og þýskan (Rilke, Kafka og Werfel eru fæddir þar), er nú að minnsta kosti andleg miðstöð heilla þrennra aðskiljanlegra bókmennta. I fyrsta lagi eru það hinar opinberu bókmenntir, sem eru gefnar út af ríkisútgáfunum, í örðu lagi útiagabókmenntirnar, sem eru skrifaðar og gefnar út á Vesturlöndum, og loks eru það neðanjarðarbókmenntirnar, sem dreift er í örfáum eintökum inn- anlands. Vorið, sem árið 1968 leysti hinn langa staliníska vetur af hólmi í Tékkóslóvakíu, bar með sér nýja og ferska öldu í þar- lendri kvikmyndagerð, sem vakti almenna athygli á Vesturlönd- um. En svipað átti sér einnig stað í bókmenntunum, þótt þær séu að jafnaði háðari landamær- um og málsvæðum. Sem dæmi um bækur, sem komu út um þetta leyti í Tékkósióvakíu og voru þýddar á mörg önnur mál, má nefna þrjár skáldsögur: „Ragmennin“ eftir Josef Skvor- ecky, sem var skrifuð árið 1949, en fékkst ekki gefin út fyrr en 1958, en þá vöktu hinar kald- hæðnislegu lýsingar á frelsun- inni árið 1945 slíka gremju á æðri stöðum, að bókin var sam- stundis bönnuð. Hún kom síðan út árið 1%6. Árið eftir kom út bókin „Spaugið" eftir Milan Kundera, sem fjallar um vofeif- legar afleiðingar af hugmynda- fræðilegum brandara sem ungur maður skrifar á póstkort. Árið 1%9 leit síðan dagsins ljós „Valdið ljúfa" eftir Slóvakann Ladislav Mnackos, þar sem lýst er uppgangi tækifærissinna inn- an sósíalistalýðveldisins. Eftir 1968 hafa margir tékkn- eskir rithöfundar sest að á Vest- urlöndum þar sem þeir hafa not- ið stuðnings virtra höfunda á borð við Henrich Böll, Jean-Paul Sartre, Graham Greene og Phil- ip Roth. Sá hinna landflótta höf- unda, sem hvað mestrar vel- gengni hefur notið mun án efa vera Milan Kundera sem settist að í Frakklandi þar sem hann kennir nú við háskóla. Svarti listinn Þeir höfundar, sem urðu eftir í Tékkóslóvakíu hafa orðið að gera það upp við sig, hvort þeir væru með eða á móti, því um fleiri kosti er ekki að ræða. Þeir sem ekki gáfu yfirlýsingar um stuðn- ing við hina nýju valdhafa voru þegar settir á svartan lista og á þeim lista höfnuðu lang flestir þeirra höfunda sem bæði inn- lendir og erlendir aðilar töldu fremsta. Árið 1977 voru alls 130 nöfn á svarta listanum. Atburðirnir 1968 mörkuðu tímamót í tékkneskum bókmenntum. Þessir höfundar voru settir í útgáfubann, reknir úr rithöf- undasamtökunum og bækur þeirra eru ekki fáanlegar í bóka- búðum, fornsölum eða á bóka- söfnum. Þeir hafa misst atvinnu sína, sem háskólakennarar, rit- stjórar og þýðendur, og verða nú að afla sér lífsviðurværis með annars konar vinnu, eða hugs- anlega sem þýðendur undir fölsku nafni. Margir þessara manna börð- ust á sínum tíma gegn nasistum á meðan landið var hernumið og sátu í þýskum fangelsum eða fangabúðum og tóku þátt í upp- byggingu hinnar kommúnísku Tékkóslóvakíu eftir 1948. Flestir þeirra kenna sig vel að merkja við sósialisma ennþá og flestir hafa þeir skrifað undir mann- réttindaskjal samtakanna „Charta 77“. Fyrir þessa höfunda hefur að- eins verið um tvo möguleika að ræða varðandi útgáfu. Annars vegar hjá forlögum á Vestur- Iöndum, eða að dreifa vélrituð- um handritum í innan við tutt- ugu eintökum leynilega innan- lands. Vitanlega eru afnot af vélrænum táknum frelsisins, eins og ljósritunarvélum og fjöl- riturum, háð ströngum takmörk- unum og eftirliti af hálfu yfir- valda. Meira en 200 titlar hafa geng- ið manna á milli á þessu formi síðustu tíu ár og stjórnvöld láta það gott heita. Biðraðirnar Hinar opinberu tékknesku bókmenntir eru orðnar að undir- furðulegu og óraunverulegu fyrirbæri, röð Potemkin-tjalda, bara fyrir augað. Inn á milli leynast að sjálfsögðu snotrar og huggulegar bækur, eins og verk þjóðarlistamannsins, Zdenek Pluhar, en þau eru hefðbundnar epískar frásagnir um fjölbreyti- leg örlög manna sem að lyktum sigla í trygga höfn sósíalismans. Þá má nefna nokkuð líflegri sög- ur Vladimírs Parals úr hvers- dagsleikanum á vinnustöðunum. Hér eru á ferðinni bækur sem standast kröfur útjöfnunar- stefnunnar. Þessi verk líða áfram á teinum, af jafn miklum dugnaði og tilbreytingarleysi og Vaclav Neumann stjórnar Dvor- ak-symfóníu og neðanjarðarlest- irnar bruna áfram í Prag. Á hverjum fimmtudagsmorgni myndast biðraðir fólks fyrir utan bókaverslanirnar. Það koma sem sé ennþá út bækur, sem fólk þyrstir í að lesa. En biðraðirnar eru tilkomnar vegna þess að það misræmi milli fram- boðs og eftirspurnar, sem virðist vera grundvallarregla í sósíal- ísku ríkjunum, á líka við um bókamarkaðinn. Eitt er það, að það er svo mik- ið af bókum sem ekki má prenta, og annað, að þær bækur sem eru prentaðar, koma einatt út í ann- að hvort allt of stóru eða allt of litlu upplagi. Það sem viðskipta- vinirnir eru að bíða eftir á fimmtudagsmorgnum, þegar nýjar bækur koma á markað, eru yfirleitt þýdd verk. Það eru þýð- ingar á verkum eftir mikilmenni módernismans, eins og Joyce og Proust, sem gefnar eru út í tíu til fimmtán þúsund eintökum og seljast upp á skömmum tíma. Kafka kemur ekki út lengur. Þegar bannaðir höfundar í einstaka tilfellum fá að gefa út, er það aðeins í agnarlitlu upp- lagi. Ljóðskáldið Jan Skacel, sem er á svarta listanum, fékk leyfi til að senda frá sér litla ljóða- bók, en upplagið mátti ekki vera stærra en 2500 eintök og þau hafa verið seld á uppsprengdu verði á svörtum markaði allt frá útgáfudegi. Menningin og ófrelsið Menningin bætir að nokkru leyti upp hið pólitíska ófrelsi fyrir tékkneska lesendur. Tæki- færi til að lesa síðustu ljóð Seif- erts, eða síðustu neðanjarðarbók Vaculíks, möguleikinn á að verða sér úti um eintak af „Ulysses" í hinni nýju og glæsilegu þýðingu, eða miða á nýju kvikmyndina eftir Chytilova, sem brátt mun hverfa úr bíóunum þrátt fyrir geysilega aðsókn. Slíkir hlutir eru mikils metnir í Prag nútím- ans. Það er nefnilega aðeins hægt að nálgast þá — eins og reyndar flest lífsins gæði — með mikilli þolinmæði, góðum sam- böndum og kannski nokkrum fjárútlátum. Frá vestrænum bæjardyrum séð eru tékkneskar bókmenntir öfundsverðar að því leyti hve mikill áhugi er á þeim á ýmsum stöðum. Meðal þeirra áhuga- sömu eru bæði embættismenn ríkisins og erlent frægðarfólk. En tékkneskar bókmenntir eru jú svo margvíslegar: Rétttrúar- bókmenntir, útlagabókmenhtir og hin ósýnilega skrift. (SIB þýddi og endursagði.) Snarpir jarðskjálft- ar í Mexíkó Mexíkóborg, 7. júní. AP. TVEIR snarpir jarðskjáiftakippir urðu í Mexíkóborg og ollu þar lít- ilsháttar tjóni í dag. Komu kippirnir með fjögurra klukkustunda milli- bili og mældust 6,5 og 6,9 stig á Richter-skala. Fyrri kippurinn orsakaði rúðu- bort víða í þorginni, auk þess sem rafmagn fór af um stund og gas- leiðslur brustu. Nokkur vandræði urðu við umferðarstjórn þar sem götuvitar fóru úr skorðum. Síðast varð snarpur jarð- skjálftakippur í borginni í október og mældist hann 6,5 stig á Richt- er-skala. Þá lét einn maður lífið. f KAUPMENN- VERSLUNARSTJÓRAR AVEXTIft KUNNAR Bláber fersk Bananar Dole — Appelsínur Jaffa — Appelsínur Outspan — Epli rauö extra fancy — Epli græn frönsk — Epli græn Granny Smith — Perur — Greip Out- span — Sítrónur Outspan — Vatnsmelónur — Hon- ey Dew melónur. EGGERT KRISTJANSSON HF Sundagörðum 4, sími 85300

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.