Morgunblaðið - 06.08.1982, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 1982
Þjóðhátíðin í Eyjum byrjar í dag
ÞJÓÐHÁTÍÐIN í Vestmanna-
eyjum hefst í dag klukkan 14.00,
með því að formaður Þórs, Frið-
rik Karlsson, setur hana, en
íþróttafélagið Þór í Vestmanna-
eyjum stendur fyrir hátíðinni að
þessu sinni. Síðan verður um
samfellda dagskrá að ræða fram
á nótt og áfram á laugardegin-
um, en á sunnudeginum fer
heldur að draga úr, enda hátíð-
inni slitið þá um kvöldið. Alls
munu það vera um 60 skemmti-
atriði, sem fengin hafa verið á
hátíðina, og þrjár hljómsveitir
munu leika fyrir dansi, Stuð-
menn, Radíus og hljómsveit
Stefáns P. Veitingar verða seld-
ar á svæðinu, og er aukin
áhersla lögð á hefðbundnar ís-
lenskar veitingar, tertur, kökur,
kleinur og annað slíkt. Inn á há-
tíðina kostar 500 krónur, og er
ekki nema um 100 króna hækk-
un að ræða frá því í fyrra. Herj-
ólfur verður með tvær ferðir
milli lands og Eyja á dag og
Flugleiðir standa fyrir loftbrú til
Eyja, meðan á hátíðinni stendur.
Sumartónleikar í Skálholti:
Sýning í Ný-
listasafninu
SÓLVEIG Aðalsteinsdóttir opnar
myndlistarsýningu í Nýlistasafn-
inu við Vatnsstíg 3b, í dag. Á sýn-
ingunni eru skúlptúrar og teikn-
ingar. Sýningartími er frá klukk-
an 16—22 til 16. ágúst.
Arnarflug
bætir þjón-
ustu í innan-
landsfluginu
ÞJÓNUSTA við farþega
Arnarflugs í innanlands-
flugi hefur verið stórbætt
frá því sem áður var. Fé-
lagið hefur endurbætt
húsakynni þau á Reykja-
víkurflugvelli, sem áður
voru í eigu Vængja. Er nú
allt undir einu þaki, far-
þegaafgreiðsla og vöru-
móttaka.
Ný verk eftir Gunn-
ar Reyni Sveinsson
Gunnar Reynir er afkastamikið
tónskáld. Hann hefur samið hin
margvíslegustu verk fyrir kóra,
einsöngvara og hin ýmsu hljóð-
færi. Auk þess hefur hann samið
tónlist fyrir mörg leikrit og
kvikmyndir.
Á efnisskrá tónleikanna í
Skálholti um næstu helgi verða
eftirtalin verk flutt:
1) Fantasía fyrir orgel yfir
gamalt ísl. þjóðlagastef „Nú vil ég
enn í nafni þínu“.
2) Tvær postlúdíur fyrir bari-
ton og orgel. a). Þú Guð míns lífs
... Texti: Matthías Jochumson, b)
Eg á þig eftir Jesús minn ...
Texti: Hjálmar Jónsson frá Bólu.
3) Orgelpartíta yfir sálmalagið
„Jesús mín morgunstjarna".
4) Tvær postlúdíur fyrir bari-
ton og Orgel a) Yfir hverri eykt á
jörðu. Texti: Stefán frá Hvítadal,
b) Minn friður er á flótta. Texti:
Matthías Joch.
5) Kantata fyrir bariton og
Orgel. Texti: Davíðssálmar nr. 137
og 117.
Flytjendur verða baritonsöngv-
arinn Halldór Vilhelmsson og
Gústaf Jóhannesson, organleikari
Laugarneskirkjunnar í Reykjavík.
Þess má geta að þeir munu flytja
hluta þessarar efnisskrár á nor-
rænu kirkjutónlistarmóti sem
haldið verður í Álaborg dagana
19.—23. ágúst 1982.
Sem fyrr segir, hefjast tónleik-
arnir kl. 15 síðdegis og er öllum
heimill ókeypis aðgangur.
Sjómannafélag Reykjavíkur:
Vítavert skilningsleysi
stjórnvalda á gildi öfl-
ugrar landhelgisgæzlu
varðskipum okkar en fiskiskip-
unum sjálfum.
Aðalfundur Sjómannafélags
Reykjavíkur gerir þá kröfu til
ríkisstjórnar og Alþingis að eft-
irlit og aðstoð landhelgisgæsl-
unnar við fiskveiðiflotann verði
stóraukin.
Sjómenn og landsmenn allir
munu þá njóta þess öryggis,
sem vel búin og virk landhelg-
isgæsla veitir.“
Námskeið fyrir
13—15 ára unglinga
að Úlfljótsvatni
SUMARBÚÐIRNAR við Úlf-
ljótsvatn hafa verið starfræktar
frá því á fjórða áratugnum. í
sumar eins og endranær hafa að
öllum jafnaði dvalið þar um 50
börn á aldrinum 7—14 ára í eina
eða tvær vikur. Þann 20. ágúst
hefst svokallað útilífsnámskeið
á Úlfljótsvatni og er það ætlað
13—15 ára unglingum. í leik og
starfi verður æfð notkun landa-
korts og áttavita, matseld við
frumstæðar aðstæður, skyndi-
hjálp og fleira. Á sama tíma
verður haldið flokksforingja-
námskeið fyrir skáta á Úlfljóts-
vatni.
Á örtrum sumartónkíkum í Skál-
holti scm verða á morgun, laugar-
daginn 7. ágúst, og sunnudaginn 8.
ágúst kl. 15 síðdegis verða eingöngu
flutt vcrk eftir Gunnar Reyni
Sveinsson. Af þeim eru tvö ný, sam-
in á þessu ári.
Gunnar Reynir Sveinsson er
Gunnar Reynir Sveinsson
fæddur í Reykjavík 1933. Hann
stundaði nám við Tónlistarskól-
ann í Reykjavík og framhaldsnám
í tónsmíðum í Hollandi. Hann
starfaði lengi sem slagverksmaður
í Sinfóníuhljómsveit íslands og
var einnig þekktur sem jassvibra-
fónleikari.
fæst ekki keypt til skipanna en
meirihluti þeirra hefur legið í
höfn nær alfarið frá 1978.
Þetta er látið viðgangast þótt
ærin verkefni sé að vinna fyrir
a.m.k. fjögur varðskip, búin al-
hliða búnaði til björgunar, eft-
irlits og aðstoðar.
Islenska þjóðin hefur nú
brýna þörf fyrir og skyldum að
gegna vegna veiða úr fiskistofn-
unum okkar utan 200 mílna
fiskveiðimarkanna.
Má benda á karfaveiðar
Rússa á Reykjaneshrygg, loðnu-
og kolmunnastofna og .nú ís-
lenska laxastofninn auk ann-
arra hagsmuna nær og fjær.
Athuga ber hvort eftirlits-
menn Hafrannsóknastofnunar
séu ekki betur komnir um borð í
„Skæramorðinginn“ í Laugarásbíói
LAUGARÁSBÍÓ hefur tekið til
sýningar kvikmyndina „Skæra-
morðinginn" (Schizoid). Leikstjóri
og höfundur handrits er David
Paulsen, en framleiðendur Mena-
hem Golan og Yoram Globus. í að-
alhlutverkum eru Marianna Hill,
Klaus Kinski, Graig Wasson og
Richard Herd.
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi ályktun frá Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur:
„Aðalfundur Sjómannafélags
Reykjavíkur, haldinn 20. júlí
1982, fagnar því að mörg bar-
áttumál félagsins á sviði örygg-
is- og tryggingarmála hafa náð
fram að ganga eða eru að kom-
ast í höfn.
Fundurinn minnir samt á að
margt er enn óunnið og í raun á
baráttunni fyrir öryggi aldrei
að linna.
Aðalfundurinn lýsir undrun
sinni yfir því vítaverða skiln-
ingsleysi sem núverandi stjórn-
völd hafa á gildi öflugrar land-
helgisgæslu fyrir ey- og fisk-
veiðiþjóð sem ísland er.
Niðurlæging íslensku land-
helgisgæslunnar er slík að olía