Morgunblaðið - 08.08.1982, Blaðsíða 1
68 SÍÐUR
171. tbl. 69. árg.
SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Breskur faðir:
Hlaut dóm vegna
fæðingarhjálpar
Wolverhampton, Knglandi, 7. ágÚHt. AP.
FAÐIK, sem tók á móti barni sínu i
þennan heim meó hjálp bóka og
þekkingar sinnar á hestum og kúm,
var í dag úrskurðaður sekur um að
hafa brotið lög frá árinu 1951 sem
banna að aðrir en starfsfólk úr hjúkr-
unarstétt aðstoði við fæðingar.
Brian Radley, sem er 34 ára að
aldri og atvinnulaus heimspeking-
ur að eigin sögn, var dæmdur til að
greiða 100 punda sekt eftir tveggja
daga réttarhöld. Saksóknari sagði
þessi lög sett til að forða hvítvoð-
ungum frá fólki sem ekki hefði
næga þekkingu til að meðhöndla
þá.
Radley yfirgaf réttarsalinn
greinilega án þess að iðrast þessar-
ar fæðingarhjálpar hið minnsta og
sagðist ekki hafa viljað missa af
þessari reynslu hvað sem í boði
hefði verið. Ekki vildi hann þó tjá
sig um það hvort hann myndi
endurtaka þetta ef kona hans yrði
ófrísk að öðru barni, en varðandi
kostnað hans í þessum málaferlum
hefur þegar verið stofnaður sjóður
áhugamanna um þessi efni sem
hafa boðist til að greiða hann allan.
Tyrkland:
Læknir höfuðpaurinn
í barnasölumáli
l.sUnhúl, 7. ágÚHt. AP.
LÖfiREGLAN í Istanbúl kom í vik-
unni upp um hóp 14 manna undir
stjórn kunns læknis, sem stundað
hcfur barnasölu um langt skeið. Þá
er yfirmaður hópsins, Oktay Cumhur
Akkent, ásakaður um ýmis konar við-
urstyggileg afbrot.
Er lækninum m.a. gefið að sök að
hafa framkvæmt meira en 400
ólöglegar fóstureyðingar og drepið
óskilgetin börn. Fóstureyðingarnar
voru i flestum tilvikum gerðar á
konum úr efri stigum þjóðfélags-
ins. Ásökunum lýkur ekki þar með
því lækninum er ennfremur gefið
að sök að hafa falsað fæðingarvott-
orð og selt börn. Alls er vitað um 33
barnasölur það sem af er þessu ári.
Lögreglan komst á sporið þegar
kona tilkynnti dularfullan dauða
nýfædds barns hennar á sjúkra-
húsi. Þegar komist var að því að
barnið hafði verið drepið með
lyfjainngjöf var frekari rannsókn
hrundið af stað. Ljósmyndari einn,
sem sagðist hafa haft þann starfa
að mynda þau börn er voru til sölu
reglulega, gaf sig fram og lagði
fram myndir til sönnunar. Þar með
þótti sýnt að ástæða væri til að
grípa í taumana.
Frétt þessi hefur vakið mikla at-
hygli í Tyrklandi, en jafnframt hef-
ur sett kvíða að fjölmörgum for-
eldrum. Mæður, sem eignuðust
börn sín á sjúkrahúsinu, sem lækn-
irinn starfaði við, vilja nú fá úr því
skorið með læknisfræðilegum
rannsóknum hvort þær séu yfirhöf-
uð með sín eigin börn, eða e.t.v.
einhverra annarra í höndunum.
Sjálfur segist læknirinn, Oktay
Cumhur Akkent, hafa talið sig vera
að gera góðverk með þessari starf-
semi sinni. Verulegur hluti barn-
anna hefur verið seldur til
V-Þýskalands og vinna nú lögregl-
an þar og í Tyrklandi sameiginlega
að lausn þessa máls.
Mynd: Snorri Snorrnnon
Akureyri hefur það orð á sér, að vera fallegur bær og ekki verður þessi mynd til að vitna um hið gagnstæða.
Júlímánuður þar var sá þriðji heitasti í 30 ár og ef veðrið hefur oft verið eins og myndin sýnir, kemur það ekki
á óvart.
Málverk
eftir list-
málarann
Adolf
Hitler
Málverk þetta er talið hafa
verið málað af Adolf Hitler
fyrir framan aðsetur hans í
Hohensazberg nálægt
Berchtesgaden. Það mun nú
í nánustu framtíð verða
boðið upp vegna vangold-
inna skulda eiganda þess,
en ekki myndi verðið telj-
ast mjög viðráðanlegt, eða
allt að 950.000 frankar.
Miðað við íbúafjölda:
Israel best búna
herveldi í heimi
London, 7. á|fÚHt. AP.
ÍSRAEL, sem aðeins hefur aö geyma fjórar milljónir íbúa, er
fjórða sterkasta herveldi í heiminum á eftir Bandaríkjunum,
Sovétríkjunum og Kína, samkvæmt nýútkominni skýrslu al-
þjóðlegrar stofnunar sem fæst við rannsóknir á heraOa.
Miðað við fólksfjölda er ríki
Gyðinga best herbúna ríkið í
heiminum og það eyðir einnig
hlutfallslega mun meira fé í
vafnir sínar en nokkurt annað
ríki. Á síðastliðnu ári námu
útgjöld ríkisins í varnarmál-
um 7,3 milljörðum dollara að
heildarupphæð, eða 1835 doll-
urum á hvert mannsbarn í
landinu. ísrael er eina ríki
Miðausturlanda sem framleið-
ir sjálft hergögn sín.
Samkvæmt þessari skýrslu
er herinn að jafnaði búinn
135.000 mönnum, en hægt er
að boða út 450.000 manna vel
búinn herafla á aðeins einum
sólarhring.
Flugherinn er búinn að
minnsta kosti 600 orustuvélum
og er í þessari skýrslu talið að
hann sé best búni flugher sem
sögur fara af.