Morgunblaðið - 08.08.1982, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 08.08.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1982 3 „Ber mikið á ólög- legum sýningum á löglegu myndefni44 — sagði Brian Norris, lögfræðingur alþjóða- samtaka kvikmyndaframleiðenda HÉK á landi var nýlega staddur Brian Norris, lögfræðingur alþjóðasamtaka kvikmyndaframleiöenda, en hann hefur á síðustu mánuðum farið vítt og breitt um heiminn í þeim tilgangi, að fylgjast með því hvort höfundaréttur aöila innan samtakanna sé virtur og sporna við lagabrotum á því sviði, ef því er að skipta. Þá hafa samtökin farið þess á leit við yfírvöld í viðkomandi löndum, að þau beiti sér fyrir því, að fullkomnari lög verði sett um höfundarétt og meðferð mynd- efnis, en víða um lönd er þar pottur brotinn, lagasetning orðin gömul og ekki í takt við þá þróun sem átt hefur sér staö á undanförnum árum. „Þróunin í myndbandagerð og myndbandaviðskiptum hefur verið mjög hröð á undanförnum árum. Margir, sem ekki hafa rétt til, hafa og eru að reyna að gera sér peninga úr þessum viðskiptum," sagði Norris í spjalli við blaða- mann Morgunblaðsins nú fyrir skömmu. „Fólk verður að gera sér grein fyrir því, að með því að leigja myndefni af mönnum, sem hafa ekki útgáfurétt eða annan rétt til, eða þá að taka þátt sem áhorfend- ur í ólöglegri opinberri sýningu, eins og nú tíðkast víða, er það að drepa niður kvikmyndaiðnaðinn. Þegar menn gera kvikmynd eru þeir að vonast til þess, að hún skili af sér ágóða til þess að geta haldið áfram á sömu braut, þ.e. framleitt aðra kvikmynd. Nú eru framleið- endur mjög uggandi um sína framtíð. Stór hluti þeirra fjármuna, sem eiga að skila sér, skilar sér ekki, heldur lendir í höndum manna, sem eru að fremja lögbrot," sagði Norris. — Er hægt að giska á einhverja upphæð í þessu sambandi? „Það er erfitt að nefna tölur, en óhætt er að fullyrða að þær eru stórar. Ég var nýlega staddur i Englandi þar sem ég komst að raun um, að um 70 prósent mark- aðarins eru rekin á ólöglegum grundvelli, og þá geta menn ímyndað sér hve miklir hagsmunir eru í húfi.“ — Hvernig er ástandið hér á landi, er það verra eða betra en annars staðar? „Það er erfitt að segja, enda þekki ég ekki mjög vel til hér enn- þá. Markaðurinn hérna er smár, en ég hef þó heyrt að töluvert sé um misnotkun." — Hvers kyns misnotkun? „Hér virðist vera minna um óiöglega fjölföldun á myndefni en víða erlendis, en þar eru lögbrjót- ar mjög nákvæmir við slíka föls- un, þannig að nær ógerlegt er að Brian Norris, lögfræðingur alþjóðasamtaka kvikmyndaframleiðenda, ásamt Grétari Hjartarsyni, framkvæmdastjóra Laugarásbíós. greina hina löglegu spólu frá hinni trú. En ástandið hér virðist samt ólöglegu og fólk leigir þær í góðri nokkuð alvarlegt. Við vitum til þess að hér á landi hefur verið fjölfaldað ólöglega, en þó ber mest á ólöglegum sýningum á löglegum myndspólum." — Með hvaða ráðum ætlið þið að sporna við þessu? „Við ætlum að koma okkur upp mönnum víða um heim, eins konar rannsóknarmönnum, sem fylgjast með þessu og fara þá réttarfars- leiðina gegn lögbrjótum ef annað gengur ekki.“ — Hvernig hafa stjórnvöld tek- ið undir áskorun ykkar um strang- ari löggjöf í þessu efni? „Það er ekki komið í ljós ennþá, en það er vitað mál að nauðsynlegt . er að gera eitthvað. í Chicago er komin mjög ströng löggjöf þar sem refsing við slíkum lögbrotum getur verið allt að 250 þúsund doll- urum og upp í fimm ára fangels- isvist. Svíar eru einnig búnir að herða viðurlög gagnvart þessum brotum", sagði Brian Norris. Guðmundur Vigfússon, forstöðumaður Byggingarsjóðs verkamanna: Engin rök fyrir að greiða eigi á þetta verðbætur „BÆRINN á ekki þessa peninga. Byggingarsjóöur verkamanna á þetta fé, þetta eru framlög bæjarins sem hann leggur fram samkvæmt lögunum frá 1970 og er þar með aö kaupa sér rétt til lána úr sjóönum," sagöi Guö- mundur Vigfússon, forstööumaöur Byggingarsjóös verkamanna, í samtali viö Morgunblaðið, en hann var spurö- ur af hverju Hafnarfjarðarbær fengi ekki þá peninga, sem hann telur sig eiga inni í sjóönum, greidda út meö verðbótum. Hér er um aö ræöa 820 þúsund krónur, en meö veröbótum myndi uppha'ðin vera 1.740 þúsund krónur. „Það er úrskurður félagsmála- ráðuneytisins frá 1972 eða 1973 um það að slík framlög séu eign sjóðsins sjálfs, en ekki sérreikningur eða sér- eign hvers sveitarfélags. Sveitarfé- lögin voru með þessu framlagi að kaupa sér rétt til lántöku úr sjóðn- um. Nú kemur það hins vegar út þannig að þeir byggðu ekki það hratt, að það fé þeirra sem inni var eyddist og þannig varð til formleg innistæða Hafnarfjarðarbæjar hjá sjóðnum, sem Húsnæðismálastjórn hefur heimilað að megi nota upp í þau 10% sem bæjarfélögin eiga að greiða af byggingarkostnaði verka- mannabústaða. Húsnæðisstofnun hefur sainþykkt að verja megi þess- ari upphæð til þess að greiða hluta af 10% framlagi Hafnarfjarðarbæj- ar. Það eru engin rök fyrir því að greiða eigi á þetta verðbætur. Þetta fé er eign sjóðsins og það má segja að það séu liðlegheit eða ákvörðun Húsnæðismálastjórnar, að það megi verja þessu upp í núverandi 10% framlag," sagði Guðmundur Vigfús- son. Fáein sæti CoSta del Sol laus i næstu feröir tn Portoroz Lignano Costa del Sol Hvergi gefst annað eins tækifæri til að njóta veð- urblíðu, frábærrar gisti- þjónustu og fjölbreytni. Hingað streymir fólk alls staðer aö til aö skemmta sér og njóta lífsins. Portoroz Kjörinn heilsubótarstaður. Bezta gistiaðstaðan. Lignano Hinn orðlagði sumarleyf- isstaður fyrir alla fjölskyld- una. Betri og vinsælli en nokkru sinni fyrr. Íslendingahátíð ÚTSÝNAR á Costa del Sol verður á Hótel ALAY laugardaginn 14. ágúst Glæsileg hátíð Portugal Troia 7. sept. 2 sætí !aus. Feröaskrifstofan UTSVN Reykjavík Austurstræti 17, símar 20100 og 26611 Akureyri Kaupvangsstræti 4, sími 96-22911

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.