Morgunblaðið - 08.08.1982, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1982
27
Minning:
Katrín Jóhanns-
dóttir frá Garðsá
Fædd 3. júlí 1898
Dáin 28. júlí 1982
Hún Katrín afasystir mín er dá-
in og var hún jarðsungin frá Ak-
ureyrarkirkju 4. ágúst sl.
Mig langar með þessum skrifum
mínum að kveðja frænku mína í
hinsta sinn.
Ég gleymi aldrei hversu hlý og
góð hún var mér þegar ég kom
heim í Garðsá fyrst, þá á sjöunda
árinu. Það var í byrjun maí og
hvergi sá á dökkan díl og snjórinn
svo mikill að við urðum að ganga
heim að bænum frá þjóðveginum
og ég var hrædd, því ég heyrði
drunurnar í Þveránni, en vissi
ekki hvar hún var. En móttökurn-
ar hjá þessu góða fólki eyddu
hræðslu minni.
Þessi sumur mín hjá Katrínu
frænku, Jóhanni manni hennar og
börnum, þeim Herði, Þóru,
Hrafnhildi, Kolbrúnu, Guðnýju og
Margréti, eru mér ljúf minning og
yljar mér um hjartarætur og síð-
an þá hefur haldist órofin vinátta
með okkur.
Katrín var ein af þessum vel
gerðu manneskjum, sem aldrei
halla orði á aðra og finna alltaf
það góða í öllu. Hún tók alltaf svo
hlýlega á móti gestum og ekki síst
þeim sem minna máttu sín í þjóð-
félaginu og voru ekki aufúsugestir
annars staðar.
Leiðrétting
í minningarorðum um frú
Kristrúnu Þórðardóttur, hér í
blaðinu á fimmtudaginn, féll niður
nafn annars bróður Kristrúnar, en
það er Sæmundur Þórðarson, stór-
kaupmaður í Hafnarfirði. Er hann
kvæntur Guðlaugu Karlsdóttur.
Katrín var fædd hinn 3. júlí
1898 á Garðsá í Eyjafirði og ólst
upp hjá foreldrum sínum, þeim
Þóru Árnadóttur og Jóhanni
Helgasyni, fyrst á Garðsá og síðan
á Syðra-Laugalandi í Eyjafirði,
ásamt systkinum sínum, þeim
Steinþóri, Birni, Áslaugu og
Brynhildi, sem öll eru látin.
Árið 1928 giftist hún Jóhanni
Frímannssyni frá Gullbrekku í
Saurbæjarhreppi, Eyjafirði og
fluttu au vorið 1929 upp í Garðsá
og bjuggu þar myndarbúi til árs-
ins 1966 að þau hættu búskap og
fluttu til Akureyrar. Jóhann lést á
Akureyri árið 1978.
Ég hef alltaf heimsótt Eyja-
fjörðinn yfir sumartímann og ekki
fundist sumarið sumar án þeirra
heimsókna og eins hefur mér ekki
fundist heimsókninni lokið nema
ég hafi litið inn hjá Katrínu
frænku í Löngumýrinni, þar sem
hún bjó frá því að fjölskyldan
hætti búskap að Garðsá.
Nú kveð ég góða frænku mína,
konu, sem ég kýs mér sem fyrir-
mynd í lífinu.
Ég sendi börnum hennar,
tengdabörnum og barnabörnum
mínar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Kristín Magnúsdóttir
SMITWELD
seturgæóin áoddinn
«t
Rafsuðuvír
Rafsuðumenn um allan heim
þekkja SMITWELD merkið. í yfir
hálfa öld hefur SMITWELD
þjónað iðnaði og handverks-
mönnum um allan heim.
SMITWELD rafsuðurvírinn er
einn sá mest seldi í Evrópu.
Yfir 70% af rafsuðuvír fyrir ryð-
varið efni, sem selt er í Vestur-
Evrópu er frá SMITWELD.
Sannar það eitt gæði hans. Við
höfum fyrirliggjandi í birgðastöð
okkar allar algengustu gerðir
SMITWELDS rafsuðuvírs og
pöntum vir fyrir sérstök verkefni.
SMITWELD:
FYRSTA FLOKKS VÖRUR Á
MJÖG HAGSTÆÐU VERÐI
SINDRA
STALHF
PÓSTHÓLF 881, BORGARTÚNI 31, 105 REYKJAVÍK, SÍMAR: 27222 & 21684
raöauglýsingar — radauglýsingar — raöauglýsingar
Tölva til sölu
Önnur tölvan okkar sem er Burroughs B—80
er til sölu. Ýmiskonar forrit geta fylgt. Nánari
upplýsingar veitir Níels Einarsson á
skrifstofutíma.
Bílanaust hf.
Síöumúla 7—9.
Til sölu
Vönduö frystiklefahurö, stærö 100x190 cm.
100 lítra rafha suöupottur og 6 cyl. Dodge
Plymouth vél 225 cub. Sími 12634 og 39110.
Fiskibátar til sölu
Höfum til sölu góöa alhliöa fiskibáta. Bátarnir
eru mikiö endurnýjaöir og vel útbúnir til
nóta-, neta- og togveiöa. Buröargeta
600—650 tonn.
Eignahöllin Skúli Ólafsson
Iðnadarhús
2000 fm iönaöarhús í byggingu til sölu á
besta staö í Reykjavík. Þeir sem hafa áhuga
sendi fyrirspurn meö símanúmeri til augld.
Mbl. merkt: „W — 2368“.
Atvinnuhúsnæöi
Til leigu frá 1. september nk. götuhæö hús-
eignarinnar Auöbrekka 36. Stærö 340 fm og
góöar innkeyrsludyr. Núverandi leigutaki er
Burstageröin hf., iönaöar- og heildsölufyrir-
tæki. Nánari upplýsingar eru veittar í símum
17045 og 98-2345.
íbúð til leigu
Nýstandsett 3ja herb. íbúö í nýlegu steinhúsi
til leigu strax. Upplýsingar um leigu og fjöi-
skyldustærð sendist auglýsingadeild Morg-
unblaðsins merkt: „Góö — 6120“ fyrir 11.
ágúst.
Iðnaðarhúsnæði
Til leigu 350 fm iönaöarhúsnæði á jaröhæö
viö Dugguvog meö mikilli lofthæö og góöum
innkeyrsludyrum. Getur veriö laust strax.
Uppl. gefur Eignaval í síma 29277.
Atvinnuhúsnæði
Til leigu er ca. 60 m2 atvinnuhúsnæöi nálægt
nýja miöbænum. Húsnæöiö er hentugt fyrir
léttan iönaö eöa skrifstofu. Tilboö sendist
blaöinu fyrir 12. ágúst nk. merkt: „Húsnæöi
— 2365“.
| óskast keypt {
Kjarvalsmálverk óskast
til kaups
Af sérstöku tilefni óskast málverk eftir
Kjarval til kaups. Gott verö greitt fyrir góöa
mynd.
Þeir sem kynnu aö vilja selja málverk eftir
Kjarval, leggi nafn og símanúmer inn á af-
greiöslu Morgunblaösins fyrir 10. þ.m.
merkt: „Kjarval — 3436“.
Meö ÖM bréf veröur fariö sem trúnaöarmál.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU