Morgunblaðið - 08.08.1982, Side 28

Morgunblaðið - 08.08.1982, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1982 Tíu reiðmenn með 37 hesta og hundurinn sá 49undi Liðið hafði safnast saman úr ýmsum áttum, þegar riðið var upp úr Borgarfirðinum áleiðis norður í land í vikunni fyrir Landsmót hesta- manna í Skagafirði. Þetta var einn af þessum hópum, sem þangað streymdu, og fór ekki alltaf alfaraleið til að lenda ekki í halarófunni sem þessa daga teygði sig milli Norður- og Suður- lands, þéttust um Kjalveg. Undirritaður blaðamaður Mbl., sem ekki hafði stigið á bak allt sl. ár, steig upp á hest á Kjalarnesi og reið með bróður sínum Árna til Þingvalla ásamt fylgdarliði eins og goðarnir forðum. Neðan frá Hnaus í Árnessýslu kom annað lið, Gísli B. Björnsson og dætur hans, Anna Fjóla og Elfa, sam ætluðu að ríða norður, og fylgt úr hlaði af öðrum fjölskyldumeðlimum. Að Húsafelli komu til móts við þau ríðandi úr vestri frá óðali sínu Álftanesi á Mýrum Harald- ur Sveinsson og Ásdís dóttir hans og slógust í hóp með þeim frá sínu óðali í Skógum í Flókadal Birgir Þorgilsson og Sigrún dóttir hans. Síðast- ur náði hópnum Björn Guðmundsson, flugstjóri, sem komið hafði á flugfáki frá Nígeríu, falið jarðbundna hesta sína í snatri ferðafélögunum, brugðið sér til Svíþjóðar, en þeysti nú á blikk- belju yfir Kaldadal til móts við hesta sína og samferðafólk í Kalmanstungu, í þann mund sem fullskipað riddaralið, 10 manns með 37 hesta og hundinn Snæa, var að leggja úr byggð. Á langleiðum rekast hestar fljótlega fyrirhafnarlau.st, og reiðmenn skiptast á um að ríða á undan og eftir. Hér fer Haraldur Sreinsson í broddi fylkingar. Eftir Elínu Pálmadóttur Myndir: Anna Fjóla líða tók á daginn, kul af jöklum fannst á skrokkum þótt illa saeist til þeirra. Almennt var áður talið að reiðleiðin frá Hofmannaflöt og norður að Húsafelli tæki 8—9 tíma, og vorum við rúmlega 8, enda vel ríðandi og hestar strax farnir að kynnast og rekast vel. Nema hvað litli meinlausi hryssu- vesalingurinn var þá þegar sí- hrakinn út úr röðinni af öðrum hrossum og skokkandi utan slóða. Gnginn vildi hafa hana fyrir framan sig: — Hryssa! sögðu hestamennirnir spekingslega, þeir hrekja þær alltaf úr samfélaginu! Norðan við Ok hallar niður í Borgarfjörð og sér yfir í Hvítár- síðu. Síðasti spölurinn stórgrýttur og Kaldidalur raunar gróður- snauður. Enda þurfti vel að fylgj- ast með reknu hestunum, til að geta strax losað fastan stein úr hóf. Engir hagar eru að kalla frá Brunnum að Geitá í Borgarfirði. Því var gott mönnum og hestum að komast í græna haga eða hlýtt hús og heita pottinn við sundlaug- ina í Húsafelli. Einn hesturinn, sem stungið hafði við daginn áður, reyndist enn haltur og var skilinn eftir í Kaimanstungu daginn eftir, þegar flokkurinn reið af stað inn á Arn- arvatnsheiði með Strút og Eiríks- jökul og síðan Langjökul á hægri hönd en Norðlingafljót á vinstri hönd. Reiðleiðin milli Fljótsins og Hallmundarhrauns er þar stund- um yfir hrauntögl. Eiríksgnípan blasir við norðan í Eiriksjökli, þar sem höggvinn var undan Eiríki útilegumanni fóturinn, en hann komst samt undan á handahlaup- um. Útsýni tii fjalla þann dag og hinn næsta var dýrlegt. Jöklarnir áberandi hið næsta, Langijökull, Eiríksjökull og Okið taka yfir 115 gráður við Arnarvatn, segir Þor- steinn á Húsafelli i Árbók Ferðafél agsins. I vestri má sjá yfir héruð til Tröllakirkju á Holtavörðuheiði, Baulu og jafnvel Hafnarfjalls og Skarðsheiðar. í austri Strútur, í norðri Víðidals- fjöll og Vatnsdalsfjöll, þangað sem för okkar er heitið. Skógarhólar undir Ármanns- felli á Þingvöllum eru nú orðið góður fyrsti áfangi fyrir þá, sem ríða vilja af höfuðborgarsvæðinu fram hjá Tröllafossi, Stardal og Stíflisdal, eftir að lagfærð var fyrir eitthvert landsmótið leiðin yfir keldurnar andstyggilegu fyrir neðan Fellsenda, þar sem alltaf lá í. I Skógarhólum eru heldar hesta- girðingar, sem þó þarf að ganga með áður en hestum er sleppt. Gallinn er þó sá, að þar er hvergi vatn að hafa fyrir menn og hesta milli landsmóta. Þótt brynnt væri í síðasta læk áður en komið var á staðinn, var hrossahópurinn að morgni ekki í rónni fyrr en komið var inn yfir Bolabás norður fyrir Hofmannaflöt, upp fyrir Meyjar- sæti og að Sandkluftavatni. Ekk- ert vatn er fyrr að hafa, og rákust hross ilia, því ekki stóðust allir freistinguna að skjótast yfir í þurran lækjarfarveg og gá. Kom þó ekki verulega að sök í þetta sinn, því mikil dögg var á um nótt- ina og því vökvun fyrir grasbíta, en fólk hafði bíl til að sækja í vatn í morgunkaffið. En meðan liðið hafði sótt hross sín, skoðað undir skeifur fyrir ferðina og lagt á, höfðu ókunnir dekurhestar nokkr- ir komist í nestispakka dagsins, sem ófarnir voru í hnakktöskurn- ar, og hámað í sig smurt brauð eða dreift því, svo ekki var ætt fyrir aðra en hundinn Snæja. En sá sið- prúði hundur hefði aldrei látið sér detta í hug að eta krásir óboðinn. En Snæi ti'ítlaði með í sex daga norður í Skagafjörð, nema hvað hann fékk sér spöl og spöl hvíld á hnakknefi húsbænda sinna þegar þófar voru sárir orðnir. I þúsund ár hefur Kaldidalur verið fjölfarin leið ríðandi fólki, fyrstu aldirnar á leið til þings eða frá því. Vegur hefur ekki alltaf verið jafn greiðfær sem nú, þegar Vegagerðin hafði í júlíbyrjun ný- opnað þennan sumarfjallveg og heflað hann þægilega mjúkan undir hófa. En nyrst á Kaldadal er sem kunnugt er hið fræga Skúla- skeið úr ljóði Gríms Thomsens, þar sem afburðaskepnan Sörli barg húsbónda sínum með hraðri yfirferð á stórgrýttri urðinni á Langahrygg, er „þeir eltu hann á átta hófa hreinum". Þótt ekki væri mikil fjallasýn þennan dag, voru Botnsúlurnar annars vegar og ekki síst fjallið Skjaldbreiður til yndisauka: Beint er í norður fjallið fríða, fákur eykur hófa.skell. Sér á leiti Lambahlíða litlu sunnar llloðufell. En varla sáum við Hlöðufell, sem í ár var einsog Skjaldbreiður með óvenju miklum fönnum þessa fyrstu viku í júlí, fyrr en komið var norður fyrir. Bendir kvæðið til þess að Jónas Hallgrímsson hafi verið sunnan við Skjaldbreið er hann orti kvæðið, þótt sagt sé að hann hafi verið í Brunnum, þar sem jafnan er áningarstaður þeirra sem um Kaldadal fara. En svalt var á Kaldadal þegar Fremur regn en flugur í áningarstað í Vopnalág, skeifumyndaðri langri skjólgóðri I Hópurinn við húsið góða á Hofi í Vatnsdal áður en lagt er upp: Jónas bílstjóri, Björn Guðmundsson, Birgir Þorgilsson, Gísli B. Björnsson, Sigrún Birgisdóttir, Ásdís Haraldsdóttir, Árni Pálmason, Haraldur Sveinsson. Framan við sitja Anna Fjóla og Elfa Gísladætur og hundurinn Sn*i. E.Pá. tók myndina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.