Morgunblaðið - 08.08.1982, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.08.1982, Blaðsíða 10
46 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1982 \ iftlal: Bragi Oskarsson Mvndir: (iuAjón Birgisson TæknivæAinjí í ísk nzkum liskirtnarti hol'ur ált sór slaA um lanj{l árabil en nú jjcra mcnn sér vonir um aú möj{uleikar hal'i skapasl lil art auka hana verulejja. A síúustu árum hafa iirar l'raml'arir áll sér slart erlendis í liilvulækni, raleinda- tækni, leysilækni og á floiri sviöum. \ú jferisl æ alj;onj;ara að vélmenni annisl einhaTstörfí fjöldaframleiöslu, en |»eir jfera Iramleiúsluna éidv rari oj» nákvæmari, jalnframt því art losa slarl'sfólk virt leiðinlej; oj; sálardrepandi slörf. Veij;amikill þállur í frysliiönaói, sem ekki hefur enn lekisl aó vélvæóa aó neinu marki, er svonefnd snyrlinj;. Kr |>ar um aö ræöa snyrtinj;u liskl'laka er koma frá flökunarvél áöur en |>au lara í pakkninj;u. I»ar eru beinjjaröar skornir af flakinu, einslök bein sem í því kunna aö vera lekin úr oj; einnij; þarf aö j;aumj;æfa hvorl hrinj;ormur leynisl í flakinu, oj; nema hann burl ef svo reynisl. I»annij; þarf aó j;randskoöa hverl einasla flak sem l'er í pakkninj;u (il aó lryj;jya aö varan sé óaófinnanlcj; þej;ar á markaóinn kemur. í æknivæðing í fiskiðnaði: Jón Pétursson, oólisfræóinjjur, á vinnustofu sinni hjá Raunvísindastofnun. Hvíta tskið honum til vinstri handar er helíum-neon lasertæki, en lyrir neðan það eru ýmis tæki til Ijósmælinga. Greining hringorms og beina með levsitækni Aukin vörugædi — hærra verð Sú hugmynd hefur komið fram að með haKnýtingu taekninýjunga er orðið hafa á síðustu árum væri unnt að hanna Kreiningartæki sem greindi alla aðskotahluta í fiskflaki, bæði hringorma og bein. Slíkt tæki gæti aukið rekstrar- hagkvæmni í fiskvinnslu verulega og myndi þar að auki tryggja auk- in vörugæði. Einstök bein sem slæðast með í flakinu eftir flökun- ina eru t.d. mjög ógreinileg og hafa fiskneytendur vestanhafs reynst mjög viðkvæmir fyrir slík- um aðskotahlutum í vörunni. Aukin vörugæði að þessu leyti gætu hæglega leitt til hærra verðs og sterkari markaðsstöðu fyrir ís- lenzkan fiskiðnað, sem mætir nú mikilli samkeppni á mörkuðum vestanhafs. Telja því margir að það ætti að vera forgangsverkefni í tæknivæðingu hérlendis að hanna þessa greiningarvél. Nú ef- ast menn ekki um að slíka vél væri unnt að hanna — vandamálið er fremur að hanna svo ódýra grein- ingarvél að frystihús hefðu efni á að festa kaup á henni. Væri hægt að hanna ódýra greiningarvél af þessu tagi, þarf vart að efast um hagkvæmni hennar. Mikið af tíma starfsfólks í snyrtingu frystihúsa^ fer í að grandskoða flök sem engir aðskotahlutir eru í, því við núver- andi aðstæður verður ekki komist hjá að skoða öll flökin. Væri greiningarvél hins vegar til staðar myndi hún geta hleypt öllum þeim flökum sem væru „í lagi“ beint til pökkunar en vísað flökum með að- skotahlutum á færiband til snyrt- ingar. Greiningartæki — vélmenni Nú eru uppi ýmsar hugmyndir um það hvernig þetta verkefni yrði bezt leyst og hversu föstum tökum væri heppilegt að taka á því í byrjun. Hafa erlendir aðilar boðist til aö hanna vélmenni sem tíndi alla aðskotahluti úr flakinu í tengslum við greiningartæki. Hér heima hafa menn hins vegar bent á, að töluverðan tíma muni taka að hanna greiningartæki sem greindi alla aðskotahluti, en á meðan á hönnun þess stæði kæmi vélmennið ekki að hálfu gagni. Vélmenni séu mjög dýr tæki en margt bendir til að verð þeirra muni fara lækkandi í framtíðinni þar sem framleiðsla þeirra fer sí- fellt vaxandi. Af þessum sökum telja margir skynsamlegra að hanna fullkomið greiningartæki fyrst, er greindi örugglega alla að- skotahluti í fiskflaki, en þá fyrst er slíkt tæki væri til staðar yrði tímabært að kanna möguleika vélmenna til að nema aðskotahlut- ana úr flakinu. fln hvaða leið sem verður valin, hvað varðar þetta verkefni er, hér um áhugavert málefni að ræða, því tæknivæðing í snyrtingu gæti skipt sköpum fyrir íslenzkan fisk- iðnað. Nú hafa um nokkurt skeið staðið yfir athyglisverðar athug- anir varðandi greiningu aðskota- hluta í fiskflökum með leysitækni, og hefur Jón Pétursson eðlis- fræðingur á Raunvísindastofnun Háskólans, staðið fyrir þeim ásamt Halldóri Árnasyni efna- fræðingi og Geir R. Jóhannessyni rafmagnsfræðingi. Blaðamaður Morgunblaðsins fór fram á viðtal við Jón Pétursson um þetta efni og lýsti hann sig reiðubúinn til að reifa málið frá fræðilegu sjónar- miði en benti jafnframt á, að hér væri aðeins um frumrannsóknir að ræða en ekki eiginlega hönnun greiningartækis, enda væri hún ekki tímabær ennþá. Ljósnála- greiningartæki „Þetta mál hefst eiginlega þannig að þegar Halldór Árnason var við framhaldsnám úti í Sví- þjóð fyrir nokkrum árum, fékk hann snjalla hugmynd um hvernig greina mætti hringorm í fiskflök- um,“ sagði Jón. „Vandamálið við að greina hringorminn sem er djúpt í flökum stafar af því að mikil Ijósdreifing og einnig nokk- urt ljósísog, verður í fiskflaki, sem leiðir til þess að erfitt er að sjá inn í flakið. Með Ijósdreifingu á ég við að geisla sem beint er í gegnum flakið dreifist eins og í möttu gleri, og þar við bætist að fisk- holdið drekkur í sig ljós og breytir því í hita. Af þessum tveim ástæð- um gengur illa að sjá inn í fiskinn utanfrá." Halldóri hugkvæmdist að leysa þetta vandamál með því að hag- nýta ljósþræði sem nú eru mikið notaðir í leysitækni. Hugmynd hans var að draga slíka ljósþræði í sprautunálar og raða fjölda slíkra nála á bretti. Greiningin færi þá þannig fram að nálabrettinu er stungið niður í gegnum flakið en samtímis lýst undir það með ljósgjafa neðanfrá. Með þessum hætti taldi hann að hugsanlegt væri að greina skugga af beinum Rannsóknir á ísogi og dreifingu Ijóss í fiski og hringormi. Val á væntanlegum bylgjulengdum (innrauðum eða sýnilegum). Val og prófun á aðferðum til að skynja Ijósið, þ.e. tækni við myndatöku. Samtímís verði aflað almennra upplýsinga um aðr- ar hugsanlegar greiningaraöferðir. Tími: Allt aö einu ári (2 mannár). Lausleg tímaáætlun um rannsóknarstarf og frumhönnunarvinnu sem þyrfti að framkvæma vegna greiningartækis er greindi og staðsetti hringorma i fiski. Framleiðsla tækisins gæti samkvæmt áætluninni í fyrsta lagi hafist í árslok 1984 ef allt gengi að óskum. Ljósnál — sprautunál sem þrædd hefur verið með Ijósþræði þannig að hægt er að greina nákvæmlega allar Ijósbreytingar við nálarendann. Á slíkum Ijósnálum hugðist Halldór Árnason byggja greiningartæki sitt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.