Morgunblaðið - 08.08.1982, Síða 16

Morgunblaðið - 08.08.1982, Síða 16
52 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. ÁGÚST 1982 Texti og myndir: Hallur Hallsson „Tign stafaAi af V atnajökli þegar ég sem drengur sá í fyrsta sinn landakort af íslandi. Ég einsetti mér þá art komast á Vatnajökul — og hér er ég nú. Sama er mér þó rignijiaö sem eftir er dvalar minn- ar á Islandi. I'etta er stórkostlegt," sagói Keith Saunders, kennari frá Oldham í Knglandi, þar sem við vorum staddir á íshreiðum Vatna- jökuls síðastliðinr laugardag. Dagur var að kvöldi kominn. Við vorum á skíðum og snjóbíll Baldurs Sig- urðssonar, „Snjókötturinn" dró okkur. AA baki voru Grímsvötn og Hvannadalshnúkur teygði sig mót himni. Framundan var Bárðar- bunga og endalausar ísbreiður blöstu við hvert sem litið var. Vélar- drunur snjóbílsins rufu kyrrðina. Sólin hellti geislum sínum yfir endalausar ísbreiðurnar; Vatna- jökull skartaði sínu fegursta. Við vorum 26 sem lögðum á jök- ullinn þennan dag með Baldri Sig- urðssyni, jöklafara og syni hans, Sigurði. Annars vegar hópur á vegum Útsýnar og hins vegar hóp- ur frá Útivist. Við Útsýnarfarþeg- ar höfðum komið til Gæsavatna um nóttina frá Akureyri. Baldur hefur um nokkurra ára skeið farið á Vatnajökul með ferðamenn. Hann þekkir jökulinn öðrum bet- ur. Við lögðum upp frá Gæsavötn- um að jökulbrúninni laust fyrir klukkan níu að morgni laugar- dagsins og á sjálfan Vatnajökul lögðum við skömmu fyrir hádegi. Farartækin voru traust, „Snjó- köttur" Baldurs öndvegis tæki sem bókstaflega fer allt, þó hægt fari. „Snjókötturinn" var með Dreka í eftirdragi. Sigurður stýrði í Grímsvötnum. ÞEGAR VATNAJÖKULL SKARTAR SÍNU FEGURSTA Bangsa, snjóbíl einnig í eigu Bald- urs. Einnig var farið á snjósleða. Þeir feðgar hafa varðað leið upp á jökulinn, framhjá og yfir sprung- ur í jaðri hans. Þegar upp á jökulinn var komið blasti Bárðarbunga við, næsthæsti staður á Islandi. Sólin hellti geisl- um sínum yfir jökulinn, sem endurkastaði þeim. Birtan skar í augun og því eins gott að hafa hlífðargleraugu. Skýjabakkar voru yfir Suðurlandi. Vatnajökull ræður sínu veðri. Hann getur ver- ið miskunnariaus, þegar sá er gállinn á honum. Þegar suðaustan kaldi blæs á Suðurlandi, er iðulega glórulaus stórhríð uppi á jökli. Þennan dag kaus hann að skarta sínu fegursta. Þetta var raunar fyrsta ferð Baldurs upp á jökul i sumar. Það hafði ekki gefið fyrr á hann. Þegar sprungur þær sem ganga norðaustur af Bárðarbungu voru að baki, tóku nokkur okkar fram skíði. „Snjókötturinn" dró okkur og haldið var í átt að vegamótum. Ferðin gekk vel, „Snjókötturinn" fór með um 20 kílómetra hraða á klukkustund. Það lá vel á Baldri við stýrið; greinilegt að hann var kominn heim, — jökullinn á sterk ítök í honum og hann sagði: „Eg fór í fyrsta sinn upp á Vatnajökul á „Kettinum" 1971. Jón Sigurgeirsson frá Helluvaði var með í þeim leiðangri. Hann gjörþekkir jökulinn, var meðal annars í Geysis-leiðangrinum. Við fórum upp á Bárðarbungu og niður í Grímsvötn. Jökullinn greip mig sterkum tökum. Hann er ævintýraheimur og andstæðurnar stórkostlegar. í dag skartar hann sínu fegursta, en oft geisa ógnar- veður. Sumarið 1972 hóf ég að fara með ferðamenn upp á jökulinn. Fyrstu sumrin bjó ég í tjaldi undir jöklinum í 1125 metra hæð. Tjald- inu var komið fyrir í eldvarpi. Þarna var ég einn í návist jökuls- ins svo vikum skipti. Jökullinn er á stöðugri hreyf- ingu. Þegar brestur í honum, þá „Snjókötturinn“ með sleðann Dreka í dragi á leið upp á jökulinn. Sólar notið á leið yfir jökulinn. hljómar það eins og hviss og síðan eins og fallbyssudrunur. Lætin eru ógurleg og ógnvekjandi. í fyrstu varð ég skelkaður þegar jökullinn var hvað háværastur, en síðan lærði ég að lifa með þessu og nú finnst mér þetta stórkostlegt; jök- ullinn er á sífelldu iði. Ógnarveður geisuðu dögum saman, en veðurblíðan þess á milli bætti það upp. Einvera í óbyggð- um hefur sérstök áhrif, tengsl við náttúruna verða með öðrum hætti en borgarbarnið á að venjast. Ein- hverju sinni þegar ég var við Dyngjuháls kallaði ég „vill ekki einhver huldufólksstúlka vera mér til samlætis?". Ég veit ekki af hverju ég kallaði þetta, en hélt að því búnu heim í tjald. Ég dró teppi yfir höfuð og fætur, það fraus allt- af. Ég glaðvaknaði um miðja nótt og dró teppið af höfði mér. Við mér blasti kvenvera. Hún hafði kveikt á kerti og var að hræra í potti. Ég settist upp við dogg og varð ákaflega glaður og ég man að ég hugsaði með mér; er ekki huldufólksstúlkan komin. Ég virti hana fyrir mér í um hálfa mínútu en þá hvarf hún. Ég tel, að með þessu hafi góðar vættir viljað gefa mér til kynna, að ég væri ekki einn í óbyggðum; að verndarhendi væri yfir mér haldið. Sumarið 1973 kom lítil stúlka, sem ég raunar hafði séð áður, til mín og tók í hönd mér og leiddi mig upp að sveitabæ uppi í gljúfrinu. Hún leiddi mig inn í for- stofu. Þar var bóndinn að snæð- ingi og kona með hvítvoðung í fanginu. Ég varð ákaflega glaður og vonaðist til þess, að fá að spyrja fólkið spjörunum úr, en áð- ur en til þess kom leiddi stúlkan mig á brott. Þetta kemur miklu róti á huga manns eins og gefur að skilja. Það eru til fleiri víddir en við skynjum og ég tel mig lánsaman, að hafa fengið að upplifa þetta. Þetta ásamt gersemum jökuls- ins og nágrennis gerir það að verkum, að jökullinn kallar sífellt á mig. Tengslin við náttúruna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.