Morgunblaðið - 04.09.1982, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 04.09.1982, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1982 Andreaa Schmidt og Hðrður Áskelsson. Tónleikar í Hallgrímskirkju: Fluttar verða tvær kantötur eftir Bach Tónleikar verða haldnir i Hall- grímskirkju sunnudaginn 5. sept. kl. 20.30. A efnisskránni eru tvær kant- otur eftir Jóhann Sebastian Bach sem fjalla um dauðann og eilífðina. A tónlcikunum, sem haldnir eru til styrktar orgelsjóði kirkjunnar, koma fram 15 hljóðfæraleikarar, 20 manna kór auk baritónsöngvarans Andreas Sehmidt, en hann er af þýð- versku bergi brotinn. Einnig fer Kristján 1». Stephensen með stórt cinsöngshlutvcrk, en konsertmeist- ari er Rut Ingólfsdóttir. Fyrri kant- atan, sem ber nafnið lch habe genug, fjallar um lofsöng Simeons sem vildi ekki deyja fyrr en hann hefði séð Jesúm. Verkið skiptist í þrjár aríur og tvo talsöngva. Síðari kantatan, sem flutt verður, heitir Ich will gerne den Kreuzstab tragen og er efni hennar sem hinnar fyrri sótt í Biblíuna. Þýski söngvarinn Andreas Scmidt, sem fer með stærsta ein- söngshlutverkið á tónleikunum, er fæddur í Diisseldorf 1960. Að stúdentsprófi loknu 1979, stundaði hann nám í kirkjutónlist í heima- borg sinni. Eftir að hann lauk burtfararprófi þaðan 1981 hefur hann verið í einsöngsnámi hjá Ingeborg Reicheld. í stuttu sam- tali við blm. Morgunblaðsins kvaðst Andreas hafa sungið óra- toríur og komið víða fram á söngkvöldum í Þýskalandi þetta árið. Þar hefði einnig fyrsta út- varpsupptakan á söng hans verið gerð ekki alls fyrir löngu. Er hann var inntur eftir fram- tíðaráformum sínum sagðist hann hafa áhuga á að starfa við óperu- hús og hefði hann þegar fengið til- boð þar að lútandi. Þó yrði það ekki í bráð sökum þess að hann mundi hefja söngnám hjá hinum virta kennara Dieter Fischer- Dieskau í Berlín 1983. Að sögn Andreas má ætla að námstíminn þar verði tvö til þrjú ár. Samt kvaðst hann hafa í hyggju að námi loknu að halda áfram að syngja óratoríur með óperusöngnum. Þess má geta að lokum að launagreiðslur þeirra sem taka þátt í tónleikunum á sunnu- dagskvöld og aðgangseyrir renna í orgelsjóð kirkjunnar. Hann var stofnaður til að unnt verði að fjár- festa í orgeli sem hentar Hall- grímskirkju þegar lokið verður við smíði hennar. Myndin er tekin í Hallgrímskirkju. Frá vinstri: Andreas Schmidt, Höróor Áskelsson, sr. Karl Sigurbjörnsson og sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Stríd og fridur II. grein Kirkjan og kjarn- m^lrll vnnil l lfl - eftir Guðmund JL \JL V M. JL JL JL JL Heiðar Frímannsson Einn þáttur í friðarhreyfing- unni, sem hefur vakið nokkra at- hygli og gefið þeim virðulegra og ábyrgðarfyllra yfirbragð en tíð- kast um mótmælendasöfnuði, er stuðningur kirkjunnar við frið- arhreyfinguna. Þetta er áber- andi í Bandaríkjunum með kaþ- ólsku kirkjuna, en nokkuð marg- ir biskupar hafa tekið þátt í störfum friðarhreyfingarinnar og samið og samþykkt ýmiss konar yfirlýsingar, sem ganga í sömu átt og friðarhreyfingin stefnir. í Vestur-Evrópu, sér- staklega í V-Þýzkalandi og Hol- landi, hefur mótmælendakirkjan tekið virkan þátt í störfum frið- arhreyfingarinnar og stutt hana með ráðum og dáð. Á íslandi hefur kirkjan ekki tekið beinan þátt í baráttu friðarhreyfingar- innar, en nú nýverið samþykkti Prestastefnan á Hólum sam- hljóða ályktun um málefni frið- arins. Það er rétt að hyggja nán- ar að því, hvernig kirkjan ætti að boða frið á jörð. Nú er það öllum ljóst, sem vita vilja, að meginboðskapur kirkj- unnar hefur ævinlega verið frið- ur á jörðu. Sá friður hefur verið, að mannkynið lifði í sátt við Guð sinn og fagnaðarerindið mótaði hegðun og hátterni allra manna. Hlutverk kirkjunnar er því boð- un orðsins, útbreiðsla hins kristilega boðskapar meðal mannfólksins. En hafi þetta ver- ið svo frá upphafi, hvað ber þá nýtt við nú? Það, sem gerist, er, að kirkjan hefur snúið sér í auknum mæli að veraldlegum efnum. í málefnum friðarins lætur hún sér ekki hin geistlegu nægja. I kaþólskum sið á þetta sér nokkurn aðdraganda. I sam- þykktum annars Vatikanþings- ins, 1962—1965, er að finna kafla, sem biskupar hafa notað til að rökstyðja andmæli sín við hermálastefnu Bandaríkjanna. Á einum stað segir: „Vísindaleg vopn hlaðast upp ekki einungis í því skyni, að þau séu notuð í stríði. Varnarstyrkur hverrar þjóðar er talinn velta á hæfni hennar til að svara andstæðingi sínum þegar í stað. Þess vegna fælir með áður óþekktum hætti þessi samsöfnun vopnanna, sem eykst með hverju árinu, mögu- legan óvin frá því að gera árás. Margir telja, að þetta sé bezta leiðin til að viðhalda tiltekinni tegund friðar milli þjóða nú á tímum. Hvað sem segja má um þessa aðferð til fælingar, þá ættu menn að vera sannfærðir um, að vopnakapphlaupið, sem svo margar þjóðir taka þátt í, er ekki örugg leið til að varðveita friðinn." (Commentary, 1982, marz, bls. 37.) í næstu grein á undan þessari stendur: „Allar þessar ástæður knýja oss til að meta stríð í Ijósi algerlega nýrra viðhorfa.“ Fyrri ívitnunin í þessa samþykkt Vat- ikanþingsins gaf i sjálfu sér ekk- ert nýtt til kynna, en þessi síðari hefur orðið kaþólskum klerkum og biskupum tilefni til nýstár- legra yfirlýsinga og athafna. Það, sem kallaði á algerlega ný viðhorf að mati annars Vat- ikanþingsins, var kjarnorku- vopnin. Ástæðan til þess, að þau kalla á algerlega ný viðhorf, hlýtur að vera sú, að eyðilegg- ingarmáttur þeirra er meiri en vopna, sem áður hafa verið til. En þótt eyðileggingarmáttur þeirra sé meiri, og því til sönn- unar megi segja margar hryll- ingssögur, þá er hér einungis um stigsmun að ræða en ekki eðlis- mun. Áður var einungis mögu- legt að leggja einstaka bæi, ein- stök héruð, jafnvel einstök lönd í rúst, en nú er hugsanlegt, að öll heimsbyggðin farist, ef kjarn- orkustríð brytist út. Svo ógnvænleg sem sú tilhugsun er, þá kallar hún vart á algerlega ný viðhorf, allra sízt þau að kirkjan fái í auknum mæli forræði í ver- aldlegum efnum. En í krafti þessara nýju við- horfa hafa kaþólskir prestar í Bandaríkjunum tekið að hvetja menn til að halda eftir helming af því, sem þeir greiða í skatt, en Hunthausen erkibiskup í Seattle heldur því fram, að svo mikill hluti af fé ríkisins fari í vopna- framleiðslu. Hvernig hann hefur fengið þessa tölu er öilum óljóst. 60 af 350 kaþólskum biskupum Bandaríkjanna hafa gengið í Pax Christi, sem eru kaþólsk afvopn- unarsamtök. Krol kardínáli setti fram meg- inatriðin í kenningum þessara klerka um kjarnorkuvopn, þegar hann sat fyrir svörum hjá utan- ríkismálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings 6. september 1979. Hann telur sumar tegundir stríðs réttlætanlegar, en kjarn- orkustríð sé utan marka þess, sem er réttlætanlegt í sjálfs- vörn. Síðan bendir hann á, að kaþólskir menn telji það syndsamlegt að ætla að fremja morð rétt eins og að fremja það. Kardínálinn segir: „Siðferðileg afleiðing þessa er, að það er ekki einungis rangt að beita lang- drægum kjarnorkuvopnum held- ur líka hinn yfirlýsti ásetningur um að beita þeim, sem fólginn er í fælingarstefnunni. Þetta skýrir óánægju kaþólskra manna með kjarnorkuógnina og hve þeir telja það brýnt, að kjarnorku- vopnakapphlaupinu verði snúið við. Það skiptir gífurlegu máli, að samningar náist um þýð- ingarmikla og stöðuga minnkun kjarnorkuvopna og að lokum hverfi kjarnorkuógnin og hótun- in um gagnkvæma eyðilegg- ingu." Sé þessi kenning kardínálans rétt, þá er grundvellinum kippt undan varnarmálastefnu Banda- ríkjanna og Vestur-Evrópu í einu vetfangi. Sé enginn ásetn- ingur um að beita vopnunum, þá stafar heldur engri ógn af þeim. Afleiðing þessa hlýtur síðan að vera sú, að réttlætanlegt sé að þola ósigur, verða undir í barátt- unni við alræðið. Sé syndsamlegt að ætla að beita kjarnorkuvopn- um, jafnvel þótt á mann sé ráð- izt, þá hlýtur þetta viðhorf að leiða til ósigurs. Forsenda kard- ínálans fyrir þessum röksemd- um er sú, að um sé að ræða tvo illa kosti: að koma af stað kjarn- orkustyrjöld eða gefast upp fyrir alræðinu. Seinni kosturinn sé skárri en sá fyrri; og mönnum beri að þjást og vona í þeirri vissu, að í tímans rás breytist stofnanir mannfélagsins, náð Guðs muni gera mannkyninu hlutskipti sitt bærilegt. Það er rétt að gera athuga; semdir við rök kardínálans. í fyrsta lagi er ástæðulaust að fallast á þá skoðun, að ásetning- ur sé jafn syndsamlegur og at- höfn. Það er vel hugsanlegt, að menn gangi með þá grillu allt lífið, að þeir vilji myrða mann, en framkvæmi hana aldrei, jafn- vel þótt grillan hafi einhvern tíma orðið reglulegur ásetning- ur. Ásetningur einn saman skað- ar aldri neinn. Og í þessu sam- hengi hlýtur það að vera aðal- atriði. Þess vegna er hæpið að beita kaþólskri guðfræði til að sýna fram á, að öryggishags- munum Bandaríkjanna og Vestur-Evrópu sé bezt þjónað með því að gefast upp fyrirfram. Þetta hefur heitið hugleysi, og ég held, að svo sé enn. í öðru lagi getur ásetningur- inn, sem er undirstaða ógnarinn- ar, tryggt, að um aðra kosti sé að velja en þá, sem eru forsenda

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.