Morgunblaðið - 04.09.1982, Blaðsíða 16
16
MORGJJNBJkAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1982
Áfram hjakkað
í sama farinu
— eftir Friðrik
Sophusson, vara-
formann Sjálfstœð-
isflokksins
í ótta sínum við kjós-
endur hefur forysta Al-
þýöubandalagsins
kokgleypt öll slagorðin
um „samningana í
gildi“. Þeir hafa án sam-
ráðs við samtök laun-
þega, en með fulltingi
leikbrúða sinna í
forystusveit verka-
lýðshreyfingarinnar,
enn á ný skert launa-
kjör með lögum. Þessi
stefnubreyting boðar
væntanlega nýja siði og
varla verður í framtíð-
inni gripið til verkfalla
og útflutningsbanns,
þegar „jafna þarf búsifj-
um á alla landsmenn“.
Aðalatriði nýsettra
bráðabirgðalaga eru þrjú. I fyrsta
lagi verðbótaskerðing launa 1. des.
nk. Áætlað er, að sú skerðing verði
a.m.k. 7,5% og kemur hún til við-
bótar þeirri 2,9% skerðingu, sem
samið var um í síðustu kjara-
samningum og þeirri skerðingu,
sem sífellt á sér stað vegna
ákvæða svokallaðra Ólafslaga.
Beinar lögboðnar verðbótaskerð-
ingar ríkisstjórnarinnar á tveim-
ur árum nema því u.þ.b. 15% og á
sama tíma hafa laun verið skert
ámóta mikið vegna samninga og
ákvæða Ólafslaga frá því að þau
voru sett. Launaskerðingar ríkis-
stjórnarinnar eru langtum meiri
en nokkur önnur stjórn hefur
staðið fyrir. Lögboðnar launa-
skerðingar á fjögurra ára valda-
tíma Alþýðubandalagsins eru
meiri en 40%. Geri aðrir betur.
í öðru lagi er með bráðabirgða-
lögunum efnt til nýrrar skatt-
heimtu. Þannig hafa skattaálögur
aukizt um talsvert á annan millj-
arð króna á verðlagi þessa árs á
fjögurra ára valdatíma Alþýðu-
bandalags og Framsóknarflokks.
í þriðja lagi er gengi krónunnar
fellt um 13%. Þetta þýðir að sölu-
gengi Bandaríkjadals hefur hækk-
að um 85% á síðustu 10 mánuðum
eða úr 7,73 kr. 20. október 1981 í
14,33 kr. 23. ágúst sl. Og áfram
verður gengið látið síga með at-
beina ríkisstjórnar. Gengisfelling-
in er að sjálfsögðu ekki ákveðin
með lögunum heldur fjalla þau um
ráðstöfun „gengishagnaðar" af
birgðum.
Bráðabirgðalögunum fylgir
óskalisti ríkisstjórnarinnar sem
er að langmestu leyti samansafn
útþynntra stefnuyfirlýsinga, sem
annaðhvort hafa birzt áður í svip-
uðu formi frá ríkisstjórninni eða
eru settar á blað til að friðþægja
einstaka stuðningsaðila ríkis-
stjórnarinnar. Einna sérkenni-
legast er loforð ríkisstjórnarinnar
um að lengja orlof launþega, en
hingað til hafa þau mál verið
samningsatriði vinnuveitenda og
launþega. Er það nýtt fyrirbæri í
íslenzkum stjórnmálum að leysa
efnahagsvandann með því að
lengja orlof launþega.
Forsendur aðgerðanna
Forsendur efnahagsráðstafana
segir ríkisstjórnin, að séu spár
Þjóðhagsstofnunar um 5—6%
samdrátt þjóðartekna, vegna
sölutregðu á útfluttum afurðum
viðskiptahalla og vaxandi verð-
bólgu.
Ekki má gera lítið úr því, þegar
þjóðartekjur dragast saman eins
og skynsamlegri fiskverndar-
stefnu Matthíasar Bjarnasonar,
gáfu ekkert í aðra hönd. Uppsker-
unni var sóað í pólitíska
fyrirgreiðslufjárfestingu, eyðslu-
útgjöld ríkisins og verðbólguna.
Skilningsleysi ríkisstjórnarinn-
ar á nauðsynlegum rekstrarskil-
yrðum atvinnustarfseminnar,
skemmdarverk Alþýðubandalags-
ins á sviði orkufreks iðnaðar, sí-
fellt hækkandi skattar og erlend
eyðslulán grófu undan heilbrigðri
efnahags- og atvinnustarfsemi og
leiddu til upplausnar og öryggis-
leysis í atvinnumálum.
í stað þess að nýta mesta góðæri
í íslandssögunni til að fá fyrir-
stöðu og styrkja verðjöfnunarsjóði
var öllu eytt jafnóðum. I marga
mánuði var gengi íslensku krón-
unnar rangt skráð og þannig
stuðlað að gífurlegum viðskipta-
halla. Meira að segja var gortað af
góðri stöðu ríkissjóðs, en miklar
innflutningstekjur ríkissjóðs voru
augljósasta sjúkdómseinkennið í
raun. Ríkisstjórnin ein ber ábyrgð
á þeirri gjaldeyrisútsölu, sem átt
hefur sér stað allt þetta ár og eina
skýringin virðist vera græðgi rík-
issjóðs í auknar tekjur af inn-
flutningi.
Hver er árangurinn?
Árangurinn af bráðabirgða-
ráðstöfununum er heldur rýr. Að
áliti Þjóðhagsstofnunar mun verð-
bólgan á þessu ári verða 60%, og
heldur áfram í því fari á næsta
ári. Ríkisstjórnin hælir sér af
þessum árangri og telur hann það
góðan, að engin ástæða sé til ann-
ars en að stjórnin sitji sem fastast
út kjörtímabilið.
Þegar árangur ríkisstjórnarinn-
ar er mældur má gera það með
ýmsum hætti. Varla verður maður
sakaður um ósanngirni, þegar ár-
angurinn er settur undir það
mæliker, sem stjórnin sjálf útbjó í
Arangur efnahagsaðgerðanna
Þjóðhagsstofnun spáir, að eftir efnahagsaðgerðir ríkis-
stjórnarinnar verði:
— Verðbólgan 60% frá upphafi til loka þessa árs.
— Verðbólgan að meðaltali 50% hærri í ár en í fyrra.
— Verðbólgan u.þ.b. 60% á næsta ári.
— Kaupmáttur kauptaxta að meðaltali 6% minni á næsta ári
en í ár.
— Viðskiptahallinn 6% á næsta ári.
og gert er ráð fyrir á þessu ári. En
þessar forsendur bráðabirgða-
ráðstafana ber samt að skoða í
ljósi þess, að síðustu tvö ár, þ.e.
1980 og 1981, voru metár hvað
snertir verðmæti sjávarvöru-
framleiðslu. Þótt nú slái í baksegl-
in, er samt sem áður gert ráð fyrir
að álíka mikið aflaverðmæti fáist
úr sjó og fékkst 1979 eða 1980 eins
og sést á meðfylgjandi töflu.
Ríkisstjórnin kærir sig hins
vegar ekki um að nefna það í for-
sendunum, að kaupmáttur launa
hefur ekki aukizt í samræmi við
verðmætaaukningu aflans. Ár-
angrinum var nefnilega eytt, m.a.
í offjárfestingu í fiskiskipum, sem
þar af leiðandi hefur verið beint
frá þorskveiðum að óarðbærari
veiðum. Hver nýr togari hefur
rýrt aflamöguleika hinna, sem
fyrir voru, og stóraukið kostnað-
inn við sóknina. Góðærin í
sjávarútvegi, sem stöfuðu af út-
færslu landhelginnar í 200 mílur
Lögboðnar verðbótaskerðingar á fjögurra ára valdatíma Alþýðu-
bandalagsins:
1. desember 1978 ..................................... 8,10%
1. júní 1979 ......................................... 3,16%
1. september 1979 .................................... 4,40%
1. desember 1979 ..................................... 2,65%
1. mars 1980 ......................................... 2,46%
1 júní 1980 .......................................... 1*53%
1. september 1980 .................................... 1,55%
1. desember 1980 ..................................... 1,34%
1. mars 1981 ......................................... 8^37%
1. mars 1982 ......................................... 2,20%
1. júní 1982 ......................................... 0,54%
1. september 1982 .................................... 4,29%
1. desember 1982 (áætl.) ............................. 7,50%
Samanlagt prósentustig ........................48,19
Hinn 1. desember 1978 var skerðingin réttlætt með félagsmáia-
pökkum. 7% af skerðingunni 1. mars 1981 var ákveðin með bráða-
birgðalögum í nafni „sléttra skipta". í upptalningunni er
2,90%-verðbótaskerðingin í bráðabirgðalögunum síðustu, en hún
var umsamin hjá ASI. 7,50%-skerðingin 1. des. 1982 er vegna
nýsettra bráðabirgðalaga.
Man einhver eftir slagorðunum: „Samningana í gildi" og „Kjós-
um gegn kaupránsflokkunum"?
upphafi ferils síns. I febrúar 1980
sagði stjórnin í sáttmála sínum að
verðbólgan yrði innan við 10% á
þessu ári. Þetta var ekki kosn-
ingaloforð heldur markmið sett af
yfirlögðu ráði eftir kosningar,
þegar stjórnin hafði kynnt sér
stöðu mála gaumgæfilega.
I forsendum núgildandi fjárlaga
gerði stjórnin þær breytingar á
verðbólgumarkmiðum sínum, að í
stað 10% á þessu ári yrði hún
25—27%. Mánuði eftir samþykkt
fjárlaga, þegar stjórnin sam-
þykkti að hækka niðurgreiðslur en
fresta nauðsynlegum aðgerðum
fram yfir sveitarstjórnarkosn-
ingar og kjarasamninga við ASI,
var enn sett nýtt verðbólgu-
markmið. Og nú átti verðbólgan
að verða 35% á þessu ári og hrað-
inn að vera 30% í lok ársins.
Ráðherrarnir kepptust við að gefa
yfirlýsingar um að þessu mark-
miði yrði náð með efnahagsað-
gerðum á síðari hluta ársins. Síð-
an voru málin söltuð í sjö mánuði,
þótt viðskiptahallinn blasti þá
þegar við vegna rangrar geng-
isskráningar og útgerðin væri rek-
in með bullandi tapi. Nú liggja
spár fyrir um áhrif bráðabirgða-
aðgerðanna: Verðbólgan heldur
áfram að vera 60% og útgerðin er
áfram rekin með gífurlegum halla,
þrátt fyrir 16% hækkun fiskverðs.
Árangurinn er enginn. Hjakkað er
í sama farinu.
Þegar Seðlabankinn lagði til, að
gengið yrði fellt um 13%, var ein
af forsendunum fyrir þeirri lækk-
un að vextir af óverðtryggðum
skuldbindingum yrðu hækkaðir
um 6%. Ríkisstjórnin hefur enn
ekki komið sér saman um vaxta-
hækkun. Geri hún það, má búast
við, að gengisfellingin nái ekki
titlætluðum tilgangi.
Þegar öllu er á botninn hvolft er
árangurinn af öllu bröltinu ekki
annar en sá að kaupmáttur kaup-
taxta lækkar um 6% á næsta ári
— enda var það kannski aðaltil-
gangur bráðabirgðalaganna, þótt
annað sé látið í veðri vaka.
V erðbótaskerðingin
var ákveðin í janúar
Ástæða er til að nefna tvö at-
riði, sem formaður Alþýðubanda-
lagsins hefur klifað á í tilraunum
sínum til að klóra yfir það, að að-
gerðirnar hafa um langt skeið ver-
ið óumflýjanlegar, en væru ekki til
komnar vegna snöggra breytinga
á svokölluðum ytri skilyrðum eins
og haldið hefur veirð fram. Al-
þýðubandalagið lætur í það skína,
að verðbótaskerðingin hafi ein-
göngu verið ákveðin vegna nýrra
upplýsinga um versnandi stöðu
þjóðarbúsins. Sannleikurinn er
samt sá, að með því verðbólgu-
markmiði, sem Alþýðubandalagið
skrifaði undir í janúar sl. í svo-
kallaðri efnahagsskýrslu, lá það
fyrir, að verðbætur yrðu skertar
um 8—10% á síðari hluta þessa
árs. Þetta kom rækilega fram í
umræðum þá og látið ómótmælt af
höfundum hinna „sléttu skipta".
Þá hefur Alþýðubandalagið
gripið til þess ráðs að kenna háum
vöxtum í Bandaríkjunum um það,
hve greiðslubyrði erlendra lána er
mikil. Staðreyndin er auðvitað sú,
að háir vextir í Bandaríkjunum
hafa leitt til sterkrar stöðu dollar-
ans og það er einmitt hin sterka
staða hans, sem hefur verið okkur
búhnykkur utanríkisverzluninni
og lagað viðskiptakjörin á síðustu
árum. Sterk staða dollarans hefur
Isafold:
Gefur út þriðju útgáfu
þýsk-íslenskrar orðabókar
Ferðir fyrir eldri borgaranæ
Berja- og réttarferðir um
Borgarfjörð og Snæfellsnes
ísafoldarprentsmiðja hefur sent
frá sér þriðju útgáfu þýsk-íslenskrar
orðabókar eftir dr. Jón Ofeigsson,
en bókin hefur verið ófáanleg um
alllangan tíma. Þessi útgáfa er
óbreytt frá annarri útgáfu, offset-
prentuð.
Bókin er í stóru og vönduðu broti,
innbundin, eins og aðrar orðabækur
ísafoldar, samtals um 770 blaðsíður
að stærð. Formáli að bókinni er
bæði á íslensku og þýsku, sá sami og
fylgdi 1. útgáfu, eftir Jón Ófeigsson,
en einnig ritar Ingvar G. Brynjólfs-
son formála að 2. útgáfu, en hann
annaðist útgáfuna.
Ferðamálasamtök Vesturlands
hafa, i samvinnu við BSÍ, ákveðið að
bjóða eldra fólki upp á tvær 5 daga
ferðir um Vesturland nú i haust.
Fyrri ferðin er nefnd berjaferð um
Snæfellsnes og verður lagt af stað
frá BSÍ miðvikudaginn 8. september
næstkomandi kl. 9.00. Seinni ferðin
er kölluð réttarferð um Borgarfjörð
og Snæfellsnes og verður lagt af stað
i hana frá BSÍ þriðjudaginn 14. sept-
ember næstkomandi. Miðaverði
verður mjög i hóf stillt i báðar ferð-
irnar.
Miðar eru seldir á skrifstofu BSÍ,
Umferðarmiðstöðinni (simi 22300)
og þar fást einnig allar nánari upp-
lýsingar.
(Úr rrétutilkjnningu)