Morgunblaðið - 04.09.1982, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 04.09.1982, Qupperneq 14
14 —------MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1982 Ford Escort reynsluekið — Rúmgóður — Kraftmikill — Góðir aksturseiginleikar FORD ESCORT var á siðasta ári kosinn bíll ársins, bæði í Evrópu og Bandaríkjunum, og kom það í sjálfu sér fáum á óvart, því á ferð- inni er mjög skemmtilegur og vel hannaður bíll. Hann hafði verið á teikniborðinu hjá Ford-mönnum um langt árabil og var ekkert til sparað og útkoman því góð. A dög- unum reynsluók ég Ford Escort 1.3 GL og hann stóð að sjálfsögðu fyllilega fyrir sínu. Um er að ræða rúmgóðan, tiltölulega kraftmikinn bil, með góða aksturseiginleika, bæði á malhiki og úti á malarveg- um. RÝMI Bíllinn er fjögurra dyra, auk þess með stóra skuthurð, sem auðveldar mjög umgang um hann að aftan. Það sem vekur mesta athygli, þegar setzt er inn í bílinn, er hversu rúmgóður hann er. Rýmið fyrir ökumann og farþega frammi í er eins og það gerist mest í venjulegum fólksbílum. Reyndar er rýmið aftur í ennfremur með ágætum. SÆTI Frammi í eru stólar, klæddir með tauáklæði. þægilegt er að sitja í þeim. Þeir veita góðan bakstuðning og veita auk þess óvenjulega góðan hliðarstuðn- ing. Reyndar verður að hafa þann fyrirvara á, þegar rætt er um bílsæti, að smekkur manna er misjafn. Það fer hins vegar ekki á milli mála, að sætin í Escortinum eru vönduð. Stólarn- ir eru með hefðbundnum still- ingum. Að sjálfsögðu hægt að færa þá fram og aftur og síðan er hægt að breyta stillingum á bakinu. Höfuðpúðarnir eru þannig úr garði gerðir, að þeir skyggja lítið sem ekkert á útsýni úr bílnum og er það vel. Um aft- ursætið er það að segja, að ágætt er að sitja í því við annan mann. Hins vegar er rými varla nægi- legt fyrir þriðja mann, ef ferðast er langar vegalengdir. Því má segja, að Escortinn sé óvenju- lega rúmgóður bíll fyrir fjóra fullorðna, sérstaklega sé það haft í huga hver ytri mál hans eru. ÚTSÝNI Útsýni úr bílnum er ágætt. Ökumaður situr tiltölulega hátt og póstar skyggja lítið á. Enn- fremur eru gluggar tiltölulega stórir. Reyndar á þetta ennfrem- ur við um farþega. Utsýni þeirra er ágætt. MÆLABORÐ Mælaborðið í Escort er óvenjulega vel hannað, en það er byggt tiltölulega þétt, þannig að ökumaður á auðvelt með að ná til allra stjórntækja, án þess ,að teygja sig. Reyndar er mæla- borðið tiltölulega venjulegt í út- liti, nema hvað stýrishjól er frekar nýtízkulegt. I mælaborð- inu er að sjálfsögðu hraðamælir og í honum er „trimmari". Þá er sérstakur benzínmælir og hita- mælir, auk þess sem stór kvartzklukka er í borðinu. Síðan eru hin ýmsu aðvörunarljós, eins og í sambandi við olíu, neyðar- Ijós, aðalljós og fleira. Að ósekju mætti vera sérstakur olíuþrýst- ingsmælir. A vinstri hönd við stýrishjólið er stefnuljósarofi, en í honum er ennfremur flauta bílsins og skiptari aðalljósanna. Rofinn er vel staðsettur. A hægri hönd við stýrishjólið er síðan rofi fyrir þurrkurnar og rúðupiss. Stjórntæki miðstöðv- arinnar eru hægra megin í mælaborðinu, en eru vel innan seilingar. Reyndar eru þau óvenjulega vel staðsett fyrir ökumanna, að eiga við þau. Þau eru frekar einföld að gerð, en hins vegar virkar miðstöðin al- veg ágætlega, er fljót að hita bíl- inn upp og taka móðu af rúðum. I borðinu er svo rofi fyrir aftur- rúðuupphitar og afturrðuþurrku. Afturrúðuþurrka er til mikilla bóta, sérstaklega á bílum með lag Escortsins, en þeir eiga það til að ausa svolítið upp á sig þeg- ar ekið er á blautum vegum. PEDALAR OG GÍRSKIPTING Um pedala er það að segja, að þeir eru vel staðsettir og rými fyrir fætur ökumanns er mikið og gott. Engin hætta er á að stíga á tvo pedala samtímis, eins og oft vill verða í bílum. Það eina, sem finna má að staðsetn- ingu bílsins, er að við benzín- gjöfina mætti vera hliðarstuðn- ingur, þegar ekið er á löngum leiðum. Kúplingin virkar vel og bremsur eru mjög góðar á bíln- um. Bíllinn er fjögurra gíra og skiptistöngin er vel staðsett með góðu handfangi. Skiptingin er mjög þétt, þ.e.a.s. engan losara- brag er að finna í henni. Tiltölu- Ford Escort 1.3 GL. FORD Gerð: Ford Escort 1.3 GL Framleiðandi: Ford Framleiðsluland: Vestur-Þýzkaland Innflytjandi: Sveinn Egilsson hf. Verð: 179.000,- Afgreiðslufrestur: Til á lager Lengd: 3.970 mm Brcidd: 1.640 mm Hæö: 1.340 mm Hjólhaf: 2.400 mm Fótarými frammi í: 1.030 mm Fótarými aftur í: 900 mm Vél: 4 strokka, 1.296 rúm- senti metrar, 69 hestöfl Drif: Framdrifinn llámarkshraði: 157 km/ klukkustund Tími í 100 km/ klst: 12,8 sekúndur Benzíntankur: 40 lítra Olíukerfi: 3,66 lítrar Kælikerfi: 6,55 lítrar Hjólbarðar: 155/ SR 13 Gírkassi: 4ra gíra með hlutfall: 3.58/ 2.05/ 1.35/ 0.95 Brcmsur: diskar að framan, en tunnur að aftan Stór skuthurð að aftan gerir umgang auðveldan. lega stutt er milli gíra, sem er kostur. AFL Bíllinn er ágætlega kraftmik- ill, en hann er knúinn fjögurra strokka, 69 hestafla, 1.296 rúm- sentimetra vél. Reyndar er hægt að velja í Escortinn vélar á bil- inu frá 1.117 rúmsentimetrum til 1.597 rúmsentimetr. Bíllinn vinnur mjög vel í gírunum, sér- staklega 2. og 3. gír. Hann er því mjög lipur í innanbæjarakstri og því má reyndar skjóta inn, að beygjuradíusinn er ágætur og stýrið er tiltölulega létt þrátt fyrir þá staðreynd, að bíllinn sé framdrifinn. í sambandi við afl- ið, þá má reyndar segja, að það vanti yfirleitt ekki. Bíllinn vinn- ur alveg prýðilega upp brekkur í 4. gír. Til dæmis var honum ekið upp Kambana með fjórum full- orðnum í í 4. gír, án þess að verða mikið um. AKSTURSEIG- INLEIKAR Aksturseiginleikar Escortsins eru mjög góðir, hvort heldur ekið er á malbiki eða úti á malarveg- um. Fjöðrunin er hæfilega stíf, þannig að hann verður ekkert óþarflega hastur á mölinni, en hins vegar leggst hann ekkert fram á hornin, þótt honum sé ekið á nokkuð miklum hraða inn í beygjur. Það sem kom mest á óvart í sambandi við aksturseig- inleika bílsins, er hversu stöðug- ur hann er úti á malarvegum. Það er ekkert tiltökumál, að aka honum á miklum hraða á holótt- um malarvegum, þannig að því leytinu hentar hann íslenzkum aðstæðum mjög vel. Ennfremur kom Escortinn vel út, þegar hon- um var ekið tiltölulega hratt á steyptum vegum, þ.e.a.s. svörun var öll hin ágætasta. NIÐURSTAÐA Þegar upp er staðið að loknum reynsluakstri bílsins við ólíkustu aðstæður, er ekki hægt að segja annað, en að hann standi fylli- lega undir nafni, sem bíll ársins 1981, bæði í Evrópu og í Banda- ríkjunum. Hann er rúmgóður, kraftmikill og hefur góða akst- urseiginleika.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.