Morgunblaðið - 04.09.1982, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. SEPTEMBER 1982
-. ■ t-r*"
Liverpool:
Skotárás á
lögregluna
Liverpool, 3. sept AP.
VOPNAÐIR lögreglumenn réðust I
dag inn i nokkur hús í Toxteth-
hverfinu í Liverpool eftir að þrjú
ungmenni höfðu skotið á lögreglu-
menn með haglabyssum, sem höfðu
verið hlaupstýfðar. í fyrra urðu mikl-
ar óeirðir í þessu hverfi en þetta er í
fyrsta sinn sem skotvopn eru notuð.
Talsmaður lögreglunnar sagði,
að í aðgerðunum hefðu nokkrir
menn verið handteknir og hald
lagt á vopnin og mikið af skotfær-
um. Þær hófust eftir að lögreglan
stöðvaði flutningabil, sem þótti
„grunsamlegur", en ungmennin
þrjú hófu þá að skjóta að lögreglu-
mönnunum. Enginn varð fyrir
skoti og fljótt flýðu tveir mann-
anna af vettvangi en sá þriðji féll
í hendur lögreglunni.
Allt var með kyrrum kjörum í
Toxteth í dag en þar hefur marg-
oft komið til mikilla óláta. Þar er
blökkufólk fjölmennt og atvinnu-
leysi mikið.
Flugmóðurskipið Illustrious, fremst á myndinni, hefur
nú leyst af hólmi fiugmóðurskipið Invincible, fjær, við
Falklandseyjar og mun það síðarnefnda nú halda
heim til Bretlands. Argentínumenn og Breta greinir
mjög á um hvort Invincible hafi orðið fyrir árás i
Falklandseyjastriðinu. Argentínumenn segjast hafa
hæft það með Exocet-flugskeyti og varpað á það
sprengjum að auki en þessu neita Bretar. Þeir segja,
að skipið hafi aldrei orðið fyrir neinu hnja.ski. Invinc-
ible er væntanlegt í höfn 17. september nk. og mun þá
verða tekið á móti því með kostum og kynjum enda er
Andrew prins þar um borð sem þyrluflugmaður.
Franskur sendiherra
krafinn sagna í Rúmeníu
ERLENT
Tékkóslóvakía:
Réttarhöld
yfir 4
„Samstöðu-
mönnum“
Vín, 3. septomber. AP.
FJOKIR meðlimir úr „byltingar-
hópi“, áður ókunnri tékkneskri
hreyfingu, munu verða leiddir fyrir
dómstóla i Prag næstkomandi
mánudag, ákærðir fyrir að hafa
dreift efni sem er í tengslum við hin
ólöglegu verkalýðsfélög Samstöðu,
að því er haft er eftir heimildum úr
útlendingaeftirlitinu í dag.
Þessir fjórir menn munu vera
bræður og munu þeir hafa verið í
haldi frá því snemma á þessu ári
vegna þessara saka.
Talið er, að réttarhöldin muni
taka allt að tólf dögum, en álitið
er, að mennirnir fjórir hafi verið
að dreifa upplýsingum um verka-
lýðsfélögin og ræðum nokkurra
leiðtoga þeirra.
París, 3. september. AP.
FRANSKI sendiherrann i Rúmeníu
var kallaður til fundar við rúmensku
utanríkisþjónustuna og hann beðinn
að útskýra hina „óvinveittu herferð"
franskra fjölmiðla í sambandi við
samantekin ráð um að drepa tvo út-
læga Rúmena, samkvæmt fjölmiðl-
um í Frakklandi i dag.
Talsmaður utanríkisráðuneytis-
ins í París staðfesti að franski
sendiherrann í Rúmeníu, Marcel
Beaux, hafi verið kallaður til
fundar við rúmenska yfirmenn í
Búkarest, en talsmaðurinn sagði
að að öðru leyti væri hann málinu
ókunnugur.
Fréttir frá Búkarest herma að
Rúmenar hafi kvartað yfir því að
allt varðandi þetta morðsamsæri
væri „hneykslanlegt athæfi", gert
í þeim tilgangi að bendla Rúmena
við eitthvað sem þeir hefðu aldrei
haft í hyggju, þ.e. að drepa hina
útlægu rithöfunda Virgil Tanase
og Paul Goma, sem búa í París.
Á þriðjudag birti dagblaðið „Le
Matin" hins vegar frétt þar sem
fram kemur að rúmenskur leyni-
þjónustumaður hafi tilkynnt þeim
að hann hafi í febrúarmánuði síð-
astliðnum fengið fyrirmæli um að
drepa báða mennina.
Rökstuddar fréttir frá París
herma að franska leyniþjónustan
hafi gripið til þess ráðs að setja á
svið rán á Tanase, og tilraun til að
drepa Goma á eitri til að gefa
rúmenska leyniþjónustumannin-
um tækifæri til þess að koma fjöl-
skyldu sinni heilli á húfi frá Rúm-
eníu áður en upp kæmist um allt.
Rúmenska sendiráðið í París
hefur staðfastlega neitað því að
stjórn þess hafi verið á nokkurn-
hátt viðriðin samsæri um að drepa
þessa menn og sé þetta allt tilbún-
ingur „óvina sem ekki vilji sjá góð
tengsl milli Frakklands og Rúm-
eníu“.
Verðbólgan í Argentínu:
Þar borga menn 7000
pesos fyrir dagblað
BuenoH Airen, 3. september. AP.
TIL AÐ ná i nýjustu fréttir að morgni er annað hvort að tína til 7000 pesos í
röðinni eftir dagblaðinu eða kveikja á útvarpinu sem kostaði 2.000.000 pesos.
Ilafirðu í hyggju að kaupa þér dollara, kostar einn slikur 40.000 pesos.
var á árinu 1980. Verðið á dagblað-
inu sem getið var um í upphafi væri
margfalt hærra ef ekki hefðu verið
skorin tvö núll aftan af gjaldmiðl-
inum árið 1968 til að gera þetta allt
viðráðanlegra.
Slík er verðbólgan í Argentínu,
sem varð í fyrsta sæti hvað verð-
bólgu snertir á síðasta ári með 131
prósent, og ef allt fer sem horfir
mun hún halda þessu lítt eftirsótta
sæti á þessu ári.
Verðbólgan er á allra vörum í
landinu nú sem endranær, því hún
er ekki nýtt fyrirbæri í Argentínu.
Hún hefur plagað þjóðina í marga
áratugi og hefur einungis einu sinni
farið niður fyrir 100 prósent, það
Verða Egilsstaðir að
hafnarbæ á næstu öld?
Rouider, í 'olorado, 3. aept. AP.
Almenningur í landinu veit ekki
hvernig á að snúa sér í þessum
kröggum þjóðarinnar og algengt er
að heyra álit sem þetta á götum úti:
„Það eina sem vit er í, er að eyða
sem mestu á líðandi stundu. Það er
gagnsiaust að geyma fé sitt í banka,
þar sem á morgun verður það orðið
að engu.“
Fjórir fjármálaráðherrar hafa
fengið að spreyta sig á fjárhags-
ástandinu á undanförnum átta
mánuðum. Sá síðasti, Jose Dagnino
Pastore, var aðeins við völd í 53
daga og nú er tekinn við embættinu
Jorge Wehbe, sem var áður við völd
fyrir tíu árum.
ÞÓTT allar rannsóknir bendi til að
hitastigið á jörðunni muni hækka
mjög á næstu öld með skelfilegum
afleiðingum fyrir alla jarðarbúa, láta
ráðamenn þessa spádóma sem vind
um eyru þjóta og vilja helst ekkert
af þeim vita. Svo segja a.m.k.
vísindamenn, sem þykjast vita hvert
stefnir.
Vísindamönnum ber nú orðið
saman um, að á næstu 40—100 ár-
um muni koltvísýringur í and-
rúmsloftinu tvöfaldast og hita-
stigið hækka um 5 gráður á celcí-
us. Þetta fyrirbrigði kallast
„gróðurhúsaástand" vegna þess,
að koltvísýringurinn dregur úr
hitaútgeislun á sama hátt oggróð-
urhús.
„Þetta er alheimsvandamál, það
mesta og flóknasta, sem bíður
mannkynsins á þessari og næstu
öld,“ segir Robert Schware, vís-
indamaður, sem starfar við
bandarísku veðurfarsrannsókna-
stöðina í Boulder í Colorado.
I skýrslu, sem kom út í júlí sl.,
segir, að hærra hitastig muni
valda aukinni bráðnun heim-
skautaíssins, vorið verður fyrr á
ferðinni og haustið síðar og jarð-
vegsraki mun minnka um mitt og
norðanvert norðurhvel jarðar.
Vegna aukinnar ísbráðnunar mun
sjávarborð hækka, um nokkra
metra jafnvel, hafnarborgir fara á
kaf og þurrlendið minnka stór-
lega.
Dr. William Kellogg, vísinda-
maður við rannsóknastofnuna,
segir, að afleiðingarnar fyrir
heimsbyggðina muni verða mjög
misjafnar. Sumar þjóðir muni
hagnast á breytingunni en aðrar,
langflestar raunar, muni tapa.
Hann segir að þrátt fyrir allt séu
engin ragnarök í nánd. „Maðurinn
er skynsöm skepna, sem á auðvelt
með að laga sig að breyttum að-
stæðum."
Daginn áður en Dagnino sagði af
sér birti vikuritið „La Semana"
lista yfir þá hluti sem ekki hækk-
uðu meira en 16 prósent í júlímán-
uði og gaf út lista sem hentugt væri
að fylgja til að halda fjárhagnum í
horfinu. Samkvæmt honum er hag-
stæðast að þvo sér einungis með
hárþvottalegi, þar sem hann hækk-
aði aðeins um sjö af hundraði á
meðan að venjulegt sápustykki
hækkaði um 24 af hundraði og ef öll
þessi verðbólga fer að stíga fólki til
höfuðs í bókstaflegri merkingu og
valda þar verk, þá er ekki ástæða til
örvæntingar þar sem asperín hækk-
aði aðeins um 10 af hundraði.
A-Þýskaland:
3flýja
Miíncben, V-Þynkalandi. 3. aeptember. AP.
ÞRÍR austur-þýskir flóttamenn hafa
komið til V-Þýskalands á undan-
{ förnum dögum á leið til Austurríkis,
samkvæmt upplýsingum frá landa-
mæralögreglunni í dag.
Tveir þeirra komu saman eftir
að hafa verið í sumarleyfi í aust-
antjaldslandi segir í yfirlýsing-
unni frá lögreglunni, en sam-
kvæmt hefð yfirvalda eru nöfn og
heimilisföng flóttamanna ekki
gefin upp.
Veður
víða um heim
Akureyrj 4 skýjað
Amsterdam 19 heióskirt
Aþena 34 heióskfrt
Barcelona 26 skýjað
Berlín 20 heiðskfrt
BrUssel 23 heiðskfrt
Chicago 25 hefðskfrt
Dyflinni 19 heiðskfrt
Feneyjar 27 þokumóða
Frankfurt 22 heiðskfrt
Genf 22 hefðskfrt
Helsinki 17 skýjað
Hong Kong 31 heiðskfrt
Jerúsalem 32 heiðskfrt
Jóhannesarborg 14 heiðskfrt
Kairó 35 heiðskfrt
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Laa Palmas 26 lóttskýjað
Lissabon 33 heiðskfrt
London 23 heiðskfrt
Los Angeles 37 hefðskfrt
Madrid 31 heiðskfrt
Malaga 25 heiðskfrt
Mallorca 22 skýjað
Mexfkóborg 25 heiðskfrt
Miami 31 rfgning
Moskva 22 skýjað
Nýja Delhf 35 skýjaó
æi Vnrb IWw TOiK 25 skýjað
Osló 17 heiðskfrt
París 24 heiðskfrt
Perth 18 heiðskfrt
Rio de Janeiro 27 skýjað
Reykjavík 7 lóttskýjað
Rómaborg 29 heiðskfrt
San Francisco 21 hefðskfrt
Stokkhólmur 16 heiðskfrt
Sydney 26 hefðskfrt
Tel Aviv 30 heiðskfrt
Tókýó 30 skýjað
Vancouver 24 skýjað
Vinarborg 21 skýjað
bórahöfn 9 hólfskýjað
Jugóslavía:
*
Astarbríminn
endist illa
Subotica, Júgóslavíu, 3. sept. AP.
FYRIR nokkrum árum var það leitt i
lög í Vojvodina-héraði i Júgóslavíu,
að ungt fólk í giftingarhugleiðingum
yrði að bíða í mánuð eftir leyfisbréf-
inu. Það hefur haft þær afieiðingar,
að sögn embættismanna, að helm-
ingi hjónaleysanna hefur að jafnaði
snúist hugur áður en mánuðurinn er
liðinn.
Hjónaskilnuðum hefur fjölgað
mjög í Júgóslavíu og hafa yfirvöld
af því miklar áhyggjur. Til að
hamla gegn þessari þróun voru
þessi lög sett en þau eiga að gefa
fólki tíma til að átta sig og gá
hvort mesti ástarbríminn rennur
ekki af við biðina. Ilona Ludonji,
embættismaður á manntals-
skrifstofu í Subotica, segir, að nú
sé það regla, að innan 30 daga frá
því að unga fólkið komi og vilji fá
leyfisbréf hafi helmingurinn hætt
við allt saman.
Stundum kemur þó fyrir, segir
Ilona, „að flytja verður brúðina
beint úr athöfninni á fæðingar-
deildina og nokkrum sinnum hef
ég og samstarfsmenn mínir orðið
að taka á móti barni á skrifstof-
unni“. Af þessum sökum hefur
lögunum verið breytt lítillega og
má nú stytta biðtímann eða af-
nema þegar sérstaklega stendur á.