Morgunblaðið - 08.09.1982, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1982
37
ÞU AUGLYSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
Móna sýnir málverk í Eden
UM ÞESSAR mundir stendur yfir sýning á 47 pastelmyndum í
Listamannaskálanum i Eden i Hveragerði. Þar eru sýndar blóma-
myndir, fantasíur og landslagsmyndir.
Myndirnar eru eftir listamanninn Mónu, en þetta er fyrsta mál-
verkasýning hennar. Sýningu Mónu lýkur 12. september næstkom-
andi.
Bókaútgáfan Iðunn:
Ný skáldsaga
eftir Auði
Haralds
AUÐUR Haralds, rithöfundur
og blaðamaður, sendir frá sér
sína þriðju skáldsögu nú fyrir
jólin, og nefnist hún því stóra
nafni „Ævintýri fyrir rosknar,
vonsviknar konur og eldri menn
eða Hlustið þér á Mozart?“
Bókaútgáfan Iðunn gefur bók-
ina út.
Bókin fjallar um þrjátíu og
sjö ára gamla konu, sem vakn-
ar upp við það einn morgun-
inn, að eiginmaður hennar er
farinn til vinnu sinnar, og
börn þeirra í skólann. Hún
getur því ráðstafað deginum
fullkomlega eins og hún sjálf
vill.
Þvílík vellíðan — og það á gam/a verðinu
Fyrirlestur um
samband sálar
og líkama
DAVID Lewis, prófessor í heimspeki
við Princeton-háskóla í Bandaríkj-
unum, flytur opinberan fyrirlestur í
boði heimspekideildar Háskóla ís-
lands í dag, miðvikudaginn 8. sept-
cmber, kl. 17:15 í stofu 201 í Lög-
bergi.
Fyrirlesturinn nefnist: „Know-
ing What It’s Like“. Undir þessari
fyrirsögn mum prófessor Lewis
verja efnishyggjukenningu um
samband sálar og líkama og fjalla
um meint andmæli gegn henni.
Prófessor Lewis er meðal þekkt-
ari yngri heimspekinga í Banda-
ríkjunum. Hann hefur skrifað
tvær bækur, Counterfactuals og
Convention, auk fjölda tímarits-
greina.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku. öllum er heimill aðgangur.
Nú getur þú eignast þína eigin Scandi SPA
setlaug eöa Krúlland sundlaug á alveg ein-
stöku veröi.
Eigum fyrirliggjandi eftirtaldar gerðir af
setlaugum og sundlaugum á gamla verö-
inu:
Verður
kr. kr.
Benidorm (eins manns) loftnudd ........................ 25.600 30.200
Benidorm (eins manns) loft-og vatnsnudd ............... 38.500 30.200
Love story (tveggja manna) loftnudd ................... 27.800 32.800
Parcifie (tveggja/ þriggja manna) loft- og vatnsnudd... 27.800 32.800
Atlantic loftnudd ...................................... 24.600 29.100
Party (fjögurra—átta manna) loftnudd .................. 32.700 38.600
Family (tveggja—fjögurra manna) loft- og vatnsnudd .... 31.800 37.600
Dælusett ............................................... 32.100 37.900
Loftdæla ................................................ 7.270 8.500
3msundlaug ..................................... 10.950 13.700
3 m sundlaug með öllu .......................... 28.900 36.125
Tvær unglingabækur frá
Bókaútgáfu Æskunnar
Scandi Spa setlaugarnar eru heilsusamlegar,
vinna gegn vöövabólgu, gigt og stressi Svona
mætti lengi upp telja, en Scandi Spa erfyrst
og fremst þægindi, vellíöan, ánægja og
afslöppun.
Gunnar Ásgeirsson hf.
Suóurlandsbraut 16 Simi 9135200
(_______________________
BÓKAÚTGÁFAN Æskan sendir nú
í haust frá sér tvær unglingabækur,
auk annarra bóka, sem væntanlegar
eru frá forlaginu fyrir jólin.
Fyrri bókin heitir Birgir og Ásdis.
Höfundur er Eðvarð Ingólfsson,
Ráðstefna
um gagnrýni
HELGINA 11.—12. september gang-
ast Samtök islenskra gagnrýnenda
og hin ýmsu samtök listamanna fyrir
ráðstefnu um gagnrýni í stofu 201 í
Árnagarði við Suðurgötu, undir heit-
inu: Gagnrýni — fyrir hvern? Hvern-
'g?
Ráðstefnan hefst kl. 10 f.h. með
ávörpum forseta Bandalags ís-
lenskra listamanna og formanns
Samtaka íslenskra gagnrýnenda.
Haldin verða tíu stutt framsögu-
erindi, sem gagnrýnendurnir Árni
Bergmann, Jón Þórarinsson, Aðal-
steinn Ingólfsson, Ólafur Jónsson
og Bryndís Schram, og listamenn-
irnir Guðbergur Bergsson, Gunn-
ar Egilsson, Benedikt Gunnars-
son, Helga Bachmann og Ólafía
Bjarnleifsdóttir flytja. Á eftir
fylgja umræður í hópum. Á
sunnudag verður ráðstefnunni
fram haldið, fyrst með hópumræð-
um, en lýkur síðdegis á sunnudag
á sameinuðu málþingi. Að ráð-
stefnunni standa Samtök ís-
lenskra gagnrýnenda, Rithöfunda-
samband Islands, Félag íslenskra
leikara, Tónskáldafélag íslands,
Félag íslenskra Tónlistarmanna,
Félag íslenskra listdansara og Fé-
lag íslenskra myndlistarmanna.
sem kunnur er fyrir unglingaþætti
sína í útvarpinu. Þetta er þriðja
bók Eðvarðs. 1980 sendi hann frá
sér fyrstu bók sína, Gegnum
bernskumúrinn, sem vakti athygli,
m.a. fyrir það að höfundurinn var
ekki nema 19 ára og skrifaði
skáldsögu um hið svonefnda ungl-
ingavandamál. Birgir og Ásdís er
sjálfstætt framhald þeirrar bókar.
Hún fjallar í stuttu máli um 18
ára kærustupar, sem er að hefja
sambúð og ýmsa þá byrjunarörð-
ugleika, sem henni geta fylgt. Á
hispurslausan og hreinskilinn
hátt er fjallað um ýmis þau mál er
snerta líf unglinga í heild sinni.
Þarna tekur Eðvarð fyrir sögu-
efni, sem lítið sem ekkert er skrif-
að um hér á landi.
Hin bókin er Neyðarópið hjá
stálsmiðjunni og er eftir Ragnar
Þorsteinsson, sem áður hefur ritað
nokkrar barna- og unglingabækur.
Þessi nýja saga Ragnars fjallar
um sjómennsku öðrum þræði eins
og margar fyrri sögur hans, en þar
koma ýmis önnur hugðarefni
unglinga líka til sögunnar.