Morgunblaðið - 08.09.1982, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 08.09.1982, Blaðsíða 6
3 8 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1982 Laxinn og 66. grein hafréttarsáttmálans Eftir dr. Björn Jóhannesson Skýring Gunnars G. Schram á mikilvægi 66. greinarinnar Prófessor Gunnar G. Schram birti mjög athyglisverða ritsmíð, Laxinn og lögin, í Morgunblaðinu 17. júní 1982, og getur þar m.a. að lesa eftirfarandi málsgreinar: „í hinum nýja hafréttarsátt- mála, sem samþykktur var í apríl sl., er að finna allítarleg ákvæði um verndun laxastofna á úthafinu og innan fiskveiðilögsögu ríkja. Þar segir í 66. gr. að heimaríki laxins beri ábyrgð á viðgangi þeirra laxastofna, sem alast upp í ám þess. í framhaldi af því er þar að finna mjög mikilvægt ákvæði í þessu sambandi. Þar segir að heimaríkið megi ákveða hámarks- afla þeirra laxastofna, sem úr ám þess ganga á haf út, eftir viðræður við þau ríki, sem þar hafa veitt þessa stofna. Samkvæmt þessu ákvæði er Is- lendingum heimilt að ákvarða það, hve mikið aðrar þjóðir mega veiða af íslenska laxinum utan íslensku 200 mílna lögsögunnar. Ef svo stæði á, að ástæða þætti til þess að banna veiðar með öllu, sýnist það jafnframt heimilt, þótt í ákvæðinu sé aðeins rætt um ákvörðun hámarksafla. Hér er að vísu sá fyrirvari gerður, að skylt er að hafa samráð við aðrar þær þjóðir, sem íslenska laxinn hafa veitt um ákvörðun hámarksaflans. Fallist þær ekki á fyrirætlanir um takmarkanir á veiðunum, verður ákvæðið þó vart skilið á annan veg en að þá geti íslendingar einir ákveðið aflamagnið, þar sem frá- leitt er, að aðrar þjóðir hafi neit- unarvald í því efni og ekki stoð fyrir því í samningstextanum. Þetta ákvæði hafréttarsáttmál- ans hefur augljóslega mikla þýð- Björn Jóhannesson „Burtséð frá verndunar- sjónarmiðum sýnist það mikil ofrausn, svo ekki sé fastar að orði kveðið, að þau þrjú lönd sem fram- leiða engin sjógönguseiði — Grænland, Færeyjar og Danmörk — hirði nálægt 40% af veiðanlegum laxi sem á uppruna í laxalönd- um Evrópu.“ ingu, þegar um það er að ræða að ríki telur laxastofna sína í hættu vegna úthafsveiða annarra ríkja eða veiða innan lögsögu sinnar, þegar laxinn gengur þangað. I framkvæmd getur málið hins veg- ar reynst öllu erfiðara viðfangs. Er þar komið að spurningunni um það, hvernig eigi að sannreyna hve íslenski laxinn sé mikill hluti í afla erlendra veiðiskipa. Það verð- ur vart öðruvísi gert en með ítar- legum rannsóknum á göngum lax- ins út úr íslensku lögsögunni, nákvæmum aflaskýrslum og óvilhöllu veiðieftirliti. Þar er kom- ið að þætti fiskifræðinnar og stjórnvalda, sem hér verður ekki nánar ræddur." Ályktun dr. Gunnars Þessa mikilvægu ályktun eða tillögu er að finna í grein Gunn- ars: „Hér sýnist hin mesta nauðsyn á því, að þær þjóðir við Atlantsh- afið norðaustanvert, sem rækta lax í ám sínum, komi sér saman um þann heildarhámarksafla, sem leyfilegt er að veiða utan efna- hagslögsögu þeirra. Á þann hátt væri unnt að takmarka almennt veiðar þeirra þjóða, sem ekki leggja neitt af mörkum í þessum efnum, en hirða hins vegar hluta arðsins af ám laxeldisríkjanna." Meginefni þessa greinarstúfs míns er raunar könnun á því, hvernig standa mætti að um- ræddri samvinnu. Laxamerkingar duga ekki Við skulum fyrst huga að svari við spurningu sem varpað er fram í eftirfarandi setningu í grein Gunnars: „Er þar komið að spurn- ingunni um það, hvernig eigi að sannreyna hve íslenski laxinn sé mikill hluti í afla erlendra veiðisk- ipa.“ Fræðilegar íhuganir leiða því miður í ljós, að ekki muni fyrir- finnast tiltæk ráð til að svara þessari spurningu með viðhlítandi öryggi. Meginástæður þessarar niðurstöðu eru sem hér segir: 1) Einu hugsanlegu rannsóknat- ækin í þessu sambandi eru merkingar, annaðhvort á seið- um sem ganga í sjó úr ánum, ellegar á laxi sem merktur er í hafi og síðan sleppt aftur í sjó- inn. 2) Síðarnefnda aðferðin, sem fræðilega séð er líklegri til árangurs, hefur þegar verið dæmd úr leik af Alþjóðahaf- rannsóknaráðinu, vegna mjög lélegra merkja-endurheimta og sakir mikils kostnaðar. 3) Fyrirfram sýnist útilokað, að fyrrnefnda aðferðin gæti gefið viðunandi svar við umræddri spurningu Gunnars, og fara hér á eftir helstu ástæður slíkrar ályktunar: a) Til þess að merkingar sjógönguseiða bæru tilætlaðan árangur, þyrftu að liggja fyrir upplýsingar er gæfu til kynna, hversu eitt merki í veiddum laxi, t.d. á Færeyjamiðum, samsvaraði miklum fjölda ís- lenskra laxa er sæktu á þessi mið. Ella myndi fundið merki sýna það eitt, að íslenskur lax gengur á slóðir fundarstaðar- ins, en þetta hefur verið sannr- eynt bæði um Grænlands- og Færeyjasvæði Atl- antshafslaxins. Frekari endur- heimtur laxamerkja frá íslandi á þessum slóðum myndu því eingöngu staðfesta það sem þegar er fullsannað. b) Fyrir tiltekna laxá þyrfti að vera vitað, hve merktur sjó- gönguseiðafjöldi næmi stórum hluta af heildarfjölda þeirra seiða er sæktu í sjó á merki- ngarárinu. Illkleift, ef ekki ógerlegt, myndi að afla slíkra upplýsinga. c) Liggja þyrfti fyrir, hver hundr- aðshluti merktra sjógönguseiða sem sleppt yrði á tilteknu sum- ri, skilaði sér sem veiðanlegur lax á Færeyjamið. Þetta er að sjálfsögðu óþekkt stærð og ekki sýnt að hún yrði með nokkru móti ákvörðuð. d) Loks þyrfti að liggja fyrir, hve miklum hluta merkja úr veidd- um laxi væri skilað. Er raunar vitað, að vegna hagsmunasjón- armiða atvinnulaxveiðimanna eru þeir tregir að skila merkj- um. Má í þessu sambandi minna á, að af 1949 merktum löxum í sjó á Færeyjamiðum árin 1969—’76 komu til skila aðeins 4,7% af merkjunum. Framangreindir annmarkar eru miðaðir við eina tiltekna á, en þeir myndu enn magnast þegar litið er á landið sem heild, eins og eðlilegt er að gera. Mætti fara fleiri orðum um umrædda annmarka og tíunda fleiri til. En mér virðist framan- greindar athugasemdir sýna ótví- rætt, að með merkingum sjógönguseiða er útilokað að fá viðhlítandi áreiðanlegt mat um þann fjölda íslenskra laxa sem veiðast á Færeyja- eða Græn- landsslóðum. Líku máli gegnir að sjálfsögðu um önnur laxalönd við norðaustanvert Atlantshaf. Merkingar sjógönguseiða duga þeim engu betur. Merkingar af þessu tagi hafa nú þegar gefið þær upplýsingar sem þær hugsanlega geta veitt, nefnilega að lax frá öll- um þessum löndum gengur á Fær- eyjamið. Af þessu leiðir, að ekkert eitt land við norðaustanvert At- lantshaf getur sannreynt hve lax upprunninn í ám þessa lands sé mikill hluti í afla veiðiskipa á Færeyja- eða Grænlandsslóðum, og því geta einstök lönd á þessu svæði ekki beitt þeim veiðitakm- örkunum, sem 66. gr. hafréttars- áttmálans heimilar, sé vissum skilyrðum fullnægt. Öðru máli gegnir, ef um sameiginlegar að- gerðir laxalandanna er að ræða, svo sem rakið verður hér að aftan. Með áreiðanlegum afla- skýrslum og sameiginlegu mati laxalandanna mætti, á grundvelli 66. greinarinnar, takmarka eða taka fyrir lax- veiðar Grænlendinga, Færey- inga og Dana á úthafinu Hér að aftan eru raktir nokkrir útreikningar um skiptingu afla af laxi sem elst upp annars vegar á Norðvestur-Atlantshafi og hins vegar á Norðaustur-Atlantshafi, svo og um hlutdeild Grænlands, Færeyja og Danmerkur í laxveið- inni. Sem kunnugt er, framleiða þessi lönd ekki sjógönguseiði og stunda laxveiðar eingöngu á út- hafi. Nauðsynlegar forsendur eða grundvöllur neðangreindra út- reikninga eru sem hér segir: 1) Að fyrir liggi sem áreiðanleg- astar skýrslur um laxveiði allra ísafjörður: Velheppnaðri ferðamála- ráðstefnu lokið Ný Breiðafjarðarferja er nauðsynleg Rætt við framkvæmdastjóra flóa- bátsins Baldurs í Stykkishólmi ísaflrði 29. ágúst. Ferðamálaráðstefna Ferðamála- ráðs ríkisins, sem haldin var á ísa- firði um helgina, skorar á ríkisvaldið að standa við lögbundin fjárframlög til ferðamálaráðs og jafnframt að hækka fjárveitingar til ráðsins. Jafn- framt var skorað á ríkisvaldið að fella niður flugvallarskatt og álögur á ferðamannagjaldeyrir og einnig að hefja byggingu flugstöðvarbyggingar á Keflavíkurflugvelli nú þegar. Ráðstefnan var sett að morgni föstudagsins 27. ágúst af Lúðvíki Hjálmtýssyni, framkvæmdastjóra ferðamálaráðs. Heimir Hannesson formaður ferðamálaráðs, flutti skýrslu stjórnar. Kom þar meðal annars fram sú merkilega stað- reynd, að á fyrra helmingi þessa árs hefur orðið veruleg fækkun, og hlutfallslega sú mesta, á komu ferðamanna frá Norðurlöndunum og Bretlandi. Magnús Reynir Guð- mundsson, bæjarritari á Isafirði, flutti erindi um uppbyggingu ferðamannaþjónustu á Vestfjörð- um. í eftirmiðdag nin var þinghaldi frestað, vegna veðurs. Bæjarstjórn Isafjarðar hafði boðið þingfull- trúum til skemmtiferðar með m.s. Fagranesi norður í Jökulfirði á sunnudag. En þar sem stafalogn var og glaðasólskin á föstudaginn, en veðurstofan spáði versnandi veðri, var ákveðið að fara í skemmtiferðina strax á föstudag. Að morgni laugardags var svo þinghaldi framhaldið. Fyrir lá að ræða um framtíð ferðamála á Vestfjörðum, ferðaútgerð erlendra ferðaskrifstofa á íslandi, framtíð- arskipan ferðamálaráðs, o.fl. Fóru umræður fram í smáhóp- um, en síðan settu talsmenn hóp- anna fram hugmyndir þeirra hvers fyrir sig. í lok ráðstefnurnar var sam- þykkt ályktun um flugstöðvar- byggingu á Keflavíkurflugvelli, þar sem skorað er á ríkisstjórnina að hefja nú þegar byggingu nýrrar flugstöðvar. Rætt var um flugvallarskatt, sem mun vera með allra hæsta móti á íslandi, og lagði Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi Flug- leiða, fram bréf frá virtri banda- rískri ferðaskrifstofu, þar sem kom fram að hún væri hætt að selja ferðir til Islands vegna þessa rangláta skatts. Var þess getið til dæmis, að 5 manna fjölskyldu sem var að kveðja landið eftir nokkra dvöl, þar sem fjölskyldumeðlimum þótti verðlag yfirleitt vera óheyri- lega hátt, var gert að greiða 100 dollara í flugvallarskatt, þar fór allt féð sem nota átti til að kaupa fyrir íslenskar ullarvörur í frí- höfninni. í lokaorðum Heimis Hannessonar, formanns ferða- málaráðs, kom fram að ferðamálaráð hafði þingað á ísa- firði fyrr um daginn og tekið end- anlega ákvörðun um að láta reisa náðhús á Hornströndum. Á laugardagskvöld sátu ráð- stefnugestir kvöldverðarhóf Steingríms Hermannssonar, sam- gönguráðherra og þingmanns Vestfjarða, í húsnæði Menntaskól- ans á ísafirði þar sem ráðstefnan fór fram. Úlfar Guðmundur Lárusson fram- kvæmdastjóri Flóabátsins Baldurs hf. var á sinni annarri ferðamála- ráðstefnu. Hann var ánægður með sumarið, sagði að svipuð umferð hefði verið í ár og í fyrra en það var með allra bestu árum hjá þeim. En Baldur er nú orðinn algjörlega úrelt- ur og mjög óheppilegur i rekstri og sagðist Guðmundur hafa áhyggjur af

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.