Morgunblaðið - 08.09.1982, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1982
43
margfaldað tilkostnaðinn og dreg-
ið úr framleiðninni. (Hér má geta
þess, að þetta er sama vandamálið
og Mitterand er að glíma við í
Frakklandi núna 10 árum seinna.)
í júlí 1972 vék fulltrúadeild
þjóðþingsins í Chile innanríkis-
ráðherranum úr embætti. Var
hann sakaður um að framfylgja
ekki lögum um verndun eignarétt-
ar og um mannréttindi og enn-
fremur um að hafa hylmað yfir
smygl á vopnum frá Kúbu til
skæruliða úr hópi kommúnista í
Chile. Hafði fyrst verið litið á
þessar sendingar sem persónu-
legar gjafir til Aliende frá Castro,
og máttu þær þá ekki tollskoðast.
Þjóðþingið samþykkti nú þrenn
lög, til þess að takmarka þessa
óheillaþróun. Þau fyrstu miðuðu
að því að takmarka eignaupptöku
á jarðeignum, þannig að hún næði
ekki til jarða, sem væru minni en
40 hektarar, og voru þau sett
samkvæmt stjórnarskrá landsins.
Þá komu lög um ríkisstyrk til út-
varps og blaða, sem voru á heljar-
þröminni, og til tryggingar á því,
að þessir fjölmiðlar yrðu ekki
teknir eignanámi. Hér beitti All-
ende neitunarvaldi sínu. Þriðju
lögin gengu út á það, að hindra
ólöglegan innflutning á vopnum
til vinstri skæruliða Ailende og
gáfu þau hernum leyfi til að leiða
þá brotlegu fyrir herrétt. Þessu
gat Allende ekki staðið á móti, því
að hann þurfti að leita aðstoðar
hersins til að bæla niður verkföll-
in. En þau hófust fyrir alvöru með
allsherjarverkfalli vörubílstjóra þ.
10. október 1972, gegn fyrirhuguð-
um opinberum rekstri á vöruflutn-
ingum. A eftir fylgdu svo verkföll
verkfræðinga, bankamanna, af-
greiðslumanna, olíustöðva, mál-
flutningsmanna, húsameistara,
rútubílstjóra, lækna og tann-
lækna. (Minnir þetta óneitanlega
á verkföllin, sem hófust hér á
landi í mars 1981.)
Herinn kemur
til sögunnar
Verkföllunum í Chile lauk 5.
nóvember 1972 fyrir atbeina hers-
ins, sem fékk 4 fulltrúa í ríkis-
stjórninni, þar á meðal innanrík-
isráðherrann. Fékk herinn brátt
lykilaðstöðu í stjórninni. Banda-
ríkin ákváðu um þetta leyti að
framlengja aðstoð sína við lýð-
ræðisflokkana í Chile fram að
væntanlegum kosningum til þjóð-
þingsins í marz 1973. Hjálpin
takmarkaðist við lýðræðisflokk-
ana og fjölmiðla, sem voru í hættu
vegna fjárskorts. Þessi aðstoð
mun ekki hafa verið framlengd,
enda var ókyrrð í landinu farin að
magnast. Fyrirskipaði Kissinger
bandaríska sendiráðinu í Sant-
íago, að blanda sér ekki á neinn
hátt í það, sem var að gerast í
Chile.
Fall Allende
Alger yfirtaka hersins í Chile
fór svo fram 11. nóvember 1973.
Klukkan 6:30 um morguninn
sendu útvarpsstöðvar stjórnar-
andstöðunnar út tilkynningu frá
yfirforingjum allra þriggja deilda
hersins og ríkislögreglunnar, þar
sem Allende er boðið að segja af
sér þegar í stað. Foringjarnir
lýstu því þar yfir, að herinn og
lögreglan stæðu sameinuð í bar-
áttunni gegn marxistum og gegn
óhæfri ríkisstjórn, sem leiddi
þjóðina til glötunar. Þeir fullviss-
uðu verkamenn, að áunnin þjóð-
félagsleg og efnahagsleg réttindi
þeirra yrðu virt. Öllum fjölmiðlum
hliðhollum ríkisstjórninni skyldu
bannaðar útsendingar.
Allende kom til forsetahallar-
innar kl. 7:30, fylgt af vel vopnaðri
varðsveit. Forsetinn lét ríkisút-
varpið tilkynna, að hann neitaði
að segja af sér, og hvatti hann
verkamenn að yfirtaka verksmiðj-
urnar og skipuleggja mótstöðu.
Herinn varpaði þá sprengjum á
forsetahöllina, og þegar hermenn
úr landhernum réðust svo inn í
höllina um hádegið, fundu þeir
Allende dauðan á sínum vinnu-
stað. Tilkynnt var opinberlega, að
hann hefði framið sjálfsmorð, að
því er virtist með hríðskotabyssu,
gefinni á sínum tíma af Fidel
Castro.
Lokaorð Kissinger
Henry Kissinger endar frásögn
sína á þessa leið:
„Ég hef lýst hér ítarlega falli
Allendes, til þess að benda á
heimssögulegt dæmi um stjórm
arfarsgoðsögn (mythe politique). í
vissum skoðanahópum er meint
sök vor á upplausninni („destabil-
isation") í Chile orðin ímynd alls
þess, er þeir telja skuggalegt í am-
erískum stjórnmálum. Heila mál-
ið er það, að ekkert slíkt átti sér
stað. Það var eigin stjórn Allende,
sem með aðstoð Kúbu en ekki
Bandaríkjanna, sem stóð að þess-
ari hálfhernaðarlegu (paramilit-
aire) uppreisn og kollsteypu,- með
því að vopna leynilega öfgasinn-
aða hópa kommúnista. Vér létum
oss nægja að veita frjálsu blöðun-
um og lýðræðisflokkunum um-
beðna aðstoð gegn kröftugri og
slunginni herferð, sem beitt var til
útrýmingar á þeim fyrir næstu
kosningar."
Hugsjónir, sem
ekki geta rætzt
Þetta var mikil sorgarsaga og
óneitanlega lærdómsrík, eins og
oft er um slíkar sögur. Á aðeins
þremur árum gengur lýðræðisrík-
ið Chile í gegnum upphaf, þróun
og endalok stjórnarfars kommún-
ista. Það hefst með skáldinu, sem
verður gripið af hugsjón, er leiðir
til Moskvu-kommúnisma, og það
er tekið til að framkvæma: þjóð-
nýting, taprekstur, skuldir, verð-
bólga, harðstjórn, uppreisn og
stopp! Hugsjónin gat ekki rætzt,
því að það var gengið fram hjá
staðreyndum, og þá er voðinn vís.
Stjórnarfar kommúnista virðir
ekki staðreyndir mannlegs lífs,
svo að rás viðburðanna verður á
þessa leið: Þjóðnýting og ríkis-
rekstur leiðir til taprekstrar, því
að hinir nýju húsbændur kunna
ekki til verka; vinnugleðin er horf-
in, því að hagnaðarvon er engin;
launin eru í lágmarki hjá öllum,
bæði þeim, sem vilja vinna og
kunna til verka, og þeim, sem
hvorki nenna né kunna; ríkið sér
fyrir öllum og hugsar fyrir alla;
frelsið er horfið; ríkið ræktar ræf-
ildóminn, svo að síður verði gerð
uppreisn, en hún kemur nú samt,
þó síðar verði.
Stjórnarfarsgoðsögnin, sem
Kissinger vakti athygli á, þessi
goðsögn um ágæti alræðis öreig-
anna í höndum heittrúaðra marx-
ista, ásamt þeirri ófyrirgefanlegu
afstöðu Bandaríkjanna, að vera á
móti slíku stjórnarfari, hún er nú
aðalinntakið í áróðri kommúnista
um allan heim. Og það er ekki lát-
ið sitja við orðin tóm. Castro,
Gaddafi og fleiri byltingarseggir
leggja til hermenn og hryðju-
verkamenn, en vopnin, ásamt
þjálfun í beitingu þeirra, eru sótt
austur fyrir járntjald. Virðast
nokkrar þjóðir þar aflögufærar á
þessu sviði, þó að kornræktin hjá
sumum þeirra sé ekki upp á marga
fiska. Getur verið að andi Lysenk-
os svífi þar enn yfir ökrunum.
íslenskir kommúnistar reyna af
fremsta megni að útbreiða áður
nefnda goðsögn og telja löndum
sínum trú um ágæti sovétstjórn-
arfarsins og illmennsku Banda-
ríkjanna. Nota þeir til þess bæði
mál og myndir í fjölmiðlum, þar á
meðal á áberandi hátt í Ríkisút-
varpinu, auk þess sem þeir lauma
þessum áróðri jafnt og þétt inn í
skóla landsins. Hermennsku
stunda þeir ekki ennþá, en láta sér
nægja að vonzkast út í varnarliðið
á Keflavíkurflugvelli og samskipti
utanríkisráðherra, Óiafs Jóhann-
essonar, við yfirstjórn hersins.
Ólafur, sem er fyrrverandi for-
maður Framsóknarflokksins og
hefur þar traust fylgi hægri arms-
ins, hefur haldið áður yfirlýstri
stefnu Islands í utanríkismálum
óbreyttri og ekki látið köpuryrði
„hernámsandstæðinga" raska ró
sinni né gerðum.
Fyrir róttæka vinstri menn
hérlendis er harkaleg misbeiting
verkfalla í stjórnmálalegum til-
gangi örþrifaráðið, eins og fram
kom árið 1978. Hingað til hefur
verkföllum annars aðeins verið
beitt hér í kjarabaráttu við at-
vinnurekendur. En nú, þegar ríkið
er að verða aðalvinnuveitandinn,
er þessu vopni líka beitt gegn rík-
isstjórninni, enda þótt í henni sitji
líka ráðherrar frá kommúnista-
flokknum. Þannig fór þetta einnig
í Póllandi, þannig fór þetta í Chile
og þannig er þetta að fara hér,
undir lok kjörtímabils núverandi
ríkisstjórnar.
Þennan lærdóm hefur Gunnar
Thoroddsen, vitandi eða óafvit-
andi, fært þjóðinni með stjórn-
armyndun sinni, en hann hefur
með lagni og stillingu haldið
stjórninni saman og þá siglt hann
nokkuð krappan stundum.
Það mun einnig hafa orðið lýð-
um ljóst að forsætisráðherrann og
utanríkisráðherrann hafa með
festu sinni og stillingu haldið uppi
því trausti, sem þessi ríkisstjórn
hefur notið bæði heima og erlend-
is.
Sigurður Pétursson gerlafræðingur
Af alefli!
Höfum við áorkað einhverju hjá
Mígrensamtökunum? Hefur nokk-
uð skeð? Ég, persónulega, skil ekki
þetta 4'á árs púsluspil, en ég er
mígrensjúklingur, það er ekki von!
Hefur hinn almenni félagsmaður
stutt félagið nóg, mætt á fundum,
útskýrt sitt mál, t.d. í fjölmiðlum,
og svo framvegis, við höfum allt
að vinna, engu að tapa. Ekki satt?
Er ég nógu duglegur að hjálpa
mér sjálf(ur)? Skammat ég mín
fyrir að hafa mígren? Eins og áð-
ur segir, fordómar mega sín mik-
ils, en okkar allra í félagingu er að
uppræta þá, gera meðborgurum
okkar, landsmönnum, ljóst... (sjá
lög félagsins að ofan).
Mígrensamtökin eru fjárlítið fé-
lag, þau reka ekki skrifstofu
(ástæðan að hluta vegna lítillar
aðsóknar félagsmanna, hinsvegar
vegna lasleika, talið jafn haldgott
að starfa frá heimilum viðkom-
andi. En það gengur ekki til lengd-
ar, hafa ekki síma, nema heima-
síma á kostnað stjórnarmanna
sjálfra). Starfið leggst á fáa. Fé-
lagið gæti, eins og tíðkast í öðrum
löndum, komið á blómlegu starfi
þegar undirstaða er komin sem
skyldi. Samstaða er það sem þarf
— enginn skilur kvalirnar er
krampi í æðakerfi veldur eins og
sá sem einnig hefur þá reynslu
sjálfur.
Við eigum, það er satt, kost á
ýmsu, göngudeildin er til, en engin
starfsemi þar. (Sagði einhver að
þjóðarbúið hefði ekki efni á að
sinna mígrensjúklingum!? Nei, mér
hefur misheyrst!) Við eigum hér
margt góðra manna og kvenna
með þekkingu sem hentaði vel við
að draga úr einkennunum, það
kostar peninga, það er dýrt
„spaug“ að vera mígrensjúklingur!
Blaðamenn mega gjarnan lið-
sinna okkur, hafa upp á fróðleik,
fá upp skoðanir ráðherra, trygg-
ingalækna, athuga hvernig sé
háttað á vinnustöðum; hvort til sé
verndaður vinnustaður. Það má
ekki gleyma að minnast á hið
jákvæða: aðstöðu barna mígren-
sjúklinga í kasti á Vistheimilinu á
Dalbraut. Hversu margir notfæra
sér það? Ef ekki, hversvegna ekki?
Mígrensjúklingar fá engar bætur,
þeir greiða mígrenlyf sjálfir með-
an sumir aðrir með króníska
kvilla fá meðul sín frí. Heyrst hef-
ur, og ekki svo óskiljanlegt þegar
hugleitt er nánar: „Höfuðverkur
er ekki sjúkdómur heldur sjúk-
dómseinkenni"! Og þegar haft er í
huga að yfir tvö hundruð sjúk-
dómar í líkamanum geta fram-
kallað höfuðverk, nú, nú. Ef heil-
brigðismálastéttin hér á landi er
svona sinnulaus um mál þessara
skjólstæðinga sinna, hvað verður
þá með okkur?
Til er ógrynni af bókum um
mígren, á ensku og dönsku og öðr-
um erlendum tungumálum. Við
eigum fólk sem gæti þýtt ein-
hverja þessara bóka, en hingað til
hafa forlög verið smeyk við að
gefa út þýddar bækur um höfuð-
verk, hræddir um að þeir tapi á
því. En þetta mun vonandi breyt-
ast.
Má, ef einhver hefur áhuga á
lesningu um þessi mál, benda á
Freedom from Headaches, Kost og
migraine: en praktist vejledning,
The migraine guide and cookbook,
Good food to fight Migraine —
Migraine: The facts, Mastering
your migraine, Migraine and
headaches, pocket guide to Mi-
graine and headaches, Once a
month (for migraines associated
with hormones and menstruation,
svo eitthvað sé nefnt. (Þarf þó að
panta þetta eða skrifa: óðinsgötu
17A 101, í gegnum bókaforlög.
Nánari upplýsingar um bækur hjá
undirritaðri í síma 14003.)
Að lokum. Erlendar kannanir
sýna að í flestum löndum er það
þetta um 10% þjóðar með mígren,
bæði börn og fullorðnir. Þetta er
ættgengt, hefur auðvitað áhrif á
allt fjölskyldulíf. örvænting kem-
ur mörgum „sökudólgnum" til að
hugleiða sjálfsmorð. Við, íslenska
fjölskyldan, ættum að huga að
þessum óheppnu systkinum okkar
með „heilakveisuna", jafningjum
okkar. Þá fer heppnin að elta
okkur öll. Vitið til!
Norma E. Samúelsdóttir,
formaður Mígrensamtakanna.
Flótti undan táragasi
Mynd þessi sýnir hvar mannfjöldi hleypur undan táragassprengjum á götu í Gdansk sl.
þriðjudag, en þá kom til götuóeirða þar í borg.
Flestar símalínur frá Sovétríkjunum í ólagi:
Tekur allt að átta klukkustundir
að ná símasambandi við Moskvu
Moskvu, 6. september. AP.
KLIPPT hefur verið á nær allar
beinar símalínur frá vesturlöndum
til Sovétríkjanna á undanfornum
dögum og virðist þetta vera liður í
þeim tilraunum yfirvalda til að
stemma stigu við auknum upplýs-
ingastraumi. Á allra síðustu dögum
hafa beinar símalínur frá Bandaríkj-
unum, flestum Vestur-Evrópuríkjum
og Japan verið rofnar.
Allt frá því línurnar voru rofnar
hafa símnotendur á vesturlöndum
kvartað undan seinvirkri þjón-
ustu. Hefur tekið langan tíma, allt
að átta klukkustundir, að ná síma-
sambandi til Sovétríkjanna. Hins
vegar hefur engin breyting orðið á
telex- og símskeytaþjónustu.
Ekki hefur verið minnst á þessa
breytingu á símaþjónustu í ríkis-
reknum fjölmiðlum í Sovétríkjun-
um. Fyrirspurnir frá vesturlönd-
um hafa lítinn árangur borið.
„Tæknileg" bilun er eina svarið
sem fæst af viðkomandi yfirvöld-
um í Sovétríkjunum.
Þessi takmörkun á beinu síma-
sambandi inn í Sovétríkin gerist
tveimur mánuðum eftir að beinar
hringingar út úr landinu voru
takmarkaðar. Með því að tak-
marka símasamband jafn mikið
og raun ber vitni gera yfirvöid öll-
um andófssamtökum mun erfið-
ara að athafna sig en ella. Þau
hafa mörg hver treyst mjög á
símasamband við vesturlönd til að
koma upplýsingum sínum á fram-
færi.