Morgunblaðið - 08.09.1982, Qupperneq 14
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1982
Ráðstefna um ellina og
undirbúning hennar
ÞjónustumiðstöAin
matsölustaður, bar, setustofa,
samkomusalur, fundarsalur,
gufubaðstofa, fullkomið véla-
þvottahús og aðstaða til borð-
tennisiðkunar. í móttökunni er
hægt að taka ýmsa muni á leigu,
svo sem litasjónvarpstæki, út-
varpstæki og reiðhjól, og þar er
einnig hægt að fá léða bolta, spil
og leikföng handa börnunum,
endurgjaldslaust.
Og í rauninni þarf ekki annað
en að labba yfir Karlslunde
Strandvej til þess að sækja þá
þjónustu sem ekki er séð fyrir í
orlofsbyggðinni. Beint á móti,
handan götunnar, eru nokkur
hús í einum hnapp og þar eru
banki, stór kjörbúð, krá og
diskótek. Og snertispöl norðar
bakarí. Það má því segja, að öll
þjónusta sé innan seilingar.
Karnaleikur að fara
með strætó eða lest
Síðan tekur Guðmundur
Gunnarsson við og leiðir fólk í
allan sannleika um það, hversu
auðvelt sé að ferðast með stræt-
isvögnum og lestum í Danaveldi,
að ekki sé minnst á að komast
hér um næsta nágrenni eða til
Kaupmannahafnar. Barnaleik-
ur. Fram kemur m.a.: Strætis-
vagnar stoppa rétt við bæjar-
dyrnar og ferðatíðni þeirra er
svipuð og heima. Það tekur
15—20 mínútur að komast með
þeim suður til Kege, en um
12—15 mínútur norður til
Hundige. í Hundige er skipti-
stöð og þar er hægt að velja um
það tvennt, að halda áfram með
öðrum vagni, til Kaupmanna-
hafnar eða eitthvað annað, ell-
egar taka lest. Ferðatíðni lest-
anna á að falla nokkurn veginn
saman við leiðaáætlun vagn-
anna, svo að um mjög langa bið
er ekki að ræða. A skrifstofu-
tíma er auk þess hægt að taka
hraðlestina niður í borgina og er
hún um 20 mín. á leiðinni.
Fyrir þá sem heldur vilja
ferðast um á einkabíl, hafa
Samvinnuferðir/Landsýn samið
um afsláttarverð við bílaleiguna
Hertz, sem auk þess kemur með
bílana á staðinn og sækir þá að
notkun lokinni.
Skoðunarferðir
Geirþrúður Pálsdóttir rekur
smiðshöggið á þennan kynn-
ingarfund og greinir ítarlega frá
skoðunarferðum, sem bjóðast
undir leiðsögn fararstjóra. Um
er að ræða ferðir til Kaup-
mannahafnar, Hróarskeldu og
Lejre, Lególands á Jótlandi, Sví-
þjóðar, Þýskalands og víðar.
Ferðadagskráin gengur yfir á
hálfum mánuði og þá er stokkað
upp og ný umferð hefst. Fólk
getur skrifað sig í þessar ferðir
með tveggja daga fyrirvara, ef
það hefur áhuga.
- O -
Þetta er ekki lítið upplýs-
ingaflóð, sem fararstjórarnir
hafa nú hellt yfir fundarmenn,
svona að morgni dags, en allir
ættu að vera nokkru nær um
það, sem koma skal á næstu vik-
um. Meira um það á morgun.
Hilmar Pétur Þormóðsson
PÖSTUDAGINN 3. september sl.
var haldin ráóstefna um ellina og
uadirbúning hennar á vegum nefnd-
ar um málefni aldraóra. Til ráðstefn-
unnar var boóió fulltrúum hinna
ýmsu stéttarfélaga auk nokkurra
Oeiri gesta.
Á ráóstefnunni var fjallað um tvö
efni, annar.s vegar um nýtingu fri-
tfmans og hins vegar um heilsuraekt.
Framsögumenn um nýtingu frí-
tímans voru Helena Halldórsdótt-
ir, fulltrúi, sem kynnti félagsstarf
eldri borgara í Reykjavík, Magnús
Eggertsson, fyrrv. yfirlögreglu-
þjónn sem kynnti félagsstarf elli-
lífeyrisþega í BSRB, Guðrún Hall-
dórsdóttir, skólastjóri, sem fjall-
aði um fullorðinsfræðslu, Snorri
Konráðsson, sem kynnti námskeið
á vegum Menningar- og fræðslu-
sambands alþýðu um undirbúning
ellinnar, Guðjón Þorgilsson, sem
ræddi viðhorf ellilífeyrisþega til
nýtingar frítímans, og Þórir S.
Guðbergsson, sem ræddi nýtingu
LANDSFUNDUR Bókavarðafélags
Islands stendur yfir í Reykjavík dag-
ana 6.—11. september, og að venju
er um aó ræóa námskeiðs- og fund-
arhöld. Þessi fundur er hinn 7. í röó-
inni, hinn fyrsti var haldinn í sept-
ember 1970 og síðan reglulega ann-
að hvert ár.
Aðalefni Landsfundar að þessu
sinni er námskeið um upplýs-
ingamiðlun í nútíð og framtíð, þar
sem er bæði kynning á íslenskum
og erlendum handbókum og notk-
un þeirra í upplýsingaþjónustu
bókasafna, og einnig upplýs-
ingamiðlun og leit með aðstöðu
tölvu og tölvunotkun bókasafna,
og stendur það námskeið í einn og
hálfan dag, en hitt námskeiðið er
um Þjónustu við börn og er það
einnig eins og hálfs dags nám-
skeið. Farin verður kynnisferð í
bókasöfn og stofnanir á Reykja-
víkursvæðinu og landsfundi lýkur
svo með tveggja daga fundarhöld-
15. ársþing Landssambands
íslenskra frímerkjasafnara var
haldið að Kjarvalsstöðum í
Reykjavík sunnudaginn 22. ág-
úst sl., en þá stóð þar yfir á veg-
um Félags frímerkjasafnara frí-
merkjasýning FRIMEX 1982.
Á þinginu voru fulltrúar
hinna ýmsu félaga frímerkja-
safnara hér á landi, og ræddu
þeir sameiginleg áhugamál sín
varðandi frímerkjasýningu í
Laugardalshöllinni í Reykja-
vík dagana 3.-8. júlí 1984.
Verður það fyrsta norræna
frímerkjasýning, sem haldin
hefur verið á Islandi. Hefur
hún hlotið nafnið NORDIA 84.
Undirbúningur sýningar-
innar, sem verður stærsta frí-
frítímans frá félagsfræðilegu
sjónarmiði.
Framsögumenn um heilsurækt
voru Þorsteinn Einarsson, fyrr-
verandi íþróttafulltrúi, sem ræddi
heilsurækt aldraðra, Páll Ólafs-
son, íþróttakennari, sem ræddi
möguleika á heilsurækt fyrir aldr-
aða í heilsuræktarstöðvum, Magn-
ús Ólafsson, sjúkraþjálfari, sem
kynnti samstarf endurhæfingar-
stöðvarinnar á Akureyri og verka-
lýðshreyfingarinnar þar, Rann-
veig Þórólfsdóttir, hjúkrunarfor-
stjóri, sem fjallaði um fyrirbyggj-
andi heilsurækt og ísak Hall-
grímsson læknir, sem ræddi áhrif
heilsuræktar.
Að framsöguerindum loknum
tóku umræðuhópar til starfa, og
voru samþykktar ýmsar ályktanir
um að komið yrði á skipulegri
heilsurækt aldraðra, og að full-
orðnu fólki yrðu gefnir fjölbreytt-
ari möguleikar á aðstöðu til nýt-
ingar frítímans á víðara sviði en
nú væri.
um og fyrirlestrum ásamt aðal-
fundi Bókavarðafélags Islands og
deildum innan þess félags.
Einn erlendur fyrirlesari hefur
verið fenginn til að kenna á nám-
skeiðinu um þjónustu við börn. Er
það Malin Koldenius, barnabóka-
vörður frá Örebro í Svíþjóð. Mun
Malin Koldenius einnig halda
fyrirlestur á fundi laugardaginn
11. september. Aðrir fyrirlesara
og kennarar eru úr röðum ís-
lenskra bókavarða.
Aðalmálið á aðalfundi Bóka-
varðafélagsins verður um endur-
skipun á uppbyggingu félagsins,
sem miðar að því að færa það
meira til horfs við bókavarðafélög
bæði á Norðurlöndum og t.d. Eng-
landi.
Þátttakendur í landsfundinum,
ýmist öllum eða einhverjum þátt-
um hans, eru um 130, og mun það
fjölmennasti Iandsfundur bóka-
varðafélagsins sem haldinn hefur
verið.
merkjasýning, sem hér hefur
verið haldin, er þegar hafinn,
og starfar að honum 7 manna
sýningarnefnd.
Formaður landssambands-
ins, Sigurður R. Pétursson, gaf
ekki kost á sér til endurkjörs
og í hans stað var kosinn Jón
Aðalsteinn Jónsson. Aðrir í
stjórn landssambandsins eru
Finnur Kolbeinsson, varafor-
maður, Hálfdan Helgason, rit-
ari, Gunnar Rafn Einarsson,
gjaldkeri, Sverrir Einarsson,
blaðafulltrúi og meðstjórn-
endur Eiður Árnason, Jón Eg-
ilsson, Páll H. Ásgeirsson og
Sveinn Jónsson. I varastjórn
eru Ólafur Elíasson og Sigurð-
ur P. Gestsson.
Á rÓIÓ (Ljónm.: B.A.)
) m lurjltir
Metsölublad á hverjum degi!
Landsfundur Bóka-
varðafélagsins
Jón Aðalsteinn Jónsson
kosinn formaður Lands-
sambands frímerkjasafnara