Morgunblaðið - 08.09.1982, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 1982
55
mundi heldur en ekki skekkjast
hrynjandi ljóðs og lags, ef i-in í
lok tveggja orðanna væru borin
fram á úrfellingar. Og Páll ólafs-
son yrkir í sólarljóði sínu: .. og
hvar sem tárin kvika á kinn“ „...
og heim í sveitir sendirðu æ“. þeir,
sem færu að bera fram a-ið á und-
an á — eða u-ið á undan æ, yrðu
býsna hjákátlegir, hvort sem þeir
syngju hendingarnar eða læsu
þær upphátt.
Sem gamall Blönduósingur get
ég bent á, að aldrei hef ég heyrt
aðra en ókunnuga bera u-ið fram
til hlítar í þessu orði, og í eyrum
mér verður slíkt framburðarvilla.
Þessi sérhljóði hverfur nær alveg,
og mun það vera nokkuð algild
regla, þegar tveir sérhljóðar koma
þannig saman. Eg minnist líka úr
útvarpinu manna, sem vildu vera
sem skilmerkilegastir og sögðu
t.d. Vestmannaeyjar alveg út í æs-
ar, en fyrir bragðið kom út nokkuð
greinilegt æ-hljóð, sem þar á ekki
heima. Þessvegna skal í mæltu
máli aðeins tæpa á a-inu á undan
eyjar, og verður orðið þá lipurt og
eðlilegt. Auðvitað er hægt að bera
orðið þannig fram, að ekki gæti
æ-hljóðs, en þá þarf að staldra ögn
við á milli atkvæða, og verður það
stirðbusalegt.
Ég vona að þú skellir ekki skoll-
eyrum við þessu, Velvakandi góð-
ur, og ekki heldur hinir, sem hafa
verið að ofleika í framburði orða.
Úrfellingar hljóða eiga vissulega
rétt á sér í framburði íslenzks
máls, eru blátt áfram nauðsynleg-
ar.“
Þessir hringdu . . .
Fyrirspurn til
gatnamálastjóra
íbúi í Skerjafirði hringdi og hafði
eftirfarandi að segja: — Mig lang-
ar til að bera fram eftirfarandi
fyrirspurn til gatnamálastjóra:
Hafa gatnamálayfirvöld borgar-
innar gert nokkrar áætlanir um
að tryggja betur en gert hefur
verið, að samgönguæð íbúanna í
Skerjafirði, þ.e. gatan við enda
flugvallarins, lokist ekki eða verði
illfær vegna snjóa eða vatnselgs.
Það hefur því miður verið títt,
þegar eitthvað hefur verið að
veðri, og er ein ástæðan sú, að gat-
an liggur þarna taisvert fyrir neð-
an flugvallarbrautina. Þegar vind-
ar blása af flugvellinum, skefur
yfir götuna og allt verður ófært.
En þetta er eina leiðin fyrir íbúa
Skerjafjarðar til þess að komast
heim til sín og þess vegna mikil-
vægt fyrir þá að tryggilega verði
um hnútana búið til þess að halda
henni opinni. Og svo er það lýsing-
in þarna. Hún er engin. Hafa verið
kannaðir möguleikar á því að
setja þarna upp götuljós? Þarna
er kolniðamyrkur á dimmum vetr-
arkvöldum og ekki bætir það akst-
ursskilyrðin, sem oft eru erfið
fyrir, eins og ég sagði, og beinlínis
hættuleg.
A að banna
skyrpingar í
sundlaugunum
3287—9128 hringdi og hafði eft-
irfarandi að segja: — Mér finnst
að það ætti að banna fólki að
skyrpa í Sundlaugunum. Heil-
brigðiseftirlitið ætti að sjá svo um
að skilti yrðu sett upp á bökkum
lauganna, þar sem kveðið yrði á
um bann við skyrpingum fólks. Þó
að það eigi að heita svo, að þaö
skyrpi í rennurnar við bakkana,
þá er lítil bót að því, af því að oft
flýtur upp fyrir og þá vitum við í
hverju við erum að synda. Ég er
þarna daglegur gestur á morgn-
Farþegi skrifar 3. sept.:
„Kæri Velvakandi.
Nú veit ég að ég er ekki að
kvarta fyrir mig eina, en ég kem
stundum mjög þreytt heim úr
ana og horfi upp á fólk hrækja í
rennurnar. En mörg okkar sem
þarna komum, erum orðin mjög
þreytt á þessu og okkur býður við
sóðaskapnum sem af því hlýst.
Það er ekki einu sinni svo, að fólk
hitti alltaf í rennuna. Varðandi
skiltið sem ég nefndi má bæta því
við, að það þyrfti aðeins að vera á
íslensku, því að það kemur aldrei
fyrir, að maður sjái útlendinga
bera þetta við.
vinnunni, og þarf eins og margir
aðrir að taka strætisvagn.
Mér blöskrar oft að sjá börnin
sitja og standa aldrei upp fyrir
okkur fullorðna fólkinu. Og um
daginn kom ég örþreytt úr vinn-
unni, og flýtti barnið (á að giska 6
ára gamalt) sér að setjast hjá
móður sinni, sem ekki datt til hug-
ar að biðja dóttur sína að standa
upp.
Nú fara skólarnir bráðum að
byrja og vona ég svo sannarlega
að kennararnir kenni börnunum
svona sjálfsagða mannasiði."
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: Arabar og Israelsmenn hafa löngum veitt hverj-
ir öðrum búsifjar; en friður væri í beggja þágu.
Rétt væri: Arabar og ísraelsmenn hafa löngum veitt hvorir
öðrum þungar búsifjar; en friður væri í þágu hvorra
tveggju (eða hvorra tveggja.)
Blöskrar oft að
sjá börnin sitja
KVIKMYNDAKLÚBBUR
ALLIANCE FRANCAISE
í REGNBOGANUM
Salur E. á annarri hæö
Vikulegar kvikmyndasýningar eru aö hefjast aftur
Miðvikudaginn.8. september kl. 20.30. og fimmtudaginn 16. sept-
ember kl. 20.30 veröur sýnd myndin:
Le Samourai
Sakamálamynd eftir hinn fræga franska leikstjóra Jean-Pierre
Melville
Aöalhlutverk í höndum Alain Delon.
Meö enskum texta Aögangur ókeypis
VORUMARKAÐURINN
ARMÚLAIA
Tilboð á nautahakki:
okkar verð leyft verð
pr. kg.
Nautahakk í 10 kg kr. 79,00 133,00
Nautahakk í 5 kg kr. 85,00 133.00
Nautahakk vigtað kr. 99,50 133,00
Einnig á hagstæðu verði:
Reyktur búöingur kr. 60,50 64,30
Kjötbúðingur kr. 60,90 66,55
Miðdegispylsa kr. 55,30 59,55
Kindakæfa kr. 66,00 74,90
VORUMARKADURINN
ARMULAIA
ALLTAFÁ FIMMTUDÖGUM
BROSTU!
MYNDASÖGURNAR
Vikuskammtur afskellihlátri
►TOFA KRISTÍNAR MF