Morgunblaðið - 29.09.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.09.1982, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR 215. tbl. 69. árg. MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins Vestur-Þýskaland: Samþykkt að fella Schmidt á föstudag Bonn, 28. seplember. AP. ÞINGMENN frjálsra demókrata samþykktu í dag á löngum og storma- sömum fundi að ganga til liðs við stjórnarandstöðuna og styðja van- trauststillögu, sem borin verður fram á Helmut Schmidt kanslara nk. röstudag. Við embætti kanslara mun þá taka Helmut Kohl, formaður Kristilega demókrataflokksins. Fundur þingmanna Frjálsa demókrataflokksins stóð í átta tíma og var deilt mjög hart. Nokkur hluti þeirra sakaði Genscher, leiðtoga flokksins, um að hafa fellt stjórn Schmidts að þeim fornspurðum og að til þess mætti rekja hrakfarir flokksins í fylkiskosningunum í Hessen. Stuðningur við vantrauststillögu stjórnarandstöðunnar var þó samþykktur að lokum með 38 at- kvæðum gegn 18, tveir sátu hjá, enda eru frjálsir demókratar sagðir úr því sem komið er ekki mega til kosninga hugsa í bráð. Herbert Wehner, frammámað- ur meðal jafnaðarmanna, fór í dag hörðum orðum um ákvörðun frjálsra demókrata og stjórnar- andstöðunnar og sagði, að þeir skeyttu engu um vilja þýskra kjósenda, sem væru hlynntir taf- arlausum kosningum. „Við mun- um komast að því á föstudag hvort þjóðinni verður hlíft við stjórnartilraunum þessa manns (Kohls), sem jafnvel hans eigin stuðningsmenn telja ekki fram- bærilegan," sagði Wehner. Schmidt hélt í dag fund með þing- mönnum jafnaðarmanna og hvatti þá til að gera allt, sem í þeirra valdi stæði, til að hindra vantrauststillöguna, sagði að Kohl og Genscher hefðu ekkert umboð frá þjóðinni til að bera hana fram. Helmut Kohl, formaður kristi- legra demókrata, kom fram í sjónvarpi í dag og kvaðst viss um að vantrauststillagan næði fram að ganga, enda væri stuðningur 34 þingmanna frjálsra demókrata meira en nóg til þess. Margir eru hins vegar efins um snurðulaust samstarf frjálsra demókrata og núverandi stjórnarandstöðu, einkum við Strauss, sem farið hefur háðulegum orðum um Genscher og dekur hans við stjórnarandstöðuna í rúmt ár. Michael Foot, leiðtogi breska Verkamannaflokksins, sýndi ýmis svipbrigði þegar hann hlýddi á ræður manna á landsfundi flokksins í Blackpool í gær. Þá var haldið áfram aðgerðum gegn vinstriöfgamönnum og lýsti Tony Benn þróuninni sem „mikilli hægrisveiflu'*. Landsfundur breska Verkamannaflokksins: Vinstri menn felldir úr framkvæmdaráði Blackpool, Knglandi, 28. september. AP. HÓFSAMIR menn í breska Verkamannaflokknum, sem plagaður hefur verið af innbyrðisátökum síðan í kosningunum 1979, fógnuðu í dag enn einum sigrinum á landsfundi flokksins þegar sex öfgafullir vinstrimenn voru felldir við kjör til framkvæmdaráðsins, æðstu stjórnar flokksins. Michael Foot, leiðtogi flokksins, og stuðningsmenn hans hafa nú töglin og hagldirnar í framkvæmdaráðinu. í gær, mánudag, samþykkti landsfundurinn að reka úr flokkn- um róttæk samtök trotskýista og atburðirnir í dag benda til, að meirihluti flokksmanna vilji losna við það öfgafulla vinstriyfirbragð, sem verið hefur á flokknum að undanförnu. Tony Benn, helsti talsmaður vinstrimannanna, var ekki felldur við kjör í fram- kvæmdaráðið, en hann sagði að því loknu, að „mikil hægrisveifla" hefði orðið í flokknum. í ræðu, sem Foot flutti á lands- fundinum í dag, vék hann ekki orði að átökunum í flokknum en gerði hins vegar harða hríð að stefnu Margaret Thatchers, for- sætisráðherra, og Ronalds Reag- ans, Bandaríkjaforseta. Hann kvað stefnu þeirra eiga alla sök á samdrættinum í efnahagslífinu og atvinnuleysinu og hét því, að ef Verkamannaflokkurinn kæmist til valda myndi tala atvinnulausra verða komin niður fyrir milljón innan fimm ára. Trúarleidtogar hittast Jóhannes Páll páfi II og Dalai Lama, andlegur leiðtogi búddatrúarmanna í Tibet, áttu með sér fund í Páfagarði í gær og sjást þieir skiptast á gjöfum við það tækifæri. Að fundinum loknum hélt Dalai Lama til Spánar en þaðan mun hann fara til annarra Evrópulanda. AP. Óháð rannsókn á fjöldamorðunum Begin lét undan af ótta við stjórnarslit Jerúsalem, Beirút, 28. september. AP. ÍSRAELSKA ríkisstjórnin ákvað í dag að láta undan vaxandi þrýstingi meðal þjóðarinnar og fyrirskipaði fullkomna rannsókn á atburðunum, sem leiddu til fjöldamorðanna í flóttamannabúðunum í Beirút. ísraelskir hermenn fóru í dag frá hafnarsvæðinu í Beirút og hafa ítalskir og líbanskir hermenn nú tekið sér stöðu þar. í dag var skotið á einn af leiðtogum PLO í Austur-Líban- on og lést hann seinna af sárum sínum. í tilkynningu frá ísraelsku rík- isstjórninni í dag sagði, að nefnd yrði skipuð til að rannsaka fjölda- morðin í Beirut og að hún myndi hafa fullkomlega frjálsar hendur í störfum sínum. Hún á að fá að- gang að öllum upplýsingum, sem hún fer fram á, og eru menn skyldugir til að bera vitni frammi fyrir henni að viðlagðri refsingu. Begin hefur til þessa þráast við að láta fara fram hlutlæga rannsókn á fjöldamorðunum en hefur nú neyðst til þess í kjölfar fjölmenn- asta útifundar í sögu Ísraelsríkis en sl. laugardag kröfðust 400.000 manns afsagnar Begins og Shar- ons vegna atburðanna í Beirút. Að auki höfðu tveir samstarfsflokkar hans í ríkisstjórn hótað að hætta stuðningi við stjórnina ef honum snerist ekki hugur. Stjórnarandstaðan í ísrael hef- ur fagnað þessari ákvörðun en segir að kanna verði einnig innrás Israelshers inn í Vestur-Beirút, sem hafi verið gerð undir því yfir- skyni að koma þar á lögum og reglu. í líkan streng hafa forystumenn ísraelsku friðarhreyfingarinnar tekið en krefjast eftir sem áður tafarlausrar afsagnar Begins og Sharons. ísraelar fóru í dag frá höfninni í Beirútborg og hafa ítalskir og líb- anskir hermenn nú tekið við gæslu þar. Langflestir frönsku og ítölsku hermannanna í gæsluliði þriggja þjóða eru komnir til Beirút en 800 bandarískir hermenn neita að stíga á land fyrr en síðasti ís- raelski hermaðurinn er farinn frá borginni. Saad Sayel, háttsettur maður í hersveitum PLO, var í dag veginn í fyrirsátri, sem honum var veitt í Austur-Líbanon. Hann fór til Sýrlands á dögunum en kom aftur til Líbanons fyrir viku. „Innrás“ í Albaníu brotin á bak aftur Vín, 28. sept. AP. YFIRVÖLD í Albaníu sögdu frá því í dag, að hermenn og öryggissveitir hefdu yfirbugart og „upprætt“ innrásarmenn, sem stigið hefðu á land á Adría- hafsströnd landsins. í yfirlýsingunni, sem hin opinbera fréttastofa ATA flutti, sagði, að mennirnir hefðu verið „eftirlýstir, albanskir glæpamenn" en ekki var sagt hve margir þeir voru. Mönnum á Vesturlöndum, sem fróðir eru um albönsk málefni, finnast þessar fréttir dálítið skrítnar og sumir hafa látið sér detta í hug, að þær séu uppspuni og eigi að leiða athyglina frá öðr- um atburðum í Albaníu, þessu lokaðasta landi í heimi. Fréttin var fyrst flutt í Tirana-útvarpinu í gærkvöldi og kom nokkru eftir að framámaður í albanska kommún- istaflokknum, Ramiz Alia, lét orð um það falla í útvarpinu, að and- stöðu væri farið að gæta í landinu. Talaði hann þar um „innri óvini“, sem hefðu tekið höndum saman við rússneska, serbneska og ítalska óvini þjóðarinnar. Að sögn Tirana-útvarpsins var „innrásin“ gerð aðfaranótt sl. sunnudags og hefði „glæpamaður- inn Xhevdet Mustafa" stjórnað henni. Dollarar og ítalskar lírur fundust á mönnunum, að sögn, og einnig útvarpssendir, andlitslitur, alls kyns fatnaður o.fl. Albanskir sendiráðsmenn á Vesturlöndum, sem haft hefur verið samband við, segjast ekkert þekkja til Xhevdet Mustafa að undanskildum einum, sem ekki vildi láta nafns síns get- ið, en hann kvað Mustafa vera „glæpamann“, sem flúið hefði land árið 1944.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.