Morgunblaðið - 29.09.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1982
3
„Ríkisstjórnin mun vinna
að hjöðnun verðbólgu ...“
LÍNURITINU er skipt niður í
fjögur tímabil. Frá 1960 til júlí
1971 sat viðreisnarstjórnin við
völd, samstjórn Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðuflokks. Eins
og sjá má tók verðbólgan þá
stutt stökk en fljótlega náðist
aftur stjórn á henni. I júlí 1971
myndaði Ólafur Jóhannesson,
fyrra ráðuneyti sitt, en þar
sátu, auk framsóknarmanna,
ráðherrar úr Alþýðubandalagi
og Samtökum frjálslyndra og
vinstri manna. Á þessum árum
stefndi verðbólgan beint upp. í
ágúst 1978 myndaði Geir Hall-
grímsson ríkisstjórn með aðild
Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks. í tíð þeirrar
stjórnar var gert átak til að
hemja verðbólguna og bar það
nokkurn árangur en á árinu
1977 hallaðist aftur á ógæfu-
hliðina eftir óraunhæfa kjara-
samninga (sólstöðusamn-
ingarnir). Ólafur Jóhannesson
myndaði annað ráðuneyti sitt í
lok ágúst 1978, að þessu sinni
með ráðherrum úr Alþýðu-
bandalagi og Alþýðuflokki, auk
framsóknarmanna. Verðbólgan
VERÐBOLGA1960-1983
65 '67 69 '71 '73 '75 77 '79 '81 '83
rauk upp, ríkisstjórnin sprakk
haustið 1979 og eftir fjögurra
mánaða minnihlutastjórn Al-
þýðuflokksins myndaði Gunn-
ar Thoroddsen núverandi ríkis-
stjórn í febrúar 1980.
Ríkisstjórn Gunnars Thor-
oddsens setti sér skýrt mark-
mið í baráttunni við verðbólg-
una: „Ríkisstjórnin mun vinna
að hjöðnun verðbólgu, þannig
að á árinu 1982 verði verðbólg-
an orðin svipuð og í helstu við-
skiptalöndum íslendinga," seg-
ir í stjórnarsáttmálanum.
Samkvæmt honum hefði verð-
bólgulínan átt að vera þannig á
teikningunni fyrir árið í ár,
1982, að hæsti tindurinn væri
eins og 1960. En því miður
vantar mikið á að svo sé og
spáð er um 60% verðbólgu 1983
eins og fram kemur á teikning-
unni.
Hér er miðað við vísitölu
framfærslukostnaðar. Nýjustu
tölur um vísitölu byggingar-
kostnaðar sýna um 86% hækk-
un verðbólgu á einu ári og láns-
kjaravísitalan mælir 84%
verðbólguhraða.
Viðræður um Keldna-
land hefjast innan tíðar:
Menn eiga
að geta náð
saman með
góðum vilja
— segir Vilhjálmur
Lúðvíksson
„VIÐ VERÐUM fljótlega til með
niðurstöðu og það eina sem ég get
sagt, er að ég sé ekki annað en að
menn eigi að geta náð saman með
góðum vilja," sagði Vilhjálmur Lúð-
viksson efnaverkfræðingur í samtali
við Mbl. í gær, en hann á sæti í
starfshópi sem menntamálaráðherra
hefur skipað til að gera úttekt á
landþörf Keldna.
Ástæða þess er sú að Reykjavík-
urborg hefur gert skipulag að
svæðinu við Grafarvog, en sam-
kvæmt því mun borgin yfirtaka
hluta af Keldnalandi. Vilhjálmur
Lúðvíksson vildi ekki tjá sig um
skýrslu þá sem starfshópurinn er
að vinna um þetta efni, en sagðist
búast við að hún yrði tilbúin í
næstu viku, en þá verður hún af-
hent menntamálaráðherra.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
formaður skipulagsnefndar
Reykjavíkurborgar, sagði að form-
legar viðræður við Keldnamenn
um yfirtöku borgarinnar á hluta
Keldnalands myndu væntanlega
hefjast í byrjun næsta mánaðar.
Kvað hann skipulagsvinnu af
svæðinu vel á veg komna og ekki
væri eftir neinu að bíða. Sagði
hann að skipulagsnefnd, umhverf-
ismálaráð, nokkrir starfsmenn
Borgarskipulags og skipulags-
hönnuðir hefðu skoðað Grafar-
vogssvæðið á mánudag, og hefði
þá verið gerð grein fyrir staðhátt-
um á svæðinu, miðað við skipulag-
ið. Að því loknu hefðu menn heim-
sótt Keldur og hitt að máli Guð-
mund Pétursson forstöðumann, en
hann á sæti í fyrrgreindum
starfshópi.
Með Ajax þvottaefiii
verður misliti þvotturiim alveg
jafii hreinn og suðuþvotturinn.
Skjanna-hvítur suðuþvottur
Ajax þvottaefni inniheldur virk efni sem ganga alveg
inn í þvottinn og leysa upp bletti og óhreinindi strax
í forþvottinum. Þannig er óþarft að nota sérstök for-
þvottaefni.
Tandurhreinn mislitur þvottur
Ajax þvottaefni sannar einnig ótvíræða kosti sína á
mislitum þvotti, því að hin virku efni vinna jafn vel
þó að þvottatíminn sé stuttur og hitastigið lágt.
Þvotturinn verður tandurhreinn og litirnir skýrast.
Gegnumhreinn viðkvæmur þvottur
Viðkvæmi þvotturinn verður alveg gegnumhreinn
því að hin virku efni vinnna jafnvel, þó að hitastig
vatnsins sé lágt. Blettir og óhreinindi leysast því
vandlega upp. Ajax þvottaefni hentar því öllum
þvotti jafnvel ...
Effektivt vaskepulver
til aHe vaskeprogrammer
Lágfreyðandi Ajax þýðir: gegnumhreinn þvottur með öllum þvottakerfum.