Morgunblaðið - 29.09.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 1982
7
Öllum þeim sem heibrubu mig meb nærveru sinni, gjöf-
um, skeytum og símtölum á áttatíu ogfimm ára afmæli
mínu, 24. september, þakka ég af alhug. Gub blessi ykk-
ur öll.
Sveinn Hallgrímsson
Lærið
vélritun
Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar,
engin heimavinna. Innritun og upplýsingar
í síma 41311 eftir kl. 13.00.
Ný námskeið hefjast
þriðjudaginn 5. október.
Vélritunarskóiinn
Suöurlandsbraut 20.
Til sölu geysifallegur og vel meö farinn DODGE 400,
2ja dyra lúxusfólksbíll.
Framhjóladrifinn, meö sjálfskiptingu, vökvastýri, afl-
hemlum, lituöum glerjum, plusssætum, rafm.læsing-
um, rafm. opnanlegar rúöur og skottlok. Ekinn 11000
km, litur Mahogany-brúnn metalic, Ijósbrúnt vinyl-
þak. Teppalagöur í hólf og gólf. Hjólbaröar 14
tommu, vetrarhjólbaröar fylgja. Pioneer-stereoút-
varp og segufband, powermagnari og fjórir hátalarar.
Verð 355.000 kr.
Skipti koma til greina á góöum Range Rover.
Bifreiðin er til sýnis aö Ármúla 23, BRIMBORG hf.,
sími 85870.
Dodge 400 —1982
Kennsla hefst í byrjun október Byrjendaflokkar: Tvisvar í viku S Framhaldsflokkar: Tvisvar— i þrisvar í viku. Opnir flokkar: Einu sinni í viku. Aðalkennarar: Sigríöur Ármann og Ásta Björnsdóttir. Innritun í síma: 72154.
BRLLETSKÓU 5IGRÍÐRR RRmflm SKÚLACÖTll 32 -34 <>ÓO 1
LITGREINING MEÐ
CROSFIELD
540
LASER
LYKILLINN AÐ VANDAORI LITPRENTUN
MYNDAMÓTHF.
„Matvælavandamálið enn á dagskrá
Hin tilvitnuöu orö voru send út af APN, áróðursskrifstofu
sovéska sendiráösins í Reykjavík og eru úr grein eftir Mikhail
Gorbachyov um sovéskan landbúnaö. Þar kemur fram, aö
höfundur telur þaö sérstakt fagnaöarefni aö á árunum
1966—'80 skuli hafa tekist aö „bæta mataræöi" sovésku
þjóöarinnar þótt henni fjölgaði um 35 milljónir á þessum
árum. Engu aö síður er „matvælavandamálið þó enn á
dagskrá hjá okkur", segir greinarhöfundur og vísar til þess
aö eftir 65 ára stjórn kommúnista svelta menn enn í Sovét-
ríkjunum og myndu veröa hungurmoröa ef þeir fengju ekki
matvæli frá Vesturlöndum.
Verra og betra
atvinnuleysi
l>að er engin undantekn-
ing frá þeirri reglu, að
menn þurfa að setja sig í
einkennilegar og sérstakar
stellingar, þegar þeir taka
sér fvrir hendur að skiptast
á skoðunum við I’jóðvilj-
ann um atburði á alþjóða-
vettvangi. Eins og á var
bent í Staksteinum á laug-
ardaginn hafa þeir l’jóð-
viljamenn nú tekið afstöðu
í málefnum NATO — þeir
eru ekki lengur á móti
bandalaginu en hafa hins
vegar ákveðnar skoðanir á
því, hvaða varnarstefnu
það eigi að fylgja gagnvart
vígbúnaði Sovétmanna.
I’egar menn töldu innrás
frá Sovétríkjunum í Pól-
land yfirvofandi, var þeirri
skoðun lýst í pjóðviljanum
að „lífsháski lýðræðisins"
kæmi frá hægri. Með þetta
heilræði í huga er vafasamt
að treysta mati pjóðvilja-
manna þegar þeir taka sér
fyrir hendur að setja
NATO lífsreglur í hermál-
um. En þótt þeir á Þjóðvilj-
anum vilji „komast inn í
NATO-umræðuna“ halda
þeir enn fast við þá skoð-
un, að sósíalísk efna-
hagskreppa sé betri en
kapítalísk, það sé betra að
búa við vaxandi atvinnu-
leysi undir forsjá jafnað-
armannsins Mitterrands í
Frakklandi en kapítalist-
ans Reagans í Bandarikj-
unum.
llmmæli þjóðviljans og
raunar Tímans líka um
þróun efnahagsmála í
nágrannalöndum okkar
verða ekki skilin á annan
veg en þann, að það sé til
dæmis betra að vera at-
vinnulaus i Danmörku, af
því að þar hafa jafnaðar-
menn stjórnað, en í Bret-
landi þar sem íhaldsmenn
hafa farið með völd. Slíkt
mat á atvinnuleysi er auð-
vitað út í hött, en hitt er þó
alvarlegra fyrir hina at-
vinnulausu, að í ríkisfor-
sjárlöndum, svo sem eins
og Frakklandi núna, sjá
menn ekki fram á annað
en vaxandi ofstjórn og
íhlutun rikisins og þar með
daprara útlit í atvinnumál-
um ef Mitterrand snýr
ekki af óheillabraut sósíal-
ismans — i Bretlandi og
Bandaríkjunum hafa
stjórnmálamenn hins veg-
ar verið að snúa ofan af
ríkisforsjánni og skapa
heilbrigð og eðlileg skilyrði
til atvinnuuppbyggingar.
Árangurinn verður skýrast
mældur með því, að gjald-
miðlar Bandaríkjanna og
Bretlands styrkjast á sama
tíma sem verðgildi franska
frankans fellur jafnt og
þétt.
Litlar kröfur
l>að er til marks um hin-
ar litlu kröfur sem sósíal-
istar á Vesturlöndum gera
til þjóðfélaganna fyrir aust-
an járntjald, að þeir skuli
um nokkurra ára skeið
hafa hampað llngvtrja-
landi sem miklu fyrir-
myndarríki og látið í veðri
vaka að þar sé jafnvel að
finna fordæmi fyrir okkur
sem enn búum að nafninu
til að minnsta kosti við
frjálst hagkerfi. I>essi að-
dáun á „efnahagsundrinu“
i llngverjalandi kemur víða
fram og af skrifum l>jóð-
viljans um málið mætti
halda að alþýðubandalags-
menn séu að velta þvi fyrir
sér að breyta stefnuskrá
sinni, falla frá hugmyndum
um „pólska kerfið" sem
þar er að finna og kjósa
frekar „ungversku leið-
ina“.
f sjónvarpsþætti BBC
sem hér var sýndur á
mánudagskvöldið var
greint frá efnahagsvanda
kommúnistaríkjanna í
Austur-Evrópu og llng-
verjaland tekið sem dæmi
vegna þess að þar er ekki
allt í kaldakoli. En hver var
helsti munurinn á llng-
verjalandi og öðrum
Austur-Evrópuríkjum? Jú,
menn virtust hafa þar nóg
að borða. I>að nægir sem
sé til að hefja kommúnista-
ríki upp á æðsta stall og
tala um „efnahagsundur",
ef þegnarnir fá nóg að
borða og geta valið á milli
fleiri en einnar tegundar af
kjöti.
Samanburðar-
fræðin
l>egar litið er á hug-
myndir l'jóðviljamanna um
verra og betra atvinnuleysi
í lýðra'ðisríkjunum og lof
þeirra um „efnahagsund-
ur“ i kommúnistaríkjunum
vegna þess að þar svelta
þegnarnir ekki, er nauð-
synlegt að minna á „sam-
anburðarfræðina" sem
þeir stunda á Vesturlönd-
um er telja sér og skoðun-
um sínum fyrir bestu að
bera blak af Sovétríkjun-
um. l'jóðviljinn hefur lagt
sig mjög fram í saman-
burðarfræðum, stefið í
þeim er þetta: Við berum
saman gjörðir Bandarikja-
manna og Sovétmanna til
dæmis í El Salvador og
AfganLstan og komumst að
þeirri niðurstöðu eftir að
hafa farið í hringi og ýmsa
króka, að þrátt fyrir allt
séu Bandaríkin verra risa-
veldi en Sovétríkin. I»essa
niðurstöðu setjum við síð-
an fram með siðferðilegum
þjósti og hörðum kröfum
um breytta stjórnarhætti á
Vesturlöndum, við lýsum
„herskáum" ráöamönnum
þar og mannvonsku þeirra
sem bitnar ekki aðeins á
öðrum þjóðum heldur einn-
ig þeim sem minna mega
sín heima fyrir, þar sem
þannig er haldið á málum
aö markvisst er stefnt að
því að svipta almenning fé-
lagslegri þjónustu og gera
sem flesta atvinnulausa en
fjármunum þess í stað var-
ið til að smíða gjöreyð-
ingarvopn og semja áætl-
anir um takmörkuð kjarn-
orkustríð. I>etta er heims-
mynd samanburðarfræð-
innar og núverandi stefna
l’jóðviljans í alþjóðamál-
um.
Síðasti
innritunardagur
Jazzballett.
Sértimar fyrir eldri borgara.
Einkatímar.
Sértímar í gömlu dönsunum.
Barnaflokkar.
Samkvæmisdansar.
Freestyle-dansar.
Konubeat.
Rock n’Roll
INNRITUN OG UPPLÝSINGAR
KL. 10—12 OG 13—19
Símar
r),l:0 20345,24959,
38126, 74444.
onnssHfiu
KENNSLUSTAÐIR
Reykjavík
Brautarholti 4,
Drafnarfell 4,
Tónabær
Ársel (Arbæ)
Bústaöir
Kópavogur
Hamraborg 1,
Hafnarfjööur
Gúttó
Seltjarnarnes
Félagsheimiliö
2*2$,