Morgunblaðið - 02.10.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 02.10.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1982 Eflum(eínö>flokk til ábyrgðar Hausthappdrætti S j álfstæðisflokksins 1982 Bifreiðavinningar að verðmæti kr. 115.000,- Verð kr. 60,- Dregið 16. október 1982 Hausthappdrætti Sjálfstæðisflokksins: Happdrættið drýgsta fjáröflunarleiðin HAWffTHAPPDRÆTTI SjáirsUeðisilokksins stendur nú yfir. Að venju hafa fiokksmenn um land allt fengið senda happdrættismiða ásamt bréfi frá formanni, varaformanni og framkvæmdastjóra fiokksins. í þessu bréfi segir m.a.: „Eins og flestum er eflaust í fersku minni fóru í maí sl. fram sveitarstjórnakosningar. í þeim kosningum vann Sjálfstæðis- flokkurinn stórsigur og endur- heimti m.a. meirihluta sinn í höf- uðborginni, Reykjavík. Þessi sigur vannst vegna góðrar málefna- stöðu og öflugs sameiginlegs átaks þúsunda karla og kvenna sem styðja stefnu Sjálfstæðis- flokksins. Sjálfstæðisflokkurinn færir öllu þessu fólki bestu þakkir fyrir ómetanlegan stuðning.“ Þá segir og í bréfinu: „Sjálf- stæðisflokkurinn leitast við að halda uppi öflugu stórnmnála- og félagsstarfi árið um kring. Fjár til þess starfs aflar flokkurinn hjá stuðningsmönnum sínum. Happ- drætti flokksins eru ein drýgsta fjáröflunarleiðin og nú er enn á ný leitað eftir stuðningi þínum við flokkinn og þess farið á leit við þig að þú styrkir flokkinn með kaupum á happdrættismiðum." Að sögn framkvæmdastjóra flokksins, Kjartans Gunnarsson- ar, er fjárhagsstaða flokksins nú mjög erfið vegna mikils kostnaðar við sveitarstjórnakosningarnar sl. vor og því afar brýnt að flokks- menn bregðist vel við og geri góð skil í happdrættinu. Vinningarnir í happdrættinu eru 3 Colt-fólks- bifreiðir að verðmæti um 48.000,- kr. hver. Afgreiðsla happdrættis- ins í Reykjavík er í Valhöll, Háa- leitisbraut 1, s. 82900, en dregið verður 16. október nk. Norræna húsiö: Sýning á verkum álensks málara Yfirlitssýning á verkum álenska málarans Guy Frisks verður opnuð í sýningarsölum Norræna hússins í dag. Guy Frisk kom hingað til lands fyrir ári og setti upp sýningu á samtímalist frá Álandseyjum í Norræna húsinu. Hann kemur því ekki við að vera viðstaddur opnun sýningar sinnar nú, en Helgi Gíslason myndhöggvari hefur sett upp sýninguna. Á sýningunni í Norræna húsinu eru 95 verk, olíumálverk, vatns- litamyndir, teikningar og verk unnin með blandaðri tækni. Ný- skipaður sendiherra Finnlands á Islandi, Martin Isaksson, sem er frá Álandseyjum flytur ávarp við opnunina. 5 Strengjasveit Tónlistarskólans: Hafnaði i fjórða sæti á mótinu í STKENGJASVEIT TónlisUrskólans í Reykjavík hafnaði í fjórða sæti alþjóð- legrar keppni strengjasveiU, sem lauk á fimmtudagskvöld í Belgrad í Júgó- slavíu. Hlaut sveitin átU þúsund krónur í verðlaun. Fjöldamargar sveitir kepptu í Júgóslavíu, og varð sveit Tónlist- arskólans ein þeirra sjö er komust í úrslit. Sveitin var eina sveit nem- enda á mótinu, allar hinar sveitirn- ar voru skipaðar atvinnufólki. Sveit Tónlistarskólans skipa 11 hljóð- færaleikarar, tveir piltar og níu Belgrad stúlkur, öll á aldrinum 15 ára til 22ja. Stjórnandi er Mark Reedman. Strengjasveitinni gekk sem fyrr segir mjög vel í allri keppninni og árangur hennar telst mjög góður, en reynsluleysi háði íslendingunum á lokasprettinum, þegar margir tónleikar voru haldnir með stuttu millibili. Félagar í strengjasveitinni kost- uðu sig að mestu leyti sjálfir til far- arinnar, en frá menntamálaráðu- neyti kom þó 5 þúsund króna styrk- ur og auk þess 20 þúsund króna styrkur frá Reykjavíkurborg. Akranes: Jónas Guðmundsson með málverkasýningu Jónas Guðmundsson opnar á laugardaginn málverkasýningu í Bókasafninu á Akranesi. Á sýningunni verða rúmlega 30 verk og eru það myndir mál- aðar á þessu og síðasta ári. Sýn- ing Jónasar verður opin frá 14—22 á laugardögum og sunnudögum, en á öðrum dög- um á venjulegum opnunartíma bókasafnsins. Sýningunni lýkur sunnudag- inn 10. október næstkomandi. Jónas Guðmundsson Haukur Ingibergsson Nýr fram- kvæmdastjóri Framsókn- arflokksins Á fundi framkvæmdastjórnar Framsóknarfiokksins sl. fimmtudag var Haukur Ingibergsson ráðinn framkvæmdastjóri Framsóknar- flokksins og tekur hann við starfinu hinn 1. janúar nk. af Þráni Valdi- marssyni sem gegnt hefur þessu starfi í 35 ár. Á þessum sama fundi ákvað flokksstjórn Framsóknarflokksins að boða til flokksþings dagana 13.—15. nóvember, en siðasta flokksþing Framsóknarflokksins var haldið í mars 1978. Eldur í fjár- húshlöðu Klds varð vart i fjárhúshlöðu á bæn- um Hæringsstöðum í Stokkseyrar- hreppi um klukkan 19.30 á miðviku- dagskvöldið. Er talið að um sjálfs- íkveikju hafi verið að ræða út frá hita í heyinu, og skemmdist talsvert magn af heyi. Hlaðan skemmdist á hinn bóginn ekki. Slökkviliðið á Stokkseyri kom á vettvang og gekk tiltölulega greið- lega að slökkva eldinn, en ekki ligg- ur enn fyrir hversu mikið tjón bóndans á Hæringsstöðum er. a ■ i /-\ a r-» r-. „ r. rt r. AMkikiiiniiA rnt ■ / ■ jn aa jn nn A LAUGARDAG OG SUNNUDAG FRÁ KL. 10.00 -18.00 MITSUBISHI 983 MITSUBISHI MITSUBISHI CORDIR FRAMHJÓLADRIF - SPARNAÐARGÍR A\ \}j FRAMHJÓLADRIF - SPARNAÐARGÍR |h]heklahf Laugavegi 170-172 Sími 21240

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.