Morgunblaðið - 02.10.1982, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 02.10.1982, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1982 38 • Karl Heinz Rummenigge, fyrirliði v-þýska landsliösins í knatt- spyrnu. Talinn besti knattspyrnumaöur Evrópu árin 1980 og 1981. Jafnframt mesti markaskorarinn í „Bundesligunni". Ljósmynd: Pálmi Guómundston. Alberto loks hættur eftir 20 ár í eldlínunni „Mér líður eins og mér líöur venjulega eftir knattspyrnuleiki, ég er þreyttur. Ég veit ekki svo sem hvernig ég bjóst viö aö mér myndi líöa, aö minnsta kosti er ég búinn aö búa mig undir þessa stund síðan í fyrra,“ sagöí hinn gamalkunni brasilíski landsliös- maöur í knattspyrnu Carlos Al- berto í samtalí viö AP í fyrradag, en þá lék hann sinn síöasta leik á ferlinum, meö New York Cosmos gegn Flamengo frá Brasilíu. Al- berto á að baki 20 ára glæstan feril sem knattspyrnumaöur og Franz „keisari" Beckenbauer sagöi eigi alls fyrir löngu: „Hann er einhver snjallasti knattspyrnu- maöur sem uppi hefur veriö.“ Síöustu fimm keppnistímabilin lék Alberto með Cosmos og þrjú árin var hann kjörinn besti varnar- maöur amerísku knattspyrnunar. Hátindur kappans var þó áriö 1970, er hann var fyrirliöi brasil- iska landsliösins sem vann heims- meistaratitilinn. Leikur Cosmos gegn Flamengo þótti skemmtilegur á aö horfa og fáir léku betur en Alberto „gamli". Flamengo haföi yfirburöi í fyrri hálfleik og komst þá í 3-0 meö mörkum Zico, Junior og Wilsinho. Cosmos setti Suöur Ameríkumanninn Cabanas inn á í síöari hálfleik og gerbreytti hann leiknum. Cosmos jafnaöi þá metin og hinn síungi Giorgio Chinaglia skoraöi öll mörkin, tvö úr vítum. Met Arnar Clausen í 200 m grind fallið Aldurhnigið íslandsmet Arnar Clausen ÍR í 200 metra grindahlaupi var slegið á innanfélagsmóti á Laugardalsvelli um helgina. Þeir Stefán Hallgrímsson og Hjörtur Gíslason úr KR komu hnífjafnir í mark á 24,2 sekúndum, en met Arnar var 24,4 sekúndur. Metið haföi staðiö af sér margar mettilraunir í rúma þrjá áratugi, örn setti þaö 1951. — ágás. Ásgeir lenti hjá skökku félagi er hann kom til Bayern Miinchen — segir Rummenigge í viðtali við Morgunblaðið í íþróttablaöi Morgunblaösins á þriðjudag veröur birt viðtal viö frægasta knattspyrnumann Evr- ópu, fyrirliöa v-þýska landsliös- ins í knattspyrnu, Karl Heinz Rummenígge. Karl var kjörinn knattspyrnumaöur Evrópu árin 1980 og 1981 og er talinn einn besti knattspyrnumaöur sem fram hefur komið um langt skeið. í viötalinu kemur margt fram en Rummenígge svaraöi spurning- um blaðamannsins af hreinskilni og var mjög opinskár. Hann segir meöal annars frá því er hann var hálfgeröur vikapiltur hjá Bayern og uppnefndur „Rauö- hausinn". Þá segir hann aö Ásgeir hafi lent hjá skökku félagi er hann lenti hjá Bayern Múnchen. Rumm- enigge segir jafnframt aö þaö hafi aldrei staöiö til aö Asgeir ætti aö taka viö stööu Paul Breitners. Breitner er betri knattspyrnu- maöur en Asgeir, segir Rummen- igge ennfremur. Um þjálfara Bay- ern, hinn umdeilda Ungverja Csernai, segir Rummenigge aö hann sé fyrsta flokks þjálfari og fáir viti meira um knattspyrnu en hann. Rummenigge segir einnig frá heimsmeistarakeppninni á Spáni og ýmsu fleiru í viötalinu. — ÞR. Dregid í Evrópumótunum í knattspyrnu: Margir athyglisverðir leikir komu upp úr hattinum Dregiö var í gær í 2. umferö Evrópumótanna þriggja í knattspyrnu og veröa eins og vænta mátti margir stórleikir á dagskrá, er leikir umferöarinnar fara fram dagana 20. október og 3. nóvember. í Evrópu- keppni meistaraliöa eru athyglisverðustu viöureignirnar leikir Stand- ard Liege og Juventus annars vegar og hins vegar Real Sociedad og Celtic. Er hætt við aö Spánverjarnir veröi aö gera betur en gegn Víkingi á dögunum ef liöiö ætlar sér einhvern frekari hlut í keppni þessari. Þá má glöggt sjá á drættinum hér aö neðan, að Liverpool hefur haft heppnina meö sér rétt einu sinni, hins vegar veröur róður- inn þungur hjá Aston Villa. Drátturinn var annars sem hér segir: Standard Liege — Juventus Liverpool — JK Helsinki Dínamo Búkarest — Aston Villa Real Sociedad — Celtic Hamburger SV — Olympiakos Pireus Rapid Vín — Widzew Lodz CSKA Sofia — Sporting Nentori Tirana — Dínamo Kiev • Ricardo Villa t kröppum dansi er Tottenham mætti Barcelona í undanúrslitum UEFA-keppninnar á síöasta keppnistímabili. Totten- ham fær ekki lakari mótherja í Evrópukeppni bikarhafa að þessu sinni, þýska stórliöið Bayern MUnchen. Moran og Wright sakað ir um að hafa nauðg- að sænskri stúlku Tveir leikmenn enska 1. deildar liösíns Southamp- fon, þeir Steve Moran og Mark Wright, voru hand- teknir í Norrköpíng I Svíþjóö í fyrrakvöld, grunaöir um aö hafa nauögaö sænskri stúlku. Sú sænska taldi fjóra leikmenn liösins hafa nauögað sér og gaf hún lög- reglunni í Norrköping greinargóöa lýsingu á þeim öllum, en nöfn hinna tveggja hafa ekki verið gefin upp. Þannig er mál meö vexti, aö knattspyrnuliö South- ampton mætti Norrköping í síöari leik liöanna í 1. umferö UEFA-bikarkeppninnar. Jafn- tefli varð, 0—0, en þaö nægöi sænska liöinu tíl aö slá Southampton óvænt út úr keppninni. Eftir leikinn ætl- uöu leikmenn enska liösíns aö iyfta sér upp, fóru á næt- urklúbb og þar hittu þeir um- ■ ædda stúlku. Mun hún hafa fallist á aö fara meö þeim á gistihús þaö sem liöiö bjó á, en þaö sem í kjölfariö fylgdi mun ekki hafa fariö fram með samþykki stúlkunnar. Þeir Moran og Wright hafa neitaö alfariö ákærum stúlkunnar. Ef þeir veröa sekir fundnir, geta þeir átt von á allt frá 2 ára fangelsi til 10 ára. Wright er 19 ára gamall og fremur lítt þekktur. Hann var keyptur frá Oxford á siöasta timabili og hefur haslaö sér völl í aöalliöi féfagsins i haust. Moran er þekktari, hann þykir einn snjallasti framherji ensku knattspyrnunnar, var til dæm- is kosinn efnilegasti ungi leik- maöur ensku knattspyrnunn- ar á siöasta keppnistimabili. Hvorugur þeirra er genginn í þaö heilaga, en stutt mun vera síöan aö Moran opin- beraöi trúiofun sína og ungrar stúlku í Southampton. Evrópukeppni bikarhafa: Hér er einn sannkallaöur stór- leikur á feröinni, en Tottenham og Bayern Múnchen drógust saman og á enska liðið heimaleikinn á undan. Lárus Guðmundsson og fé- lagar ættu aö eiga sæti víst í 3. umferö, en ÍBV-banarnir frá Pozn- an í Póllandi fá nú mótherja af ööru sauöahúsi, þó ekki sé svona til oröa tekiö til aö lasta ÍBV. Drátt- urinn: BK 1893 — Waterschei Rauöa stjarnan — Barcelona AZ’67 Alkmaar — Inter Mílanó Aberdeen — Lech Poznan Galatasarai — Austria Vín Swansea — Paris St. Germain Real Madrid — Ujpesti Dozsa Tottenham — Bayern Múnchen UEFA-keppnin: Arnór Guðjohnsen og félagar hans hjá Lokeren fá erfiöa leiki gegn hinu gamalfræga liöi Benfica. Þó þykir vera fariö aö halla lítillega undan fæti hjá Benfica sökum hás meðalaldurs. Annars er drátturinn til 2. umferöarinnar þessi: Slask Wroclaw — Servette Anderlecht — FC Porto Werder Bremen — Brage Valencia — Banik Ostrava Haarlem — Spartak Moskva St. Etienne — Bohemians Prag Lokeren — Benfica Dundee Utd. — Viking AS Roma — Norköping Hadjuk Split — Bordeaux Rangers — AEK Aþena eöa Köln Shamrock Rovers — Universiate Craiova FC Zúrich — Ferencvaros PAOK Saloniki — Sevilla Napólí — Kaiserslautern Corvinul — Sarajevo Egill á sínu Dezta Egill Eiðsson UIA keppti í 800 metra hlaupi á innanfélagsmóti í Laugardal í vikunni og náði þar sínum bezta árangri í 800 metra hlaupi. Egill hljóp á 1:57,5 mínútum, og bætti sig því um sex sekúndubrot, átti 1:58,1 frá 1979. Egill hefur undanfarin tvö sumur einbeitt sér aö keppni í 400 metrum. — ágás.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.