Morgunblaðið - 02.10.1982, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.10.1982, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1982 22 Tónlistarskóli Reykjavlkur: Ráðstefna mynd- listarkennara Félag íslenskra myndlistarkenn- ara gengst fyrir ráðstefnu dagana 1. og 2. október nk. í Myndlist- arskólanum í Reykjavík. Ráðstefn- an er einungis ætluð myndlistar- kennurum og er fyrirhugað að ræða ýmis mál sem þá varða. Þar verður tekið til umfjöllunar eitt af þeim mörgu atriðum sem Kenn- arasamband íslands vakti athygli á sl. vetur en þá gekkst KÍ fyrir mikilli herferð um skólamál. Þar var fjallað m.a. um aðstöðu og að- búnað til list- og verkgreina- kennslu og nemendafjölda i bekkj- ardeildum. Er það eitt af stærstu vandamálum sem myndlistarkenn- arar eiga við að etja til að geta unnið samkvæmt námsskrá. A einu fjölmennasta þingi norrænna myndlistarkennara sem haldið var hér á landi í sumar var rætt um stöðu mynd- listarkennslu á Norðurlöndunum og reynt að leita leiða til bættrar og aukinnar myndlistarkennslu í skólum. Þá var og fjallað um mismun á menntun myndlist- arkennara á Norðurlöndunum en íslenskir myndlistarkennarar þykja standa þar best að vígi hvað faglega menntun snertir enda fer menntun þeirra fram í listaskóla (sem er 4ra ára nám) en svo er ekki á hinum Norður- löndunum. Ut frá stöðu og hlutdeild myndmenntar í íslenskum grunnskólum er ætlunin að fjalla um nýútkomna skýrslu Forsvarsmenn ráðstefnu myndlisUrkennara. forskólanefndar en hún fjallar um breytt skipulag á kennslu 6, 7 og 8 ára barna og þykir ástæða til að ræða um skýrsluna og þá einkum þá liði er varða mynd- listarkennslu þessara aldurs- hópa og framkvæmd hennar. I tengslum við þessa ráðstefnu FÍMK sem sótt verður af mynd- listarkennurum víðs vegar að af landinu verður opnuð sýning á námsgögnum sérstaklega ætluð- um til myndlistarkennslu. Sýn- ingin er á vegum Námsgagna- stofnunar í samvinnu við FÍMK. Sýningin verður opnuð í húsa- kynnum stofnunarinnar á Laugavegi 166 föstudaginn 1. október kl. 17 og stendur til 8. október. Frá æfingu hjálparsveitanna, — ungur skáti æfir sig í munn-við-munn- aðferðinni. „Þegar sekúnd- ur skipta máliu Handhæg bók um fyrstu hjálp seld um allt land í dag Liðlega eitt þúsund félagar í hjálparsveitum skáta ásamt sölu- fólki úr skátafélögunum munu á laugardaginn ganga í hús og selja nytsama bók, sem áreiðanlega mun vel tekið. Þetta er bókin Fyrsta hjálp í umferðinni, — und- irtitillinn er „þegar sekúndur skipta máli“. Að sögn þeirra félaganna í Landssambandi hjálparsveita skáta kemur bókin að góðu gagni víðar en í umferðinni. Enginn veit hvar slysin eiga eft- ir að verða, og þá er ekki lakara að hafa bók sem þessa við hend- ina, því mjög handhægt og fljótlegt er að fletta upp í henni og átta sig á hvað gera skal. „Fyrstu mínúturnar eftir bílslys geta skipt sköpum fyrir slasaða," segir í bókinni. Það skiptir því oft á tíðum mestu máli hver viðbrögð þeirra verða, sem fyrstir koma á slysstað. Bókina eru menn fljótir að lesa, og komi til þess að þeir þurfi að nálgast hana í hanskahólf bíls síns vegna slyss, þá er fljótlegt að átta sig á hvað gera skal. „Það er takmark okkar að bókin verði í hverjum bíl, í sjúkrakössum, í skipum og bát- um, á heimilum og vinnustöðum. Sem sagt alls staðar þar sem slys geta orðið", sagði Nína Hjaltadóttir á skrifstofu Lands- sambands hjálparsveita skáta. Sagði Nína að auk þess sem bók- in væri svar skátanna við hinni uggvænlegu slysabylgju, þá væri vonast til að hagnaður yrði af útgáfunni en honum yrði var- ið til kaupa á fjarskiptatækjum fyrir deildirnar, sem er orðið ærið aðkallandi mál. Stjömubíó: Morð vegna björgunar Stjörnubíó hefur tekið til sýninga bandaríska kvikmynd, sem nefnist „Hinn ódauðlegi'*. Fjallar myndin um geðsjúkling, sem myrðir tvær manneskjur og er særður lífshættulega á flótta. Með nýjum læknavísindum er Hfi hans bjargað og um það hefst svo togstreita og fleiri morð fylgja í kjölfarið. í helsta hlutverkinu er Chuck Norris. Úr kvikmyndinni „Hinn ódauðlegi**. Bíóhöllin: Félagarnir frá Max-bar Bíóhöllin hefur hafið sýningar á bandarísku kvikmyndinni Félagarnir frá Max-Bar. Myndin hefst á sjálfsmorðstil- raun manns nokkurs, sem síðan eftir langa sjúkrahússlegu verður gengið inn á bar, sem Max rekur. A barnum eignast hann nýja vini og kunningja, sem hjálpa honum yfir erfiðleikana og út í lífið á nýjan leik. I aðalhlutverki er John Savage. Úr kvikmyndinni „Madame Emma. Fáskrúðsfjörður: Fyrsta síld- in söltuð FáskrúAsfirði, 30. aeptember. FYRSTA síldin var söltuð hér á Fá- skrúðsfirði í dag, en vélskipið Guð- mundur Kristinn kom hér í gær- kvöldi með milli 4 og 5 hundruð tunnur af sild er veiðst hafði norður undir Bakkafirði. Síldin er söltuð í Pólarsíld hf. Hér hefur seinnipartinn í dag verið versta veður, rok og rigning, en nú í kvöld er tekið að draga úr því aftur. — Albert. Úr kvikmyndinni „Félagarnir frá Max-Bar“. Samkomu- lag um verð á hörpudiski Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávar- útvegsins ákvað á fundi sínum í gær eftirfarandi lágmarksverð á hörpudiski frá 1. september til 30. nóvember 1982: Hörpudiskur í vinnsluhæfu ástandi: a) 7 cm á hæð og yfir, hvert kg kr. 3,60. b) 6 cm að 7 cm á hæð, hvert kg kr. 2,95. Afhendingarskilmálar eru óbreyttir. Samkomulag varð í yfirnefnd- inni um verð þetta. í yfirnefnd áttu sæti Bolli Þór Bollason sem var oddamaður nefndarinnar, fulltrúar kaupenda voru Eyjólf- ur Isfeld Eyjólfsson og Marías Þ. Guðmundsson, fulltrúar selj- enda voru Ágúst Einarsson og Ingólfur Ingólfsson. Regnbog- inn sýnir Madame Emma Regnboginn hefur hafið sýn- ingar á kvikmyndinni „Madame Emma“ með Romy Schneider, hinni nýlátnu leikkonu, í aðalhlut- verki. Kvikmyndin er frönsk, gerð undir stjórn Ariel Zeitoun. í upplýsingum kvikmynda- hússins segir að myndin byggi á sönnum viðburðum um hug- rakka fjármálakonu, sem varð hálfgerð þjóðsaga í París á þriðja tug aldarinnar. Hún hét Marthe Hanan, en í myndinni er hún nefnd Emma Ecjhert. Hún uð, en hafði frábærar gáfur, sér- staklega er varðaði kaupsýslu. Hún einsetti sér að hjálpa hin- um efnaminni gegn hinu ríka og volduga bankaveldi og tókst það að nokkru. En það varð henni dýrkeypt. Handrit gerði Georges Con- chon, kvikmyndun sá Bernard Zitzerman um, tónlist er eftir Ennio Morricone. Litir eru frá Eastman. Leikstjóri er Francis Girod. Leiðrétting í samtali við Þorvarð örnólfs- son, framkvæmdastjóra Krabba- meinsfélags Reykjavíkur í Morg- unblaðinu í gær, var ranglega haft eftir honum, að Krabbameinsfé- lagið hefði sent lækna til Vest- fjarða, að halda þar erindi hjá kvenfélögunum á svæðinu um mikilvægi krabbameinsleitar. Hið rétta er, að það er í undirbúningi og er þess vænst að af því geti orðið um miðjan október. Eru hlutaðeigandi beðnir velvirðingar á mistökunum. Kvennadeild Slysavarnafélagsins í Reykjavík- HLUTAVELTA ÁRSINS verður í húsi SVFÍ á Grandagarði á morgun, sunnudag 3. okt. kl. 2 e.h. Fjöldi góðra muna, engin núll. -,nðar’ PeyK,wKr“,ð S^iör9un0r Kvennadeildin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.