Morgunblaðið - 02.10.1982, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 02.10.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1982 fclk í fréttum Roger Moore búinn að fá nóg af James Bond + Leikarinn og kvennagullið Rog- er Moore hefur nú tilkynnt að hann sé búinn að fá sig fullsaddan af því að leika James Bond. „Eg undirbý mig í sex mánuði fyrir töku hverrar myndar og það er ekki þess virði að leggja þetta á sig lengur“, sagði hann í viðtali nýverið. Hann er nú í miðjum klíðum við upptökur á nýju 007-myndinni, „Octopussy", sem er sú sjötta er hann leikur í, en hún fer að mestu leyti fram á Indlandi. „Ég er ekki ungur lengur." Til allrar hamingju. James Bond- myndirnar eru þekktar fyrir að vera framleiddar á methraða, en það þýðir einnig að við verðum að vinna frá því klukkan fimm árdeg- is til miðnættis.... og þegar allt kemur til alls held ég að ég sé hrifnari af góðum nætursvefni en þessum starfa," sagði Roger Moore og virtist þreyttur. Kannski kvikmyndaleikur sé ekkert sæld- arlíf eftir allt... ? Roger Moore að leik i myndinni „For Your Eyes Only“ og virðist bara harla sáttur við lífið. Andrew stjórnar eigin þyrlu ... + Andrew prins, sem tók þátt í Falklandseyjastríðinu með miklum sóma að sögn Breta, hefur nú verið tilkynnt að hann muni koma til með að stjórna sinni eigin herþyrlu er hann snýr aftur til starfa eftir leyfi þann 18. október næstkomandi. Andrew, sem er næstelstur sona Elísabetar II drottningar og 22ja ára að aldri, var aðstoðarflugmaður við Falklandseyjar sem fyrr segir og telja varnarmálayfirvöld í Bretlandi að hann sé nú fullfær um að stjórna sinni eigin vél... Kampakátir „Græningjar" + Leiðtogar „Græningjanna“ eða Umhverfis- verndarmenn í Hessen, Dirk Trever og Priska Hinz voru að vonum kampakát er frettist um kosningaúrslitin þar í síðustu viku, en hreyf- ing þessi sem hefur helgað sig friðar- og jafn- réttismálum er nú orðin þriðja stærsta aflið í þýskum stjórnmálum ... COSPER Nina Hagen í ham + Söngkonan Nina Hagen beitir öll- um mögulegum ráðum til að auglýsa nýútkomna hljómplötu sína. Þar er fjallað í nokkrum textum um nunn- ur og munka og klausturlíf almennt og til að hafa nú örugglega allt i samhengi mætti hún í svörtum síð- um kufli er hún kynnti skífuna á blaðamannafundi. Þetta uppátæki hennar sem mörg hin fyrri mun hafa kætt marga en hryggt fleiri... 31 Já, þaö er von þú hváir. En líttu á: Viö bjóöum upp á meira en 500 titla! Þaö gerirsamtals 50.493 mín. dagskrá. Fyrir VHS, BETA og 2000. Opiö frá kl.12.00-21.00 virka daga. 12.00 —18.00 laugardaga. Lokaö á sunnudögum. 2J VIDEOMIÐSTÖÐIN Laugavegl 27 — Sími 14415 Niðjamót Niöjar Páls Brekkman Einarssonar og Guðfinnu Sig- uröardóttur frá Sjóbúö, Eyrarsveit, Grundarfirði, halda ættarmót í Félagsheimili Seltjarnarness laug- ardaginn 16. okt. 1982. Húsið opnað kl. 14.00. Upplýsingar í síma 17118. YOGA Þann 5. október byrjum við Yoga-námskeið fyrir konur og karla. Æfingar eru tvisvar í viku fyrir hvern hóp, á þriöjudögum og á fimmtudögum kl. 14.00 og kl. 15.00. Þjálfari er Viggó M. Sigurösson. Æfingar fara fram í nýjum sérinnréttuðum sal. Aðstaða er til þess aö fara í saunabaö eftir æfingar og einnig erum við komnir með nýjan stórgóöan Silver sólarium Ijósabekk. Upplýsingar og innritun fer fram í síma félagsins eftir kl. 16.00 á daginn. íþróttafélagiö Gerpla Skemmuvegi 6. Sími 74925. vantar þi33óóanbíl? notaóur - en í algjörum sérfbkki Þessi einstaki bíll er til sölu Alfa Romeo Alfasud 1.5 árg. 1980. Fallega rauður. Aöeins ekinn 9000 km. Skipti möguleg á Skoda árg. '77—'80. Ath.: Opið frá 1—5. JÖFUR HF. Nýbýlavegi2 - Kópavogi - Simi 42600

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.