Morgunblaðið - 02.10.1982, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 02.10.1982, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1982 17 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir STEVEN R. HURST Sovéskir hermenn við öllu búnir á landamærum Sovétríkjanna og Kina Eru sættir að takast milli Kínverja og Sovétmanna? Viðræður Sovétmanna og Kínverja, sem væntanlegar eru í Peking á næstunni, eru ekki taldar munu marka timamót í samskiptum þjóðanna. Samt sem áður er það talið til marks um nokkra sáttfýsi af hálfu Kínverja, að þeir skuli yfirleitt hafa fallist á að ræða ágreiningsmálin milli þessara tveggja risavelda heimskommúnismans. Hvorug þjóðin hefur gefið út formlega tilkynningu um viðræðurnar og eftir sovéskum heimildum er haft, að í mesta lagi verði rætt um dagskrá frekari funda í framtíð- inni. Það vekur þó athygli, að í sovéskum fjölmiðlum hefur að undanförnu kveðið við annan tón þegar fjallað er um kínversk málefni og lítið borið á skæt- ingnum og skömmunum í garð ráðamanna í Kína. Það hefur heldur ekki farið framhjá ráðamönnum í Kína, að þeir eru ekki lengur sakaðir um útþenslustefnu og t.d. þegar skýrt var frá breytingunum á forystuliði kínverska kommún- istaflokksins á dögunum var það gert án nokkurra athugasemda. „Á síðustu mánuðum hafa sov- éskir fjölmiðlar verið aldrei þessu vant mjög hlutlausir í frásögnum sínum," er haft eftir vestrænum sérfræðingi í sam- skiptum Sovétmanna og Kín- verja. Til þessa hafa Kínverjar ekki Ijáð máls á neinum pólitískum tilslökunum við Sovétmenn, en hins vegar hafa þeir aukið við þá samskiptin á öðrum sviðum eins og í efnahags- og menningar- málum. f ágúst sl. var helsti sér- fræðingur Kínverja í sovéskum málum, Yu Hong-liang, sendur til Moskvu og búist er við, að aðstoðarutanríkisráðherra Sov- étríkjanna, Leonid F. Ilyichev, verði í forsvari fyrir sendinefnd- inni í Peking í næsta mánuði. Ilyichev var síðast í Peking 1978 þegar rætt var um landa- mæradeilur þjóðanna, en þær hafa staðið með hléum allt frá 1%9 þegar til blóðugra átaka kom á landamærunum við Uss- uri-fljót. Þessar viðræður voru farnar að bera nokkurn árangur þegar Sovétmenn réðust inn í Afganistan í desember 1979, en þá versnaði allur vinskapur með þjóðunum á nýjan leik. Raunar voru þær komnar það langt, að til stóð að undirrita nýjan vin- áttusamning milli þeirra vorið 1980, á þrjátíu ára afmæli gamla samningsins, en af því varð sem sagt ekki af fyrrgreindum ástæðum. Sovétmenn biðu átekta í tvö ár, en seint á síðasta ári fóru þeir að þreifa aftur fyrir sér í Peking. Kínverjar veittu þá þau svör, að ekki væri tímabært að taka upp viðræður milli þjóð- anna, en Rússar gáfust ekki upp við svo búið. í febrúar sl. ítrek- uðu þeir enn beiðni sína og báðu Kínverja um að nefna stað og stund og þótt kínverskir ráða- menn hafi ekki gefið formleg svör, er haft eftir talsmanni utanríkisráðuneytisins í Peking, að nú sé talið rétt að huga að nýjum viðræðum, eða þegar „nægur undirbúningur" hefur farið fram. Leonid I. Brezhnev, forseti Sovétríkjanna, var á ferð í Tash- kent, höfuðborg sovétlýðveldis- ins Uzbekistan, fyrr á þessu ári og var þá mjög sáttfús í garð Kínverja. „Við höfum aldrei krafist og krefjumst ekki nú neins lands af Kínverjum og er- um reiðubúnir til viðræðna um ágreiningsmál ríkjanna með hagsmuni þeirra beggja að leið- arljósi," sagði Brezhnev. Kín- verjar svöruðu þessum ummæl- um heldur kuldalega. Sögðust þeir ekki þurfa á yfirlýsingum Rússa að halda, heldur að þeir uppfylltu í raun þau skilyrði, sem Kínverjar setja fyrir nýjum viðræðum. Kínverjar halda því fram, að landsvæði á stærð við allt ís- land, 103.600 ferkílómetrar, eigi með réttu að tilheyra þeim og þeir krefjast þess einnig, að 45 sovésk herfylki, sem staðsett eru meðfram rúmlega 7000 km löng- um landamærum ríkjanna, verði dregin til baka. Að auki vilja Kínverjar, að Sovétmenn hætti aðstoðinni við Víetnama, sem gerir þeim síðarnefndu kleift að halda uppi stjórn Heng Samrins í Kambódíu, og krefjast brott- flutnings sovéska herliðsins frá Afganistan. Brezhnev lét þessar dræmu undirtektir Kínverja ekkert á sig fá og í ræðu, sem hann flutti í Baku, höfuðborg Azerbaijan, nú fyrir skemmstu, kvað hann Sov- étmenn telja það „afar mikil- vægt að eðlileg samskipti" gætu orðið aftur með þeim og Kínverj- um. Sagði hann það mundu verða báðum þjóðunum í hag þegar fram í sækti. Haft er eftir heimildum innan Sovétríkjanna, að þar í landi séu menn vissir um að Kínverjar vilji í raun bæta við þá sam- skiptin vegna þeirrar efnahags- legu endurnýjunar, sem nú er stefnt að í Kína. Sovétmenn sjá sér líka mikinn hag í því. Ef þeir geta fækkað í herliði sínu við kínversku landamærin, geta þeir aftur fjölgað í innrásarliðinu í Afganistan og Brezhnev er sagð- ur vilja gera það að sínu síðasta stórvirki, og kannski aleina, að koma þessum kommúnísku ris- um aftur í eina sæng. Sérfræðingar á Vesturlöndum líta svo á, að með því að friðmæl- ast við Sovétmenn vilji Kínverj- ar leggja áherslu á, að þeir séu hvorugum háðir, Bandaríkja- mönnum eða Sovétmönnum, og komast þannig aftur til vegs og virðingar meðal þjóða þriðja heimsins. Sv.S sneri Barnanáttföt Barnanærföt Hagstætt verö Franskir gæöaskór fyrir börn frá fæöingu til ca. 2ja ára. Vetrarsendingin komin Athugiö í dag iaugardag er opiö til kl. 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.