Morgunblaðið - 02.10.1982, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 02.10.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1982 19 Sprengingar á N-Spáni Bilbao, Spáni, 1. október. AP. AÐEINS nokkrum klukkustund- um eftir að hógværari armur að- skilnaðarhreyfingar Baska (ETA) tilkynnti að hann hefði hætt allri vopnaðir baráttu, urðu gífurlegar sprengingar víða i N-Spáni, en enginn mun hafa slasast. Lögreglan segir að spreng- ingarnar hafi skemmt mikið fjóra banka og einnig hafi nokkrar stjórnarbyggingar orðið illa úti, en hún álítur að þetta séu verk öfgafullra úr ETA, en þeir eru taldir bera ábyrgð á meira en 300 pólitísk- um morðum, og er það liður í baráttu þeirra fyrir aðskilnaði við Spán. Hinn svokallaði hernaðar- armur ETA hefur tilkynnt að hann muni halda áfram vopn- aðri baráttu allt þangað til fullur sigur vinnst og fullt sjálfstæði Baskalands hefur náð fram að ganga. Þrír flokksforingjar, Franz-Josef Strauss, Helmut Kohl og hans-Dietrich Genscher, á fundi með fréttamönnum sl. þriðjudag þegar þeir höfðu komið sér saman um að fella Helmut Schmidt. „Þjóðin mun ekki gleyma þessari framkomu ykkar“ — sagði Helmut Schmidt, fyrsti kanslarinn, sem felldur er með vantrausti Bonn, I. október. AP. HELMUT Kohl, formaður Kristilega demókrataflokksins, var í dag kjörinn sjötti og jafnframt yngsti kanslari Vestur-Þýskalands eftir að samþykkt hafði verið vantrauststillaga á Helmut Schmidt. Er þetta í fyrsta sinn sem starf- andi kanslari er felldur með vantrausti en atkvæði féllu þannig á þingi, að 256 greiddu því jáyrði en 235 voru á móti. Þremur stundarfjórðungum síðar kvaddi Schmidt embætti sitt við hátíðlega athöfn hjá Karli Carstens, forseta Vestur-Þýskalands. Áður en til atkvæðagreiðslunn- ar kom á þingi flutti Helmut Schmidt ræðu og fór óblíðum orð- um um andstæðinga sína. „Þjóðin mun ekki gleyma þessari fram- komu ykkar um mörg ókomin ár,“ sagði Schmidt. „Að vísu brýtur hún ekki í bága við lagabókstafinn en siðferðilega réttlætingu á hún sér enga.“ Schmidt sagði, að þeir, sem nú ætluðu að hrekja hann úr embætti, væru ekki nógu trúverð- ugir því að þeir vildu nýja ríkis- stjórn án þess að leita fyrst um- boðs frá þýsku þjóðinni. Schmidt var harðorður um fyrr- um samstarfsmenn sína, frjálsa demókrata, sagði, að þeir hefðu notað nafn sitt sjálfum sér til framdráttar i síðustu kosningum en nú hefðu þeir svikið hann. „Formaður frjálsra demókrata (Hans-Dietrich Genscher) lýsti því yfir á þingi flokks síns 6. júní 1980, að sá, sem greiddi flokki hans atkvæði, tryggði um leið að Helmut Schmidt yrði áfram kanslari ... og með nafn mitt á kosningaspjöldum flokksins fékk hann mjög góða kosningu," sagði Schmidt. „Síðan hefur hann smám saman étið allar sínar yfirlýsingar ofan í sig.“ Schmidt var í miklum ham þeg- ar hann flutti ræðu sína og minnti kristilega demókrata á, að þeir hefðu heitið Þjóðverjum kosning- um 6. mars nk. ef þeir fengju bara að taka við kanslaraembættinu fyrst. „Mér þykir það afar ólíklegt, að þið munið leysa upp þingið í janúar nk. svo að unnt verði að kjósa 6. mars,“ sagði hann, „en viljið þið ekki vera svo vænir að lýsa því yfir hér á þingi og frammi fyrir allri þjóðinni, að þið ætlið að standa við stóru orðin og efna til kosninga 6. mars.“ í ræðu sinni rifjaði Schmidt einnig upp störf og stefnu stjórnar sinnar og kvaðst óttast að Kohl myndi spilla fyrir þeim árangri, sem náðst hefði í bættum samskiptum aust- urs og vesturs, aukinni einingu Evrópu og félagslegum velferð- armálum. „Þetta er mikill dagur í sögu Flýði til V-Þýskalands Miinchen, 1. október. AP. NÍTJÁN ára gamall tékkneskur hermaður flýði í gær yfir til Vestur- Þýskalands og bað um pólitískt hæli í Bæjaralandi, samkvæmt heimild- um frá lögreglunni þar i dag. Hermaðurinn var ekki vopn- aður er hann kom til V-Þýska- lands og greinilegt er, að hann komst undan óséður. Engum skotum mun hafa verið skotið. Ungi maðurinn segir óánægju með stjórnmálalegt og efna- hagslegt ástand í Tékkóslóvakíu vera orsökina fyrir flóttanum. vestur-þýska þingsins," sagði Helmut Kohl eftir að vantraustið á Schmidt hafði verið samþykkt með sjö fleiri atkvæðum en til þurfti. „Þegar raunverulegt lýð- ræði sýnir sig á þennan hátt er það sönn lýsing á frelsinu ... Stjórn mín mun leitast eftir því í störfum sínum að finna meðalveg- inn. Við munum ekki ná markmið- inu með því að berast á banaspjót, heldur með því að taka höndum saman." Kohl sagði, að brýnasta verkefni stjórnarinnar væri að koma efnahagslífinu á réttan kjöl og að síðan yrði málunum áfrýjað til kjósenda á þeim tíma, sem um hefði verið talað, 6. mars nk. Rainer Barzel, fyrrum kanslara- efni kristilegra demókrata, réðst mjög harkalega á stefnu fyrrver- andi stjórnar og einkum í utanrík- is- og efnahagsmálum. „Okkar staður er ekki á milli austurs og vesturs,“ sagði hann og átti þá við tilraunir Schmidts til að halda Þjóðverjum i hæfilegri fjarlægð frá stórveldunum samtímis því að vera í NATO. „Með báða fætur í Atlantshafsbandalaginu munum við rétta út sáttahönd til austurs, en ekki annan fótinn líka.“ Eftir fréttaskeytum að dæma lögðu frjálsir demókratar fátt til málanna í þessum umræðum. Israel: Kahan verður forseti rann- sóknarnefndar Tel Aw, I. október. AP. YITZHAK Kahan, forseti hæstarétt- ar í fsrael, hefur ákveðið að vera sjálfur formaður nefndarinnar, sem rannsaka mun fjöldamorðin í Beirút að því er tilkynnt var í Tel Aviv í dag. Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, skoraði i gær á fsra- el og Arabaríkin að setjast að samn- ingaborði og finna lausn á deilumál- unum í Miðausturlöndum, sem væru eins og „opin und á samvisku mann- anna“. í nefndinni, sem rannsaka skal fjöldamorðin, verða auk Kahans Yona Efrat, fyrrum hershöfðingi, sem á sínum tíma tók virkan þátt í sjalfstæðisbaráttu ísraela, og Aharon Barak, hæstaréttardóm- ari, sem getið hefur sér mikið orð sem gáfumaður og lögvitringur. Nefndinni munu fáar skorður settar við rannsóknina og getur krafist vitnisburðar jafnt her- manna sem borgara og sjálfs for- sætisráðherrans. Gert er ráð fyrir að rannsóknin taki tvo til fjóra mánuði. George P. Shultz, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, flutti í gær ræðu á þingi Sameinuðu þjóð- anna þar sem hann skoraði á ís- raela og Araba að leiða deilurnar í Miðausturlöndum til lykta og sagði, að palestínska þjóðin ætti „óvefengjanlegan" rétt á eigin landi. Síðar átti hann tveggja stunda fund með utanrikisráð- herra Sýrlands, Abd Al-Halim, og að honum loknum sagði taismaður Shultz, að staðfestar hefðu verið fyrri yfirlýsingar sýrlensku stjórnarinnar um að hún vildi flytja 30.000 manna herlið sitt frá Líbanon ef ísraelar gerðu slíkt hið sama. Norður-írland: Lögreglumaður skotinn til bana Beirast, N-írUndi, I. október. AP. LÖGREGLUMAÐUR var skotinn til bana er hann var á leið til vinnu sinnar á litlu vélhjóli í skemmtigarði í gær, samkvæmt heimildum lögregl- unnar. Enginn hefur lýst sig ábyrgan fyrir tilraeðinu, en lögreglan segist gruna að írski lýðveldisherinn eigi þarna hlut að máli. hjá okkur kl. 10—5 í dag KM -húsgögn, I.ani'holtsvegi 111, Keykjavík, símar 37010 — 37144. KÍKTU VIÐ, ÞÚ FÆRÐ ÖRUGGLEGA EITTHVAÐ VIÐ ÞITT HÆFI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.