Morgunblaðið - 02.10.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1982
7
Innilegar þakkir til allra, sem á margan hátt glöddu mig á 80
ára afmcelinu 6. sept. si
Guö blessi ykkur.
Magöalena Guðlaugsdóttir Þambárvöllum.
Lítil saumastofa
til sölu. Hagstætt fyrir 2 konur sem vilja vinna sjálf-
stætt. Tilheyrandi húsnæöi og lítið verzlunarpláss til
leigu.
Tilboö merkt: „Miöbær — 2002“, sendist Mbl.
BMW 728 árg. 78
NORSKAR
SÆNGUR
Mjúkar, hlýjar, þvottekta, léttar
Ungbarnasæng stærö 80 x 100 cm kr. 267.00
Barnasæng stærö 100 x 140 cm kr. 402.00
Fulloröinssæng stærö 140 x 200 cm kr. 702.00
Thermo sæng stærö 140 x 200 cm kr. 821.00
Thermo sæng stærö 140 x 220 cm kr. 1.018.00
Ungbarnakoddi stærö 35 x 40 cm kr. 76.00
Koddi stærö 40x60cm kr. 111.00
Koddi stærö 50 x 70 cm frá kr. 235.00
Sendum um land allt
Opiö til kl. 4 í dag laugardag.
Vörumarkaðurinn hf.
Ármúla 1 A. Sími 86112.
í tilefni af því aö Þjóðviljinn hefur lýst þessa mynd af verð-
bólguþróuninni falska er hún birt að nýju. í Staksteinum er
órökstuddum fullyröingum Þjóöviljans um myndina svaraö.
Myndritin og
Þjóðviljinn
Korystugrein Þjóðviljans
á fimmtudaginn hét
Myndrít Morgunblaðsins
og var tilefni hans myndin
af verðbólguþróuninni síð-
an 1960 sem hér er endur-
birt. í upphafl forystugrein-
arinnar segir hlaðið, að
myndrit þau sem Morgun-
blaðið birti um þróun efna-
hagsmála í landinu og
byggð eni á tölulegum upp-
lýsingum úr gögnum Þjóð-
hagsstofnunar eða gögnum
frá Alþingi séu „yflrleitt til
þess atluð að gefa falska
og mjög villandi mynd af
pólitískum staðreyndum."
Ekki rökstyður Þjóðviljinn
þessa fráleitu. almennu
fullyrðingu sína frekar
enda er hér um róg af
verstu gerð að ræða sem á
rætur að rekja til þess, að
Þjóðviljinn hefur með öllu
gefist upp við að verja með
málefnalegum hætti störf
og stefnu þeirra ríkis-
stjórna sem hann hefur
stutt á öngþveitistímanum
frá 1978.
Eftir þennan almenna
formála ræðst Þjóðviljinn
síðan harkalega á myndina
af verðbólguþróuninni frá
1960 og segir að með henni
sé verið að koma „allri sök
á hérlendri verðbólgu yflr á
herðar þeirra ríkisstjórna,
sem Morgunhlaðið kallar
vinstri stjórnir.“ Siðan seg-
ir Þjóðviljinn:
„Samkva'mt myndriti
Morgunblaðsins þá var
verðbólgan rétt um 40%,
þegar ríkisstjórn Geirs
Hallgrímssonar hrökklað-
ist frá völdum í ágúst 1978.
]>etta er Ld. vísvitandi föls-
un hjá Morgunhlaðinu, því
hvarvetna liggja á lausu
þær upplýsingar Þjóð-
hagsstofnunar, að síðustu
12 mánuðina, sem ríkis-
stjórn Geirs llallgrímsson-
ar sat að völdum ha'kkaði
framfærslukostnaður um
51,7% ... Þess vegna er
Geir okkar verðbólgukóng-
ur, þótt Morgunblaðið birti
fölsuð línurit til að fela þá
eínfiildu staðreynd."
Það þarf svo sannarlega
mikla bíræfni að slá þeim
fullyrðingum fram, sem
Þjóðviljinn gerir — mynd-
ritið sýnir betur en nokkuð
annað hve fráleitar þær
eru. Þau ár sem Alþýðu-
bandalagið á menn í ríkis-
stjórn er ástandið versL
Talnaleikur
Þjóðviljans
í forystugreinum Þjóð-
viljans fara menn með töl-
ur að hætti kommúnista
um víða veröld. I*eir sem
lesa yfirlýsingar ráða-
manna í kommúnistaríkj-
unum komast fljótlega að
raun um það, að þeim mun
verra sem ástandið verður
þeim mun glæsilegri verða
talnaraðirnar. l*ótt þjóðirn-
ar svelti sitja flokksbrodd-
arnir og þjónar þeirra og
þylja tölur um að allt gangi
eins vel og best verði á
kosið, að vísu sé við dálítið
„matvælavandamál" að
stríða en þjóðinni sé séð
fyrir nægilega næringar-
ríkri fæðu (frá Póllandi
berast þær fréttir að þar sé
aðeins til nóg af sígarettum
og vodka).
Lítum nú á tölur um
verðbólguna frá stjórnartíð
Geirs Hallgrímssonar á ár-
inu 1978 en þá fóru fram
alþingiskosningar síðustu
helgina í júni. í þeim
misstu stjórnarflokkarnir,
Sjálfstæðisflokkur og
Kramsóknarflokkur, svo
mikið fylgi að Ijóst var að
breyting yrði á stjórninni.
Alþýðuflokkur og Alþýðu-
bandalag tóku forystu um
myndun nýrrar ríkisstjórn-
ar og settust í vinstri stjórn
undir forsæti Ólafs Jó-
hannessonar 1. september
1978. Hm tveggja mánaða
skeið þá um sumarið sat
bráðabirgðastjórn undir
forsæti Geirs Hallgríms-
sonar sem gat ekki annað
en haldið í horflnu en um
haustið fóru verðbólguhjól-
in að snúast hjá vinstri
stjórninni sem lofaði öllum
gulli og grænum skógum.
iH'ssa framvindu mála
er auðvelt að staðfesta með
tölum: Haustið 1977 byggð-
ust spár og áætlanir á því,
að hækkun verðlags á ár-
inu 1978 yrði að meðaltali
30% frá upphafl til loka
þess árs. f ársbyrjun 1978
var Ijóst, að hækkunin frá
upphafl til loka ársins yrði
hærri en 30% og meðal
annars á þeim forsendum
var gripið til þeirra úrræða
sem allar stjórnir Alþýðu-
bandalagsins síðan hafa
einnig notað, að skerða
verðbætur á laun. Spár
gengu þó ekki fram sem
skyldi. f yfirliti um fram-
vindu efnahagsmála sem
Þjóðhagsstofnun gaf út eft-
ir alþingiskosningarnar og
dagsett er 30. júní 1978
segir meðal annars: „Sé
ekki gert ráð fyrir áhrifum
af nýjum kjarasamningum
fyrir áramót (1978/79,
innsk. Mbl.) virðast horfur
nú á, að framfærsluvísital-
an hækki um 38% frá upp-
hafi til loka ársins. iH'tta er
talsvert meiri hækkun en
ætlað var eftir efnahags-
ráðstafanirnar í febrúar, og
valda því að talsverðu leyti
áhrif launahækkana sam-
kvæmt bráðabirgðalögun-
um í maí." Samkvæmt yflr-
■iti Þjóðhagsstofnunar var
verðbólgan frá upphafl til
loka árs 1978 39,2%. Þarna
kemur einmitt fram sú tala
sem myndrit Morgunblaðs-
ins byggir á og Þjóðviljinn
segir að sé uppspuni og
fals. Krá upphafl til loka
árs 1979 var verðbólgan
hins vegar 60,6%.
Kyrir þá sem búnir eni
að gleyma því má geta þess
að bráðabirgðalögin i maí
1978 sem juku hraða verð-
bólgunnar að mati Þjóð-
hagsstofnunar voru sett
vegna þrýstings frá verka-
lýðshreyflngunni, sem þá
barðist undir flokkspóli-
tiskrí forsjá Alþýðuflokks-
ins og Alþýðubandalagsins.
HLJÓMPLÖTUR - KASSETTUR
Stórkostleg rýmingarsala
Höfum innkallaö allar okkar eldri stórar plötur og kassettur og nú á allt aö
seljast, því þessir titlar veróa ekki framar til sölu í verslunum.
Gífurlega fjölbreytt úrval af vönduóu íslensku efni á plötum og kassettum.
Kaupendur úti á landi: hringíö eða skrifið eftir lista.
EITT VERÐ Á ÖLLU:
PLATA EÐA KASSETTA Á AÐEINS KR. 40.-
D(tG0RT
óhl'sT
UjÖOáLESTOR
kórsöngur
harmo NIKOMÓSIK
POPMÓSIK
einsöngur
°SK.
Apun
«>:
Sn
%
OPID ALLA DAGA 9—18
SG-HLJÓMPLÖTUR ÁRMÚLA 38. SÍMI 84549