Morgunblaðið - 02.10.1982, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1982
11
Sextán söguþættir eft-
ir Jón R. Hjálmarsson
Námsstefna um málefni þroskaheftra
Suðurlandsútgáfan hefur gefið út
bókina „Af spjöldum sögunnar" eft-
ir Jón R. Hjálmarsson.
í formálsorðum segir höfundur,
að af þeim 16 söguþáttum, sem i
bókinni eru, séu níu sem ekki hafi
áður birzt á prenti, en sjö eru úr
tveimur fyrri bóka hans; Af spjöld-
um sögunnar, sem kom út 1969 og
Frægir menn og fornar þjóðir, sem
kom út 1972.
I þessari nýju útgáfu „Af
spjöldum sögunnar", sem höfund-
ur segist hafa áhuga á að bæta við
tleiri bindum, eru 16 þættir frá
steinöld og fornöld; I árroða sög-
unnar, Fyrsta ártalið, Furðuverk
heimsins við Níl, Hin horfna þjóð
Súmera, Hammúrabí og heims-
veldi Babýloníumanna, Assyríu-
ríkið og endalok þess, Heimsveldi
Kýrosar mikla, Alexander mikli,
Föníkar, Karþagó — borgin sem
hvarf, Etrúrar, Herhlaup Kimbra
og Tevtóna, Þrællinn Spartakus,
Orrustan í Teftóborgarskógi, Kali-
gúla keisari og Hinn grimmi Neró.
Jón R. Hjálmarsson
DAÍIANA 20.—24. september sl. var
haldin námsstefna á Hótel Loftleiðum
á vegum NFPIT (norræn samtök um
málcfni þröskaheftra) um þörf, vægi og
gildi líkamsþjálfunar þroskaheftra,
segir í fréttatilkynningu frá Styrktarfé-
lagi vangefinna.
l»ar segir ennfremur:
Þátttakendur á námsstefnunni
voru tæplega 70 manns frá Finn-
landi, Svíþjóð, Noregi og íslandi.
Fiestir þátttakenda starfa á þessu
sviði í þágu þroskaheftra.
Námsstefnur um þetta málefni
hafa verið haldnar árlega á Norður-
löndum, síðast í Finnlandi, en nú í
fyrsta skipti hér á landi.
Slík samvinna norræns fagfólks er
okkur íslendingum mikil nauðsyn og
var það samdóma álit, að námsstefn-
an hafi tekist hið besta í hvívetna.
Margir fyrirlestrar voru haldnir á
námsstefnunni, sýndar voru kvik-
myndir og myndbönd og auk þess fór
fram sýnikennsla í sundlaug
Sjálfsbjargar.
Styrktarfélag vangefinna sá um
framkvæmd námsstefnunnar fyrir
hönd norrænu samtakanna, en í
framkvæmdanefnd áttu sæti Sonja
B. Helgason, íþróttakennari, Ásta
Baldvinsdóttir félagsráðgjafi og
Magnús Kristinsson, formaður fé-
lagsins. Fulltrúi íslands í stjórn
NFPU er Sigríður Ingimarsdóttir
húsmóðir.
AGQMLQ
GŒOVERÐI
r
SAAB ER BILUNN
Viö eigum enn til bíla af árgerð '82
Þá seljum við þessa dagana á mjög
hagstæðu verði.
SAAB 99 GL 2ja dyra, kr. 179,200
SAAB 900 GL 4ra dyra, kr. 220,900
SAAB 900 GLI 4ra dyra, kr. 231,900
SAAB 900 GLE 4ra dyra kr. 272,200
Hvernig væri að renna í Bíldshöfðann
og skoða vagnana, - það er þess virði.
Opið í dag frá 10—18.
TÖGGURHF.
SAAB
UMBODIÐ
BÍLDSHÖFÐA 16, SÍMI 81530