Morgunblaðið - 02.10.1982, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1982
Utanríkisráðherrar
NATO-ríkja:
Oformlegur
fundur í
Kanada
Toronlo, I. október. AP.
Illanríki.sráðherrar 16 aAildar-
þjóda NATO funda þessa helgi noró-
ur af Montreal og ræða vandamál er
vestrænar þjóðir standa nú frammi
fyrir en óformlegur fundur utanrík-
isráðherranna sem þessi hefur ekki
vcrið haldinn áður.
Þrátt fyrir að ekkert hafi verið
birt um hvað umræðurnar muni
snúast, þykir ligKja í augum uppi
að mest verði rætt um deilur þær
er Bandaríkin og handamenn
þeirra í V-Evrópu eiga nú í vegna
lagningu gasleiðslunnar miklu frá
Sovétríkjunum og þau höft er
bandarísk stjórnvöld hafa sett á
sölu hluta í hana.
Engir utanaðkomandi munu
geta fylgst með fundahöldum
þessum, en hverjum ráðherra leyf-
ist að taka með sér einn aðstoð-
armann. Ekki mun verða gefin út
nein sameiginleg yfirlýsing að
fundinum loknum.
Iran — Irak:
Enn barist
við Baghdad
Nirosia, Kýpur. I. októher. AP.
IIKKAFLI írana réðst fyrir dögun á
stöðvar Íraka og segjast íranir hafa
unníð þar umtalsverða sigra, segir í
opinberum heimildum frá íran í dag.
Utvarpsstöð íranska hersins
staðfesti fregnirnar og sagði uin
bardagana að þeir geisuðu um það
bil 100 kílómetra austur af
Baghdad, höfuðborg írak.
Óljósar fregnir hafa borist af
bardögunum, en þeir virðast hafa
verið töluverðir. Útvarpsstöðin í
íran sagði að frá þeirra hendi
tækju þátt land- og flugher ásamt
þjóðvarðliðum og kallaði hún árás
þessa „Muslim Ibn-E Aghil", en
frá írak berast þær fregnir að ír-
anskt herlið hafi beðið mikil af-
hroð og þeir hafi enga sigra unnið.
Arásir Írana nú koma eftir að
viku hátíðahöldum í landinu er
lokið, en þau fóru fram til að
minna á tveggja ára afmæli bar-
daganna, sem hófust þann 22.
september 1980.
Fötunum fækkad í góðgerðarskyni
Tískusýningarstúlkan Gloria vakti á sér mikla athygli og ánægju veg-
farenda, cinkum karlmanna, þegar hún tók upp á því í gær á fjölfarinni
götu í Lundúnaborg að klæða sig úr hverri spjör. Að því búnu klæddi
hún sig aftur og þennan leik lék hún ásamt stöllu sinni, Caroline, alls
þrjátíu sinnum og söfnuðu þær um leið alls 300 pundum fyrir barna-
hjálparsjóð i Ixindon. Þær fóru alltaf í nýjan klæðnað og það var
fataverslun í Carnaby-stræti, sem borgaði brúsann. AP
Margaret Thatcher
gagnrýnd í Kína
Peking, I. október. AP.
KÍNVERSK stjórnvöld gagnrýndu í dag það, sem þau kalla breska „fall-
byssupólitík", innrás Breta í Kína á síðustu öld og sögðu það „heilaga
skyldu" sína að endurheimta Hong Kong.
Fréttaskýrandi hinnar opinberu
fréttastofu, Xinhua, kvað Kín-
verja mjög óánægða með þær yfir-
lýsingar Thatchers, forsætisráð-
herra Breta, að samningurinn um
Hong Kong væri í fullu gildi og
yrði í heiðri hafður. Sagði hann,
að þær væru óaðgengilegar fyrir
Kínverja og að samningurinn væri
til kominn vegna yfirgangs Breta í
Kína á síðustu öld. Sl. fimmtudag
sagði í frétt frá kínverska utanrík-
isráðuneytinu, að Kínverjar væru
óbundnir samningnum um Hong
Kong og myndu heimta hana til
sín þegar þeir teldu tíma til kom-
inn.
Zhao Ziyang, forsætisráðherra
Kína, sagði í viðræðum þeirra
Thatchers í fyrri viku, að sameig-
inlega þyrftu þjóðirnar, Kínverjar
og Bretar, að leysa gömul ágrein-
ingsmál og ætti það ekki að þurfa
að veitast þeim erfitt á grundvelli
friðsamlegrar sambúðar og gagn-
kvæms hags.
Blásýra í verkja-
töflum veldur dauða
ArlingtonHeighLs, lllinoi.s, I. október. AP.
BLÁSÝRA hefur fundist í sterkum tylenol-hylkjum og er nú unnið að rann-
sókn fimm dauðsfalla er öll tengjast neyslu á þessum hylkjum, en komið
hefur í Ijós að þau höfðu verið opnuð áður en þau voru seld.
Læknaráð Illinois lítur á þessi
dauðsföll sem huganleg morð og
hefur verið að reyna að átta sig á
því hvenær hugsanlegt sé að hylk-
in hafi verið opnuð og blásýrunni
komið fyrir.
Hylkjum þessum hefur því
skyndilega verið kippt af söluskrá
flestra lyfjaverslana t ríkinu á
meðan að rannsókn fer fram á
málinu.
Hylki þessi eru notuð sem
verkjalyf.
„allar götur fullar af vatni
stop hvað á ég að gera“
139 ára gamalli sögu símskeytanna lokið í Bretlandi
l/ondon, I. október. Al*.
FVKIK Sherlock Holmes og Bertie
Wooster voru þau upphafið að
mörgu ævintýrinu. Konur, sem
áttu menn sína á vígvöllunum,
óttuðust þau. Svaramenn við brúð-
kaup stauluðust í gegnum þau.
Blaðamenn og aðrir gárungar
höfðu gaman af þeim og tíræðir
öldungar titruðu af fognuði þegar
þcim bárust þau í hendur.
Þannig var það en er ekki
lengur. Á miðnætti aðfaranótt
laugardagsins verður sérstökum
skeytaútburði nefnilega hætt í
Bretlandi.
Símskeyti hafa verið borin út
sérstaklega í Bretlandi í 139 ár
en vegna gífurlegs halla á þjón-
ustunni, 21 milljón pund á síð-
asta ári, hefur Telecom, hinn
breski Póstur og sími, ákveðið að
hætta henni fyrir fullt og fast.
Simskeytin urðu flest á árinu
1945, 63 milljón, en voru komin
niður í tvær milljónir í fyrra og
er vaxandi notkun símans, fjar-
ritans og annarra tækja kennt
um.
í stað símskeytanna, áletraðs
pappírsstrimils í brúnu umslagi,
munu nú koma svokölluð sím-
boð, sem komið verður til skila á
viðkomandi pósthús í gegnum
símann eða fjarritann og síðan
borin út með venjulegum pósti
og þá að sjálfsögðu ekki um
helgar. Þannig verða það nú ekki
konungleg símskeyti heldur kon-
ungleg símboð, sem send verða
þeim, sem ná hundrað ára aldri,
og hjónum, sem halda upp á
demantsbrúðkaup eða 60 ára
hjúskaparafmæli.
Símskeytaþjónustan í Bret-
landi hófst 16. maí árið 1843 og
vann sér fljótt veglegan sess í
breskum bókmenntum. Það var
t.d. ekki óalgengt, að Sherlock
Holmes, sá frægi spæjari, héldi
út í Lundúnaþokuna á vit ævin-
týranna eftir að hafa fengið sím-
skeyti i hendur og það voru sím-
skeytin, sem oftast voru upphaf-
ið að æðislegum uppákomum í
lífi Bertie Woosters, yfirstétt-
arfíflsins í sögum P. G. Wode-
house.
Gárungar og grínagtugir
náungar hafa lengi lesið ýmis-
legt skemmtilegt út úr snubbótt-
um símskeytum. í bresku blöð-
unum í dag er t.d. sagt frá því
þegar iæknar við sjúkrahús
nokkurt sendu einum kollega
sínum, sem hafði verið skipaður
líflæknir drottningar, eftirfar-
andi skeyti: „hamingjuóskir stop
guð blessi drottninguna." Þá er
sagan um breska blaðamanninn
Robert Benchley, sem sendur var
til Feneyja og sendi blaðinu sínu
strax þetta skeyti: „allar götur
fullar af vatni stop hvað á ég að
gera.“ Að síðustu ein um G.K.
Chesterton, sérvitran breskan
rithöfund, sem lést árið 1936.
Hann var staddur í Leicester-
skíri og sendi konu sinni svolát-
andi skeyti: „er í Harborough
stop hvert ætlaði ég að fara“.
HEUVULISTÆKI BARNAFÖT HÚSGÖGN NIATVÖRUR
Vörumarkaðurinn hf.
ÁRMÚLAIa