Morgunblaðið - 02.10.1982, Page 26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1982
26
Fæðan og fjölskyldan
eftir dr. Jón Úttar
Ragnarsson dósent
Er fjölskyldan úrelt? Er hiö
heföhundna fjölskylduform að líöa
undir lok? Er þjóöfélagið að riölast
innan frá?
Nær daglega berast nýjar
fregnir af tvístrun fjölskyldna
vegna sambúðarslita eða sund-
urlyndis. Aðrar eru tengdar
saman með óhefðbundnum hætti
og þannig mætti áfram telja.
í Stundarfriði, leikriti Guö-
mundar Stcinssonar, er frábær lýs-
ing á þessari umturnun fjölskyldu-
lífs og heimilishalds, án efa þeirri
mestu sem mannkynið hefur upp-
lifað.
Fjölskylda
og samfélag
Margir virðast ekki gera sér
neina grein fyrir þeirri samfélags-
byltingu sem á sér stað fyrir aug-
um okkar og á eftir að hafa áhrif á
þjóðfélagsþróun um komandi ár.
Fækkað hefur í heimili. Híbýli
hafa stækkað og vélvæðst. Börn
eru færri en áður. Kynslóðum
hefur verið stíað sundur. Ein-
stæðum foreldrum fjölgar frá
ári til árs.
Eftir því sem verkefnum
fækkar innanstokks og frelsis-
barátta konunnar magnast leit-
ar hún í vaxandi mæli út á
vinnumarkaðinn. A mörgu heim-
iligerist nú daufleg vist.
I stað fjölbreytts heimilislífs
kemur sjónvarpsgláp, doði og
deyfð þar sem hver lifir sínu lífi
í aukinni einangrun eftir eigin
tímatöflu og geðþótta.
Þegar foreldrar vinna úti eru
börnin skilin eftir hjá ættingj-
um, kunningjum, dagmæðrum
eða dagheimilum. Önnur eiga
aðeins í auða íbúð eða tóman
kofa að venda.
Félagsleg upplausn hefur
breytt mörgum landlægum smá-
vandamálum í óleysanlegan
hnút. Börn lenda milli steins og
sleRKju, bera vanda sinn á torg
eða skóla landsins.
í skólum er hart barist við að
finna lægsta samnefnara aga- og
áhugaleysis fyrir þann fjöl-
skrúðuga hóp sem þangað sækir.
Barnauppeldi bætist við hefð-
bundið fræðsluhlutverk.
Andlega gelt skrifstofuveldið
lítur verðbólgnum augum yfir
vígvöllinn og sér ekki voðann, en
kynni hvort sem er engin svör
við barna-, unglinga- og fullorð-
insvandamálum.
I stað þess að skapa sveigjan-
legra samfélag er gengið enn
lengra í að drepa í dróma frum-
kvæði einstaklingsins og heil-
brigða samkeppni með gervilausn-
um og gunguhætti.
Aö éta úr ísskáp
Á sveitaheimilum tíðkast víða
enn að heimilisfólk safnist sam-
an við matarborðið á máltíðum.
Eru þetta sameiningarstundir
þar sem fjölskyldan kemur sam-
an og ræðir sín mál.
í bæjum landsins er aftur á móti
komið til sögunnar annað mynstur,
ef mynstur skyldi kalla, en er í
raun aðeins óreiða á ýmsum stig-
um og rís hæst á ísskápsheimilum.
Á ísskápsheimilum felst mál-
tíðahald einkum í þvi að í hvert
skipti sem einhver rekur inn nef-
ið og vill fá eitthvað í svanginn
fer hann sjálfur í isskápinn og
fær sér bita.
Þetta fyrirkomulag hefur
þann mikla kost fyrir marga að
þeir geta haldið áfram að lifa í
eigin heimi og geta dregið enn
frekar úr takmörkuðum sam-
skiptum við umheiminn.
Þar sem mörgum börnum er
ekki boðið upp á morgunmat í
heimahúsum og ekki heldur
heitar máltíðir í skólum hafa
sjoppurnar eignast nýjan og
áhugasaman aðdáendahóp.
Af þessu leiðir að börn lifa nú
í stórum stíl á sjoppumat og
kælivöru. En þau eru ekki ein
um hituna. Þvert á móti. Margt
gamalt fólk er síst betur sett.
Gamalt fólk á oft erfitt um vik
að komast úr húsi. Það lifir
ósjaldan á einhæfu og nær-
ingarsnauðu fæði. Þeir sem búa
á stofnunum eru oft lítið betur á
sig komnir.
Á meðan þessu vindur fram
hírast fyrirvinnurnar í biðröðum
á einhverjum skyndibitastað eða
ríkismötuneyti og bíða eftir
hamborgara og kók eða lamba-
kjöti og sultu.
Hvað er á seyði? Hvað er um að
vera? Svarið er auðvitað ofurein-
FÆDA
OG
HEILBRIGÐI
falt. Þetta er aðskilnaðarstefnan í
framkvæmd. Sú stefna sem ráðið
hefur ríkjum síðustu áratugi og
hcfur nú beðið endanlegt skipbrot.
Svo rækilega er þessi aöskilnað-
ar- og firringarstefna komin til
framkvæmda í þjóðlífinu aö það
verður enginn hægðarleikur að
snúa af þessari braut. En það er
nauðsyn eigi að síður.
Hvaö skal
til ráða
Þjóðfélagið verður að taka til-
lit til síaukinnar fjölbreytni í
fjölskylduformi, m.a. æ fleiri
fjölskyldna þar sem „þín“ börn
og „mín“ deila heimili með „ykk-
ar“ börnum og „okkar“.
1 stað þess að auka firringu og
breikka enn bil milli kynslóða
með nýjum stofnunum fyrir nýja
aldurshópa þarf nýja hugmynda-
fræði, hugsjón sem stuðlar að sam-
einingu, ekki sundrun.
Fyrir það fyrsta er orðið tíma-
bært og óhjákvæmilegt að börn
fái kennslu í næringar- og heil-
brigðisfræði þegar í fyrstu bekkj-
Aldraðir í Bústaðakirkju
Kirkiudagur
Óháða
safnaðarins
FRÁ STOFNUN þessa safnaðar
fyrir 32 árum hefir verið venja að
halda svonefndan Kirkjudag hátíð-
legan síðsumars ár hvert til þess að
treysta tengslin við kirkjuna sér-
staklega innbyrðis, minna á hana út
á við og afla fjármuna til byggingar
hennar, viðhalds og fegrunar. Flest-
allir, ef ekki allir aðrir söfnuðir í
Reykjavík og víðar, hafa tekið upp
sömu siðvenju, það er kirkjudaga,
og gefist vel.
Konur úr kvenfélagi Óháða
safnaðarins hafa frá upphafi haft
veg og vanda af fjáröfluninni með
kaffisölu alla kirkjudaga með
þeirri rausn, sem rómuð er orðin
innan safnaðarins og utan.
Mikils þarf við á næstunni til
viðhalds og viðgerðar kirkjunnar,
og heiti ég nú sem prestur hennar
á safnaðarfólk að nota tækifærið
og minnast kirkju sinnar, sem mér
er manna kunnugast um að marg-
ir hafa styrkt af ráðum og dáð frá
upphafi. Ýmsir þeirra eru nú
fallnir frá og veit ég fyrir víst að
þeim þætti vænt um að eftir kirkj-
unni yrði munað þegar þeirra er
minnst. Slíkan hug báru þeir til
hennar og máttu ekki til þess
hugsa að hætt yrði að búa vel að
henni.
Á kirkjudegi vorum í fyrrahaust
messaði vinur minn séra Árelíus
Níelsson í veikindum mínum og
síðan áfram nær allan veturinn og
vil ég nota þetta tilefni og þakka
honum, þótt aldrei verði fullþakk-
að það drengskaparbragð sem
hann sýndi mér þá, kirkjunni og
söfnuðinum.
í stórum dráttum verður
dagskráin þannig á sunnudaginn í
kirkju Óháða safnaðarins og
Kirkjubæ:
Kl. 2 síðdegis hefst guðsþjónust-
an með samleik á fiðlu og orgel og
organistinn, Jónas Þórir Þórisson,
stjórnar söng kirkjukórsins. Stef-
án bóndi Jasonarson í Vorsabæ
flytur stólræðuna í kirkjunni, sá
landskunni félagsmálafrömuður.
Eftir messu, um kl. 3 hefjast síðan
hinar rómuðu kaffiveitingar
kirkjukvenfélagsins í safnaðar-
heimilinu Kirkjubæ og standa
lengi dags. Um klukkan fjögur
verður barnamyndasýning í kirkj-
unni.
Með kæri kveðju til lesenda
minna og þökk fyrir birtinguna.
Emil Björnsson.
Vetrarstarfið í
Laugarneskirkju
SUNNUDAGINN 3. október hefst
vetrarstarf Laugarnessafnaðar í
Reykjavik. Þá byrja meðal annars
barnaguðsþjónusturnar sem verða á
hverjum sunnudegi kl. 11 og al-
mennar messugjörðir verða kl. 14. í
messunni á sunnudaginn mun Sól-
veig Kjörling syngja aríu eftir F.
Hándel. Einnig verður altarisganga.
auk messugjörðanna á sunnudög-
um eru: Fyrirbænaguðsþjónustur
á þriðjudögum kl. 18.00. Síðdegis-
kaffi annan hvern föstudag kl.
14.30 með fjölbreyttri dagskrá
fyrir karla og konur. í október og
nóvember verða Biblíuskýringar á
miðvikudögum kl. 20.30 og hefjast
þær miðvikudaginn 20. október kl.
20.30 í kjallara kirkjunnar. Æsku-
lýðsfundir verða hvert þriðju-
dagskvöld kl. 20.30. Kvenfélags-
fundir eru fyrsta mánudag hvers
mánaðar. Bræðrafélagið hefur 4
fundi yfir vetrarmánuðina. Auk
starfsins í Laugarneskirkju eru
haldnar reglulegar guðsþjónustur
í Hátúnshúsinu þ.e. hjá Oryrkja-
bandalaginu, Sjálfsbjörg og deild-
um Ríkisspítalanna sem þar eru
til húsa.
Eftir messu á sunnudaginn
verður kirkjukaffi í kjallarasal
kirkjunnar á vegum Kvenfélags
Laugarnessóknar. Kvenfélagið
starfar ötullega m.a. að fjáröflun
fyrir byggingu safnaðarheimilis-
ins, en brátt fer að hylla undir
lokaátak í byggingarmálunum. Er
vonast til þess að heimilið verði
tekið í notkun á næsta ári. Nýja
safnaðarheimilið verður til sýnis
þennan sama sunnudag og mun
Þorsteinn Ólafsson, formaður
sóknarnefndar, lýsa heimilinu og
framkvæmdaáætlun næstu mán-
a^a Jón D. llróbjartsson,
sóknarprestur.
*
Asgrímssafn:
Sumarsýningu
að Ijúka
SUNNUDAGINN 3. október lýkur
sumarsýningu Ásgrímssafns sem
staðið hefur yfir undanfarna mán-
uði. Sumarsýningin er eins konar yf-
irlitssýning á verkum Ásgríms
Jónssonar og hefur verið vel sótt af
erlcndum sem innlendum gestum.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti
74, er opið yfir vetrarmánuðina
sunnudag, þriðjudag og fimmtu-
dag kl. 13.30—16.00. Aðgangur er
Þau eru nú orðin mörg árin sem
aldraðir hafa fagnað fyrstu merkjum
vetrar með því að streyma í Safnað-
arheimili Bústaðakirkju til alls kon-
ar viðfangsefna. Hefur starfið notið
mikilla vinsælda, enda er það fjöl-
breytt og leitazt við að koma til móts
við þarfir sem flestra.
Á miðvikudaginn kemur, þann
6. október verður fyrsta samveru-
stundin á þessu starfsári. Er byrj-
að kl. 2 síðdegis og næstu þrjár
stundirnar eru margs konar þætt-
ir á dagskránni. Ber þar fyrst að
nefna handavinnu og föndur, sem
bæði karlar og konur hafa haft
ánægju af að sinna, og hefur
ævinlega verið bætt við nýjum
þáttum á hverju starfsári. Guðni
organisti Guðmundsson hefur
bæði leitt fjöldasöng og komið
með fjölmarga listamenn með sér
til að skemmta gamla fólkinu.
Hermann Ragnar Stefánsson hef-
ur liðkað stirðnandi vöðva og liða-
mót með léttum æfingum og hóp-
dönsum. Sóknarpresturinn eða
einhver annar í fjarveru hans hef-
ur annazt helgistund, og öllu
starfinu stjórnar Áslaug Gísla-
dóttir vel studd af fjölmennum
hópi sjálfboðaliða. Og síðast en
ekki sízt skal minnt á það, að spil-
in hafa fengið góða hvíld í sumar
og eru því til í tuskið á ný, en
spilamennskan á sér dyggan hóp
aðdáenda. Og svo er það vitanlega
kaffi og með því eins og lengi hef-
ur þótt við hæfi, þegar góðvinir
hittast. En lengri og styttri ferða-
lög og leikhúsferðir eru líka
áformaðar að venju.
Það er því ekki að efa, að margir
leggja af stað í Bústaðakirkju á
miðvikudaginn kemur.
(Frá SafnaAarráAi BÚHtaóanóknar)
Kaffidagur
Eyfirðinga-
félagsins á
sunnudaginn
ÞAÐ ER orðin árleg hefð, að Ey-
firðingafélagið í Reykjavík hefji
vetrarstarfið á hverju hausti með
kaffideginum á Hótel Sögu, þar
sem sérstaklega er boðið eldri
Eyfirðingum á höfuðborgarsvæð-
inu og hverjum þeim, sem kann að
vera staddur í heimsókn syðra.
Kaffidagurinn verður að þessu
sinni nk. sunnudag, 3. október, í
Súlnasal Hótel Sögu og verður
húsið opnað kl. 1.30.
Á fyrri kaffidögum hefur oftast
verið opinn bazar, þar sem marg-
víslegir munir hafa verið til sölu.
JEins.verður að þessu sinni.
Fastir liðir safnaðarstarfsins _ókeypis.