Morgunblaðið - 02.10.1982, Síða 40

Morgunblaðið - 02.10.1982, Síða 40
^^^skriftar- síminn er 830 33 LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1982 ^Auglýsinga- síminn er 2 24 80 Sáttatillaga 1 farmannadeilunni samþykkt af aðilum: Farskipin láta úr höfii meö kvöldinu Samninganefndir undirmanna á farskípum og útgerðarmanna sam- þykktu sáttatillögu ríkissáttasemj- ara í kjaradeilu aðila undir hádegi i gær, en samningafundur hafði þá staðið óslitið í liðlega sólarhring. Guðlaugur l'orvaldsson, ríkis- sáttasemjari, sagði í samtali við Mbl., að staða málsins hefði verið orðin mjög tvísýn og því hefði hon- um þótt nauðsynlegt, að leggja fram formiega tillögu til lausnar málsins. Þrátt fyrir, að samninganefnd farmanna samþykkti tillögu sáttasemjara, féllst hún ekki á, að aflýsa verkfalli félagsmanna sinna, fyrr enn að lokunum alls- herjarfundi þeirra, sem haldinn verður í dag klukkan 15.00. Fyrstu skipin munu ef að líkum lætur láta úr höfn eftir kvöldmat í kvöld. Samninganefndin féllst hins vegar á, að heimila flutning skipa innan hafnar til að hægt væri að hefja losun og lestun þeirra þegar í gærdag. Sjómannafélag Reykjavíkur mun á næstu dögum og vikum láta fara fram allsherjaratkvæða- greiðslu meðal félagsmanna sinna um samninginn og því mun líða nokkur tími þar til ljóst verður hvort samningurinn verður sam- þykktur eður ei. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Mbl. aflaði sér voru báðir samningsaðilar tiltölulega óánægðir með tillöguna, en töldu, að hún væri þó skásti kosturinn. Samningsuppkastið gerir ráð fyrir nokkru meiri hækkunum, en samningur ASÍ og VSÍ gerir ráð fyrir, samkvæmt þeim upplýsing- um, sem Mbl. aflaði sér í gær- kvöldi. Þá er gert ráð fyrir breyt- ingum á reglum um vinnutíma- styttingu og frídagakerfi far- manna. Nýr saipningur undirmanna á far- skipum og útgeróarmanna undirrit- aður hjá ríkissáttasemjara í gærdag, f.v.: Guðjón Ármann Einarsson frá Vinnuveitendasambandi íslands, Guðlaugur Þorvaldsson, ríkissátta- semjari, og Guðmundur Hallvarðs- son, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur. Ljósmynd Mbl. KÖE. Bandaríkjaþing hefur samþykkt flugstöðvarféð BANDARÍSKA þingið hefur samþykkt framlengingu á gildist- íma fjárveitingarinnar til nýrrar flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli. Öldungadeildin samþykkti frum- varpið á þriðjudag og fulltrúa- deildin á miðvikudag og bíður það nú undirritunar Ronald Reagans, forseta Bandaríkjanna, til að öðlast gildi. í samþykkt þingsins felst, að þær 20 milljónir dollara, sem Bandaríkjamenn hafa sam- þykkt að verja til nýrrar flugstöðvar á Keflavíkurflug- velli, verða til reiðu fyrir ís- lensk stjórnvöld ákveði þau að hefja framkvæmdir við flug- stöðina fyrir 1. október 1983. Hinn 8. september sl. beitti Al- þýðubandalagið neitunarvaldi gegn því að þessar fram- kvæmdir yrðu hafnar nú þegar eins og Ólafur Jóhannesson, utanríkisráðherra, lagði til. Ákvað ráðherrann þá að leita eftir framlengingu hjá Banda- ríkjaþingi. Vann Marshall Brement, sendiherra Banda- ríkjanna á íslandi, að fram- gangi málsins þegar hann fylgdi frú Vigdísi Finnboga- dóttur til Washington á dögun- um. Fleiri tilmæli lágu fyrir þinginu um að framlengja gild- istíma fjárveitinga til fram- kvæmda í herstöðvum Banda- ríkjanna erlendis. Var þeim öllum hafnað. Utanríkisráöherrar NATO-landa: ölafur á óform- legan samráðs- fund í Kanada ÓLAFUR Jóhannesson utanríkis- ráðherra mun fara á ráðherrafund utanríkisráðherra NATO-ríkjanna, sem haldinn verður í Toronto í Kanada fyrrihluta októbermánaðar. Samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Ingva S. Ingvarssyni ráðuneytisstjóra í utanríkisráðu- neytinu, er hér um óformlegan samráðsfund að ræða og væri form fundarins nokkurt nýmæli. 50 þúsund amerískar konur auglýsa eftir eiginmönnum á Islandi Hjónabandsmiðlunin Mates Int- ernational í Norður-Ameríku aug- lýsir i Morgunblaðinu í dag eftir karlmönnum á aldrinum 18 til 55 ára til að kvænast bandarískum og kanadískum konum. Aðeins um- sóknum frá einhleypum karl- mönnum, sem hafa að einhverju leyti vald á enskri tungu, verður veitt móttaka. í auglýsingunni er ennfremur tekið fram, að hjónabandsmiðl- unin hafi um 50.000 konur á skrá, sem bíði eftir eiginmanni. Þær muni skrifa upp á 90 daga vega- bréfsábyrgð til Bandaríkjanna og Kanada, greiða flugfar og útvega húsnæði. Allt sem væntanlegir eiginmenn þurfa að gera, er að senda góða ljósmynd til hjóna- bandsmiðlunarinnar og stutt bréf með ýmsum persónulegum upp- lýsingum og hafa áhuga á kvon- fangi og búsetu í áðurnefndum löndum. Þá er tekið fram í auglýsing- unni, að innan sex vikna verði gefinn út bæklingur með mynd- um og upplýsingum um áhuga- menn um kvonfang og geti áhugasamir síðan valið úr öllum hóp þeirra kvenna, sem lýsa gagnkvæmum áhuga. Þá er það tekið fram í lok auglýsingarinn- ar, að hjónabandsmiðlunin óski einnig eftir að ná sambandi við einhleypar konur. Mjólkurfræðing- ar boða verkfall Mjólkurfræðingar hafa boðað verkfall frá og með föstudeginum 8. október nk. hafí samningar ekki tekizt í kjaradeilu þeirra og vinnu- veitenda, en á fundi í Félagi mjólk- urfræðinga á dögunum felldu þeir samkomulag ASI og VSÍ með öllum atkvæðum gegn einu. Að sögn Guðlaugs Þorvaldsson- ar, ríkissáttasemjara, hafa verið haldnir tveir sáttafundir með deiluaðilum að undanförnu, en ekkert hefur miðað í samkomu- lagsátt. „Mjólkurfræðingar boð- uðu síðan verkfall í gærdag, sem kemur til framkvæmda nk. föstu- dag, ef ekki hafa náðst samning- ar,“ sagði Guðlaugur Þorvaldsson, ríkissáttasemjari ennfremur. Það kom ennfremur fram hjá Guðlaugi Þorvaldssyni, ríkissátta- semjara, að fundur yrði boðaður með aðilum þegar á mánudag. Samkvæmt upplýsingum Mbl. létu forystumenn mjólkurfræð- inga í það skína í sumar, þegar ASÍ og VSÍ undirrituðu samkomu- lag sitt, að þeir myndi að öllum líkindum ganga inn í það. Hins vegar var aldrei haldinn félags- fundur hjá þeim til að fjalla um samkomulagið. Loks var haldinn fundur í haust, þar sem samkomu- lagið var, eins og áður sagði, fellt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.